Dagur - 01.09.1994, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 1. september 1994
Nú er hann
loksins kominn
Lúxus jeppinn frá ISUZU, sem hlotið hefur
geysilegt lof gagnrýnenda beggja vegna
Atlantsála!
Bíllinn sem sameinar svo vel kosti
jeppa og fólksbíls.
Til sýnis og reynsluaksturs næstu daga.
Opið frá kl. 10-18 virka daga og
13-17 laugardaga.
BSV
v____/
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 12960 - Akureyri
<^Hrísalundi
Afgreiðslutími:
Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30
laugard.kl. 10.00-18.00
Léttreyhtur lambahryggur
kr. 698 kg
Hafra-samlokubrauð
^^Hrísalundi
FRÉTTIR
Urbótarmenn á Akureyri:
Kynning að hefjast á
orlofshúsabyggðinni
Úrbótarmenn á Akureyri eru nú
að heíja kynningu á orlofshúsa-
byggð þeirri sem fyrirhugað er að
reisa norðan Kjarnalundar. Arki-
tektar og verkfræðingar hafa
komið til samvinnu við Úrbótar-
menn og unnið skipulag af svæð-
inu sem hlotið hefur samþykki
bæjaryfírvalda á Akureyri og
staðfestingu Skipulags ríkisins.
Gert er ráð fyrir að orlofshúsa-
byggðinni verði skipt í tvö svæði,
annað meó 23-27 húsurn og hitt
með Í0 húsum. Húsin verða öll
eins, 55 fermetrar meö þremur
svefnherbergjum, baðherbergi,
stofu, eldhúsi og inngangi með
forstofu. Fyrir liggur samþykktur
skipulagsuppdráttur þar sem
kveðió er á um gatnakerfi, stíga,
opin svæói, bindandi byggingar-
línur, bílastæói, staðsetningu sorp-
gáma og fyrirhugaóa staósetningu
rotþróar. Það eru Arkitektastofan í
Grófargili og Verkfræðistofa Sig-
urðar Thoroddsen sem slegist hafa
í lið með Úrbótarmönnum og
hannað hús og svæði, sem kemur
væntanlega til með að kallast
Kjarnabyggð.
Búið er aó útbúa bækling með
teikningum af svæðinu, húsunum
og ýmsum öörum upplýsingum.
Hann veróur sendur til verkalýðs-
og starfsmannafélaga víðs vegar
um land og framhaldið kemur til
meó að ráðast nokkuð af við-
brögðum þeirra. Sveinn Heiðar
Jónsson, einn Úrbótarmanna, seg-
ir að þegar hafi verið rætt viö
nokkra aðila og hafí þeir sýnt mál-
inu mikinn áhuga. Til stendur að
stofna hlutafélag um framkvæmd-
irnar sem síðan yrði breytt í
rekstrarfélag þegar framkvæmd-
um væri lokið.
Úrbótarmenn eru þrír áhuga-
mcnn um atvinnuuppbyggingu á
Akureyri, Sveinn Hciðar, sem er
framkvæmdastjóri Trésmíðaverk-
stæðis Sveins Heiðars, Þórarinn
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Gúmmívinnslunnar, og Hólm-
steinn Hólmsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Malar og sands.
Fyrir þeirra tilstilli hafa komist á
laggirnar fyrirtæki eins og Úr-
vinnslan hf. og Hlutabréfasjóður
Norðurlands. JHB
ORLOFSHUSASVÆÓIÐ
Orlofshúsabyggðin norðan Kjarnalundar, eins og Úrbótarmenn sjá hana
fyrir sér.
„Látum ekki í minni pok-
ann fyrir vímuefnunú
- átak gegn vímuefnaneyslu unglinga hefst formlega í dag
í dag, fímmtudaginn 1. septem-
ber, fer af stað átak undir slag-
orðinu; „Látum ekki í minni
pokann fyrir vímuefnum!“
Krossgötur, sem er meðferðar-
og forvarnaraðili, stendur að
þessu átaki en Krossgötur hafa
með góðum árangri rekið
áfangaheimili sl. átta ár fyrir
unga menn sem ánetjast hafa
fíkniefnum og áfengi.
En hjálparstarf er ckki nóg,
segir m.a. í fréttatilkynningu frá
Krossgötum og ætla Krossgötur
því í haust í alla grunnskóla lands-
ins með fræðsluefni handa ncm-
endum og fræðslukver sem ber
nafniö; „Unglingar í neyslusamfé-
lagi 20. aldar“, sem dreifa á til
foreldra og kennara. Við saman-
tekt þessa fræósluefnis hafa
Krossgötur leitað til Forvarna-
deildar Fíkniefnalögreglunnar,
Landlækniscmbættisins, Ung-
lingaheimilis ríkisins, Áfengis-
varnaráðs og fleiri aðila.
Ein mesta vá okkar samfélags
eru vímuefnin, scgir ennfremur í
fréttatilkynningunni. Vofir vofa
vímuefna yfir þinni fjölskyldu,
barni eóa unglingi? Það er í raun
ekki langt síðan að ncysla áfengis
á meðal unglinga var nánast
óþekkt en með breyttu þjóðfélags-
mynstri hefur neysla unglinga á
áfengi stóraukist.
Allflcstir unglingar byrja
neysluferil sinn með áfengis-
neyslu cn síóan þróast neysla
margra og sífellt fleiri í að reykja
hass, sem leiöir síðan að neyslu
amfetamíns og jafnvel sterkari
efna eins kókaíns, LSD, alsælu,
krakks, heróíns og fleiri eiturlyfja,
með hörmulegum alleiðingum.
Plastverksmiðjan Plastos hefur
tekið höndum saman við Kross-
götur og styrkt verkefniö með því
að gefa stórt upplag af fjölnota
plastpokum scm vcrða til sölu í
flestum matvöruverslunum á land-
inu og kosta kr. 250.-. Allur ágóði
af sölu pokanna og átakinu í heild
mun renna til þessa verkefnis
Krossgatna. KK
Akureyri:
Rafmagnslaust
í klukkustund
- spennar brunnu yfir
Rafmagnslaust varð í um eina
klukkustund á Akureyri í fyrra-
kvöld. Mælaspennar í aðveitu-
stöð við Þingvallastræti brunnu
yfir um kl. 19.15 og varð alveg
ragmagnslaust í bænum sunnan
Glerár. Þorparar sluppu hins
vegar að þessu sinni.
Það tók starfsmenn Rafveitu
Akureyrar um eina klst. að taka
ónýtu spennana úr umferð og
koma rafmagni á að nýju. Að sögn
Jóhannesar Ofeigssonar, hjá Raf-
veitunni, þarf að panta nýja
spenna og verður þcim komió fyr-
ir við fyrsta tækifæri.
Það gerist ekki oft að raf-
magnslaust verði í bænum en þcg-
ar þaó gerist, veróa alltaf cinhverj-
ir lyrir ónæði. Ekki urðu þó telj-
andi vandræði aó þessu sinni. KK