Dagur - 12.11.1994, Qupperneq 13
Laugardagur 12. nóvember 1994 - DAGUR - 13
POPP
MAúNÚS CEIR CUÐMUNPSSON
R€AA ofram á
sigurbraut
Þeir sem fylgjast vel með
íþróttum, t.d. knattspyrnu,
þekkja gjörla þaó ástand sem
getur skapast þegar einu liói
gengur mjög vel í langan tíma,
viróist geta leikió nær enda-
iaust án þess að tapa, unnið
titla á hverju ári o.s.frv. Þegar
svo ber undir spá menn al-
mennt og spekúlera hversu
lengi viókomandi lið haldist á
toppnum og geta þá andstæö-
ingar þess ekki beóió eftir aó
því fari að förlast. í tónlistar-
heiminum á þetta aó mörgu
leyti viö líka. Það er t.a.m. á
hreinu aö margir eru farnir að
spyrja hvort velgengni REM
ætli engan endi aö taka, en fer-
ill Michael Stipe og félaga hef-
ur verið nær samfelld sig-
urganga frá upphafi. Svarið við
því í dag er einfaldlega NEI,
REM stiga ekki feilspor með riýju
plötunni Monster.
því þrátt fyrir nokkra áherslu-
breytingu á nýju plötunni
Monster, frá tveimur síóustu
plötunum, Out of time og Auto-
Stelpurnor og
strákomir
Á þessu lýðveldisafmælisári hafa
plötuútgefendur verið duglegir aó
votta því viróingu sína, ef svo má
segja og eru enn að, nú þegar það
er senn að renna sitt skeið. Nú
síðast komu út fyrir skömmu frá
Spor hf. tvær plötur sem skírskota
beint til þessara tímamóta, Strák-
arnir okkar og Stelpurnar okkar,
þar sem 25 söngvarar og söng-
Ellý Vilhjálms er ein söngkvennanna 25
á „Stelpunum okkaE.
konur flytja vinsæl lög frá fyrstu 25
árum lýóveldisins á sitt hvorri
plötunni. Reyndar strangt til tekió
frá fyrstu 25 árunum, þar sem sum
laganna eru eldri og höfóu heyrst
fyrr, en í megindráttum eru lögin
og upptökurnar frá þessum fyrsta
aldarfjórðungi lýðveldisins. Má
segja að þessar plötur séu nokkuð
góður þverskurður af dægurtónlist
þessara ára, en á þeim er að finna
allt frá rútubílasöngvum til sígildra
dægurperla. Söngvararnir eru síð-
an flestir ef ekki allir þeir ást- og
vinsælustu frá þessum árum.
Söngkonurnar eru m.a. Erla Þor-
steins (Hvers vegna?), Ellý Vil-
hjálms (Brúðkaupið), Ingibjörg
Smith (Nú liggur vel á mér), Guð-
rún Á. Símonar (Siboney) og Hall-
björg Bjarnadóttir (Björt mey og
hrein), svo örfáar séu nefndar, en
meóal karlsöngvaranna eru Alfreð
Clausen (Æskuminning), Bjarki
Tryggvason (í hjónasæng), Óðinn
Valdimarsson (Einsi kaldi úr Eyj-
unum), Rúnar Gunnarsson (Sigl-
ing) og Haukur Morthens (í land-
helginni).
Donsinn dunor
Nýjasta afurðin í dansútgáfunni,
sem áfram heldur sínu striki, er
safnplatan Transdans 3 frá Skíf-
unni. Er þar um að ræða 18 laga
plötu með mestmegnis erlendum
dansstykkjum sem gert hafa það
gott að undanförnu, en líka með
þremur íslenskum lögum. Tvö eru
með hinni vaxandi danssveit
Scope, Svölu Björgvinsdóttur (Hall-
dórssonar) og félögum, sem slógu
vel í gegn í sumar með laginu Was
that all it was, en eitt með nýrri
danssveit, Dancin’ mania. Nefnast
lög Scope Hot shot og In the arms
of love, en lag Dancin’ mania ber
heitið I believe in you. Af erlendu
lögunum sem athyglisverð teljast
má nefna hið þýska Eins, zwei,
polizei meó Mo-Do, Eighteen
strings með Tin man, Can you feel
it með Real II real og síðast en ekki
síst hió gríðarvinsæla Everybody
gonfi fon með Two cowboys, sem
hreinlega hefur tröllriðið danshús-
um hér á landi og víóar í sumar.
matic for the people, fatast
þessari einni vinsælustu hljóm-
sveit heims ennþá ekki flugió.
Heldur rokkaðra yfirbragó sem
minnir nokkuó á það sem
hljómsveitin gerði í upphafi,
hefur ekki aftraó því að platan
rynni út og færi á toppinn bæói
austan hafs og vestan. Það á
hún líka fyllilega skilió, því í
heild er um bráðgott rokkverk
að ræða, sem sómir sér vel
innan um önnur glæsiverk
REM. Lög eins og Star 69,
Bang and blame, What’s the
frequency, Kenneth, Strange
currencies og Crush with eye-
liner, eru hreinasta afbragð og
gera það að verkum að Monst-
er er tvímælalaust ein af þeim
plötum sem koma til greina
sem sú besta á árinu þegar
upp verður staöió.
Sýrurokkarinn Rocky
Ericson, sem frægur
varó á sjöunda ára-
tugnum meó hljómsveit
sinni 13th floor elevators
og reynst hefur býsna
áhrifamikill á seinni t(ma
rokkara, er nú eftir nær
tíu ára hlé aó senda frá
sér nýja smáskffu. Nefnist
aðallag hennar We are
never talking og er for-
smekkur af nýrri plötu, All
that may do my rhyme,
sem koma á út ( byrjun
næsta árs. Bók með text-
um kappans, sem þótt
hafa merkilegir, kemur
einnig út á svipuðum tíma
og platan.
Eftir þó nokkuó miklar
tafir m.a. vegna
lagaþófs útgáfufyrir-
tækisins, American rec-
ordings, er nú þriója plata
hinnar sigursælu rokk-
sveitar Black crowes loks-
ins að sjá dagsins Ijós.
Nefnist gripurinn engu
minna en America og má
fastlega búast viö að hún
verói farsæl sem fyrri
plöturnar.
Plasma shaft er heitið
á plötu meó hinni vin-
sælu sveit Red hot
chili peppers, sem að und-
anförnu hefur aðeins verið
fáanleg í Ástralíu. Er þar
um að ræða sérstaka út-
gáfu þar sem síðasta plata
sveitarinnar Blood, sugar,
sex majik er alla að finna
auk átta annarra laga. Eru
þau blanda af eldri lögum í
endurunnum búningi, áður
óútgefnum og tónleikaupp-
tökum. Er þessi plata nú
komin út ( Evrópu og ætti
að vera fáanleg einnig hér
á landi nú.
Umsókn um framlög
úr Framkvæmdasjóði
aldraðra 1994
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum
um framlög úr sjóðnum árið 1994. Eldri umsóknir koma að-
eins til greina séu þær endurnýjaðar. Nota skal sérstök um-
sóknareyðublöð sent fylla ber samviskusamlega út og liggja
þau frammi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Einnig er ætlast til aó umsækjendur lýsi bréflega einingum
húsnæðisins, byggingarkostnaði, verkstöðu, fjármögnun,
rekstraráætlun, þjónustu- og vistunarþörf ásamt mati þjón-
ustuhóps aldraðra (matshóps) og þar með hvaða þjónustu-
þætti ætlunin er að efla. Umsókn skal fylgja ársreikningur
1993 endurskoðaður af löggiltum endurskoðanda og kostn-
aðaryfirliti yfir fyrstu níu mánuói ársins 1994.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fullnægt áskilur sjóðsstjórn-
in sér rétt til að vísa umsókn frá. Umsóknir skulu hafa borist
sjóðsstjórninni fyrir 1. desember 1994, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Þrotabú Vélsmibjunnar hf.,
VSA, auglýsir:
Til sölu er húsnæði
þrotabús VSA ab Gránufélagsgötu 47
Húsnæöið er þrískipt:
1 85 m2,
135 m2,
230 m2,
samtals 550 m2
og selst hvort heldur sem er í fyrrnefndum einingum eöa
einni heild.
Tilboð sendist til:
Þorsteins Hjaltasonar hdl.
skiptastjóra
Pósthólr 32, 602 Akureyri.
Nauðungaruppboð
Að kröfu ýmissa lögmanna verða eftirtaldar vélar og
tæki í eigu Brauðhússins hf., boðin upp að Langanes-
vegi 28, Þórshöfn, mánudaginn 21. nóvember 1994 kl.
16.:
Björn 60/30 hrærivél, Diosna spiraleltikar, WP
Rotamat deigdeilir, Rondo útrúllningsvél, Lillnord
frystihefsskápur, Dahlen 9020 stikkofn ásamt stikk-
um, vatnsblandari B47 og Rondex S uppverkari.
Greiðsla fari fram við hamarshögg og veróa ávísanir
ekki teknar gildar nema með samþykki uppboðshald-
ara.
SÝSLUMAÐURINN HÚSAVÍK
9. nóvember 1994.
FLUGMÁLASTJÓRN
Framkvæmdarstjóri
fjármála
Staða framkvæmdastjóra fjármáladeildar Flug-
málastjórnar er laust til umsóknar.
Framkvæmdastjóri fjármála heyrir undir flugmálastjóra. Verk-
svið fjármáladeildar er m.a. yfirstjórn fjármála, gerð áætlana
og fjárlagatillagna, bókhald og eftirlit með fjárhagslegum
þáttum í rekstri og framkvæmdum, tengsl við Alþjóðaflug-
málastofnunina, starfsmannahald og almenn stjórnsýsla
stofnunarinnar.
Háskólapróf í viðskipafræði eða sambærileg menntun er
áskilin, sem og mjög góð enskukunnátta. Nauðsynlegt er að
viðkomandi hafi reynslu af störfum er snerta fjármálastjórn,
bókhald, áætlanagerð og starfsmannahald. Laun samkvæmt
launakerfi opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Kristinn Jónsson, fjármálaráð-
gjafi Flugmálastjóra, í síma 694125, virka dag kl. 10-11.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf, sendist samgönguráðuneytinu fyrir 25. nóvember 1994.
Með upplýsingar um umsóknir verður farið skv. ákvæðum
laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur opinberrra starfs-
manna og stjórnsýslulaga nr. 37/1993.