Dagur - 13.04.1994, Page 12

Dagur - 13.04.1994, Page 12
,11 ■■■ REGNgOGA FRAMKOLLUN Hafnarstræti 106 • Sími 27422 Fulltrúar á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar hlýða á skýrslu formanns. Á innfclldu myndinni cr Pétur Hclgason, bóndi á Hranastöðum og formaður búnaðarsambandsins í ræðustól. Myndir: ÞI Hrísey: Fjórar gyltur hafa gotið alls 42 grísum Fjórar gyltur hafa gotið í Ein- angrunarstöð Svínaræktarfélags Islands í Hrísey sem tók til starfa fyrr í vetur. Fluttar voru inn 10 gyltur frá Noregi sem komu í tveimur ferðum og á að- eins ein gylta úr fyrri ferðinni eftir að gjóta. Fyrsta gyltan gaut 24. mars. sl. en reiknað er með goti hjá þeirri fimmtu í dag. Næsta got er fært til bókar 24. apríl nk. en fjórar þær síóustu gjóta ekki fyrr en kringum 25. maí nk. Kristinn Arnason, fram- kvæmdastjóri Einangrunarstöðv- arinnar, segist vera þokkalega ánægóur mcó frjósemina en sam- tals eru grísirnir orönir 42 talsins. Kristinn segir aó á got sem eru Aðalfundur Búnaðarsambands EyjaQarðar haldinn í gær: Bændur vita ekki hvort þeir eru aðilar að afleysingaþjónustunni Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar var haldinn í Gamla skólahúsinu á Grenivík í gær. í máli Péturs Helgasonar, formanns sambandsins, kom meðal annars fram að ekki hafi verið gerð úttekt á hagkvæmni þess að leggja afleysingaþjón- ustu bænda niður en skorað var á stjórn Búnaðarsambandsins að láta slíka könnun fara fram á síðasta aðalfundi. A hinn bóginn hafi málefni af- leysingaþjónustunnar veriö mjög til umræðu á árinu og mjólkur- framleiöendur fengiö bréf á síö- asta hausti þar sem þeim hafi ver- ið gefinn kostur á aö segja sig frá þessari þjónustu og yrði gjaldtöku þá hætt hjá viðkomandi bændum. Sigurgeir Hreinsson sagöi aö margir bændur væru í óvissu um hvort þeir væru enn aóilar aö af- leysingaþjónustunni þar sem þeir hafi svaraö bréfinu og sagt sig frá þátttöku í henni en þrátt fyrir þaö væru gjöld vegna hennar enn inn- heimthjá viðkomandi aöilum. Þá hefur Búnaðarsamband Eyjafjarðar aö undanförnu unniö Hrísey - Grímsey: Áætlun Sæfara óbreytt í sumar Ferjuferðir tóku við rekstri eyjaferjunnar Sæfara 19. apríl 1993 en þá var gerður samning- ur til tveggja ára um rekstur ferjunnar við Eystein Þ. Yngva- son, eiganda Ferjuferða. Ferjan er í áætlun milli Akureyrar, Hríseyjar, Dalvíkur og Gríms- eyjar. Reksturinn er að taka á sig nokkuð fasta mynd en útbúa þurfti m.a. nýtt innheimtukerfi en innheimta þarf vörugjöld þar sem ekki reiknast vörugjöld of- an á og til þess hefur fyrirtækið orðið að koma upp sérstöku tölvukerfi. Ekki veróur bryddaö upp á neinum nýjungum í sumaráætlun ferjunnar og Ijóst að Arncs, ferja í VEÐRIÐ Norðan áttin stóð skammt við að þessu sinni því með morgninum á að snúast til suðlægra átta á Norðurlandi. Spáð er hlýnandi veðri og í dag verður úrkomulítió um vestanverðan landshlutann og skýjaó með köflum. Á Norður- landi eystra má sömuleiðis reikna með sunnan átt í dag og mildu veóri en þó kann að rigna lítið eitt síðdegis. eigu Eysteins Yngvasonar, verður ekki í Eyjafiröi á sumri komandi til skemmtisiglingaleigu. Flestir þeir ferðamenn sem fara um Ak- ureyri eru meö fastmótaöa ferða- áætlun svo miklu lengri aðdrag- anda þarf til þess aö byggja upp skemmtisiglingaáætlun eöa leigu sem höfóar til feröamanna, sér- staklega þeirra sem koma á Norö- urland með fastmótaöa feróaáætl- un frá feróaskrifstofu upp á vas- ann. Sæfari mun fara tveir ferðir í viku til Grímseyjar en utan fast- mótaðra áætlana vcröur hægt aó taka skipið á leigu svipaö og var sl. sumar en þá var nokkuð um aö farió var til Grímscyjar með stærri hópa. „Mcr er sagt að ég getí verið bjartsýnn á aö ferðamannastraum- urinn veröi þyngri í sumar en í fyrra enda var þaó sumar með ein- dæmum kalt og votviórasamt," sagði Eysteinn Þ. Yngvason. GG Smásagnasamkeppni Dags og Menor: Alls bárust 15 sögur Skilafrestur í smásagnasam- keppni Dags og Menningarsam- taka Norðlendinga er liðinn og bárust 15 smásögur til for- manns dómnefndar, Sigríðar Steinbjörnsdóttur, íslensku- kennara í MA. Undanfarin ár hafa Dagur og Menor staðið fyrir ljóða- og smá- sagnasamkeppni, til skiptis ár hvert, og oítlega hafa borist um eða yfir 100 verk til dómnefndar. Starf dómnefndar vcröur ekki eins viðamikió aö þessu sinni en segja má að samkeppnin hafi oft verið auglýst betur og cflaust margir sem uggóu ekki að sér þcgar skilafrestur rann út 7. apríl sl. Dómncfnd hefur tekið til starfa og mun hún væntanlega komast að nióurstöðu um næstu helgi og fljótlega eftir það verða úrslitin kynnt. Höfundur sögunnar sem dómnefnd metur besta, hlýtur aó launum „Islenskan söguatlas“ í þremur bindum ásamt sögukorti og höfundur sögunnar sem dóm- nefnd metur næst besta, fær í sinn hlut ritverkið „Jónas Hallgrímsson - kvæði og laust mál“. Utgefandi verkanna er Iðunn. Verðlaunasög- urnar verða birtar í Degi. SS að því að áburður verði fluttur heim til bænda fyrr á vorin og hef- ur Vegagerðin einnig lagt mikla áherslu á að slíkt næðist fram vegna hættu á skemmdum af aur- bleytu í vegum þegar jörð tekur að þiðna. I máli Péturs Hclgasonar kom fram aó þessar hugmyndir hafi engar undirtektir hlotið hjá deildarstjóra fóðurvörudeildar KEA cn stjórn félagsins hafi verið sent crindi þctta ásamt deildar- stjóranum. Þá ræddi formaður Búnaðar- sambands Eyjafjarðar um hluta- fjáreign sambandsins í fyrirtækj- unum Foldu og Skinnaiónaði hf. Vegna gjaldþrots Islensks skinna- iðnaðar á síðasta sumri hafi verið óskaó cftir því að Búnaðarsam- band Eyjafjarðar legði fram hluta- fé í nýtt fyrirtæki, Skinnaiðnað hf. Oskað hafi veriö eftir tveimur milljónum króna í hlutafé en lagt var fram andvirói 1,5 milljóna króna þar sem Framleiönisjóður landbúnaðarins lagöi til cina millj- ón af þeirri upphæó. I máli Péturs Helgasonar kom fram að rekstur hins nýja fyrirtækis lofi nú góðu og áætlanir hvað hann varðar hafi staðist. I lok ræðu sinnar fjallaði Pétur Helgason nokkuð um skipulag og starf búnaðarsambandsins og sagöi athugandi hvort brjóta ætti starfshætti þess citthvað upp meö þaó fyrir augum að gcra búvís- indamönnum auðvcldara að sinna virku leiöbeiningastaril á mcðal bænda cn þeir þurfi nú aó vinna ýmsa pappírsvinnu scm bindi þá inni á skrifstofum meira en góðu hófi gegni. Þetta megi gera mcó því að ráða annað fólk til þeirra starfa cn það kosti eólilcga nokkra fjármuni. Spurning sé þó um hvort slíkir fjármunir myndu ckki skila sér vegna þess hversu nauðsynlegt sé að veita bændum einstaklings- bundna leiðbeiningaþjónustu á tímum þcgar hagræðingar sé hvar- vetna þörf. Þ1 stærri en 10 grísir megi líta á sem vissan bónus. Engin veikindi eða önnur áföll hafa komið upp í stöðinni og lofar þessi byrjun því góðu en tilgang- urinn með innllutningnum er m.a. að auka frjóscmi stofnsins sem fyrir er í landinu. GG 220 þúsiuid kr. sekt vegna fisk- veiðibrots Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Gylfa Þ. Gunnarsson, skipstjóra í Grínis- ey, til þess að greiða 220 þúsund króna sekt í Landhelgissjóð vegna fiskveiðibrots. Auk þess er honum gert að greiöa sakar- kostnað. I ákæruskjali embættis ríkis- saksóknara er Gylfa gefió að sök að hafa að kvöldi 5. ágúst 1993 verið að rækjuveiðum á Þorleifi EA-88 innan viðmiðunarlínu á Oxarfirði, á svæói þar sem rækju- veiðar eru óhcimilar. Við meðferð málsins fyrir dómi vióurkenndi Gylfi sakargiftir og staðfesti gögn málsins þ.á m. staóarákvaröanir Landhelgisgæsl- unnar, en hafói uppi athugasemdir við orðalag í ákæruskjali um að fjórir rækjuveiðibátar hafi haft veiðileyfi innan nefndrar viðmiö- unarlínu. Olafur Olafsson, héraðsdómari, kvað upp dóminn. óþh tökum vel á móti ykkur alla daga til kl. 22.00 Byggðavegi 98 FERMINGARTILBOÐ PFAFF SAUMAVEL 6085 HEIMILISVÉL 20 SPOR VERD KR. 39.995 KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.