Dagur - 22.01.1994, Side 11
Laugardagur 22. janúar 1994 - DAGUR - 11
Betri er einn fugl í hendi en tveir í
brjóstahaldara! Þannig má snúa út úr máls-
hættinum góðkunna. Annar málsháttur segir:
„Litlum fuglum lítió hreiður lætur best“ en
hvort brjóstahaldarar með skálastærö 42B
falla undir þá skilgreiningu er ekki gott að
segja. Hitt er víst að ungarnir tveir kunna
ágætlega viö sig í fiðurfylltum brjóstahöldur-
um í Basildon dýragarðinum skammt frá
Lundúnum. Krílin fundust á víðavangi og
góðhjörtuö starfsstúlka í dýragaröinum tók
aö sér aö búa þeim hreiður og ala þá upp. Að
lokum enn einn málsháttur um fugla: „Af
hreiöri má hyggja, hver fugl þar býr.“ Þá vit-
um viö þaö.
Dúettar og eínsöngur
Laugardaginn 15. janúar efndu söngkonumar
Sigríöur Gröndal, sópran, og Elísabet Waage,
mezzósópran, til tónleika á Sal Tónlistarskólans
á Akureyri. Undirleikari á píanó var Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir.
Efnisskrá tónleikanna skiptist í þrjá flokka.
Söngkonurnar tvær sungu dúetta í upphafi og
lok tónieikanna, en
einníg hvor um síg eín-
söng. Verkín, sem flutt
voru, voru eftir Johannes
Brahms, Claude De-
bussy, Henry Duparc og
Feiix Mendeissohn Bart-
holdy.
Dúettarnir, sem voru eftir Brahms í fyrra flokki
og Mendelssohn í síöara flokki, voru aö ýmsu
skemmtilega fluttir. Þó gætti þess - ekki síst í fyrri
flokknum - aö viss streita var á milli raddanna,
svo aö þær féllu ekki svo vel saman sem æski-
legt heföí mátt kalla. Víbrató raddanna skapaði
óróa, þar sem heita má að það hafi rekist á og
einnig kom sérkennilegur málmgjallshljómur í
samsöngínn, sem gætti hvaö mest í seinni flokki
dúettanna.
Elísabet Waage söng Zigeunerlieder op. 103
eftir Brahms. Flutningur söngkonunnar var um
flest festulegur og ákveðínn og raddstykur var í
góöu lagi, nema á lægstu tónum. Hins vegar
skorti nokkuð í túlkun, þannig að alleinhæfur
blær var yfir flutningnum í heild tekiö. Þá var fas
Elisabetar, fremur líflítið og gaf litlar áherslur.
Best tókst Elísabetu Waage í Lieber Gott, du we-
isst, en það féll vel aö rödd hennar og flutti hún
þaö af tilfinníngu og smekkvísi.
Sígríður Gröndal söng flokkinn Quatre Chan-
sons de Jeunesse eftir Debussy og þrjú lög eftir
Duparc. Henni lét vel að flytja þessa frönsku tón-
list og veíta henní blæ, sem var vel víö hæfi. Ein-
ungis í fáein skipti brá fýrir tóni, sem ekki var al-
veg réttur, eínkum á hæstu nótum, og hún flutti
skemmtilega hinar hartnær kóleratúrísku ka-
densur, sem koma fyrir í nokkrum Iaga De-
bussys, svo sem í Pantomine. Fas Sigríðar var
einnig líflegt en þó hóflegt, en þar eru mörk á,
sem verður að halda eigi ekki að koma til öfga.
Flest lögin söng Sigríöur fallega, en best tókst
henni í lögunum Clair de
lune og Apparítion eftir
Debussy og L'Invitation
au Voyage eftir Duparc,
sem sköruðu nokkuð
fram úr í næmum flutn-
ingi og innileika.
Undirleikur Helgu
Bryndísar Magnúsdóttur var sérlega góður. Hún
lék af miklu öryggi, svo að sem næst aldrei kom
fyrir hinn minnsti feíll. Tök hennar á stuðningi
við söngvarana voru góð og byggði hún til dæm-
is vel upp áherslur og önnur blæbrígði flutnings-
ins. Einungis má að því finna, að undirleikurinn
var litlu einu of sterkur með fyrsta flokki dúett-
anna, einkum í fýrstu tveim verkunum Weg der
Liebe I og Weg der Liebe II og þá aðallega í því
fyrmefnda.
Uppröðun sæta í Sal tónlistarskólans var með
öömm hætti en veríð hefur. Stólaröðum hafði
verið snúiö við og flytjendur voru í suöurhluta
salarins. Salurinn virðist rýmri en áöur en þó
halda betur að jafnt flytjendum sem áheyrend-
um.
Tónleikarnir voru vel sóttir og söngkonunum
tekíð með ágætum. Þær fluttu aukalag og var
það dúettinn Ég sé þig eftir Áskel Jónsson. Hann
var fallega sunginn og með því besta, sem fram
kom á tónleikunum í flokki dúetta. Lagið var því
góður Iokapunktur tónleikanna og skemmtilegt
að nýta þetta Ijúfa verk akureyrsks tónskálds í
þessu skyni.
TONLIST
Haukfir Ágústsson
skrífar
Þorrablót
Góöir sveitungar fyrr og nú!
Við blótum ærlega þorra í Laugarborg, laugardag-
inn 29. janúar kl. 20.30.
Blótsgestir komi meó troðin trogin aó vanda.
Hljómsveitin Rafael sér um sveifluna.
Miðar seldir í Blómaskálanum Vín, mið-
vikudaginn 26. og fimmtudaginn 27.
janúar milli kl. 17 og 19 báða dagana.
Nefndin.
DALVÍKURBÆR
Útboð
Dalvíkurbær óskar eftir tilboöum í smíði og upp- setningu á loftræsikerfi í sundlaugarbyggingu á Dalvík.
Útboðsgögn verða afhent á Arkitekta- stofu Hauks hf., Kaupangi, Akureyri, króna skilatryggingu. Tilboð veróa opnuð í Tæknideild fimmtudaginn 3. febrúar nk. kl. 14.00. og Verkfræði- gegn 10.000,- Dalvíkurbæjar
DALVÍKURBÆR.
Stýrimaður á
frystitogara
Annan stýrimann vantar á frystitogarann Sigurbjörgu
ÓF 1 frá Ólafsfirði, þarf að geta leyst af sem fyrsti stýri-
maður.
Umsóknir sendist til:
Magnúsar Gamalíelssonar hf., Hornbrekkuvegi 3,
625 Ólafsfiröi, fax 96-62537.
Upplýsingar gefa Svavar og eða Sigurgeir í síma 96-
62337.