Dagur - 06.08.1994, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 6. ágúst 1994
FRAMHALDSSAÚA UAA VÍÐAN VÖLL
Hvar er
myndin
'0861 £>! J?
jbiub§uiuso)(C]3Sjo) juXj uXojnsiv v. luununuaðjsejipjcji i jnuopnSoquuy
jBSipSjy^ BuunuisSuiupnjs jpunj uinuusuiiofj jbjb b ujVs) Jba puXui issacj
Streita
Streita er einn af algengari menningarsjúkdómum nú-
tímans og álitió er aö allt aö 60% heimsókna til lækn-
is tengist streitu beint. Streita getur haft margvíslegar
afleiöingar í för meö sér. Til dæmis getur hún hækkað
blóðþrýsting og þaö eitt eykur líkur á hjartaáfalli.
Langvarandi streita getur líka veikt ónæmiskerfið og
marga kvilla í meltingarvegi má rekja til streitu, t.d.
magabólgur, magasár, þarma- og ristilbólgur.
tekin?
^ ^
wC8v|C8 IMO
w
48. kafli:
Frá Sigríði
Jörundur hét maður, sonur llluga smiðs á
Drumboddsstöðum, sem orðlagður var
fyrir hagleik, forspá og ófyrirleitni í orðum.
Jörundur bjó á Laug, það er hjáleiga frá
Haukadal. Hann átti tvo sonu, Þorstein,
bónda í Brunavallakoti, sem Gottsvin
yngri skar á úlnlið, sem segir frá í Kamb-
ránssögu og Þórð, sem tók við búi á Laug
eftir föður sinn. Þá bjó í Haukadal Guð-
mundur Eiríksson hinn sauðglöggi, sem
sagt er að þekkti hverja sauðkind sína,
hvar sem hann sá hana tilsýndar með
öðru fé. Hann hafði áður búið á Fossi í
Ytrahreppi.
Þá kvað Magnús Andrésson, er síðar
varð alþingismaður, bændavísur um Ytra-
hreppsbændur og er þessi vísa um Guð-
mund:
„Býr á Fossi bóndi og smalinn
burinn Eiriks Guðmundur.
Fjarðarblossa Freyr er talinn
llestum meira sauðglöggur.“
Kona Guðmundar var Guðbjörg Jónsdótt-
ir. Var Jón, faðir hennar, bróðir Kristínar
(„Gottsvinskonu") Guðbjörg var góð kona
og dugandi. Eitt af börnum þeirra var
Kristín, sem var á aldur við Þórð á Laug
og honum snemma gefin - i umtali. Var
og kært með þeim, en ekki voru þau trú-
lofuð. Þá er Sigríður, dóttir Rósu, var á
Torfastöðum hjá Birni presti, dó Jörundur
á Laug og Þórður tók þar við búi. Séra
Björn vildi Sigríði vel og hugði henni
heillaráð að eiga Þórð, er var vel að sér
þjóðhagi og að öllu efnismaður. Fýsti
hann Þórð að fá hennar og hvarf hann að
því ráði. Giftust þau 11. okt. 1841 og var
orðlagt hve brúðkaupið var glæsilegt. En
brátt sást, að þau voru óskaplík. Hann var
búsýslumaður, en hún var meira hneigð
til bóka en bústarfa. Kólnaði skjótt milli
þeirra og því meir sem lengur leið. Var og
grunað, að sumir aðrir bættu eigi milii
þeirra.
Svo var þá kveðið í Ijóðabréfi:
„Það er sagt um Þórð á Laug
og Þrúði frænings-veggja
að sé slakt á ekta-taug
orðið milli beggja."
Þá sendi Sigríður móður sinni Ijóðabréf
og tjáði henni ógæfu sína. Þar er í þessi
vísa:
„Yfir dynur ama skúr,
yndis kæfir neistann.
Forlaganna fjötrum úr
fær sig enginn leystan.“
Rósa brá þegar við og reið sjálf austur í
Biskupstungur til að sækja dóttur sína.
Lét Þórður sér það eigi vera móti skapi að
Sigriður færi. Hafði Rósa hana með sér
vestur. Skildu þau síðan að lögum.
Um þetta var kveðið í Ijóðabréfi:
„Unir Þórður einn við ból,
afbragðs-smiður rikur:
hans er borða- horfin -sól
heim til Ólafsvíkur.“
Eftir þetta fékk Þórður Kristínar. Féll vel á
með þeim og áttu börn saman. En þau
koma ekki við þesa sögu.
Það var sumarið 1943 að Rósa sótti
Sigriði. í þeirri ferð hefir Rósa séð Heklu,
en hvorki áður né síðan.
Mun hún þá hafa kveðið vísuna:
„Öldruð Hekia er að sjá
ísa hökli búin.
Þekkir eklu’ei þoku á
þrifieg jökla frúin."
Raunar er ekki vissa fyrir því, að vísan sé
eftir Rósu: Sumir eigna hana Pálínu eða
Sigríði, dætrum hennar, sumir Jóni bónda
Halldórssyni á Efra-Seli í Ytri-hrepp, sem
var vel skáldmæltur og orti iðulega. Sjálf
er vísan ekki ólíkleg þess, að tveir hafi
kveðið hana, annar byrjað, hinn botnað,
eins og þá var títt að hagyrðingar reyndu
sig á.
Einna almennast mun þó að eigna
Rósu vísuna.
Sigríður dvaldi eftir þetta í Ólafsvík
hjá móður sinni og stjúpu. Og er hún var
laus allra mála við Þórð, komst hún í ást-
arsamband við ungan mann, er Brandur
hét. Hann var efnilegur maður og af góðu
fólki kominn. Áttu þau son saman, er hét
Óli Líbertín. Var áform Brands að fá Sig-
ríðar. En áður en svo langt kæmist and-
aðist hann. Foreldrar hans tóku sveininn
til sín. Ólst hann upp hjá þeim og ættfólki
þeirra. Varð hann efnilegur maður og
réðst í siglingar er hann var vaxinn.
Hans er ekki meira getið í þessari
sögu.
Nú segir frá því að, Ásgeirsen fór burt
úr Ólafsvík 1846, og varð verslunarstjóri í
Óiafsvík. Hann hét Anton Peter Wulf,
ungur maður og ókvæntur; Hann bjó með
danskri bústýru roskinni, er Katrín hét og
var vanalega kölluð „jómfrú Katrín". Þau
Gísli og Rósa voru þá enn í Ólafsvík og
Sigríður með þeim. Wulf fékk ást á henni
og þau hvert á öðru. Það líkaði Katrínu
illa. Sigríður ól honum son, er hún kenndi
Wulf og lét heita nafni hans. „Jómfrú Katr-
ín“ var ekki ánægð og taldi Wulf trú um,
að ýmsir aðrir væru engu ólíklegri en
hann til faðernisins. Gekk hann því eigi
við sveininum og lést mundi sverja fyrir
hann. Voru þau bæði stefnd á þing á
ákveðnum degi. Daginn fyrir þingið gekk
Sigríður í búðina til Wulfs með barnið á
handleggnum og kvað vísu:
„Ó hve heitt ég unni þérl
Um það neitt ei tala.
Því er breytt, sem betur fer.
Bara’ ég þreytt af svikum er.“
Og aðra lét hún fjúka:
„Breyti röngu þjóðmála þing,
það erlöngun svanna.
Geymir slöngu! um hyggju hring
hefirðu öngva tilfinning?”
Hvort sem vísurnar höfðu áhrif á hann
eða ekki, þá leyfði hann henni, er fyrir
rétt kom, að sverja faóernið á hann, og
gjerði hún það. Tók hann sveininn til
sín og annaðist um uppeldi hans. Varð
sá sveinn sjómaður, er hann hafði ald-
ur til.'Frá Wulf er það að segja að hann
var fá ár í Ólafsvík, sigldi síðan til
Kaupmannahafnar og Katrín með hon-
um. Þá var hann settur verslunarstjóri
fyrir Knudtsensverslun í Reykjavík og
fór þangað, en Katrín var eftir í Kaup-
mannahöfn. Skömmu síðar tók hann
að versla nyrðra. Þar fórst hann í skip-
reika.
DA65KRA FJOLMIÐLA
SJÓNVARPIÐ
LAUGARDAGUR
6. ÁGÚST
09.00 Morgunsjónvarp
bamanna
Sumarbáturinn. Hvar er Krist-
ján? Hvar er Valli? Valli í landi
hinna fljúgandi teppa. Múmínálf-
arnir. Bernskuminningar sækja á
Múminpabba. Dagbókin hans
Dodda. Doddi tekur lokapróf.
10.30 »«
16.30 Íþróttahomló
Endursýndur þáttur frá fimmtu-
degi. Umsjón: Samuel Örn Er-
lingsson.
17.00 Landsmótlð I golfl
Yfiiht um mótiö sem haldið var á
Akureyri í fyrri viku.
18.00 íþróttaþátturlnn
Umsjón: Fjalar Sigurðarson.
18.20 Táknmálifréttlr
18.30 Völundur
(Widget) Bandariskur teikni-
myndaflokkur.
18.55 Fréttaskeytl
19.00 Gelmstöðin
(Star Trek: Deep Space Nine)
Bandarískur ævintýramynda-
flokkur sem gerist í niðurniddri
geimstöð i útjaðri vetrarbrautar-
innar i upphafi 24. aldar. Aðal-
hlutverk: Avery Brooks, Rene Au-
berjonois, Siddig E1 Fadil, Teriy
Fairell, Cinoc Lofton, Colm Me-
aney, Armin Shimerman og Nana
Visitor.
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Lottó
20.40 Kóngur i riki sinu
(The Brittas Empire) Breskur
gamanmyndaflokkur. Aðalhlut-
verk: Chiis Barrie, Phihppa Hay-
ward og Michael Burns.
21.10 Á brautarstöðinnl
(The Railway Station Man) Bresk
ástarsaga frá 1992. Hér segii frá
ekkju sem flytur i friðsælt sjávar-
þorp á írlandi. Þar kynnist hún
bandariskum einsetumanni og
með þeim takast ástir en leynd-
armál úr íortíðinni ógnar ham-
ingju þeúra. Aðalhlutverk leika
Juhe Christie, Donald Suther-
land, Mark Tandy, Frank McCu-
sker og John Lynch.
22.55 Dauðlnn riður ljósum
bestl
(Pale Rider) Dularfullur maður
kemur i htinn námubæ i villta
vestrinu. Bæjarbúar eiga í örðug-
leikum með að henda reiður á
riddaranum þögla sem Chnt
Eastwood leikur. í öðrum hlut-
verkum eru Carrie Snodgress,
Michael Moriarty og Richard Dys-
art.
00.25 Útvarpsfréttlr f dagskrár-
lok
SJÓNVARPIÐ
SUNNUDAGUR
7. ÁGÚST
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
Kynnii er Rannveig Jóhannsdótt-
ir. Perrine Perrine hittir góða vini.
Málið okkar. Handrit: Helga Stef-
fensen. Vísur: Óskar Ingiraars-
son. Nilli Hólmgeirsson. Nilli
reynir að bjarga Matta gæsar-
stegg. Maja býfluga. Þegar Alex-
ander mús þarf á hjálp að halda
liggur enginn á hði sínu.
10.25 Hlé
17.50 Hvítatjaldið
Endursýndur þáttur frá þriðju-
degi. Urasjón: Valgerður Matthí-
asdóttir.
18.20 Táknmálsfréttlr
18.30 Okkar á rnlUi
(Ada badar: Oss karlar emellan)
Sæskur bamaþáttur.
18.40 ÓU
(OLA) Norsk barnamynd um tvo
gutta sem lenda i ýrasu saman.
Þegar sá þriðji kemur til sögu
hleypur snurða á þráðinn.
18.55 Fréttaskeytl
19.00 Úr rikl náttúnmnar:
Skuggi hérani
(Wildlife on One: Shadow of the
Hare) Bresk heimildarmynd um
héra og þjóðtrú sem þeim er
tengd.
19.30 Fólklð í Foraælu
(Evening Shade) Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur í léttum
dúr með Burt Reynolds og Marilu
Henner í aðalhlutverkum.
20.00 Fréttlr og íþróttlr
20.40 Veður
20.45 LíílðoglliUn
Hahdór Haraldsson pianóleikari í
viðtah við Þórarin Stefánsson.
Hann ræðir m.a. um grundvahar-
lífsviðhorf og heimspeki sem hef-
ur hjálpað honum að vinna gegn
álagi og kvíða sem hstamaður.
Dagskrárgerð: Tage Ammendrup
21.20 Ég er köUuð Liva
(Kald mig Liva) Danskui ham-
haldsmyndaflokkur eftir Sven
Holm í fjórum þáttum um lífs-
hlaup dægurlaga- og revíusöng-
konunnar Oliviu Olsen sem betur
var þekkt undir nafninu Liva. Tíð-
arandi og tónhst milhstríðsár-
anna er áberandi i þáttunum.
22.45 Upp á Uí og dauða
(Fighting for Gemma) Bresk sjón-
varpsmynd sem byggir a sann-
sögulegum atburðum sem tengj-
ast kjarnorkustöðinni í Sellafield,
en í nágrenni stöðvarinnar er
hvitblæði mjög algengt í börnum.
Leikstjóri er Juhan Jarrold. Aðal-
hlutverk: David ThrelfaU, Jenni-
fer Kate Wilson, Lorraine Ashbo-
urne og Gary Mavers.
00.15 Útvarpsfréttlr i dagskrár-
lok
SJÓNVARPIÐ
MÁNUDAGUR
8. ÁGÚST
18.15 Táknmál8fréttir
18.25 Töfraglugginn
19.00 Hvutti
(Woof VI) Breskur myndaflokkur
um dreng sem á það til að breyt-
ast í hund þegar minnst varir.
19.25 Undir Afríkuhimni
(African Skies) Myndaflokkur um
háttsetta konu hjá fjölþjóðlegu
stórfyrirtæki sem flyst til Afríku
ásamt syni sínum. Þar kynnast
þau lífi og menningu innfæddra
og lenda í margvíslegum ævintýr-
um. Aðalhlutverk: Robert Mitch-
um, Catherine Bach, Simon
James og Raimund Harmstorf.
20.00 Fréttír og íþróttir
20.35 Veður
20.40 Gangur lífsins
(Life Goes On II) Bandarískur
myndaflokkur um daglegt amstur
Thatcher-fjölskyldunnar.
21.30 Sækja8t sér um líkir
(Birds of a Feather) Breskur
gamanmyndaflokkur um systurn-
ar Sharon og Tracy. Aðalhlut-
verk: Pauline Quirke, Linda Rob-
son og Lesley Joseph.
22.00 Kynleg kaupmennska
(Sex Sells) Þessi þáttur lýsir því
hvernig mannslíkaminn er not-
aður með kynferðislegum vísun-
umvið auglýsingagerð. Þýðandi
er Ömólfur Ámason.
23.00 EUefufréttlr
23.15 Evrópusamband póiitíkusa
Ingimar Ingimarsson fréttamaður
ræðir við Jacques Santer for-
sætisráðherra Lúxemborgar og
tilvonandi forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins.
Viðtalið var áður sýnt þriðjudag-
inn 2. ágúst sl.
23.40 Dagskrárlok
STÖÐ2
LAUGARDAGUR
6. ÁGÚST
09:00 Morgunitund
10:00 Dennl dæmalauil
10:30 Baldur búálfur
10:55 Jarðarvinlr
11:15 Simml og Sammi
11:35 Eyjaklikan
12:00 Skólalif í ölpunum
12:55 Gott á grlllið
13:25 Heimur horfins tima
(The Lost World) Ævintýramynd
um leiðangur sem er farinn í
myrkviði Afríku til að kanna
sögusagnir um að þar sé að finna
lífverur frá forsögulegum tíma.
15:00 Löður
(Soapdish) Lífleg og skemmtileg
gamanmynd þar sem sögusviðið
er kvikmyndaver þar sem fram-
leidd er vinsæl sápuópera. Aðal-
hlutverk: Sally Field, Kevin Kline
ogWhoopi Goldberg.
16:30 Skúrkurinn
(The Super) Bráðskemmtileg
gamanmynd um óþolandi leigu-
sala sem er dæmdur til aðsæta
stofufangelsi í einni af íbúðarhol-
um sínum þar til úrbætur hafa
verið gerðar.
17:55 EvrópBki vinsældalistinn
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:00 Falin myndavél
(Candid Camera)
20:25 Mæðgur
(Room for Two)
20:55 Fjarvistar8Önnun
(Her Alibi) Tom Selleck leikur
höfund sakamálasagna sem er í
baklás eftir að eiginkonan yfirgaf
hann. Karlinn blaðar í réttarskjöl-
um í leit að hugmyndum og rekst
þar á mál Ninu Ionescu sem er
sökuð um morð. Hann telur að
hún hljóti að vera saklaus og
ákveður því að útvega henni fjar-
vistarsönnun - en það hefði hann
betur látið ógert.
22:30 Hægri hönd McCarthys
(Citizen Cohn) Mögnuð sjón-
varpsmynd um lögmanninn Roy
Cohn sem var einn helsti ráðgjafi
Josephs McCarthy á sjötta ára-
tugnum þegar vammlausir ein-
staklingar voru ásakaðir um land-
ráð og þjóðhættulega starfsemi.
James Woods fer á kostum í titil-
hlutverkinu. Stranglega bönnuð
bömum.
00:25 Rauðu skómir
(The Red Shoe Diaries) Erótískur
stuttmyndaflokkur. Bannaður
bömum.
00:55 Váboðinn
(Something Wicked This Way
Comes) Dularfullur tívolíhópur
slær upp tjöldum sínum í úthverfi
blómlegs smábæjar og býður íbú-
unum úrvalsskemmtun - gegn
einum of háu gjaldi. Tívolíið vek-
ur áhuga ungra drengja sem
sniglast í kringum tjöldin og
verða margs vísari. Stranglega
bönnuð bömum.
02:30 Bannsvæðlð
(Off-Limits) Buck McGriff og
Albaby Perkins eru í glæparann-
sóknardeild hersins. Þeir eru
sendir til Saigon þegar Víetnam-
stríðið stendur sem hæst til að
rannsaka hrottaleg morð sem þar
hafa verið framin á sex vændis-
konum. Aðalhlutverk: Willem
Dafoe, Gregory Hines og Am-
anda Pays. Stranglega bönnuð
bömum.
04:15 Dagskrárlok
STÖÐ2
SUNNUDAGUR
7. ÁGÚST
09:00 Bangiar og bananar
09:05 Dýraiögur
09:15 Tannmýtlumar
09:20 Kiia UUa
09:45 Þútund og eln nótt
10:10 Seiam opnlit þú
10:40 Ómar
11:00 Aftur UI framtíðar
11:30 Krakkamlr vlð flóann
12:00 íþróttlr á tunnudegi ■
lógó
13:00 Sönn áit
(True Love) Vel gerð, bragðmikil
og frískandi kvikmynd um ungt,
ítalskt par sem ætlar að gifta sig.
Brúðguminn, Michael, er dálitið
barnalegur en brúðurin, Donna,
heldur um stjómtaumana og læt-
ur engan komast upp með neitt
múður.
14:40 AUtíbeita lagl
(Stanno Tutti Bene) Hugljúf og
skemmtileg mynd um gamlan
mann sem hefur það markmið að
láta gamlan draum rætast, gerast
ferðamaður og heimsækja börnin
sin um geivalla Ítalíu. Við fylgj-
umst síðan með þeim gamla á
ferð hans en hans bíða margar
óvæntar uppákomur.
16:40 Lognið á undan storminum
(Baby, the Rain Must Fall) Henry
hefur setið inni fyrir að leggja í
ölæði til manns með hnífi. Nú er
hann laus og hittir eiginkonu
sina og dóttur á ný. Harrn dreym-
ir um að verða söngvari og á
knæpunum lendir hann fljótlega
aftur í gamla farinu.
18:15 Gerð myndarinnar Ma-
verick
18:45 SJónvarpsmarkaðurinn
19:1919:19
20:00 Hjá Jack
(Jack's Place)
20:55 VUIurvega
(Finding the Way Home) Áleitin
mynd um miðaldra og ráðvilltan
verslunareiganda sem missir
minnið en sér aftur ljósið í myrkr-
inu þegar hann kynnist hópi suð-
ur-amerískra innflytjenda. Mað-
urinn á bágt með að horfast í
augu við breytta tima en finnur
styrk í því að mega hjálpa þessu
ókunnuga fólki.
22:25 60 mínútur
23:15 GlattáhjaUa
(The Happiest Millionaire)
Söngva- og dansamynd sem lýsir
á gamansaman hátt heimihshald-
inu hjá miljónamæringnum Ant-
hony J. Drexel Biddle.
01:35 Dagskrárlok
STÖÐ2
MÁNUDAGUR
8. ÁGÚST
17:05 Nágrannar
17:30 Spékoppar
17:50 Andinn í flöskunni
18:15 Táningarnir í Hæðagarði
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:1919:19
20:15 Neyðarlínan
(Rescue 911)
21:05 Gott á grillið
21:40 Seinfeld
22:05 Hver var Lee Harvey
Oswald?
(Who was Lee Harvey Oswald?)
Bandarísk heimildarmynd í tveim
hlutum sem gerð var í tilefni þess
að í nóvember á síðasta ári voru
þrjátíu ár liðin síðan John F.
Kennedy Bandaríkjaforseti var
myrtur í Dallas.
23:00 Útíbláinn
(Delerious) Þessi geggjaða gam-
anmynd fjallar um handritshöf-
undinn Jack Gable sem hrekkur
úr sambandi þegar álagið er að
sliga hann og smellur inn í
draumaheim sápuóperunnar. Að-
alhlutverk: John Candy, Mariel
Hemingway og Emma Samms.
00:35 Dagskrárlok
RÁSl
LAUGARDAGUR
6. ÁGÚST
6.45 Veðurfregnlr
6.50 Bæn
Snemma á laugardagsmorgni
7.30 Veðurfregnlr
Snemma á laugardagsmorgni
heldur áfram.
8.00 Fréttir
8.07 Snemma á laugardagi-
morgnl
• heldur áfram.
8.55 Fréttir á eniku
9.00 Fréttb
9.03 Lönd og lelðlr
Þáttur um ferðalög og áfanga-
staði.
10.00 Fréttir
10.03 Með morgunkaffinu
10.45 Veðurfregnlr
11.00 í vlkulokin
12.00 Útvarpidagbókln og dag-
ikrá laugardagsini
12.20 HádegisfrétUr
12.45 Veðurfregnlr og auglýs-
ingar
13.00 Fréttaauki á laugardegl
14.00 Ég hef nú aldrel...
Þegar Útvarpið kom þjóðinni í
uppnám. Fyrsti þáttur af þremur.
15.00 Tónvakinn 1994
Tónlistarverðlaun Ríkisútvarps-
ins. Þriðji keppandi af sjö: Guð-
rún María Finnbogadóttir, sópr-
an.
16.00 FrétUr
16.05 Tónlelkar
16.30 Veðurfregnlr
16.35 Hádeglslelkrit Uðlnnar
vfku:
Sveitasæla eftir Kristlaugu Sig-
urðardóttur. Fyrri hluti.
18.00 Djassþáttur
18.48 Dánarfregnir og auglýi-
ingar
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar og veður-
fregnir
19.35 Óperuipjall
Rætt við Heiðar Jónsson, snyrti,