Dagur - 29.06.1994, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 29. júní 1994 - DAGUR - 7
Sumartónleikar á Norðurlandi að heí)ast
- fyrsta tónleikaröðin verður 30. júní til 4. júlí
í sumar verða Sumartónleikar á
Norðurlandi haldnir í áttunda
skipti. Haldnir verða 16 tónleikar
í átta kirkjum á Norðurlandi á
tímabilinu 30. júní tii 31. júlí.
Efnt verður til tónleika í Akur-
eyrarkirkju, Húsavíkurkirkju,
Reykjahlíðarkirkju í Mývatns-
sveit, Ðalvíkurkirkju, Olafsfjarð-
arkirkju, Þóroddsstaðarkirkju (í
Köldukinn), Raufarhafnarkirkju
og Svalbarðskirkju í Þistilfirði.
A tónleikunum koma fram 25
tónlistarmenn og að þessu sinni
verða fjórir erlendir gestir, frá Eng-
landi, Austurríki og Svíþjóð sem eru
rammaðir inn af tónlistarflutningi
íslenskra tónlistarmanna.
Margrét Bóasdóttir, söngkona,
og Bjöm Steinar Sólbergsson, org-
anisti, voru frumkvöðlar Sumartón-
leika á Noröurlandi. Þau höfðu
kynnst sumartónleikaforminu bæði
hérlendis og erlendis. Endanlegri
hugmynd var síðan komió í fram-
kvæmd og hefur hún í grundvallar-
atriðum lítið breyst frá því Sumar-
tónleikar á Norðurlandi hófu göngu
sínaárió 1987.
Heimamenn á hverjum stað ann-
ast framkvæmd tónleikahaldsins og
leggja fram vinnu og fjármuni í því
skyni.
Það er ljóst aö Sumartónleikar á
Norðurlandi hafa unnió sér fastan
sess og hafa þeir notið vaxandi aó-
sóknar og vinsælda.
Tónleikar sumarsins
Sumartónleikamir hefjast núna um
helgina og raunar eru fyrstu tónleik-
amir annað kvöld í Ólafsfjarðar-
kirkju. Tónleikaskrá sumarsins er
annars sem hér segir:
1. tónleikaröð: Söngur-orgel.
Margrét Bóasdóttir, sópran, Guð-
laugur Viktorsson, tenór, Ragnar
Davíðsson, baríton, Björn Steinar
Sólbergsson, orgel.
30. júní kl. 21 Olafsfjarðarkirkja
1. júií kl. 21 Þóroddsstaðarkirkja í
Köldukinn
2. júlí kl. 21 Reykjahlíðarkirkja í
Mývatnssveit
3. júlí kl. 17 Akureyrarkirkja
2. tónleikaröð: Einleikur á orgel
Breskur konsertorganisti David Titt-
erington.
8. júlí kl. 21 Húsavíkurkirkja
10. júlí kl. 17 Akureyrarkirkja
J----------------------------------
Manucla Wieslcr, flautulcikari, spil-
ar á Sumartónlcikum dagana 21. júlí
til 24. júlí í Raufarhafnarkirkju,
Svalbarðskirkju, Rcykjahlíðarkirkju
og Akureyrarkirkju.
3. tónleikaröð: Fiðla-orgel
Sænski barokkfiðluleikarinn Ann
Wallström og Ulf Soderberg, orgel-
leikari.
15. júlí kl. 21 Húsavíkurkirkja
16. júlí kl. 21 Reykjahlíðarkirkja
17. júlí kl. 17 Akureyrarkirkja
4. tónleikaröð: Einieikur á flautu
Manuela Wiesler, flautuleikari.
21. júlí kl. 21 Raufarhafnarkirkja
22. júlí kl. 21 Svalbarðskirkja
23. júlí kl. 21 Reykjahlíðarkirkja
24. júlí kl. 17 Akureyrarkirkja
5. tónleikaröð: Kórsöngur
Sönghópurinn Hljómeyki flytur ís-
lensk kórverk m.a. eftir Hafliða
Hallgrímsson, tónskáld, sem jafn-
framt verður stjórnandi.
29. júlí kl. 21 Dalvíkurkirkja
30. júlí kl. 21 Reykjahlíðarkirkja
31. júlí kl. 17 Akureyrarkirkja.
Fyrstu tónleikarnir
um helgina
Eins og áöur segir verða fyrstu tón-
leikarnir um helgina. Flytjendur
veröa Margrét Bóasdóttir, sópran,
Guðlaugur Viktorsson, tcnór, Ragn-
ar Davíósson, baríton, og Björn
Steinar Sólbergsson, orgel. Tónleik-
ar þeirra veróa annað kvöld kl. 21 í
Olafsfjaróarkirkju, á föstudags-
kvöldið, 1. júlí, kl. 21 í Þórodds-
staðarkirkju í Kinn, á laugardags-
--------------------------------r
Athugiö
Höfum opiö alla daga frá
kl. 14.00
Alltaf nýtt heimabakaö
brauö og tertur
Sunnudaga - kaffihlaöborö
Eyjólfur
Kristjánsson
spilar miðvikudags-,
fimmtudags- og föstudagskvöld
Strandgötu 49 - sími 12757
Opnunartími: Sunnud.-fimmtud. kl. 14-01
Föstud. og laugard. kl. /4-03
r
Breski orgclleikarinn David Tittcr-
ington spilar á tónlcikum í Húsavík-
urkirkju 8. júlí nk. og Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 10. júlí.
Akureyringurinn Hafliði Hallgríms-
son stjórnar Sönghópnum Hljómeyki
á tónlcikum í Dalvíkurkirkju,
Rcykjahlíðarkirkju og Akurcyrar-
kirkju 29. til 31. júlf.
Ein af þcim fjórum kirkjum
sem Manucla Wiesler spilar
◄ í þann 21. júlí nk. cr
Raufarhafnarkirkja.
kvöldió kl. 21 í Reykjahlíðarkirkju í
Mývatnssveit og nk. sunnudag kl.
17 í Akureyrarkirkju.
Margréti Bóasdóttur ætti að vera
óþarfi að kynna, svo þekkt er hún í
tónlistarlífi á Norðurlandi. Hún býr
nú í Skálholti og kennir vió guð-
fræðideild HI og hjá Söngmálastjóra
Þjóðkirkjunnar.
Guðlaugur Viktorsson er fæddur
á Akureyri en flutti til náms til
Reykjavíkur og auk þess að starfa
sem tónmenntakennari og kórstjóri
er hann við söngnám við Söngskól-
ann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur.
Ragnar Davíðsson stundaði m.a.
nánt í Nýja tónlistarskólanum hjá
Sigurði Dementz Franssyni og var
einnig við nám í Bloomington tón-
listarháskólanum í Indiana-fylki í
Bandaríkjunum. Hann lék á sl. leik-
ári með Leikfélagi Akureyrar og
söng þar hlutverk Raouls í Óperu-
draugnum.
Bjöm Steinar Sólbergsson tók
við stöðu organista og kórstjóra við
Akureyrarkirkju haustið 1986 og
kennir jafnframt orgelleik við Tón-
listarskólann á Akureyri.
A efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir J.S.Bach, Joseph Haydn, ís-
lensk þjóðlög og útsetningar Jóns
Hlöðvers Askelssonar fyrir þrjár
raddir á Táta, Táta, teldu dætur þín-
ar og Kvölda tekur sest er sól.
Þess má að lokum geta aó
ókeypis aðgangur hefur ávallt verið
að Sumartónleikunum en tekið er
við frjálsum frantlögum til styrktar
tónleikunum við kirkjudyr. óþh
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1977- 2.fl. 1978- 2.fl. 1979- 2.fl. 10.09.94-10.09.95 10.09.94-10.09.95 15.09.94-15.09.95 kr. 1.054.663,40 kr. 673.778,50 kr. 439.259,90
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1985-1 .fl.A 1985- 1 .fl.B 1986- 1 .fl.A 3 ár 1986-1 .fl.A 4 ár 1986-1 .fl.A 6 ár 1986-1 .fl.B 1986-2.ÍI.A 4 ár 1986- 2.fl.A 6 ár 1987- 1 .fl.A 2 ár 1987-1 .fl.A 4 ár 1989-2.ÍI.D 5 ár 10.07.94-10.01.95 10.07.94- 10.01.95 10.07.94- 10.01.95 10.07.94-10.01.95 10.07.94- 10.01.95 10.07.94- 10.01.95 01.07.94-01.01.95 01.07.94-01.01.95 10.07.94- 10.01.95 10.07.94- 10.01.95 10.07.94 kr. 63.478,80 kr. 33.379,70**) kr. 43.755,10 kr. 49.251,40 kr. 51.214,30 kr. 24.618,80**) kr. 40.935,90 kr. 42.484,10 kr. 34.410,30 kr. 34.410,30 kr. 17.691,60
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júní 1994.
SEÐLABANKI ÍSLANDS