Dagur - 24.02.1994, Page 1
77, árg. Akureyri, fimmtudagur 24. febrúar 1994 38. tölubiað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Ekkert varð af togarakaupum Jökuls hf. í Kanada:
Of dýrt að koma skip-
inu í viðunandi horf
-segír framkvæmdastjóri Jökuls hf.
Stjórnendur útgerðarfyrirtækis-
ins Jökuls hf. á Raufarhöfn
héldu nýlega vestur um haf til
Kanada í þeim tilgangi að skoða
ísflsktogara, sem fyrirtækinu
stóð til boða að kaupa. Þor-
steinn OIi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf., segir
að verið sé að leita að nýjum
togara fyrir útgerðina. Sem
kunnugt er var búið að ganga
frá kaupum á 700 tonna togara í
Noregi en þá settu bankayfir-
völd í Noregi þau skilyrði fyrir
kaupunum að skipið færi ekki
til veiða í Smugunni. Að öðrum
kosti myndu öll áhvílandi lán
gjaldfalla.
Kaupverð skipsins í Kanada,
sem er 52 metra langt og 11 nretra
breitt, var aðeins um 10 milljónir
króna, en viö skoðun á því kom í
ljós að skipið var í mjög mikilli
niöurníðslu og jafnvel stór-
skemmt.
„Skipið er í eigu National Sea
útgerðarinnar en þar voru 10 önn-
ur skip sem voru búin að liggja
við bryggju í eitt ár og jafnvcl
töluvert lengur og höfðu aðeins
hlotið lágmarksumhirðu og tæp-
lega það. Vió töldum alltof dýrt að
koma togaranum í það horf sem
við vildum sjá það í. Það var
grcinilegt að viðhald á skipinu
haföi ekki verið neitt og tilskilinni
skoðun og flokkun hafði ekki ver-
ió sinnt. Við munum hins vegar
halda áfram að leita eftir nýju
skipi en vissulega höfum viö verið
að íhuga ýrnsar leióir í málinu
þrátt fyrir að þessi kaup hafi
hvorki verið talin heppileg né
skynsamleg," sagói Þorsteinn Óli
Sigurósson, framkvæmdastjóri
Jökuls hf.
Togarinn Rauðinúpur ÞH-160
er á veiðum fyrir vestan land en
nýlega var hann tekinn í slipp á
Akureyri vegna þess að leka tók
með öxli.
Rauðinúpur kemur til löndunar
unt næstu helgi en slipptakan
trullaði ekki vinnsluna, þ.e. ekki
þurfti að senda starfsfólk Fiskióju
Raufarhafnar hf. heim vegna hrá-
efnisskorts. Afli smábáta á Rauf-
arhöfn, sem allir eru á línu, hefur
verið þokkalegur að undanförnu
og hefur hann tryggt stöðuga
vinnslu hjá Fiskiðjunni sem hófst
eftir áramót. Aflinn hefur verið
allt upp í 7 tonn eftir daginn af
átta bátunr, en stærð þeirra er allt
frá 6 tonnunr og upp í 17 tonn.
Aflann hafa bátarnir fengið
inni í Þistiifirði og úti í Brún, en
þangað er unr tveggja tíma sigling
í norður frá Raufarhöfn. GG
Þorskveiðar á þurru landi.
Mynd: Robyn
Hótel KEA, Harpa og Norðurland:
Mjög vel bókað fyrir sumarið
- forsvarsmenn hótelanna eru nokkuð bjartsýnir á gott ferðaþjónustusumar
„Við erum að sigla inn í aðal-
tíma helgarferða og skíða- og
leikhúsferða og það hefur tölu-
vert verið að koma inn af bók-
unum hjá okkur. Það er mikið
kynningarátak í gangi, bæði
stórt átak sem breiður hópur
stendur að með Akureyrarbæ
og Flugleiðum og svo afmarkað-
ar kynningar, til dæmis pakki
með rútu, gistingu og Geir-
mundi,“ sagði Gunnar Karls-
son, hótelstjóri á Hótel KEA,
um útlitið í ferðaþjónustunni.
Forsvarsmenn þriggja stærstu
hótelanna á Akureyri eru nokk-
uð bjartsýnir á gott ár í ferða-
þjónustunni.
Gunnar Karlsson sagöi aó það
hefði verið á brattann aö sækja
vegna kreppunnar í þjóðfélaginu
en útlitið væri þó mun betra en í
fyrra, sem var mjög lélegt ár fyrir
marga ferðaþjónustuaðila. Um
stööuna í dag sagði hann að veit-
ingasalirnir á Hótel KEA væru
bókaðir um hvcrja helgi fyrir árs-
hátíðir alvcg l'ram í apríl og einnig
styttist í fcrmingar með viðeigandi
vcisluhöldum.
„Sumarið lítur bara vel út. Það
eru komnar traustar bókanir og
ástandið viróist heldur upp á við á
okkar helstu mörkuóum erlendis,
nerna cf til vill í Þýskalandi. Síðan
er betra útlit mcð ráðstefnur næsta
haust cn var í fyrra og mikið bók-
að í ágúst og scptember," sagði
Gunnar.
Arió 1993 var rýrt, vcðurfar
óhagstætt, kreppa í cfnahagsmál-
um einstaklinga og fyrirtækja og
erfióleikar á erlendum mörkuðum.
Gunnar sagði margt bcnda til þess
að þetta ár yrði mun betra hvaó
hótelreksturinn snerti svo og
feróaþjónustu almcnnt.
Harpa með sumarhótel
í Kjarnalundi
Guðmundur Arnason, hótelstjóri á
Hótel Hörpu, sagði að það hefði
verið reytingur af gestum að und-
anförnu og útlitið svipaó og í
fyrra. Búið væri að bóka allt gisti-
rými l'yrir sumarið en síðan ætti
eftir aó koma í ljós hvernig ferða-
skrifstofum gengi að selja upp í
þessar bókanir. Hann sagði efna-
hagsástandiö í Þýskalandi því
miður vera í lægð en þó mætti
merkja uppsveiflu á öðrum mörk-
uöum.
Hótel Harpa er með Kjarna-
lund, stórhýsi Náttúrulækningafé-
lags Akureyrar, á leigu. Yllr vet-
urinn er þar leigð út veitingaaó-
staða o.fi. en í suntar verður sum-
arhótel í Kjarnalundi með um 30
herbergjum.
„Þetta er ákjósanleg staðsetn-
ing fyrir hótel, fjarri skarkala mið-
bæjarlífsins en þó nálægt þjónust-
unni. Oll herbergin eru með baði
og það skiptir orðió mjög miklu
máli í dag. Ég efast ekki um að
gestirnir eigi eftir að kunna vel
við sig í Kjarnalundi og eins og
fram hefur komið er stefnt aó því
að hafa hótelió reyklítið, þannig
að reykingar verði ekki leyfðar á
hcrbergjum,“ sagöi Guðmundur
og hann kvaðst bjartsýnn meó
reksturinn á báðum stöóum.
Akureyri höfðar til
ferðamanna
Jón Ragnarsson, nýr eigandi Hótel
Norðurlands, segir nýtinguna hafa
verið svipaða og í fyrra og mjög
vel bókað sé í surnar. Hann kveðst
ekki þekkja vel til markaðarins á
Akureyri en segir Ijóst að staður-
inn hafi upp á margt að bjóóa og
þar eigi ferðaþjónustan að geta
dafnað. Hann nefndi átakið sent
nú er í gangi, vetrarhátíðina, og
einnig að vel virtist ætla að takast
til með að lengja ferðamannatím-
ann meó ráóstefnuhaldi á haustin.
Þá telur Jón víst að uppsveifla á
erlendum mörkuóum muni skila
sér í auknum ferðamannastraumi
til Akureyrar. SS
- þrátt fyrir að m
Frystitogarínn Arnar HU-1 frá
Skagaströnd landaði í gær
frystum flÖkum og karfa að
aflaverðmætl 45 miiljónir
króna. Skipið hefur verið á
veiðum aiit í kringuni landið og
samanstendur aflinn að mestu
af þorski en einnig veiddist ýsa,
ufsi og karfi.
Guðjón Sigtryggson, skipstjóri
á Amari HU, segir aó nóg sé af
þorski allt í kringum landið en
takmarka verði veiðamar vegna
þorskkvótastöðu skipsins, en enn
eru óvcidd nokkur hundruð tonn.
Guðjón scgir að einnig sé
rcynt að takmarka þorskveiðarnar
l sé afhonum, segir
vegna þess að nú sé mjög lágt
verð á þorski og því sé óhag-
kvæmt fyrir útgerðina aö veiða
þorsk um þcssar mundir. Ekki sc
hagkvæmt að auka sóknina aö
neinu marki í karfann því verð á
honum er líka heldur lélcgt nerna
um sé að ræða mjög stóran karfa,
en hann er orðinn mjög vand-
fúndinn. Aldamótakarfi finnst
alls ekki lengur utan einn og einn
fiskur sem slæóist með.
„Eitt er víst, aó þrátt fyrir allt
tal um að lítið sé af þorski á mið-
unum kringum landið þá mætti
miklu l'rekar bcina sjónum að
grálúðunni og karfanum því ég er
Guðjón Sigtryggsson, skipstjóri á Arnari HU-1 frá Skagaströnd
hræddur um að þar sé ljótt dæmi
á ferðinni og stofnstærð þessara
tegunda jafnvel í hættu. Auk þess
finnst nú nánast ekkert af ufsa
sem þó ætti aó vera bæði fyrir
austan og vestan land á þessum
árstíma og mjög lítið cr af honum
við suóurströndina. Hins vegar er
alls staðar þorskur. Nú er mok-
vciði fyrir vestan cn nicnn keyra
bara framhjá góðum þorskgöng-
um á Halanum og einnig er mok-
veiöi út af Noróausturlandi og
fyrir austan land.
Öll þessi vitleysa kringum
þorskinn gerir það aó vcrkum að
samanburóur á þorskveiðum í
ákveðnum mánuðuni milli ára er
hrein vitleysa því stór hluti fisk-
veiðiflotans hcfur verió frá því í
haust að foróast það að veiða
þorsk vcgna kvótalcysis þrátt fyr-
ir að nóg sé af honurn í hafinu
nánast allt í kringum landió.
Vegna þess hve lítið má veiða er
verið að flengjast um allan sjó til
þcss að lcita að öðrum tcgundum.
Vcióamar verða þá um leið miklu
dýrari, minni afkðst, og afkorna
útgerðanna verri.
Ég reikna með að vió förum í
annan skraptúr svipaóan þeim
scm vió vorunt aó koma úr, þ.e.
vió verðum á rúntinum kringum
landið. Örvar HU-21, hinn togari
Skagstrendings, er fyrir sunnan
land á svipuðu skrapi. Þaó cr all-
ur íslenski fiskveióiflotinn á
flótta um þcssar mundir,“ sagði
Guðjón Sigtryggsson, skipstjóri á
AmariHU-1. GG