Dagur - 22.11.1994, Síða 5
Þriðjudagur 22. nóvember 1994 - DAGUR - 5
„Menn þurfa að bjarga sér sjálíir,ÉÍ
- segir Stefán Oskarsson, byggingameistari á Rein
Stefán Óskarsson á og rekur Tré-
smiðjuna Rein í Reykjahverfi, sem
hefur í þrjá áratugi verið í hópi
stærstu verktakafyrirtækja í S.-
Þing. í Reykjahverfi er fjölbreytt-
ari atvinnustarfsemi en í mörgum
öðrum sveitum en þar má nefna
gróðurhúsarækt á Hveravöllum,
ferðaþjónustu á fleiri en einum
stað, fiskirækt við Laxamýri, fisk-
vinnslu, bílaviðgerðir, hópferða-
þjónustu, auk rekstrar Stefáns,
sem hefur verið umfangsmikill.
Hann rak m.a. steypustöð um ára-
bil en hefur hætt þeirri starfsemi.
Stefán er spurður hvernig verk-
efnastaðan hafi verið á árinu.
„Atvinnuástandið var sæmilegt
framan af vetri í fyrra en svo datt
það alveg niður undir vorið og horf-
ur aldrei verið lakari. Ég fór út í það
að sækja um fjögurra íbúða raðhúsa-
lóð á Húsavík og hugðist byggja á
henni til þess að hafa eitthvað fyrir
mína fastráðnu starfsmenn aó gera í
sumar.
Þegar leið á sumarið glæddist
heldur með verkefni og nú undir
haustið var orðið nóg að gera svo
heldur hefur dregist á langinn að ná
raðhúsinu fokheldu, en nú er það
mark alveg að nást svo það má fara
að auglýsa íbúðirnar og selja þær.“
I raðhúsinu að Stekkjarholti 10-
16, sem Stefán er að byggja, eru
fjögurra herbergja íbúðir 121 m2 að
flatarmáli auk grunns fyrir sólstofu
Unnið við raðhúsin sem Trésmiðjan Rein byggir við Stckkjarholt, en þau
cru nú um það bil að verða fokhcld.
og 27
bílgeymslu. Ibúðirnar
kosta 5,5 milljónir fokheldar og frá-
Stefán Oskarsson, byggingameistari
og cigandi Trésmiðjunnar Rein í
Reykjahverfi. Myndir im
Kínverski fjöllistamaðurinn Chen Shuzhen, kom til Akureyrar í síðustu viku,
ásamt flcira fólki, til þcss að kynna sýninguna í Höllinni á morgun. Hópurinn
hcimsótti stofnanir og skóla og auk þess var komið við hjá Jakobi Björnssyni
bæjarstjóra. A myndinni er Chen Shuzhen að sýna kcnnurum og nemendum
í Glcrárskóla listir sínar. Hann hefur vcrið 11 ár í hópnum og tekur þátt í
fjölmörgum atriðum í sýningunni. Mynd: Robyn
gengnar utan en um 10 milljónir
fullfrágengnar.
Enginn réttir mönnum
verkefni í dag
- Síðustu misserin virðast verkefni
hal'a minnkað verulega hjá iónaðar-
mönnum og horfur vera á
áframhaldandi samdrætti á svæðinu.
Hvert er þitt álit?
„Verkefni hafa minnkað verulega
til sveita, sérstaklega í landbúnaðar-
byggingum. Ég hef unnið við tals-
vert af íbúðarhúsabyggingum í sveit-
um síðustu árin, en þar virðist einnig
vera um ntinnkun að ræða núna. Ég
fór því aö byggja raðhúsió til að
þurfa ckki að segja fastráðnum
starfsmönnum upp. Menn þurfa að
bjarga sér sjálfir því það er enginn
sem réttir mönnum verkefni í dag.
Það er orðinn hörð samkeppni í til-
boðum og öðru. Menn þurfa nú að
taka upp nýjar starfsaðferðir. Aður
1'yiT var oft upppantað hjá mér með
meira en ársfyrirvara en nú þarf ég
að leita meira eftir verkefnum sjálf-
ur.“
- Hvemig líst þér á framtíðina?
Attu von á llótta byggingamanna af
svæðinu?
„Ég held að það verði samdráttur
hjá byggingamönnum nema að það
komi til starfsemi í úrvinnslu cða
öóru sent skapar gjaldeyri. Þetta
byggist á því að undirstaða sé fyrir
hcndi og það er búið að klípa veru-
lega af henni í landbúnaðinum og að
hluta til í sjávarútveginum líka. Nú
sýnist mér að úrvinnsla þurfi að
koma til hérna til að auka gjaldeyris-
tekjumar. Að þessu er verið að huga
í Reykjahverfi, þó að hægt fari.“
Var kallaður
landráðamaður
- Reykjahverfi hefur verið með
nokkra sérstöðu, miðaó við aðrar
sveitir í sýslunni, hvað þar er lítið
um atvinnuleysi?
„Atvinnuleysi hefur verió lítið og
tímabundið en starfsemi í sveitarle-
laginu er dálítið sveiflukennd. Það
eru þó aðeins örfáir mánuðir sem
fátt starfsfólk er í gróðurhúsunum
því útplöntun hefst strax í febrúar-
mars. Ég var oddviti þar til fyrir 6
árum og þá komu ekki nema um
18% af tekjum hreppsins frá hefö-
bundnum landbúnaði, aðrar tekjur
kornu frá öörum landbúnaði og
þjónustu.“
- Hverju þakkar þú þessa fram-
kvæmdasemi í Reykhverimgum?
„Þar eru frumkvöðlar í atvinnu-
starfscmi og ég tel að við höfum
betri möguleika þar sem heita vatnið
er. Það á að gefa okkur forskot til að
takast á við verkefnin."
- Hvemig er verktaka úr sveitun-
um tekið þegar hann er að fást við
verkefni á Húsavík?
„Það er svolítió litið á okkur sem
aðkomu vinnukraft. Þar spila inní
þessi hreppamörk sem að mínu mati
ætti að vera búið að fjarlægja fyrir
lifandi löngu. Það eru ein 20 ár síðan
ég orðaði þetta fyrst og var þá kall-
aður landráðamaður af sveitungum
mínum. En það er forsenda fyrir því
að þróun verði í sveitunum að fækka
hreppamörkum verulega. Ég hef lent
í því að gera tilboð í verk en vera
hafnað vegna búsetu, þá er ég ekki
eingöngu að ræöa um Húsavík held-
ur einnig önnur sveitarfélög. Ég hef
núkið byggt á Húsavík, bæði áfanga
við Heilsugæslustöðina, Safnahúsið
og rnörg íbúðarhús.
Ég hef gagnrýnt sveitarstjórnar-
menn síðastliðin 20-30 ár fyrir að
horl'a cingöngu til þjónustugreina
þcgar ný atvinnustarfsemi er á döf-
inni. Að núnu mati hafa frumat-
vinnuvegirnir verið vanræktir og því
er hætta á samdrætti hjá bygginga-
mönnum. Yfirvinna hefur mikió
dregist saman og það hefur ekki
konúð fyrir áður hjá mér eins og var
síðasta vetur, aö við ynnum bara átta
tímana.“ IM
Kínverskt fjölleikahús sýnir á Akureyri:
Mýkt og lipurð
með emdæmum
- allur ágóði fer til Umsjónarfélags einhverfra
Hið heimsfræga kínverska ríkis-
Qölleikahús er nú statt hér á
landi og mun sýna listir sínar
vítt og breitt um landið í
vikunni, m.a. á Akureyri á
morgun miðvikudaginn 23.
nóvember. Það er hægara sagt
en gert að koma heilu fjöllcika-
húsi til landsins og til þess þarf
flugvél með fullfermi af alls
kyns búnaði. Hingað kemur
hópurinn frá Bretlandi, þar sem
viðtökurnar voru hreint frábær-
ar.
Sýningin á Akureyri fer fram í
Iþróttahöllinni miðvikudaginn 23.
nóvember og hefst kl. 20.30.
Miðaverð á hverja sýningu er kr.
1.500 ef keypt er í forsölu en ann-
ars kr. 2.500.-. Forsala fer hins
vegar fram í Leikhúsinu. Allur
ágóði sýninganna hér á landi renn-
ur til Umsjónarfélags einhverfra á
Islandi.
I fjölleikahúsinu eru 50 heinis-
frægir fjöllistamenn og þeir
skemmta ungum sem öldnum með
alls kyns áhugaverðum og fram-
andi íeikatriöum sem oft eru á
mörkum þess framkvæmanlega
hvað snerpu og snilld varðar. List-
rænir tilburðir og snillibrögð
þeirra gera áhorfandann hreint
agndofa.
Fjöllcikar eru garnall menning-
ararfur Kínverja og eitt aðals-
merki þeirra eru fimleikar, sem
eiga sér 3000 ára sögu í Kína. Inn
í þá eru fléttaðar sögur af menn-
ingu, lífi og störfum Kínverja í
gegnum aldirnar og þykir mýkt og
lipurð listamannanna frá Peking
meö algerum eindæmum.
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms
í Danmörku og Noregi
1. Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa ís-
lendingum til háskólanáms í Danmörku námsárið
1995-96. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru
nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir vió 9
mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim
ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 4.140,- d.kr. á mán-
uði.
2. Norsk stjórnvöld bjóða fram einn styrk handa ís-
lenskum stúdent eða kandídat til háskólanáms í Nor-
egi námsárió 1995-96. Styrktímabilið er níu mánuóir
frá haustmisseri 1995. Til greina kemur að skitpa
styrknum ef henta þykir.
Styrkurinn nemur 5.700 n.kr. á mánuði. Umsækjendur
skulu að öllu jöfnu vera yngri en 35 ára og hafa stund-
að háskólanám í a.m.k. 2 ár.
Umsóknir um styrkina skulu sendar menntamálaráóu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. des-
ember nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknum fylgi staöfest afrit prófskírteina ásamt
meðmælum.
Menntamálaráðuneytið, 17. nóvember 1994.
441KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
FÉSÝSLA
Vikuna 13.-19. nóv. voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 13,7 milljónir króna. Mest
voru viðskipti með hlutabréf I eftirtöldum fé-
lögum: Hlutabréfasjóðnum Auðlind hf. fyrir
3,5 milljónir króna á genginu 1,17, Þormóði
ramma hf. fyrir 2,1 milljón króna á genginu
2,0-2,05, Hlutabréfasjóðnum hf. fyrir 1,7
milljón króna á genginu 1,35-1,39.
Viðskipti með húsbréf voru 1,1 milljón
króna, Spariskírteini rikissjóðs 180 milljónir,
ríkisvíxla 1.888 milljónir og ríkisbréf 104
milljónir.
Ávöxtunarkrafa Húsbréfa var í vikunni
5,82-5,83%.
SPARISKIRTEINI
s RÍKISSJÓÐS
Tegund K gengi K áv.kr.
91/1D5 1,4471 4,75%
92/1D5 1,2796 4,89%
93/1D5 1,1884 5,01%
93/2D5 1,1211 5,04%
94/105 1,0259 5,05%
HÚSBRÉF
Flokkur Kgengi Káv.kr.
94/1 0,9551 5,78%
94/2 0,9362 5,78%
94/3 0,9169 5,78%
94/4 0,9118 5,78%
VERÐBREFASJÓÐIR
ÁvíiWl.nóv.umlt.
verðbólgu siðustu: (%)
Kaupg. Sölug. 6 mán. 12 mán.
FJárfestingarfélagid Skandia hf.
Kjarabréf 5,397 5,451 6,7 7,7
Markbrél 2,944 2,974 8,9 9,8
Tekjubréf 1,565 1,581 9,5 119
Skyndibréf 2,147 2,147 4,1 4,7
Fjölþjóðasjóður 1,359 1,402
Kaupþing hf.
Einingabréf 1 7,271 7,404 2,9 3,8
Einingabréf 2 4,153 4,174 1,9 7,7
Einingabrél 3 4,665 4,750 1,3 3,1
Skammtimabréf 2,573 2,573 2,3 7,1
Einingabréf 6 1,143 1,178 -6,1 12
Verðbréfam. Islandsbanka hf.
Sj. 1 Vaxtarsj. 3,628 3,646 4,9 59
S|.2Tekjusj. 2,036 2,056 10,1 12,0
Sj. 3 Skammt. 2,499 4,9 5,9
Sj. 4 tangtsj. 1,719 4,9 5,9
Sj. 5 Eignask.frj. 1,639 1,647 -0,7 10,9
Sj. 6 island 422 262
Sj. 7 Þýsk hlbr.
Sj. 10 Évr.hlbr.
Vaxtarbr. 2,5568 4,9 49
Valbr. 2,3966 4,9 69
Landsbréf hf.
islandsbrét 1,594 1,623 4,8 6,7
Fjórðungsbréf 1,191 1,208 6,1 9,6
Þingbréf 1,874 1,897 3,1 15,6
Öndvegisbrél 1,704 1,726 1,3 11,6
Sýslubrél 1,587 1,608 41,9 18,7
Reiðubréf 1,539 1,539 3,9 5,5
Launabréf 1,046 1,062 ■ 1,0 11,7
Heimsbréf 1,460 1,496 -10,4 -3,0
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi á Veröbréfaþingi Islands:
HagsL tilboð
Lokaverð Kaup Sala
Auðlindarbréf 1,17 1,14 1,17
Eimskip 4,83 4,75 4,83
Flugleiðir 1,54 1,56 1,54
Grandi hl. 1,90 1,88 1,90
Hampiðjan 1,79 1,74 1,79
Haraldur Bððv. 1,63 1,63 1,69
Hlulabréfasjóð., 1,38 1,37 1,41
Hlulabréfasj. VÍB 1,15 1,16 122
íslandsbanki hl. 1,13 1,12 1,15
ísl. hlutabréfasj. 1,26 1,24 129
Jarðboranir hf. 1,72 1,73 1,80
Kaupfélag Eyf. 2,10 2,20 2,40
Marel hf. 2,53 2,53 2,61
Olís 2,77 2,60 2,70
Olíufélagið hl. 5,88 5,78 5,88
Sildarvinnslan hf. 2,70 2,70 2,78
Skagstrendingur hf. 2,05 1,76 2,05
Skeljungur hl. 4,60 4,60 4,70
Sæplast 2,90 2,84 2,90
Útgerðarfélag Ak. 2,99 2,83 3,00
Þormðður rammi hl. 2,05 1,97 2,05
Sölu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkaðinum:
Alm. hlutabr.sj. hf. 0,90 0,90 0,94
Ármannsfell hf. 0,86 0,85 0,98
Árnes hf. 1,85
Biíreiðaskoðun isl. 2,15 1,20 4,00
Eignlél. Alþýðub. 1,05 0,89 1,05
Hlutabréfasj. Norðurl. 1,23 1,22 125
Hraðfryslihús Eskifjarðar 1,70 2,50
isl. sjávarafurðir 1,20 1,00 124
fsl. utvarpsfél. 3,00 2,75
Kögun hf. 4,20 7,50
Pharmaco 7,95 7,95
Samein. verktakar hl. 6,50 6,51
Samskip hl. 1,12
Sjóvá-Almennar hl. 6,10 6,76 6,30
Soltís hf. 6,00 3,00
Sölusamb. Isl. fiskframl. 0,84 0,85
Tangi
Tollvörug. hl. 1,10 1,10 125
Tryggingarmiðst. hf. 4,80
Tæknival hf. 1,10 0,90 120
Tölvusamskipti hl. 2,60 3,10
Þróunarfélag íslands hf. 1,10 0,70 120
DRÁTTARVEXTIR
Október 14,00%
Nóvember 14,00%
MEÐALVEXTIR
Alm. skuldabr. lán október 10,80%
Alm. skuldabr. lán nóvember 10,90%
Verðtryggð lán október 8,20%
Verðtryggð lán nóvember 8,30%
LÁNSKJARAVÍSITALA
Nóvember 3378
Desember 3384