Dagur - 14.09.1994, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 14. september 1994- DAGUR- 11
ÍÞRÓTTIR
S/EVAR HREIÐARSSON
Golf:
Sigurpáll bestur
Um helgina fór fram Coca-Cola
mótið í golfi á Jaðarsvelli á Ak-
ureyri. Leikið var bæði á laugar-
dag og sunnudag, alls 36 holur,
og keppendur voru fjölmargir
þrátt fyrir kuldann um helgina.
Sigurpáll Geir Sveinsson lék
best allra í karlaflokki, Dóra
Kristinsdóttir í kvennaflokki og
Jónatan Þór Magnússon í ung-
lingaflokki.
Sigurpáll sigraði í karlaflokki
án forgjafar án teljandi vandræða.
Hann var efstur eftir fyrri dag á 72
höggum og átti þrjú högg á næsta
mann. Seinni hringinn fór hann á
73 höggum og endaði mótið á 145
höggum samtals. Næsi maður var
Viðar Þorsteinsson, GA, sem lék á
75 og 76 höggum eða samtals
151. Orn Arnarson, GA, var þrióji
á 154 höggum. Minnstu munaði
að Birgir Haraldsson kæmist í hóp
einherja þegar teighögg hans á 4
braut hafnaði 41 cm frá holu.
Þegar tekið var tillit til forgjaf-
ar var Jón Smári Friðriksson, GA,
efstur á 138 höggum nettó. Bjami
Ásmundsson, GH, kom annar á
139 höggum og Viðar Þorsteins-
son, GA, þriðji á 141 höggi.
I kvennaflokki var Dóra Krist-
insdóttir, GHD, meö fæst högg
eóa 193. Oddfríóur Reynisdóttir,
GH, kom næst á 199 höggum og
Anna Hjaltadóttir GHD á 204
höggum. Dóra og Oddfríður voru
jafnar í efsta sæti eftir fyrri daginn
á 93 höggum en Oddfríður náöi
ekki að leika jafn vel síðari daginn
og var sex höggum á eftir Dóru.
Meö forgjöf var Anna með besta
skor, 148 högg nettó, Dóra kom
önnur með 151 högg nettó og
Karolína Guómundsdóttir, GA,
kom þriðja á 154 höggum nettó.
í unglingaflokki var það Jónat-
an Þór Magnússon, GA, sem sigr-
aði, fór hringina á 164 höggum.
Næstur kom Sævar Þór Sævars-
son, GA, á 169 höggum og Eggert
Már Jóhannsson, GA, á 174 högg-
um. Jónatan vann einnig án for-
gjafar, með 138 högg nettó, Finn-
ur Bessi Sigurðsson, GA, varð
annar á 140 höggum nettó og Við-
ar Haraldsson, GA, varó þrióji á
147 höggum nettó.
Sigurpáll vann tvöfalt
í sumar
Sigurpáll Geir Sveinsson hefur
verið sigursæll í sumar og fyrir
skömmu varð ljóst að hann var
langstigahæstur á stigamóti til
landsliðs. Þar er tekinn saman ár-
angur í fimm stigamótum og síðan
landsmótinu. Þegar upp var staðið
átti Sigurpáll 23 stig á næsta
mann, Birgi Leif Hafþórsson, en
það samsvarar 23 högga foru'stu.
Þetta er sannarlega glæsilegur ár-
angur hjá Sigurpáli og má segja
að sigur í landsmóti og að vera
stigahæstur sé svipað og að vinna
tvöfalt í öðrum íþróttagreinum.
Sigurpáll hefur tekió miklum
framförum frá því síðasta sumar
þar sem hann var ekki nálægt því
að komast í hóp efstu manna á
stigalistanum. Þar var hann ein-
hvers staðar á milli 10. og 20. sæt-
is en á landsmótinu varð hann í 8.
sæti.
„Eg æfói kannski ekki neitt
Knattspyrna:
Fyrsta æfingin
Nói Bjömsson stýrði Þórsliðinu í
fyrsta sinn á æfingu í fyrradag eft-
ir að hafa tekið við þjálfun þess af
Sigurði Lárussyni um helgina.
Góður andi var í hópnum og ekki
annað að sjá en að leikmenn væru
tilbúnir að leggja sig alla fram til
að tryggja lióinu áframhaldandi
sæti í deildinni. Fyrsti leikur Nóa
á bekknum verður á laugardag
þegar liðió heimsækir KR í
Reykjavík.
Sigurpáll Geir Sveinsson hefur leik-
ið frábært golf í sumar.
rosalega mikið meira en ég æfði
miklu markvissara. Hugsaði miklu
meira hvað ég var að æfa og æfói
meira veiku punktana heldur en
það sem gekk upp. Svo hefur
maður líka skapað sér miklu meiri
aga og það skiptir miklu máli,“
segir Sigurpáll um þessar miklu
breytingar á gengi sínu. Hann er
nú að íhuga hvert stefnan verði
tekin í framtíóinni og hefur fengið
fregnir af áhuga bandarískra há-
skóla á að næla í efnilega golfara.
„Eg er að velta því fyrir mér hvort
ég eigi að fara í skóla erlendis eða
reyna að komast út meó einhverja
styrktaraðila á bak við mig. Mað-
ur verður að sjá til en ég á tvö ár
eftir í skólanum héma. Eg stefni á
að klára þau fyrst,“ segir Sigur-
páll.
Næst á dagskrá hjá kappanum
er heimsmeistaramót áhugamanna
í Frakklandi sem fram fer um
næstu mánaðamót. Þar mun hann
keppa ásamt Birgi Leif, Sigurjóni
Amarssyni og Björgvini Sigur-
bergssyni.
Nói Björnsson sést hér á fyrstu æfingu sinni með Þór í sumar. Með honum á
myndinni eru Bjarni Sveinbjörnsson og Örn Viðar Arnarson.
Torfæra:
Einar sigraði í
Norðurlandamótinu
Knattspyrna - 3. flokkur karla:
KA nældi í bikarinn
- sigraði Þór í úrslitaleik norðanlands
I vor héldu vaskir torfærukapp-
ar frá íslandi til Svíþjóðar til að
etja kappi við erlenda torfæru-
garpa. I Svíþjóð fóru fram tvær
torfærur í keppninni um Norð-
urlandameistaratitilinn og Ak-
ureyringurinn Einar Gunnlaugs-
son bar sigur úr býtum í flokki
sérútbúinna torfærubfla í þeim
báðum.
Um helgina var svo síðasta
torfæran í Norðurlandamótinu
haldin í Jósepsdal og þar varð
Einar í fjórða sæti. Einar var þar
meö stigahæstur keppenda í Norö-
urlandamótinu, meó 48 stig, og
landslið íslands í torfæru bar
sigurorð af keppinautum sínum. I
öðru sæti var Þórir Schiöth með
36 stig og í þriðja sæti Gísli G.
Jónsson meö 33 stig.
Sigurvegari í götubílaflokki var
Ragnar Skúlason. KLJ
Á sunnudag mættust KA og Þór
í 3. flokki karla í knattspyrnu á
Þórsvellinum. Þar var verið að
spila úrslitaleik í bikarkeppni
KSÍ en keppt er á tveimur víg-
stöðvum í þessum aldursflokki
og fór annar Ieikurinn fram
norðan heiða. KA sigraði í leikn-
um, 4:3, en KA hafði sigrað í
fyrri leik liðanna, 5:1.
KA tók snemma forustu í
leiknum þegar varnarmaður Þórs
var svo ólánssamur aö stýra knett-
inum í eigið net. Á 30. mínútu var
síðan Herði Flóka Olafssyni í liöi
KA vikið af leikvelli og eftir það
jafnaðist leikurinn. Janus
Valdimarsson jafnaöi fyrir Þórsara
áður en Arnar Vilhjálmsson skor-
aði tvívegis fyrir KA og kom
þeim í 3:1. Bæði mörkin voru
mjög svipuð þar sem Arnar slapp í
gegnum vörn Þórs. Elmar Hjalta-
lín minnkaöi muninn aó nýju fyrir
Þórsara en Halldór Sigfússon
bætti við marki fyrir KA eftir
glæsilegan einleik og breytti stöð-
unni í 4:2. Halldór var rekinn útaf
skömmu síðar fyrir gróft brot.
Þórsarar voru því tveimur fleiri
síðustu mínúturnar og nýttu sér
þaó til aó minnka muninn og þar
var Elmar aftur að verki.
Ahugi
Arsenal hefur áhuga á aó fá
hollcnska kantntanninn Marc
Overmars frá Ajax. Overmars
þessi þykir einkar snöggur og
lipur leikmaður og segist sjálf-
ur vilja til Englands. Hann hef-
ur ákvæði í santningi sínum
vió Ajax sem scgir að hann
megi fara ef einhver er Ulbúinn
að borga tæpar 400 milljónir.
Sigurlið KA með bikarinn. Efsta röð f.v.: Heimir Árnason, Gunnar Níelsson vatnsbcri, Pétur Ólafsson þjálfari og
Sigmundur Þórisson formaður KA. Næst efsta röð f.v.: Jóhann Hermannsson, Þorleifur Árnason, Hörður Flóki Ól-
afsson og Viðar Vignisson. Næst neðsta röð f.v.: Jóhann Traustason, Hlynur Erlingsson, Örvar Gunnarsson, Jón
Kolbeinsson, Gunnþór Jónsson og Arnar Vilhjálmsson. Ncðsta röð f.v.: Þórir Sigmundsson, Sverrir Jónsson, Hall-
dór Sigfússon, Þóroddur Ingvarsson, Gunnar Már Sigurðsson og Andri Magnússon.
Stúlkur
8-18 ára
Skrdning í
kvennaflokka
í körfubolta
fer fram í síma
27687 (Edda).
Þar veröa
allar ndnari
upplýsingar gefnar.
r ^
SETTU X VID MIDVIKUDAGINN 2T. SEPTEMBER