Dagur - 16.02.1994, Side 12
Innlend neysluvara:
MM aukning í sölu
Samtök iðnaðarins hafa gert
könnun meðal neytendavöru-
framleiðenda innan sinna vé-
banda. Fimmtíu fyrirtæki voru í
úrtakinu og um helmingur
þeirra svaraði.
Enn einn hrossa-
ákeyrslan á
Vatnsskarði
„Mér liggur við að segja að
spurningin sé hvenær verður
banaslys af þessu. Þetta er mjög
alvariegt mál,“ sagði lögreglu-
maður á Blönduósi í gær.
Spurt var um sölu á drykkjum,
matvöru og hreinlætisvöru í nóv-
ember og desember sl. og breyt-
ingar bomar saman vió sama
tímabil árið áður. Söluaukningin
reyndist vera að meðaltali 12%
milli áranna 1992 og 1993, 20%
söluaukning er algeng og dæmi
eru um allt að 40% söluaukningu.
Þessi söluaukning á sér stað á
sama tíma og almennur samdrátt-
ur er í íslensku efnahagslífi. Sem
dæmi um ástæðu þessarar aukn-
ingar, er í frétt frá Samtökum ión-
aðarins, bent á aó mánuðina nóv-
ember og desember sl. náði átakið
„Islenskt já takk“ hámarki með
þátttöku fyrirtækja, atvinnugreina-
félaga og launaþegahreyfinga. KK
Norskar konur búscttar á Akureyri komu saman á Grcifanum til að fagna glæsilegri byrjun Norðmanna á Vetrar-
ólympíuleikunum í Lillchammcr. Hcimamenn hafa verið iðnir við að vinna til verðlauna og Norðmenn um heim all-
an hafa ríka ástæðu til að gleðjast. Mynd: Robyn.
Þarna var hann að vitna til
ákeyrslu á hross á Vatnsskarði í
fyrrakvöld. Að sögn lögreglu kast-
aðist bíllinn út af veginum og
hrossið drapst.
Þetta er hreint ekki í fyrsta
skipti sem bifreið lendir á hrossi á
Vatnsskarði og að sögn lögreglu
er lausaganga hrossa þar mikið
vandamál. Hreppsnefnd Bólstaö-
arhlíðarhrepps hefur ekki bannaó
lausagöngu búfjár og því hefur
lögreglan ekki vald til þess að
grípa í taumana að öðru leyti en
því aó biðja hrossaeigendur góð-
fúslega um að sjá til þess að
hrossin séu ekki í nálægó við
þjóðveginn. óþh
Björn Jónsson, fulltrúi í samstarfshópi um sölu á lambakjöti:
Framskilyrði að sauðflárbændur sitji
við sama borð og aðrir kjötframleiðendur
„í opnu viðskiptaumhverfi
morgundagsins á kindakjötið
litla samkeppnismöguleika
nema verulegar breytingar á
markaðsaðstæðum komi til. Á
markaði þar sem kaupendur
eru sterkari en seljendur, þar
sem framboð er meira en eftir-
Sauðárkrókur:
Landbúnaðarráðstefna og
sýning í imdirbúningi
Raunvísindastofnun Háskólans,
Rannsóknarstofnun Iandbúnað-
arins, Hóiaskóli og Kaupfélag
Skagfirðinga munu efna til ráð-
stefnu og sýningar um framtíð
íslensks landbúnaðar helgina
10.-12. júní. Ráðstefnan verður
haldin á Sauðárkróki undir
yfirskriftinni „Landbúnaður
2000 - þekking, tækni, framfar-
ir“.
Á ráðstefnunni munu sérfræð-
ingar fjalla um margvísleg mál-
efni, s.s. gripahús framtíðarinnar,
gróðurhús framtíóarinnar, fjar-
könnun og beitarstjórn, bættan
gróður, hreinni afurðir og gæða-
eftirlit, markaðsmál íslensks kjöts,
nýjungar í fiskeldistækni, ofur-
bleikjuna, tækni og skógrækt.
„I tengslum við ráðstefnuna
verður landbúnaðarsýning í
íþróttahúsinu þar sem ýmsar vörur
og tæki verða kynnt og í Hóla-
skóla veróur hestasýning og allt
sem tengist bleikjueldinu. Þá kem-
ur hinn árlegi Skeifudagur á Hól-
um inn í þetta,“ sagði Vigfús Vig-
VEÐRIÐ
Gert er ráð fyrir fremur
hægu austlægu veðri um
norðanvert landið í dag.
Bjart veróur inn til landsins
en búast má vió einhverjum
éljum á annesjum. Vægt
frost verður áfram.
fússon, ferðamálafulltrúi á Sauð-
árkróki, en hann veitir nánari upp-
lýsingar um ráðstefnuna.
Sýningarbásar í stöðluóum
stærðum verða til ráðstöfunar í
Iþróttahúsinu á Sauðárkróki og er
gert ráð fyrir að bryddað verði
upp á ýmsu til afþreyingar og
skemmtunar í tengslum við sýn-
inguna. SS
spurn, þar sem ekki er lengur
hægt að flytja umframbirgðir út
af markaðnum, þar sem verð
samkeppnisaðila er fljótandi en
verð kindakjöts fast, þar sem
kostnaður á slátur- og heildsöl-
ustigi er hærri en í öðrum kjöt-
greinum, þar sem tilhneiging í
neyslu er frá vörunni, þá getur
hvert hcilvita barn séð að fram-
tíðin er ekki björt með blóm í
haga,“ sagði Björn Jónsson,
fulltrúi úr samstarfshópi um
sölu á lambakjöti, á ráðunauta-
fundi í Reykjavík á dögunum.
I upplýsingum hans kom fram
að sölusamdrátturinn á kindakjöti
á innanlandsmarkaói hefur verið
að meðaltali 2% á ári frá verðlags-
árinu 1980/1981. Með sömu þró-
un verði sala kindakjöts komin
niður fyrir 7000 tonn um næstu
aldamót. Raunverðslækkun ann-
arra kjöttegunda og tilkoma inn-
flutnings landbúnaðarafurða geti
þó hert þennan samdrátt enn frek-
ar. Björn velti í erindi sínu upp
þeim þáttum sem geti skapað
kindakjötinu fleiri sóknarfæri í
vaxandi samkeppni á innanlands-
markaðnum.
„Frumskilyrói er að sauðfjár-
bændur sitji við sama borð og aðr-
ar kjötgreinar og að sömu leik-
reglur gildi fyrir þá og aðra.
Kindakjöt er undir opinberri fram-
leiðslustjórnun og verðlagning er
bundin á meðan aðrar kjötgreinar
hafa fijótandi verðlagningu sem
stjórnast af framboði og eftir-
spurn. Nauösynlegt er að ná fram
meiri sveigjanleika í verðlagningu
kindakjöts því annars verður það
alltaf undir í samkeppninni,“ sagði
Björn.
Kjötneyslu sagði hann að auka
mætti með nokkrum aðgerðum. I
fyrsta lagi með raunverðslækkun á
kindakjöti því buddan telji fyrst
og síðast og hún taki oft ákvörðun
fyrir neytandann þrátt fyrir vilja
hans til að gera annað. I öóru lagi
þurfi að vinna vel að upplýsinga-
miðlun um gæði og hreinleika
vörunnar til að upphefja áhrif nei-
kvæðra skilaboða síðustu misser-
Baldur EA með 80 tonn úr fyrstu veiðiferð:
Skutrennuhliðstj akkar bognuðu
og skipt verður um frystitæki
Rækjufrystitogarinn Baldur
EA-108 á Dalvík er kominn úr
fyrstu veiðiferðinni eftir að
skipið kom til landsins og var
Baldur EA-108 er hið glæsilegasta skip, en það sigldi áður undir grænlcnsk-
um fána. Mynd: GG
aflinn rúmlega 80 tonn. Snorri
Snorrason, útgerðarmaður
skipsins og skipstjóri, segir að
þessi fyrsti túr hafi gengið
stóráfallalaust en því sé ekki að
leyna að ýmislegt smávegis þurfi
að laga, m.a. flokkara í vinnslu-
sal.
Skipió er í Slippstöðinni-Odda
hf. á Akureyri til viðgerðar en
tjakkar í skutrennuhliðinu bogn-
uðu og eins verður skipt um
frystitæki fyrir blokkarrækju og
sctt um boró afkastameira tæki.
Viðgerö og breytingum verður
væntanlega lokið um næstu helgi
og vcrður þá strax haldið á rækju-
miðin norður af landinu. GG
in. „í þriðja lagi verða kjötgrein-
arnar að vinna vel og skipulega
saman að sölu og markaðsmálumj
vöruþróun og útfiutningsmálum. I
fjórða lagi þarf aö styrkja heild-
sölukerfið og breyta þannig að
það geti á eðlilegum grunni átt
viðskipti við kaupmenn og kjöt-
vinnslur. Eins og staðan er í dag
eru kaupendur sterkari og því með
ficst spilin á sinni hendi,“ sagði
Björn. JOH
Allt fyrir
gluggann
Rúllugardínur • Z-brautir
Gluggakappar
Álrimlatjöld, 40 litir
Plizzegardínur
Strimlagardínur
Ömmustangir
Kappastangir • Þrýstistangir
Plastrimlatjöld, 6 litir
Smíðum allt eftir máli
Sendum í póstkröfu
□
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23S65
Við
tökum vel á
móti ykkur
alla daga
til kl. 22.00
Byggðavegi 98
=5-