Dagur


Dagur - 09.09.1994, Qupperneq 12

Dagur - 09.09.1994, Qupperneq 12
Bjooum upp á hinn vinsæla #11 * Akureyri, föstudagur 9. september 1994 Langþráðar vegabætur norðan Mývatns - ný brú á Laxá á áætlun næsta sumar Nú standa yfir iangþráðar vegabætur á veginum norð- an Mývatns. Um er að ræða kaflann frá Laxá við Arnarvatn og að Geirastöðum. Á næsta ári er síðan á áætlun ný brú á Laxá. Framkvæmdir við veginn hóf- ust í byrjun ágúst, nokkuð seinna en áætlað var en verklok eiga að vera 15. október. Með sanni má segja að þessar bætur á veginum séu langþráóar enda gamli vegur- inn snjóþungur og nánast ekkert Siglufjöröur: Hjúkrunar- fræðinga vantar sárlega Ibyijun ágúst augiýsti hjúkrunarforstjóri Sjúkra- hússins á Siglufirði, Guðný Helgadóttir, eftir hjúkrunar- fræðingum til starfa. Því mið- ur tókst ekki að fá neinn hjúkrunarfræðing í kjölfar þeirrar auglýsingar. Nú hefur verði auglýst á ný eftir hjúkr- unarfræðingum og einnig eft- ir sjúkraþjálfara við sjúkra- húsið. Á Sjúkrahúsinu á Siglufirði eru 43 rúm og vant- ar nú þegar hjúkrunarfræð- inga í tvær stöður. Aó sögn Guðnýjar hafa ver- ið miklar starfsmannabreyting- ar á sjúkrahúsinu á undanfömu ári og hefur reynst erfitt að manna stöður sem losna. Hún sagói að sömu sögu væri að segja af sjúkrahúsum víða 1 ná- grenninu. KLJ verið gert við hann til fjölda ára. Vegarstæðið er fært til og allur vegurinn byggður upp. Klæóning verður þó ekki lögð í þessum áfanga. Góðverk sf. í Mývatns- sveit annast framkvæmdir. Að þessu sinni verður aðeins farið meö veginn að Laxá en næsta sumar er fyrirhuguð ný brú á ána sem leysir af hólmi tvær brýr sem nokkuð eru komnar til ára sinna, eru bæði þröngar og með vonda aðkomu. Eins og öll slík mannvirki þarf aó senda brúna í umhverfismat til Skipulgs ríkisins en þar fengust þær upplýs- ingar aö gögn um brúna hefðu ekki enn borist frá Vegagerðinni. HA Næsta sumar er fyrirhuguð ný brú á Laxá milli Hclluvaðs og Arnarvatns í Mývatnssveit. Búið er að leggja vegstubb að fyrirhuguðu brúarstæði sem cr við brotið í ánni fyrir miðri mynd. Nýja brúin leysir af hólmi tvær gamlar brýr scm sjást ofar á myndinni. Mynd: Halidór Er loðdýraræktin loks aö rétta úr kútnum? Léttara yfir refabændum - segir Arvid Kro, loðdýraræktarráðunautur og starfsmaður SÍL árinu tók verð refa- á uppboði mikinn Fyrr á skinna kipp. Við það vöknuðu vonir um að nú væru betri tímar framund- an í loðdýraræktinni enda segir Arvid Kro, Ioðdýraræktarráðu- nautur Búnaðarsambandsins og starfsmaður Sambads ísl. loð- dýraræktenda, að léttara sé nú yfir refabændum en fjölmörg unanfarin ár. Menn gera sér vonir um að verð refaskinna haldist svipað áfram og verð minkaskinna fari heldur upp á við. Mestu erfiðleikarnir eru hjá þeim sem eingöngu eru með stór minkabú. Síðan er það að sjálf- Dalvíkurbær hlaut styrk til atvinnu- skapandi verkefha - sáralítið atvinnuleysi Dalvíkurbær sótti í sumar um styrk til atvinnuskap- andi verkefna, þ.e. í svokölluð átaksverkefni. Sótt var um þrenns konar verkefni, þ.e. við- haldsverkefni á fþróttasvæði, verkefnið Vörn fyrir börn, sem VEÐRIÐ Yfir Bretlandseyjum er víðáttu- mikil og vaxandi lægð en yfir Grænlandshafi 1025 mb. hæð. Hiti beytist lítið næsta sólar- hring en síðan fer að kólna. Á Norðurlandi gerir Veðurstofan ráð fyrir norðaustan kalda í dag, víðast þurru veðri í inn- sveitum en annars dálítilli þoku- súld. Um helgina syrtir verulega í álinn norðanlands. Þá er spáð norðaustanátt og kólnandi veðri með skúrum eða slydduéljum. er átaksverkefni vegna öryggis á hcimilum og starfsfólk á gæslu- völl á vegum Dalvíkurbæjar, en í verkefninu felst einnig Iagfær- ing á leiktækjum, málningar- vinna, torfhleðsla og planta út plöntum. Skilyrði fyrir afgreióslu um- sókna er að tilgreint sé til hvaða verkefna styrkurinn sé ætlaður en hann er bundinn við fólk sem er á atvinnuleysisskrá. Bæjarfélagið greiðir síðan þann kostnað sem er umfram atvinnuleysisbætur, legg- ur til efni o.fl. Uthlutuninn er 3x12 vikur í hvert verkefni og hófst vinnan í gær er fjórir aðilar hófu vinnu. Aðeins 17 manns eru á at- vinnuleysisskrá á Dalvík og í Svarfaðardal, en margir þeirra eru sjúklingar sem ekki geta stundað vinnu og því er raunverulegt at- vinnuleysi sáralítið. GG sögðu skuldirnar sem segja til um hversu vel eða illa menn standa. Veró refaskinna tók mikinn kipp fyrr á árinu og fór meðal- verðið úr 1.500 kr. fyrir skinn í 6.700 kr. „Menn eiga ekki von á meiri hækkun en gera ráð fyrir 6.000- 6.500 kr. á næstu árum, sem er glimrandi verð. Hins vegar getur enginn sagt til um hvað [retta verð endist lengi,“ segir Arvid Kro sem nýkontinn er úr yfirreið um landið meö dönskum loðdýraræktarráðunauti. „Minkabændur vantar 500-600 kr. hækkun á skinnaverði til að vera ánægðir en meðalverð síð- ustu uppboóa var um um 145 danskar kr. (um 1.600 ísl. kr.). Menn eiga ekki von á að verð minkaskinna á næsta tímabili nái 2.000 ísl. kr., þ.e. skinn sem selj- ast á tímabilinu desember 1994 til september 1995. Næsta tímabil þar á eftir er reiknað með unt 2.000 kr. meðalverði fyrir hvert skinn. Vegna hærri framleiðslu- kostnaðar þurfa íslenskir minka- bændur að fá um 2.200 kr. fyrir skinnið meöan dönskum bændum duga 2.000 ísl. kr.“ Að sögn Arvids hefur nokkuó borið á því að undanfömu að menn væru aó byrja aftur, bæði meó mink og ref. Honum sýndist að þar gæti verið um aó ræða 6-10 bændur, bæði menn sem væru að koma inn aftur og eins nýir. Hann bjóst þó ekki við verulegri fjölgun í greininni, til þess hefóu menn fengió of stóran skell og umræðan í þjóðfélaginu hefði endanlega gert út af við áhuga ungs fólks til að byrja í loðdýrarækt. Um síð- ustu áramót voru 75 loðdýrabænd- ur á landinu þar af 36 á svæðinu frá Húnavatnssýslum og austur á Hérað og á þessu svæói er meiri- hluti refsins. Tæplega 120 þúsund minkahvolpar komust á legg að þessu sinni og um 24 þúsund refa- hvolpar af öllum afbrigðum. Um 10. nóvember byrja menn að pelsa dýrin og fara fyrstu skinnin á uppboð um miðjan des- cmber. Síðasta uppboð þessa tímabil er 4.-7. októbcr og þar eiga Islendingar urn 40 þús. skinn, nær eingöngu minkaskinn cn mjög lítið er eftir af refaskinnum á markaði. Á þessu uppboði ættu menn að fá einhverja vísbendingu um hvort skinnaveró er á uppleið eða niðurleið og sagði Árvid mcnn vonast til aö fá einhverja hækkun. Um miðjan desember verða síðan fyrstu uppboð á nýj- um skinnum. HÁ Náttúrugarður í Krossanesborgum norðan Akureyrar: Paradís um aldamót - segir Árni Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri Akureyrarbæjar 5 árum síðan fékk afhent frá Fyrir um Akureyrarbær ríkinu Ytra-Krossanesland en þar eru svokallaðar Krossanes- borgir, land sem býður upp á óteljandi möguleika til útivistar og náttúruskoðunar. Byrja þurfti á að friða landið og hreinsa, koma út af því beitinni o.fl. í framhaldinu er á dagskrá að laga aðkomu að svæðinu, út- búa bflastæði og göngustígagerð. „Fólk er farið að nota svæðið þó nokkuð og það hefur gróið mikið upp. Þetta er mjög spenn- andi land, sem býður upp á ýmsa möguleika. Þarna er fjara, fallegar klappir, gróðurfarslega er svæöið mjög spennandi en þó er kannski fulglalífið hvað áhugaverðast,“ sagði Ámi Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri Akureyrarbæjar. Gert er ráð fyrir að svæðið verði náttúrugarður, þ.e. fái að njóta sín eins og það er. Því er ekki fyrir- hugað að fara út í gróðursetningu eða þess háttar. „Þaó var alltaf meiningin aó leyfa svæóinu að jafna sig áður en fólk færi að sækja þangað í ntiklu mæli en við höfum unnið heilmik- ið þama, hreinsað burtu girðingar og tilfallandi rusl. Þetta verður allt fá að hafa sinn tíma en svæðið verður orðin paradís á Akureyri og mikið aödráttarafl fyrir ferða- menn um aldamót, ígildi lysti- garðs fyrirþá sem heintsækja okk- ur,“ sagði Árni. Á teikniborðinu er innkoma á svæðið og gerð bílastæða og reiknað er með að hafist verði handa vió þær framkvæmdir á næsta ári. Þá er að sögn Árna Steinars verið að hanna merkingar eða upplýsingaskilti fyrir náttúru- svæði bæjarins, Kjarnaskóg, Nausta- /Hamraborgir og Eyrar- landsháls, óshólma Eyjafjarðarár og Krossanesborgir. HA Frystikistur m** Verð frá kr. 28.830 □ KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, stmi 23565

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.