Dagur - 06.08.1994, Blaðsíða 5

Dagur - 06.08.1994, Blaðsíða 5
MANNLIF Laugardagur 6. ágúst 1994 - DAGUR - 5 Einn af hápunktum veislunnar var þegar flutningabíll renndi í hlað með tilheyrandi brölti og setti þennan sérkenni- lega „afmælispakka“ við bílskúrsdyrnar. Útlit pakkans gaf sannarlega tilefni til að ætla að þarna ætti að hrckkja af- mælisbarnið umtalsvert en þegar Kolbcinn hafði opnað kassann komu í Ijós ýmsir nytsamir hlutir, svo sem til lax- veiða, sem afmælisbarnið hefur unun af. I þrítugsafmaeli hjá Kolbeini Kolbeinn Gíslason, framkvæmdastjóri * Sjallans á Akureyri, hélt á dögunum upp á þrítugsafmæli sitt. Vin- ir og ættingjar mættu til veislunnar eins og vera ber og var glatt á hjalla. Robyn Redman, ljós- myndari, leit inn og festi afmælisbamiö og veislugesti á filmu. Jón Egill, bróðir Kolbcins, brcgður á Icik cn við hlið hans cr Margrét, amma þcirra, og Erla. Eins og vera ber skal lagið tckið í afmælisvcislum og það vantaði ekki þetta kvöldið. Frá vinstri: Tommi, Gunna, Jón EgiII, Logi, Rannvcig, Soffía, Ingibjörg og Sigríður. Hjúkrunarfræðingar Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, vantar hjúkrunarfræðing í stöðu aðstoðardeildar- stjóra. Um er aó ræóa 60-100% stöðu ásamt bakvöktum. Á Dalbæ eru íbúar 44, þar af 20 á hjúkrunardeild. í tengslum við heimilið er einnig rekin dagvistun fyrir aldraða. Starfshlutfall og ráðningartími er eftir samkomulagi. Húsnæði á staðnum. Þeim sem hafa áhuga fá nánari upplýsingar hjá hjúkr- unarforstjóra og/eða forstöðumanni í síma 96- 61379. Innheimtustjóri Fjármáladeildar KEA Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir starf innheimtu- stjóra Fjármáladeildar félagsins laust til umsóknar. Innheimtustjóri hefur með höndum eftirlit með öllum út- lánum félagsins og sér um og fylgist með innheimtu þeirra. Starf innheimtustjóra heyrir undir Fjármálastjóra vélagsins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um- sóknir er tilgreini aldur og menntun, ásamt starfs- reynslu þurfa að berast aðalfulltrúa félagsins fyrir 15. ágúst næstkomandi. Kaupfélag Eyfiröinga. Sjúkrahúsið í Húsavík sf. Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða í eftirtalin störf: Stöður hjúkrunarfræðinga á legudeildum. Stöðu hjúkrunarfræðings á skurð- og skiptistofu 80%. Viðbótarstarf á deildum ef óskað er. í sjúkrahúsinu er rúm fyrir 62 sjúklinga. Á Húsavík eru rúmlega 2500 íbúar. Þar er grurmskóli, fram- haldsskóli og tónlistarskóli. Gód aðstaða er til útivistar, íþrótta og heilsuræktar. Góðar samgöngur við suðvestur- hornið. Frá Húsavík er stutt til margra af fegurstu náttúruperl- um iandsins. Húsnæði og önnur fyrirgreiðsla fyrir hendi. Nánari upplýsingar veitir Aldís Friðriksdóttir, hjúkrunar- forstjóri, í símum 96-40500 og 96-40542. Utibússtjóri Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir stöðu útibús- stjóra á Dalvík lausa til umsóknar. Leitað er eftir starfsmanni sem hefur reynslu af at- vinnurekstri. Viðskipta- eóa rekstrarmenntun er æski- leg. Starf útibússtjóra heyrir undir kaupfélagsstjóra. Útibús- stjóri hefur umsjón meó rekstri félagsins á Dalvík, eftir nánari ákvörðun kaupfélagsstjóra, sér um skrifstofu fé- lagsins þar og hefur meö að gera útlána- og inn- heimtumál útibúsins. Viðkomandi þarf að geta hafió störf sem fyrst. Umsóknir er tilgreini aldur og menntun, ásamt starfs- reynslu þurfa að berast aðalfulltrúa félagsins fyrir 10. ágúst. Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.