Dagur - 09.03.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 09.03.1994, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 9. mars 1994 - DAGUR - 7 Markaðsstarfið þarf sínn tíma - en við eigum vissulega möguleika, segir Erlendur Garðarsson, markaðsráðgjafi, um útflutning á kjöti til Bandaríkjanna Vottun bandarískra yfirvalda um að íslenskt nauta- og lambakjöt teljist hrein vara hefur vakið verulega athygli, ekki síst á með- al bændastéttarinnar. Vegna samdráttar í framleiðslu á und- anförnum árum liafa bændur leitað möguleika til útflutnings. I>ótt með vottuninni sé stigið viðamikið skref í áttina tii að koma íslenskum kjötvörum á markað vestanhafs er of mikið sagt að björninn sé að fullu unn- inn. Eftir er að sannfæra kaup- endur um að kjöt frá Islandi sé kjötið sem þeir eigi að kaupa. Er- lendur Garðarsson í Kaupsýsl- unni hefur unnið mikið starf að þessum markaðsmálum að und- anförnu og ræddi hann við Dag um hvað fælist í þessari viður- kenningu og hver væru næstu skref að því marki að íslenskar kjötvörur verði á borðum Bandaríkjamanna. Erlendur sagði að hinn vestræni markaður gcri stöðugt auknar kröf- ur um öryggi matvæla. Mörg dæmi hafi komið upp á undanfömum ár- um þar sem þessu öryggi sé ábóta- vant. Því l'ari sá hópur sífellt vax- andi cr gcri kröl'ur um að eiga að- gang að viðurkenndum öruggum matvælum. Tvennskonar neytendahópar Erlendur sagöi að raunar sc um tvo ncytendahópa að ræða. „Annars vcgar cr fólk scm kýs svokölluð líf- rænt ræktuð matvæli. Mcð því cr átt við að sláturdýr séu alin á líf- rænt ræktuðu fóðri, þar scm notkun tilbúins áburðar er mcðal annars stillt í hóf cða hann alls ckki nýttur. Einnig gcra þessir ncytendur kröfur um sérstakan aðbúnað dýra, að þau hafi ákveðið frelsi og séu ekki alin í þröngum búrum. Eg tel að kröfur þessara neytenda byggist fremur á ákveónum lífsstíl, ákveðinni hug- sjón en hollustukröfunni eingöngu. Engu að síður mun fólki með slíkar lífsskoðanir fjölga og markaður fyrir þessar vörur því vaxa. Hinn hópurinn er fólk sem fyrst og fremst leitar eftir svokölluðum hreinum matvælum; það er að segja matvælum sem eru laus við horm- óna, leifar sýklalyfja, skordýraeitur og illgresiseyðandi efni. I þessu felst nákvæmlega sú vottun sem ís- lenskt nauta- og kindakjöt hefur nú fengið í Bandaríkjunum.“ Með þcssu merki vcrða kjötvörur frá Islandi auðkenndar í Bandaríkj- unum. Eins og sjá má er varan kynnt undir merkinu „Arctic Becf“ og síðan er tilgrcint að hún sé laus við; hormóna, lyfjaleifar, skordýra- citur og illgresiscyðandi efni. Rekja má uppruna allrar kjötvöru til sláturdýra „Til að fullnægja þeim kröfum sem hin bandaríska vottun gerir til mat- vælanna hefur verið byggt upp ákveöið kerfi varðandi framleiðslu hinna hreinu afurða. Kerfið er hannað af Landssambandi kúa- bænda, Kaupsýslunni og embætti yfirdýralæknis. Þetta kerfi virkar þannig að starfandi dýralæknar á þeim stöðum þar sem leyfi er til slátrunar á Bandaríkjamarkað er fyrir hendi; það er á Húsavík, Hvammstanga og Höfn í Homa- firði, munu fylgjast með slátrun og meðferó kjötsins. Starfandi ráðu- nautar munu lciðbeina bændum sem ætla að framleiða eftir þessu kerfi um á hvem hátt þeir verða að hirða og umgangast sláturdýrin á vaxtarskeiði. Hvert dýr verður merkt þannig aó unnt sé að rekja uppruna neysluvörunnar allt til cnda. Kaupandi vestur í Bandaríkj- unum getur því, ef hann óskar þcss, fengiö upplýsingar um hvaðan sú vara sem hann kaupir kemur, jafn- vcl á hvaða sveitabæ á Islandi hún cr framleidd.“ Varóandi fúkkalyfin sagði Er- lcndur að ef gefa þurfi tilteknu dýri lyf vegna sjúkleika þá verði að merkja þá skepnu sérstaklega og gæta þess að kjöt af henni fari ekki á þennan markað, þar sem mjög dýrt spaug sé að senda frá sér kjöt scm ekki stenst allar kröfur til hins ýtrasta. „Ef upp kemst um svik vcrður viðkomandi framleiðandi sviptur rétti til aó selja á Banda- ríkjamarkað um alla framtíð og slík atvik myndu einnig hafa óþægilcg- ar aflciðingar fyrir íslenska fram- lciöcndur sem hci!d.“ Erlendur Garðarsson. Ekki nóg að varan komist í hillur Erlendur Garðarsson sagði að þótt hin bandaríska vottun sé vissulega mikilvægt skref í átt til útflutnings á landbúnaðarafurðum þá sé langt frá því að bjöminn sé unninn. „Með vottuninni hafa aukist líkur á að við gctum opnað okkur leið að hilluplássi í vcrslunum í Bandaríkj- unum en þar með er ekki öll sagan sögð. Þótt varan sé komin inn í landið og í hillur verslana er ekki búiö að selja hana. Hún er ekki komin á borð ncytenda. Þar liggur næsta vcrkefni scm þarf að fást vió; þaó er aö sannfæra neytendur um aö íslcnska kjötið, sem kynnt er undir vörumerkinu Arctic Beef, sé cinmitt kjötið scm þeir eigi að kaupa. I Bandaríkjunum fer mark- aðs- og sölustarfsemi aö nokkru leyti fram með þeim hætti að selj- andi verður sjálfur að annast sölu- starf inni í verslunum. Mikið starf er því enn óunnið og gatan fram- undan liggur nokkuð upp í móti þótt ég sé bjartsýnn og telji að okk- ur muni takast að vinna markaði þama. En þrátt fyrir bjartsýni og sannfæringu um að við séum að vinna að réttu marki þá verðum við einnig að gera okkur grein fyrir því að þctta tekur nokkum tíma - jafn- vel nokkur ár áður en um verulegt útflutningsmagn og hátt skilaverð verður að ræða. Þá tel ég gleðiefni þann skilning sem komið hefur fram hjá landbúnaðarráðherra varð- andi þessi mál og þá áherslu scm hann leggur á að að þeim verði unnið. Þetta segir manni að hið op- inbera kerfi hefur tekið fljótt við sér og er skilnings að vænta af þess hálfu.“ * Oþolinmæði eðlileg við núverandi aðstæður Erlendur kvaðst skilja að nokkrar óþolinmæði gæti á meðal bænda um hver árangur verði af þessu markaðsstarfi. „Bændur hafa þurft að draga framleiðslu sína verulega saman að undanförnu og margir framleiða nú mun minna en þeir hafa aðstæður til. Það er sárt fyrir duglega og framsýna menn að geta ekki nýtt aðstæður sínar til starfa vegna markaðsmála. Menn horfa því eðlilega til allra möguleika er skapast geta til útflutnings. En mið- að við framleiðsluaðstæður hér á landi þá eigum ótvíræða möguleika til útllutnings á kjöti í ljósi vaxandi áhuga og krafna um öryggi mat- væla.“ ÞI Miðstöð fólks í atvinnuleit: Er unnt að endurvekja heimilisiðnað á íslandi? Nú stendur yfir kirkjuvika í Ak- ureyrarkirkju og er þema henn- ar tengt ári fjölskyldunnar og fjölskylduandinn mun einnig svífa yfir vötnum í Miðstöð fólks í atvinnulcit í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í dag. Gestur á samverustundinni verður Lene Zachariassen, bóndakona úr Svarfaöardal, svo og Þráinn Karlsson, leikari. Lcnc er norsk að uppruna og þekkt l’yrir að endurvekja ýmis konar gamalt handverk og j’önrul vinnubrögó, scm ficstum Islcnd- ingum cru nú týnd og glcyrnd. A vinnustofu sinni hefur hún unnið marga góða gripi, föt og listmuni scm hafa vakið athygli og hún Hinn hefðbundni Bólumarkaö- ur verður haldinn nk. laugar- dag, 12. mars, kl. 11-15. Þar verða m.a. á boðstólum prjóna- vörur, veislubakkar, keramik, postulín, skartgripir og margt fleira. Nú fcr að styttast í páskana og af því tilefni veróur að þessu sinni efnt til kökubasars á Bólumarkaði. Einstaklingum og félagasamtök- mun scgja frá og kynna. Einnig mun lcikarinn góókunni, Þráinn Karlsson, Icggja sitt af mörkum til að hrcssa upp á andann og skapa glaða og góða „fjölskyldustund“, cins og það cr orðað í fréttatil- kynningu frá Mióstöð fólks í at- vinnulcit. Lcnc byggir fyrst og l'rcmst á gamla íslcnska handvcrkinu cn hcl'ur lagað þaó að nútímanum. Hrácfnið cr það sem til fcllur af hcstum, kindum og geitum auk fiðunnar af hinni innfluttu angóra- kanínu. Þá hefur Lene spunniö mannshár og gert úr því fallega gripi og cnnfrcmur glímt viö skinn af ýmsum gerðum. I tilefni kirkjuvikunnar vcrður sérstaklega vandað til veitinganna um gcl'st kostur á að koma með brauð og kökur. A laugardaginn verður cinnig cfnt til fióamarkaóar og er þctta tilvalið tækifæri fyrir fólk að taka til í geymslum og fataskápum. Fólk er hvatt til þess að koma á laugardag og skapa ekta markaðs- stemmningu. Upplýsingar og borðapantanir hjá Beggu (27075) Og Eygló (27029). (Fréllalilkynning) í Miöstöðinni í dag. Ýmsar lil- kynningar verða einnig á dagskrá og cru allir sem nú eru án atvinnu og þcir scm hafa sérstakan áhuga á kynningarclninu hvattir til að mæta. SS Kirkjuvika i i úr Ólafsfirði Séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur Olafsfirðinga, prédikar í föstumessu í Akur- eyrarkirkju í kvöld kl. 20.30. Kór Ólafsfjarðarkirkju syngur undir stjórn Jakobs Kolosow- sky. Meðhjálpari er Björn Dúa- son. Bæjarbúar eru hvattir til að koma í föstumessuna í kvöld og taka vel á móti góóum gesturn úr Ólafsllrði. Ekki síst eru brottfiuttir Ólafsfiröingar hvattir til að koma. (Frétlatilkynning) Kökubasará Bólumarkaði Höfum opnað trésmiðju aö Óseyri 1a þar sem við leggjum sérstaka áherslu á vandaða smíði innréttinga og hurða. Trésmiðjon fllfo hf. "> Óset/ri 1q 'i 603 flkureyri Sími 96 12977 ' Fox 96 12978 Innréttingar og hurðir Hestamenn! Látum ekki aka á okkur í skammdeginu - notum ENDURSKINSMERKI HESTAMANNAFÉLAGID LÉTTIR __________ Stotnaö S nóv 192$ POBo«348 - 602 Akuioyr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.