Dagur - 12.11.1994, Blaðsíða 15
UTAN LAN P5TEI NANNA
Laugardagur 12. nóvember 1994 - DAGUR -15
UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
Vill ekki fá Clint
upp f til sín
Lola og Aaron Howcll vildu ckki
Bóndahjónin AAROM OG LOLA HOWELL voru furöu lostin þegar aó dag einn birtusl
prúðbúnir menn á þröskuldinum hjá þeim og buöu tæpar 20 milljónir króna fyrir aö
leigja bóndabýli þeirra í Madisonsýslu í Iowa í Bandaríkjunum. Þama voru mættir
háttsettir menn hjá Warner kvikmyndafyrirtækinu og vildu þeir taka býlió á leigu í þrjá
mánuöi til aö hægt væri aö taka þar upp nýjustu stórmynd Stevens Spielberg, The Bridges of
Madison County. Hjónunum fannst boðið höfóinglegt enda um aó ræöa þrefalt söluverö jaró-
arinnar auk þess sem þeim var boðió aö dveljast á hóteli í næsta bæ sér að kostnaóarlausu á
meöan á tökum stæói.
Gömlu hjónin, sem bæöi eru 84 ára, höfnuöu þó strax tilboóinu þegar þau heyrðu hvaö aö-
alleikendumir, Clint Eastwood og Meryl Streep, áttu að aóhafast í svefnherbergi þeirra hjóna. í
myndinni Ieikur Clint ljósmyndara sem á í stuttu ástarsambandi við húsfreyjuna á staönum á
meðan aó eiginmaóur hennar og böm skreppa í burtu. „Þaö hefur aldrei verió drýgt hór í þessu
húsi og mun aldrei vera á meðan ég lifi,“ sagöi Aaron þegar hann heyrði af bólförum stjarn-
anna. „Eg sagði þeim strax í byrjun að þaö yrói ekkert
laumuspil. Eg held þeir hafi talið sig geta breytt
skoðun minni en þeir vissu ekki hversu fastur
ég stend á mínu,“ bætti gamli maóurinn vió
en hann og Lola hafa verið gift í 64 ár og
eiga 4 böm, 12 bamaböm og 16 bamabama-
i. Lola var einnig lítió hrifin af stjömun-
um frá Hollywood. „Vandamálið í kvik-
myndum í dag er hversu hryllilegar
þær eru. Fólk hittist og fimm mínútum
síöar eru þau komin upp í rúm. Ungt
fólk sér allt of mikió af slíku og ég vil
ekki bæta þar á,“ sagöi Lola.
Bóndabýli hjónanna þótti líkjast
mjög þeim lýsingum sem komu fram
á bóndabýlinu í bókinni en eftir
nokkrar tilraunir til að fá Howells-
hjónin til aö gefa eftir ákváöu fram-
leióendur aö notast vió eyöibýli
skammt frá og byggja þaó upp.
Búist er viö aó myndin veröi mikið
meistarastykki enda fyrirmyndin mjög
vinsæl. Samnefnd bók hefur selst í yf-
ir fimm milljónum
eintaka síóan hún
var gefin út fyrir
tveimur árum og
hefur verió á lista
New York Times
yfir söluhæstu bæk-
ur í 113 vikur. Aar-
on og Lola segast
ekki búast við aö sjá
myndina þegar hún
veröur sýnd. „Mig
langar til þess en
Aaron hefur ekki
mikinn áhuga,“ seg-
ir Lola.
böm
Hörkutólið
Clint East-
wood er ckki
dauður úr öllum
æðum.
ÓxUíMMaSUa,
Kynbomban AMMA MICOLE SMITrl, sem hefur helst unnið sér til frægöar aó vera
leikfélagi ársins hjá Playboy, hefur vakið mikla athygli fyrir gjöfugan líkamsvöxt.
Hún hefur rakað inn milljónunum á því að sýna brjóstin ber og segir stolt að þau
séu ekta en ekki eru allir á sama máli. Nú eru komnar fram myndir af henni þegar
hún var ung fatafella í Houston þar sem hún er flöt sem pönnukaka og segja „sérfræð-
ingar" aö hún hafi aó minnsta kosti þurft þrjár brjóstaaðgerðir til aó ná núverandi stæró.
FORELDMR
I FfíNGELfl
Demi Moore vill
forcldra sína hafa.
ekkcrt með
L
Cöfrabrögð í tollínum
Körfuknattleikssnilling-
urinn MAGIC JOrlM-
SOM hefur feróast
víóa um heiminn til að
fræóa unga leikmenn um leik-
inn síðan hann hætti aó leika
körfuknattleik eftir aó hafa greinst með eyöni. Fyrir skömmu
kom hann til Spánar og í staó þess að taka höfðinglega á móti
honum var kappinn handtekinn í tollinum og færöur í yfir-
heyrslur. Lögregluyfirvöld í Madrid töldu sig hafa gómaó
illræmdan hryójuverkamann, Earvin Johnson, og áttuóu
sig ekki á mistökunum fyrr en þeir tóku eftir hæöar-
muninum á þeim eftirlýsta og leikmanninum. Þótt
Magic kunni ýmist töfrabrögð inni á vellinum þá
gat hann engan veginn passaö vió lýsingu á
hryðjuverkamanninum sem var aóeins 165 sm
á hæð á meóan Magic stendur í rúmlega
tveimur metrum. Þegar betur var að gáð
kom í ljós aö afbrotamaðurinn var hvítur
á hörund og ljóshæröur og passaói það
illa viö lýsinguna á Magic Johnson.
eikkonan DEMI MOORE er ekki stolt af for-
eldrum sínum. Móðir hennar, Virginia Guy-
nes, hefur oft reynt aö græða á frægö dóttur-
innar og ekki er langt síöan nektarmyndir af
henni prýddu síóur amerísks karlablaös. Nú hefur
hún bætt um betur og situr í fangelsi í Nýju Mexíkó
ákærð um íkveikju. Virginia, sem nú er fimmtug, á
yfir höföi sér sjö ára fangelsisdóm ef hún verður
fundin sek um aö kveikja í íbúö konu einnar en þær
lentu í slagsmálum stuttu áöur en eldur kom upp í
íbúö konunnar meö dularfullum hætti. Virginia á
ekki glæsta fortíð þar sem hún hefur viöurkennt aö
eiga viö drykkju- og eiturlyfjavandamál að stríöa og
hefur oft veriö tekin ölvuð á bíl. Pabbi leikkonunn-
ar, Charles Harmon, er litlu skárri en hann situr í
fangelsi í Houston í Texas fyrir þjófnað og ölvunar-
akstur. Demi Moore hefur haft lítiö samneyti vió
foreldra sína undanfarin ár og nú vill hún ekkert
meira meö þau hafa. Sjálf hefur Demi haft í nógu aö
snúast aö undanfömu og hefur nýlokiö vió tökur á
nýrri mynd sem kallast Disclosure.
Virgina Guynes hcfur vcr-
ið duglcg við að komast í
fréttirnar.
Charles Harmon hefur
ckki reynst dótturinni vel.