Dagur - 08.04.1994, Page 11
IÞROTTIR
Föstudagur 8. apríl 1994 - DAGUR - 11
HALLDÓR ARINBJARNARSON
Akureyrarmót í handbolta:
KA meistari í meistaraflokki
W T\
'Ld iWNF 'yrmfmn \
KA varð í fyrrakvöld Akureyrarmeistari í handbulta í meistaraflokki karla þegar liöið bar sigurorð af Þór með 22
mörkum gegn 20 í síðari leik liðanna. Félögin áttust einnig við í fyrri leik í old-boys flokki og þar sigraöi KA cinnig,
13:9.1.cikur meistaraflokksliðanna var ekki mikið fyrir augað og helst að góð markvarsla beggja mcgin yljaði áhorf-
endum. Á myndinni má sjá Akureyrarmeistarana 1994. Efri röð f.v.: Árni Stefánsson, liðsstjóri, Erlendur Stefáns-
son, Þorvaldur Þorvaldsson, Erlingur Kristjánsson, fyrirliði, Arnar Sveinsson, Helgi Arason, Lcó Örn Þorleifsson og
Atli Þór Samúelsson. Neðri röð f.v.: Valur Arnarson, Valdimar Grímsson, Sigmar Þröstur Óskarsson, Björn Björns-
son, Ármann Sigurvinsson, Óskar B. Óskarsson og Jóhann G. Jóhannsson. Mynd: Haiidór.
Úrslitakeppnin í blaki:
KAúrleik
Karla- og kvennalið KA í blaki
hafa bæði lokið þátttöku sinni á
íslandsmótinu á þcssum vetri.
Liðin töpuðu lcikjum sínum í
fyrrakvöld og höfðu þar með
bæði tapaö tvívegis. Karlamir
spiluðu við HK í Digranesi og
töpuðu 3:0 og sömu tölur voru í
leik KA og Víkings í
kvcnnaflokki. Um íslandsmcist-
aratitilinn í karlaflokki leika HK
og Þróttur Reykjavtk en Víking-
ur og ÍS eða Þróttur Nes. í
kvennaflokki.
Knattspyrna, 1. deild:
Breyting á mótaskrá
Útlit er fyrir breytingar á dag-
setningu fyrstu umferðar 1.
deildar karla í knattspyrnu í
vor. Skv. mótaskrá átti keppni
að hefjast fimmtudaginn 19. maí
en nú hefur verið ákveðið að
leika vináttulandsleik við Bóliv-
íu á Laugardalsvelli þennan
dag.
Geir Þorsteinsson, hjá móta-
nefnd KSI, sagði unnið að því
þessa dagana að finna lausn og
bjóst við aö hún lægi fyrir öðru
hvcrju við helgina. Spurningin er
því ckki hvort breytingar verða
geróar á mótaskrá heldur hverjar
þær verða. Meóal þess sem rætt
hefur verið um er að mótinu
seinki um eina umferð þ.e. að 1.
umferð hefjist mánudaginn 23.
maí þcgar 2. umferð átti að fara
fram.
Hlíðaríjall um helgina:
Opna Pro Kennex mótið í badminton:
Öruggt hjá Ólöfu
- þrefaldur sigur Sigfúsar í öðlingaflokki
í síðustu viku var greint frá úr-
slitum í meistaraflokki á Opna
, Pro Kennex mótinu í badmin-
ton, sem fram fór í íþróttahöll-
inni á Akureyri helgina fyrir
páska. Eins og þar kom fram þá
tókst mótið afar vel og fjöldi að-
komufólks hefur aldrei verið
meiri, þau 5 skipti sem mótið
hefur verið haldið. Að sögn
mótshaldara, Einars Jóns Ein-
arssonar, þá mættu heimamenn
hins vegar vera duglegri við að
taka þátt.
Bróðurpartur vinningshafa kom
úr TBR cnda keppnissveit fclags-
ins bæði fjölmenn og öflug. Ein
gullverölaun komu í hlut Akureyr-
inga en þau vann Olöf G. Ólafs-
dóttir í einliðalcik kvenna í B-
flokki. Hún sigraði mjög örugg-
lega og í úrslitaviðureigninni vann
hún andstæðing sinn m.a. 11:0.
Hér á cftir fylgja úrslit í A-, B- og
öólingallokki.
A-flokkur:
I cinlióaleik sigraði Svcinn Logi
Sölvason, TBR, fólaga sinn Har-
ald Guðmundsson 15:11 og 15:7.
Hjá konunum sigraði Birna Guö-
bjartsdóttir, ÍA, Margréti Dan Þór-
isdóttur, TBR, í úrslitum 11:7 og
11:8. Erla Hafsteinsdóttir og
Magnea Magnúsdóttir, TBR sigr-
uóu Birnu Guöbjartsdóttur og Ir-
cnu Óskarsdóttur, ÍA, 15:13 og
15:5 í úrslitum tvíliðaleiks kvenna
og hjá körlunum reyndust sterk-
astir þcir Andri Stefánsson, Vík-
ingi, og Steinar Petersen TBR.
Þeir sigruöu Björn Jónsson og
Svein Loga Sölvason , TBR, 15:5
og 15:11. í tvenndarleiknum
lögóu Magnea og Andri þau Mar-
gréti Dan og Harald Guðmunds-
Son, 15:6 og 18:15 eftir að Mar-
grét og Haraldur höföu unnið eina
lotu 15:10.
B-flokkur:
John Grant, UMFK, þurlti lítió að
hafa lyrir sigrinum í einliðaleik. í
úrslitum átti hann að keppa vió
Þorkel Mána Pétursson, TBA,
sem gaf leikinn. I kvennaflokki
sigraði Ólöf G. Ólafsdóttir, TBA,
scm l'yrr segir í úrslitum. Hún
lagði Hrund Guðmundsdóttur,
TBR, 11:0 og 11:7. Hrund náði í
gull í tvíliðalcik ásamt Hclgu B.
Björnsdóttur, TBR, cn þær sigr-
uðu Gunnhildi Stcfánsdóttur og
Sigríði Rut Siguróardóttur, 15:0
og 15:5. Helga var aftur á ferð í
tvenndarleiknunr þar scm hún,
ásamt Gunnari Kristjánssyni,
TBR, sigraói Ólöfu G. Ólafsdóttur
og Einar Jón Einarsson, TBA,
15:2 og 15:11. í tvíliðaleik karla
sigruðu Agúst Eiríksson og Karl
Tómasson, TBR, Gunnar Krist-
jánsson og Kjartan Birgisson,
TBR, 15:6 og 15:7.
Öölingaflokkur:
I öðlingaflokki, 40 ára og eldri,
var aðeins kcppt í karlaflokki en
til stcndur að kcppa cinnig í
kvennafiokki á næsta ári. Raunar
var kcppt í tvenndarleik í þctta
sinn og þar koma konur að sjálf-
spgðu viö sögu. Sigfús Ægir
Árnason, TBR, vann Gunnar.
Bollason, TBR, í úrslitum cinliða-
leiksins, 15; 12 og 15:8. Þeir
kepptu saman í tvcnndarleik og
sigruðu Hauk Jóhannsson og
Svein B. Sveinsson, TBA, í úrslit-
um, 15:4 og 15:2. Sigfús varenná
fcrð í tvcnndarlciknum og náði í
3. gullverðlaun sín, í þctta sinn
ásamt Vildísi K. Guðmundsdóttur
cr þau sigruðu Gunnar Bollason
og Sigríði M. Jónsdóttur, 15:11 og
15:9, en þau síðarncfndu unnu
eina lotu 15:7.
Mótinu var slitið meó vcglegu
lokahófi í golfskálanum aó Jaðri
þar sem margt var til garnans gert.
Tvö göngumót
Um hclgina fara fram tvö
skíöagöngumót á vegum SRA við
Gönguhúsiö í Hlíðarfjalli. Á morg-
un, laugardag, vcrður Akurcyrar-
mót í öllum flokkum. Gengið er
með hcfóbundinni aðferð og hefja
12 ára og yngri keppni kl. 13.00 og
13 ára og cldri klukkustund síðar.
Á sunnudag fcr fram Þórsmót í
göngu. Keppt verður í öllum ald-
ursflokkum og er mótió ölium op-
ið. Gengið er með frjálsri aðferð.
Fyrirkomulag er hið sama og dag-
inn áður, 12 ára o.y. byrja kl. 13.00
og 13 ára o.e. kl. 14.00. Verðlauna-
afhcnding veröur að móti loknu.
Hlíðarfjall, skíði 12 ára og yngri:
Brynjumót í stórsvigi
Á morgun, Iaugardag, fer fram
árlegt Brynjumót í Hlíðarfjaili.
Um er að ræða stórsvigsmót hjá
12 ára og yngri og er þetta næst
fjölmennasta skíöamót ársins í
Hlíðarfjalli, næst á eftir Andrés-
ar Andar leikunum. Keppendur
verða um 300 talsins.
Það er kl. 11.00 á morgun sem
fyrsti kcppandi vcrður ræstur og
síðan hver af öðrum. Keppt er í
þrcmur flokkum, 8 ára og yngri,
9-10 ára og 11-12 ára. Kcppcndur
koma frá Akurcyri, Dalvík, Olafs-
firði, Húsavík og Kópavogi. Mót-
ið hefur nú verið haldió í nokkur
ár og cr ágætis „generalprufa" fyr-
ir Andrésar Andar Icikana, sem
fram fara 20.-23. þessa mánaðar.
Verslunin Brynja gefur verðlaun á
mótið.
Alþjóðleg skíðamót á Akureyri og Dalvík:
Einn sterkasti stórsvigs-
maður heims í Hlíðarfjalli
- flest okkar besta skíðafólk einnig með
Nú standa fyrir dyrum alþjóð-
leg skíðamót hérlendis, svo-
kölluð Fis-mót. Upphaflega átti
að keppa t Reykjavík, á fsa-
firði og Akureyri, en eftir hina
hörmulegu atburði á ísafirði
var að sjálfsögðu ekki hægt að
keppa þar. Þess í stað verður
keppt á Dalvík. Meðal þátttak-
enda á tveimur stórsvigsmót-
um á Akureyri að viku liðinni
verður einn sterkasti stórsvigs-
maður heims, Fredrik Nyberg.
Mótaröóin hefst í Bláfjöllum
um þessa helgi og þar veröur
keppt í svigi. Síðan var á áætlun
að keppa á ísafirói um miðja
næstu viku cn þcss í stað verður
keppt á Dalvík. Síðdegis í gær lá
ckki fyrir hvort kcppt vcrður í
svigi eða stórsvigi en um cr aó
ræða eitt mót, scm fram fer nk.
miðvikudag, 13. apríl. Mótaröð-
inni lýkur á Akureyri að viku lió-
inni með tveimur stórsvigsmót-
um á föstudag og laugardag. Þar
vcröur meðal þátttakenda Fredrik
Nyberg frá Svíðþjóð.
Nyberg er meöal sterkustu
stórsvigsmanna heims, 25 ára
gamall frá Sundsvall. Á þessum
vcu-i sigraði hann á tvcimur
Heimsbikarmótum í stórsvigi og
endaói í 4. sæti í Heimsbikar-
keppninni samanlagt. Hann er
með 0,4 Fis-styrkleikastig í stór-
svigi og með þátttöku hans verð-
ur mótið í Hlíðaíjalli mun sterk-
ara. Nyberg kemur hingað vegna
kunningsskapar við Olov Vik-
berg, skíóaþjálfara hjá KR, sem í
fyrra var á Dalvík og með stuðn-
ingi SRA og flciri aðila varð
þátttaka hans að vcrulcika.
Flest okkar besta skíðafólk
vcróur mcðal þátttakenda á þcss-
um mótum. Ovissa er að vísu
meö Ástu Halldósdóttur, en Vil-
helm Þorsteinsson frá Akureyri
vcrður mcð og þrcfaldur íslands-
meistari í alpagreinum, Kristinn
Bjömsson frá Ólafsfirði, kemur
til landsins og tekur þátt í stór-
svigsmótunum i Hlíóarfjalli.
íþróttir
helgarinnar
HANDBOLTI:
Laugardagur:
Akureyrarmót kv. í KA-húsinu
SKÍÐI - Hlíðarfjall:
Alpagreinar:
Laugardagur:
Brynjuniót í stórsvigi kl. 11.00
Ganga:
Laugadargur:
Akureyrarmót kl. 13.00og 14.00
Sunnudagur:
Þórsmót (opið) kl. 13.00 og 14.00
Tröppuþrek
Ný námskeið hefjast
mánudaginn 11. apríl.
Lokaðir kvenna og
karlatímar.
Nýir pallar.
4 vikna námskeið
kr. 3.000.
+ 10 tíma ljósakort
kr. 4.500.
Hamar
Sími 12080.