Dagur - 29.06.1994, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 29. júní 1994
FRÉTTIR
Ráðstefna Norrænna byggingamanna á Akureyri:
Atvinnumálin stærsti vandinn
- auknar árásir á vinnuréttinn, segir Anita Normark, framkvæmdstjóri
Atvinnumál byggingarmanna
eru eitt helsta viðfangsefni á
ráðstefnu sem Norræna bygg-
inga- og tréiðnaðarsambandið
stendur fyrir á Akureyri þessa
dagana. Fundarhöldin hófust
með stjórnarfundi samtakanna
á mánudag en sjálf ráðstefnan
hófst í gær og stendur í tvo
daga. Á morgun fara ráðstefnu-
gestir í dagsferð til Mývatns-
sveitar en heimsókn þeirra til
Norðurlands lýkur á föstudag.
Um 130 þátttakendur sitja
sjálfa ráðstefnuna en um 200
manns komu til Akureyrar í
tengslum við hana.
Bendt Jensen, fráfarandi for-
maður Norræna bygginga- og tré-
iðnaðarsambandsins og Anita Nor-
mark, framkvæmdastjóri þess,
sögðu í samtali við Dag að megin
viófangsefni ráðstefnunnar væri að
fjalla um á hvern hátt tryggja megi
byggingamönnum á Norðurlönd-
um atvinnu á komandi tímum en
verulegt atvinnuleysi hefur ein-
kennt byggingaiðnaðinn þar að
undanförnu eins og hér á landi.
Verslunin Metró á Akureyri hcfur kcypt húsgrunninn að Hvannavöllum 14,
milli Lindu og Metró. Umsvif vcrslunarinnar hafa aukist jafnt og þctt og nú
nýlcga hófst sala á gagnvörðu timbri í sólpalla og skjólgirðingar. Með kaup-
um á húsgrunninum stækkar athafnasvæði Mctró og bílastæðum fjölgar.
Ekki hefur enn verið ákvcðið hvernig svæðið verður nýtt að öðru leyti en því
fylgir byggingaréttur og því cru ýmsir mögulcikar í myndinni. Mynd: kk
Bendt Jensen frá Danmörku, fráfarandi formaður Norræna bygg-
inga- og tréiðnaöarsambandsins og Anita Normark frá Svíþjóð,
framkvæmdastjóri þess. Mynd: þi
Anita Normark sagði að meðal
annars yrði fjallaó um á hvern hátt
unnt væri aó vemda vinnurétt
byggingamanna en hann yrói nú
fyrir miklum árásum þegar fram-
kvæmdir drægust saman og at-
vinnu skorti fyrir fjölda manna.
Leitaó væri leiöa til að verja þenn-
an rétt og væri það eitt af við-
fangsefnum ráðstefnunnar aó fjalla
um á hvern hátt unnið yrði aó því
markmiði en allar greinar bygg-
ingaiðnaðar og skógarhöggs heyra
undir Norræna bygginga- og tré-
iðnaðarsambandió. Bendt Jenssen
sagði að Norðurlöndin ættu þarna
sameiginlegra hagsmuna að gæta
þar sem sambærilegar reglur giltu
um réttindamálum í þessum lönd-
um. Hvað tengsl Norðurlandanna
viö Evrópusambandið varðar sagði
Bent Jensen að Danir heföu góða
reynslu af Evrópusamstarfinu á
sviði byggingamála en þeir hefðu
einnig áhyggjur af því ef hin
Noróurlöndin kæmu ekki til þessa
samstarfs. Samstíga gætu Noröur-
löndin haft veruleg áhrif innan
Evrópusambandsins á þessu sviöi
og aó Norðurlöndin stæöu að
mörgu leyti framar í þessum mál-
um en sumar Evrópuþjóöir.
Auk erlendra fyrirlesara fluttu
fulltrúar íslenskra byggingamanna
erindi á ráðstefnunni og má í því
sambandi nefna þá Benedikt
Davíósson, forseta Alþýðusam-
bands Islands og Guómund Omar
Guðmundsson, forseta Alþýðu-
sambands Norðurlands en þeir
koma báðir úr röóum byggingar-
manna. ÞI
Samkeppnisráð synjar um undanþágu frá samkeppnislögum:
Gjaldskrár tannlækna óheimilar
- verölagningarreglur verkfræðinga einnig óheimilar
Samkeppnisráð hefur synjað
tannlæknum og verkfræðingum
um undanþágu til að gefa út
verðlagningarreglur og gjald-
skrár. Samvinna fyrirtækja sem
starfa á sama sölustigi er óheim-
il samkvæmt samkeppnislögum.
I fréttatilkynningu frá Sam-
keppnisstofnun kemur fram að
samkeppnisráð telji að undan-
þága til útgáfu samræmdra
verðlagningarreglna og gjald-
skrár geti dregið úr samkcppni.
beiðni Tannlæknafélags Islands
um undanþágu til að gefa út og
nota Iciðbeinandi gjaldskrá vegna
þeirra sjúklinga sem ekki eru
tryggðir samkvæmt lögum um al-
mannatryggingar vegna tann-
læknaþjónustu.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Hinn 10. júlí 1994 er nítjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 19 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini = kr. 550,80
" " 10.000,-kr. " = kr. 1.101,60
" " 100.000,-kr. " = kr.11.016,00
Hinn 10. júlí 1994 er sautjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 17 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini = kr. 4.923,80
Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1994 til 10. júlí 1994 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 11. júlí 1994.
Reykjavík, 29. júní 1994.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Samkeppnisráð telur tannlækna
og verkfræðinga ekki uppfylla
skilyrði til að fá undanþágu frá
samkeppnislögum en þau eru m.a.
að samkeppni aukist, jákvæð áhrif
vegi þyngra en neikvæð eða sér-
stakar ástæóur séu fyrir hendi er
varða almannaheill. Ráðið telur
ekki sýnt fram á aó undanþágur
leiöi til aukinnar verndar neyt-
enda, lægra verðs eða bættrar
þjónustu.
Á fundi sínum föstudaginn 24.
júní sl. hafnaói samkeppnisráð
Sama dag hafnaði samkeppnis-
ráð beiðni frá Félagi ráðgjafar-
verkfræðinga um undanþágu frá
samkeppnislögum. Samkvæmt því
er verkfræðingum óheimilt að
gefa út Skilmála um verkfræðiráð-
gjöf sem fjalia m.a. um verðlagn-
ingu og verðmyndun á verkfræði-
ráðgjöf.
Afrýjunarnefnd samkeppnis-
mála staðfesti fyrir réttri viku
synjun samkeppnisráðs á beióni
Lögmannafélags Islands um und-
anþágu til aó gefa út gjaldskrá.GT
þar sem geisladískar eru gersemi
Hafnarstræti 98 • Ó00 Akureyri • Sími 12241