Dagur - 13.04.1994, Blaðsíða 1
Umræða í bæjarstjórn Akureyrar í gær:
Skandia
Iifandi samkeppni
W - lœgri iðgjöld
Geislagötu 12 • Sími 12222
77. árg. Akureyri, miðvikudagur 13. apríl 1994 69. tölublað
Hafa áhyggjur af
áfengisneyslu unglinga
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar í gær vakti Valgerður Hrólfs-
dóttir (D) athygli á bókun í fé-
lagsmálaráði frá 6. apríl sl. þar
sem lýst er áhyggjum yfir áfeng-
isneyslu unglinga á grunnskóla-
aldri á Akureyri.
Á þennan fund félagsmálaráós
6. apríl sl. komu fulltrúar forcldra-
ráós Gagnfræðaskóla Akureyrar
og geróu félagsmálaráði grein fyr-
ir áhyggjum sínum af ástandinu í
miðbæ Akureyrar um helgar,
áfengisneyslu unglinga á grunn-
skólaaldri og hvernig þeir verói
sér úti um áfengi. I bókun félags-
málaráós um máíió segir aó ráóiö
taki hcilshugar undir þessar
áhyggjur og muni óska eftir aó
fulltrúar lögreglunnar á Akureyri
komi á fund félagsmálaráðs til
viðræðna um hvernig rnegi bregð-
ast vió þessum vttnda.
Valgeróur Hrólfsdóttir sagöi á
bæjarstjórnarfundi í gær aó for-
eldrar verói aö vera meðvitaóir
um þennan vanda. „Þetta er mál
sem brennur á okkur öllum - aó ég
tali ekki um á Ári fjölskyldunnar,"
sagói Valgeröur.
Kolbrún Þormóösdóttir (B) tók
undir orð Valgeröar og lagði
áherslu á forvarnaþáttinn. Sigríður
Stefánsdóttir (G) sagði aö þessi
mál hafi á undanförnum árum oft
komið inn á borð bæjaryfirvalda
og ljóst væri að menn mættu ekki
sofna á verðinum. Sigríður lýsti
ánægju með starf foreldrafélaga,
en hún sagðist tclja lögreglu of
lina við eftirlitsstörf. Gísli Bragi
Hjartarson (A) tók undir orð Sig-
ríðar varóandi löggæsluna. Hann
sagóist stundum hafa á tilfinning-
unni að lögreglan væri ekki með-
vituð um það sem væri aó gerast í
mióbænum um helgar. Gísli Bragi
sagói að forvarnastarfið væri afar
mikilvægur þáttur og einnig
minnti hann á mikilvægt starf
íþróttalelaganna.
Þórarinn E. Sveinsson (B)
sagóist fagna því að þessi mál
yrðu skoóuð og mikilvægt væri að
forstöðumaður Dynheima og
íþrótta- og tómstundafulltrúi
kæmu að þeirri umræóu. óþh
Vorleikur.
Mynd: Robyn.
InnQ arðarrækjuveiði að ljúka á Húnaflóa:
Góð úthafsrækjuveiði á Skagafjarðar-
dýpi og vestur af Grímsey
Líkur eru taldar á því að á
þessu ári takist í fyrsta skipti til
margra ára að veiða það rækju-
magn sem leyft er að veiða á
yfirstandandi fiskveiðitímabili
en samkvæmt tillögum Haf-
rannsóknastofununar er leyft að
veiða 40 þúsund tonn af úthafs-
rækju af öðrum miðum en Do-
hrnbanka auk þess sem all-
nokkrar veiðiheimildir eru
fluttar milli ára. Innfjarðar-
rækjuveiði á Húnaflóa er að
Ijúka og er langt komin á
Skagafirði, Skjálfanda og Öxar-
firði en alls er Ieyft að veiða rúm
3.000 tonn á þessum svæðum.
Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpudisk-
framleiðenda, segir að undanfarin
ár hafi rækjuveiði oftast dottið
nióur í júnímánuði og því cru lík-
ur á því aö veiði þurfi að ganga
Leðuriðjan Tera á Grenivík:
Hefur gert tilboð í
hönnun á mokkafatnaði
- stefnt að því að bæta við starfsfólki
Leðuriðjan Tera á Grenivík hef-
ur gert tilboð í hönnun á
mokkafatnaði fyrir Rússlands-
markað. Tilboðið er komiö í
gegnum fyrirtækið KARIS í
Mosfellsbæ sem annast meðal
annars útflutning til Rússlands.
Katrín Dóra Þorstcinsdóttir hjá
Tcru sagði í samtali við Dag að nú
væri bcðið eftir svörum vió tilboð-
inu en ef því vcrði tekið sé um
nokkurra vikna vinnu að ræða fyr-
ir leðuriójuna. Hún kvaðst vonast
til að fá þetta verkefni því það gefi
þeim tækifæri til að fara meira út í
hönnun á mokkafatnaði en Tera
hel'ur aó mestu unnið í skinn. Nú
eru eingöngu frantleidd mokka-
skinn í landinu og því sjálfgefið
aö hefja framleiðslu á mokkaflík-
urn en þær gefa einnig meiri
möguleika á fjöldaframleiðslu en
skinnin. „Vió höfunt l'yrst og
fremst verið að sérsauma flíkur en
með tilkomu framleiðslu á
mokkafatnaði opnast okkur nýir
möguleikar hvað framleiðsluna
varðar. Við vinnum hér tvær eins
og er en ég geri ráð fyrir því að
þriðja manneskjan hefji störf hér
bráðlega. Von okkar er hins vegar
sú að við getum gert þetta aö
fimm manna vinnustað og aukast
líkur á því ef okkur tekst að hefja
framleiðslu á mokkafatnaði,“
sagði Katrín Dóra. ÞI
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir og Anna S. Ingólfsdóttir að störfum í leðuriðj-
Unni Teru. Mynd: ÞI
vcl til þess að það takist aó veiða
upp í allar heimildir. Pétur segist
óttast að kvótaverð fari upp úr
öllu valdi þegar líöa tekur fram á
vor því margir selji ekki nú til
þess að ciga kvóta til sölu þegar
söluverðió er hæst. Hugmyndir
um verð á kvóta séu aftur á móti
mjög óraunhæfar en nefndar hafa
verið tölur allt upp í 17 kr/kg.
Rækjubátarnir hafa verið aó fá 80
til 83 kr/kg hjá þeim rækjuverk-
smiðjum sem ekki leggja til net
eða aóra þjónustu viö bátana, og
getur verðlag á kvóta varla orðió
hærra ef einhver arður á að verða
af veiðunum.
Aðalfundur Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda veróur
haldinn í Reykjavík 29. apríl nk.
Hjá Sæunni hf. á Blönduósi er
verið að vinna innljarðarrækju úr
Húnaflóa cn hún er mjög smá, eða
allt að 440 stk/kg en þeir bátar
sem leggja upp á Blönduósi eiga
eltir innan við 10 tonn og því er
innfjarðarrækjuvcióinni alveg að
ljúka. Vinnslu cr lokió á Hólma-
vík og Drangsnesi og sáralítið eft-
ir á Hvammstanga og Skaga-
strönd. Þrír bátar eru á úthafs-
rækjuvciðum og leggja aflann upp
á Blönduósi, en þeir hafa aðallega
verið vestur af Grímsey og á
Skagafjaróardýpi. Aflinn hefur
verið allt upp í 20 tonn eftir 5
daga útivist en nokkur ótíð að
undanförnu hefur eitthvað dregió
úr aflamagni. GG
Bein í trolli
Mánabergsins
- send til rannsóknar
Frystitogarinn Mánaberg OF-
42 landaði á mánudagskvöld í
Ólafsfirði og einnig var lögregl-
unni á staðnum aíhentur beina-
fundur.
Beinin komu upp í trollinu 22.
mars sl. Talið er að beinin, sem
eru hluti hryggjar og rifbein, séu
af manni, en þau verða send til
rannsóknar hjá rannsóknarlögregl-
unni í Reykjavík. GG
Fangelsisdómur
vegna Ijársvika
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur dæmt 21 árs gamla
konu á Akureyri í 5 mánaða
fangelsi skilorðsbundið í 3 ár
vegna fjársvika.
I ákæruskjali er konunni annars
vegar gefið að sök að hafa haft 35
þúsund krónur út úr Pósti og síma
með því að símsenda pcninga
gegn framvísun tveggja inni-
stæðulausra tékka. Hins vegar var
konan ákærð fyrir að hafa ásamt
tveim félögum sínum gist og notið
veitinga og annarrar þjónustu en
síðan látið sig hverfa af Friendly
Hotel Österport í Kaupmanna-
höfn. Heildarkrafa hótelsins nam
um 15,5 þúsund dönskum krónum
(nálægt 160 þúsund ísl. krónum).
Umrædd kona hefur áður kom-
ið við sögu dómskerfisins og
fengið á sig þrjá dórna, tvo árið
1992 og einn árið 1993.
Auk fangelsisdóms var konan
dæmd til þess að greiða hótelinu í
Kaupmannahöfn rífiega 90 þús-
und krónur og 20 þúsund krónur í
málsvarnarlaun. óþh