Dagur - 14.09.1994, Side 5

Dagur - 14.09.1994, Side 5
Miðvikudagur 14. september 1994 - DAGUR - 5 Annað kvöld, fímmtudag, verður íslandsfrumsýning í Borgarbíói og Sambíóunum í Reykjavík á spennumyndinni Speed. Þeir sem séð hafa Speed hafa haft á orði að í samanburði sé True Lies, sem nú gengur fyrir fullu húsi bæði á Akureyri og í Reykjavík, eins og þáttur af Húsinu á slétt- unni! Leikstjóri Speed er Jan De Bont en með helstu hlutverk fara Keanu Reeves, Dennis Hopper, Sandra Bullock, Jeff Daniels og Joe Morton. Þráðurinn í Speed er í stórum dráttum þessi: Jack Traven er scr- sveitarlögreglumaður í Los Ange- les. Hann er einn af þessum hörðu „nöglum“, en skyndilega er hann Speed er ósvikin spennumynd - mynd sem hcfur fengið gífurlega aðsókn erlendis. íslandsfrumsýning annað kvöld í Borgarbíói og Sambíóunum á Speed: Ósvikin spenna í Borgarbíói kominn í þá stöóu aó vera inni í strætisvagni sem má ekki fara und- ir 90 knt hraða á klukkustund, ella mun hann springa í loft upp. Spumingin sent Traven stendur Kcann Recvcs í hlutverki lögreglumanns í Los Angeles. Miðpunktur atburðarásarinnar er þessi strætisvagn. frammi fyrir er hvemig unnt sé að bjarga öllum farþegunum þegar rútan má ekki fara undir 90 knt á klukkustund. Einnig vaknar spurning um hvernig hægt sé að aftengja sprengjuna og hvernig mögu- legt sé að halda þessum hraða inni í miðri stórborginni. Speed cr gíf- urlega spenn- andi mynd, hún er full af áhættuatriðum og taugar áhorf- enda eru þandar til hins ítrasta. Sem dæmi er frábærlega út- fært atriði í myndinni þar sem strætis- vagninn flýgur yfír 18 metra breitt gat á þjóðveginum! Speed hefur fengið afar góða dóma erlendis, jafnt gagnrýnenda sem áhorfenda og þaö segir sína sögu að myndin hefur skilað fram- leiðandanum vel á annað hundrað milljónum dollara. Leikstjórinn Jan De Bont hefur áður komið við sögu í heimi spennuntyndanna. Sem dæmi hef- ur hann stýrt upptökum á ekki ómerkari myndum en Lethal Wea- pon 3, Black Rain, Tlie Hunt for Red October og Die Hard. Óhætt er að lofa bíógestum góöri skemmtun, í það minnsta þeim sent sækjast eftir spennu. Specd er ósvikin spennumynd. Eins og áður segir verður Specd frumsýnd í Borgarbíói á Akurcyri og Sambíóunum í Reykjavík ann- að kvöld, fimmtudagskvöld. Myndin vcrður sýnd bæði kl. 21 og 23 unt helgina. óþh Tónlistarfélag Akureyrar: Fyrstu tónleikar starfs- ársins annað kvðld Vetrarstarf Tónlistarfélags Akur- eyrar er að hefjast. Fyrstu tónleik- ar vetrarins verða annað kvöld, fímmtudagskvöld, kl. 20.30 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Frant konta Guðni Franzson, klar- inettuleikari, og Gerrit Schuil, pí- anólcikari. Miðstöð fólks í atvinnuleit: Teknar upp kartöflur í Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit verður brugðið út af venju í dag, miðvikudaginn 14. september. I stað samveru í Safnaðarheim- ilinu verður farið til bónda handan Fjarðarins og teknar upp kartöflur þar sem hver og einn fær sjálfur að halda góðum hluta uppsker- unnar. Þátttakendur eru beðnir að mæta stundvíslega við kirkjuna kl. 15 og hafa með sér vinnufatnaö, en fötur og poka fá þeir á staðn- um. Hér er kjörið tækifæri til að drýgja heimilispeningana og cru allir velkomnir sent cru án laun- aðrar vinnu. Stefnt cr að heimferð kl. 19. Guðni Franzson stundaói klar- inettunám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðar í Hollandi. Hann hefur kornið fram sem ein- leikari í flestum löndum Evrópu og frumflutt fjöldann allan af nýj- um tónverkum eftir íslensk sem og evrópsk tónskáld. Guðni er einn af stofnendum Caput-hópsins og hefur hann komió frarn víða með hópnum. Gerrit Schuil er hollenskur pí- anóleikari, hljómsveitarstjóri og óperustjóri sem búsettur er viö Eyjafjörð og hefur tekið þátt í fjölbreyttu tónlistar- og leiklistar- lífí þar. Hann hóf tónlistarnám fimm ára gamall og hélt sína fyrstu tónleika níu ára. Aö loknu námi við tónlistarháskólann í Rotterdam stundaöi hann nám við Vlado Perlemuter í París og Lond- on hjá John Lill og varð síðan einkanemandi Kirill Kondrashin. Gerrit hefur kornið fram víðsvegar um hcim, leikið með þekktum söngvurum og stjórnað virtum hljómsveitum m.a. hollensku út- varpshljómsveitinni. Hann mun stjóma Sinfóníuhljómsveit Islands í vetur. A efnisskrá tónleikanna annað kvöld er Phantaseiestykki op. 78 og Rómönsur op. 94 eftir Robert Schumann og Sónötur op. 120 nr. 1 og 2 eftir Johannes Brahrns. Schuntann og Brahms voru samtímamenn og nánir vinir. Ro- bert Schuntann var giftur Clöru Wicck, scm var mikill píanólcik- ari og tónskáld en jafnframt dóttir læriföður hans. Johannes Brahnts var einhleypur en kynni hans af Schumann hjónunum áttu cftir aó hafa djúpstæö áhrif á líf hans alla tíð. Schumann var eldri og virtari, en það var áhugi hans á verkunt Brahms og skrif hans sum sem vöktu athygli umheimsins á verk- um unglingsins árið 1853. Að lokum má minna félaga Tónlistarfélagsins á að aóalfundur félagsins verður haldinn mánu- daginn 19. september kl. 20.30 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. (Urfrétlatilkynningu) Leiðrétting I briddsfréttum í Degi í gær, var sagt frá viðureign sveita Magnús- ar Magnússonar frá Akureyri og Tryggingamiðstöðvarinnar úr Reykjavík í Bikarkeppni BSÍ og sagt að sveit Magnúsar hafí farið með sigur af hólmi. Þetta er ekki rétt og sveit Tryggingamiðstöðv- arinnar sigraði 103-81. Þetta leið- réttist hcr meö og eru hlutaðcig- andi bcðnir velvirðingar á þcssunt mistökum. Möguleikhúsið á Norðurlandi: U mferðarálfur inn Mókollur Möguleikhúsið er bama- og unglingaleikhús, sem hefur um fjögurra ára skeið ferðast um landið með lciksýningar fyrir böm. Möguleikhúsið leggur áherslu á frumsamið íslenskt efni og sýnir nú leik- ritið Umferðarálfurinn Mó- kollur. Höfundur verksins er Pétur Eggerz en lagahöfundur Bjarni Ingvarsson. Um leikmynd og búninga sér Hlín Gunnarsdóttir og leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson. Umferðarálfurinn Mókollur er leikrit ætlað krökkunt í leik- skóluni og bömum í yngstu bekkjunt grunnskóla. í leikrit- inu er leitast við að kenna börnunt að varast þær hættur sem hclst kunna aó veröa á vegi þeirra í umferóinni um leið og þeim gefst kostur á aó upplifa ævintýraheim leikhúss- ins. í vor var leikritið sýnt 90 sinnum og nú eru sýningar hafnar aó nýju og var 100. sýn- ingin á Seyðisfirði 11. septem- ber. Möguleikhúsið er nú á ferð unt landið ntcð sýninguna í samvinnu við Landsbanka ís- lands. Umfcrðarálfurinn Mó- kollur verður sýndur á Norður- landi á næstu dögum. Á Húsa- vík í dag, ntiðvikudag, síðan á Akureyri, Dalvík, Siglufirði, Ólafsfirði og Blönduósi cn þangað verður Mókollur kom- inn mánudaginn 19. september. KU Laust embætti er forseti íslands veitir Embætti ráðuneytisstjóra landbúnaðarráðuneytisins er laust til umsóknar og verður veitt frá 1. nóvember nk. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu eigi síðar en 30. september 1994. Landbúnaðarráðuneytið, 2. september 1994. HOTEL KEA Páll Óskar og MILLJÓNAMÆRINGARNIR á stórdansleik laugardagskvöld Laugardagstilboð: Kaldur sjávarréttakokteill íavocado. Nauta- og grísamedalíur með portvínssósu. Suðrænir ávextir í sykurkörfu. Verð aðeins kr. 2.800. Innifalinn dansleikur ★ Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200. Miðaverð á dansleik kr. 900.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.