Dagur - 23.12.1993, Síða 14

Dagur - 23.12.1993, Síða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 23. desember 1993 ÍÞRÓTTIR Edda Hermannsdóttir flyst búferlum til Wales: Líf mitt er helgað almemimgsíþróttum Eftir að hafa starfað að íþrótta- málum bæði á Akureyri og landsvísu í hartnær einn og hálfan áratug er Edda Her- mannsdótir íþróttakennari að flytjast af landi brott. E.t.v. er þó réttara að segja að hún hafl starfað að íþróttamálum allt sitt líf meira og minna því hún er dóttir Hermanns Sigtryggsson- ar, þess mikla íþróttafrömuðar á Akureyri. bekktust hefur Edda verið fyrir starf sitt að heilsuræktarmálum meðal ak- ureyrska kvenna en hún hefur í 12 ár staðið fyrir kvennaleik- fimi. í viðtalinu hér á eftir er stiklað á stóru yfir þann tíma sem Edda hefur starfað á Akur- eyri. Hún vióurkennir fúslega að því sem nú er að gerast hafi hana aldrei óraó fyrir, enda þurfti ástina til að draga hana frá íslandi og Akureyri. „Ég hefði aldrei trúað því að til væri svona sterkt afl og þaó skiptir ekki máli hvcrt ég hefði þurft að fara. Ég hefói farió á heimsenda ef því væri að skipta. Ég finn það núna þegar ég er að fara að fólk er mjög þakklátt. Ég sagði um daginn viö fólk sem ég var að kveðja að ég hefði haldið að ég væri eins og Akureyrar- kirkja. Hún var reist hér á Akur- eyri og hún skal þjóna sínu fólki þar til yfir lýkur. En nú er komiö að kveðjustund. Hins vegar er fullt af fólki sem mun starfa við þetta áfram. Sigurður og Halla í Vaxtarræktinni taka við leikfim- inni. Þau ætla að halda þessu í svipuóum dúr og verið hefur því þau eru fyrir með gjörólíkan hóp. Mínir kennarar halda áfram hjá þeim og það verður því vonandi svipaður andi ríkjandi áfram. Það er ánægjulegt aó þetta mannvirki sem Iþróttahöllin er skuli hýsa alla þessa ólíku starfsemi sem' þar er. Byggingin er því fyrir alla. Kvennaleikfímin Ég er búin að vera í íþróttahöllinni síðan 1987. Þar áður var ég í KA- húsinu og þar áður í Iþróttahúsinu í Laugargötu en þar byrjaði ég með þessa starfsemi árió 1981. Þetta eru því orðin 12 ár.“ Aó sögn Eddu hafa viðskiptavinir hennar verið mjög tryggir og nokkrar konur hafa veriö meó allt frá byrjun. „Aó sjálfsögðu fjölgaði mjög eftir aö ég fór upp í Höll því þá batnaði aðstaðan mjög. Það má segja að um 1986-1987 hafi verið hægt að kalla þetta umsvif og þá hætti ég að kenna í Gagnfræóa- skólanum. Fyrstu 6 árin eftir að ég útskrifaðist kenndi ég í Gagn- fræðaskólanum og var með fim- leika á kvöldin með systur minni en eftir að umsvifin fóru að aukast varð ég að hætta öllu öðru. Ég var ein af þeim fyrstu sem bauó uppá eitthvað fyrir aldurshópinn 20 ára og yfir.“ A þessum tíma hefur hún orðió vitni að miklum breytingum. „Ég cr búin að upplifa breytingarnar frá því að þetta var tískubylgja sem kom og enginn hélt að mundi endast og var kannski ekki svo mjög vandað og vel að því staðið og síðan núna eru komnar ákveðn- ar kröfur og gæði sem hafa þróast í gegnum árin. Auðvitað var oft mjög erfitt að vera menntaður íþróttakennari í þessu fagi og horfa upp á allt það fúsk sem fram fór, því þaó vantaði svo mikinn bakgrunn. Hins vegar er greinileg breyting til batnaðar upp á síðkastið, sérstaklega síðsutu 3-4 árin. Þaö er aó stórum hluta afleiðing mikilla rannsókna í Bandaríkjunum. Við sem í þessu erum getum síðan farió á nám- skeið og aflaó okkur þekkingar um hvað er aó gerast. Einnig hefur orðið hugarfars- breyting hjá almenningi og þetta er auövitað bara ein grein af mörgurn sem almenningur er far- inn að stunda. Sú leikfimi sem ég hef verió með er fyrst og fremst kvennagrein. Aður var ekkert í boði fyrir þessar konur því þær fóru ekki í hinar hefðbundnu íþróttir. Öll skipulögð starfsemi af þessum toga miðaðist við ung- linga eða karlmenn. Þegar síðan tækifærið bauðst gripu þær það fegins hendi og hertóku þessa grein. Þörfin kom berlega í ljós þegar ég byrjaði því fljótlega voru komnar 100 konur á biðlista. Ég hef hins vegar ekki misst viðskiptavini þó fleiri staöir hafi verið opnaöir í bænum því þeir hafa kannski ekki verið á sömu línu. Ég hef gert út á ákveðinn stöðugleika og veriö með jafnan og góðan hóp þó auóvitaó sé alltaf einhver hreyfing. Síðan hef ég líka verið með ýmislegt annað meö, s.s. fyrirlestra og fræðsluefni sem ég hef notað til að fara dýpra í þessa hluti. Starfað á landsvísu Edda hefur frá upphafi verió einn af forsvarsmönnum samtakanna íþróttir fyrir alla sem starfa innan ÍSÍ. „Fyrst var ég í trimmnefnd ISI í 2 ár, en nefndin hefur starfað síðan 1972. Síðan var ákeðió að stofna þessi samtök og ég fór inn í þá stjórn strax. Meóal þess sem við höfum beitt okkur fyrir er al- þjóðlegur göngudagur fyrir rúmu ári síðan og síðan Hversdagsleik- arnir sl. sumar. Að auki höfum við verið með ýmsa útgáfustarfsemi.“ Hún segir vissulega vera mikla eftirsjá í að þurfa nú að draga sig út úr þessu starfi. „Ég er auðvitað alin upp í þessum íþróttaanda og það sem ég hef tekið mér fyrir hendur oft á tíðum uppbyggingar- starf. Ég hef verið snemma á ferð- inni í því sem ég er að gera. Ég reyni því að hugsa sem svo aó nú sé mál til komið að aórir taki við. Nýtt fólk sem komið er meó ákveðna reynslu.“ Hvað stendur upp úr? Aó lokum var Edda beðin að nefna hvað stæði helst upp úr í minningunni frá þeim árum sem hún hefur starfað á Akureyri. „Þaó er kannski einkum tvennt. Fyrst og fremst er það hiö gífurlega skemmtilega starf sem ég hef haft við aó vinna með öllum þessum Skíðaganga: Opið í Kjamaskógi Vert er að minna fólk á aóstöó- I eru troðnar brautir fyrir göngu- una í Kjamaskógi, sem upplagt skíðafólk og upplýstar þegar er að notfæra sér um jólin. Þar I skyggja tekur. •4 SI. fostudag hélt Edda kveðju- tíma fyrir alla viðskiptavini sína og þá dugði ckkert minna cn stóri sal- urinn í íþróttahöllinni. Þar var glatt á hjalla þó vissulega bærðust blendnar tilfinnigar í brjósti Eddu Hermannsdóttur er hún rak enda- punktinn á 12 ára starfsemi. Mynd: Robyn. konum. Þetta hefur verið mjög gefandi og gaman. Þegar litió er til baka er gaman að hugsa sem svo aó maóur hafi kannski haft þau áhrif að einhver hafi breytt um lífsstíl, farið að hugsa um lík- amann og hugað betur að hcils- unni. Því eins og ég segi gjarnan við konurnar: Þið eigið bara þenn- an eina líkama og honum skiptið þið ekki út. Hitt varóar svo þctta almenn- ingsíþróttastarf sem þá hefur verið meira á landsvísu og starf mitt með pabba sem verió hefur mikill frumkvöðull í almenningsíþrótt- um. Mitt hjartans mál hefur verið að halda því áfram og ég veit aö þó að ég fari verða aðrir til að halda áfram.“ Hún mun þó ckki sitja auóum höndum og varla líður á löngu þar til almenningur í Wa- lcs verður farinn að njóta krafta Eddu Hermannsdóttur. Afram segist hún ætla að starfa að íþróttamálum enda sá sem dregur hana til Wales aðstoðarfram- kvæmdastjóri íþróttasambandsins þar í landi en hann heitir Andree Kcrr. „Ævi mín er helguð almenn- ingsíþróttum, að virkja fólk al- mennt í stað þess að leggja áhersju á árangur einstaklinganna. I því ætla ég að halda áfram og hef engar áhyggjur af aö ekki sé þörf fyrir mig einhversstaðar.“ Frjálsar íþróttir: Desembermót HSÞ Desembermót HSÞ í frjálsum íþróttum innanhúss var haldið að Laugum í Reykjadal um síð- ustu helgi. Mótið fór hið besta fram en keppendur voru fremur fáir þar sem veðurhorfur og færð settu strik í rcikninginn. Desembermótið markar lok árs- ins hjá HSÞ því fleiri mót verða ekki á vegum sambandsins. Unnar Vilhjálmsson var yfir- dómari mótsins en Guðrún Sig- urðardóttir mótsstjóri. Mývetningurinn Skarphéðinn Fr. Ingason sóð sig mjög vel og vann allar greinar í sínum ald- ursflokki, sveinaflokki. Hann setti m.a. héraósmet í hástökki án at- rennu, 1,55 m. I karlaflokki bar mest á Sverri Guðmundssyni, íþróttafélagi Laugaskóla, en hann vann allar greinar nema kúluvarp, þar sem Steingrímur Stefánsson, Geisla, varð hlutskarpastur en Sverrir annar. í drengjaflokki var bara keppt í 30 m hlaupi þar sem Karl Ingólfsson, Eflingu, sigraöi. I meyjaflokki skiptu Valgerður Jónsdóttir, Völsungi, og Hrönn Sigurðardóttir, Bjarma, meó sér gullverðlaununum. Hrönn vann 300 m hlaup, hástökk með og án atrennu og kúluvarp en Hrönn langstökk og þrístökk án atrennu. Gunnhildur Hinriksdóttir, Eilífi, yann allar greinar í kvennallokki nema kúluvarp, þar sem Frcydís Anna Arngrímsdóttir, Ellingu, sigraði en Gunnhildur varð í öðru sæti. Einnig var keppt í öld- ungaflokki (30 ára og eldri). Þar sigraði Sigríður Karlsdóttir, Bjarma, í 30 m hlaupi, langstökki án atrennu og þrístökki án atrennu en Freyja Ingólfsdóttir, Völsungi, í kúluvarpi. íþróttamaður Norðurlands 1993 Nafn íþróttamanns: íþróttagrein: r 2. 3. 4. 5. Nafn: Sími: Heimilisfang: Sendist til: íþróttamaður Norðurlands 1993 B.t. Dagur, Strandgötu 31,600 Akureyri Skilafrestur er til 7. janúar 1994

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.