Dagur - 22.11.1994, Qupperneq 7
Þriðjudagur 22. nóvember 1994 - DAGUR - 7
Lcó Örn Þorleifsson átti góðan leik á línunni og skoraöi þrjú mörk.
Blak, 1. deild kvenna:
Slæmur skellur
hjá KA-stúlkum
Blaklið kvenna hjá KA fékk
heldur betur skell þegar það
sótti Víking heim á laugardag-
inn. Víkingur hafði aðeins tapað
einni hrinu í deildinni í vetur,
fyrir viðureign liðanna, og tók
KA í sannkallaða kennslustund,
vann 3:0 og þar af tvær hrinur
15:0.
KA-stúIkur áttu í erfiðleikum
með að stilla upp sínu sterkasta
liði í lyrstu lotunni vegna vand-
ræða meó búninga sem glcymdust
heima og það tók heimaliðið ekki
langan tíma að skora fimmtán stig
án þess að KA næði að svara lyrir
sig. Onnur lotan byrjaði heldur
betur. KA náði forystu í byrjun,
5:3, Víkingur jafnaði 5:5 og aftur
6:6, en skoraði síöan níu stig í röó
gegn einu stigi KA. Þriója lotan
var síðan keimlík þcirri fyrstu,
KA komst ekki á blað en Víkingur
skoraði sín fimmtán stig á
skömmum tíma.
Fyrirfram var vitað að róðurinn
yrói erllður l'yrir KA-stúlkur, Vík-
ingur hcfur aðeins tapað einni
hrinu í vctur og er efst í deildinni.
KA-Iiðið kom cngu að síður mjög
á óvart með afar slökum leik.
Aldrei svo mikið sem neistaði í
leik þess og furóulegt aó jal'n gott
lið geti dottið niöur á jafn lágt
plan. Víkingur spilaði hins vegar
cins og sá sem valdið hefur en
fékk enga mótspyrnu og því erlltt
að meta styrk liðsins, sem þó er
óumdeildur.
Leikmenn KA gengu niðurlútir
af velli og höfðu engar skýringar á
slæmum leik. „Þetta er þaó versta
sem ég hef á ævinni lent í,“ sagði
Bjarni Þórhallsson, þjálfari KA.
SV
□ "□“00"rpn»
° ° □ □
Líkamsrœktin
Hamri!
Sími 12080
Ný námskeið
hefjast mánudaginn
28. nóvember.
Körfuknattleikur - Úrvalsdeild:
Réðu ekkert við hraðann
- Grindvíkingar feiknasterkir á Sauðárkróki
Það var hraður og íjörugur
leikur á Sauðárkróki á sunnu-
dagskvöld þegar heimamenn
tóku á móti Grindvíkingum í
úrvalsdeildinni. Eins og búist
var við voru það gestirnir sem
héldu heim með bæði stigin eft-
ir þrjátíu stiga sigur, 70:100.
Grindvíkingar byrjuðu strax
af miklum krafti, skoruðu lyrstu
sjö stigin og gáfu forsmekkinn af
því sem koma skyldi. I stöðunni
2:9 skoraði Omar Sigmarsson
tvær þriggja stiga körfur í röð og
Stólarnir virtust til alls líklcgir.
Fyrstu fimm mínúturnar héldu
heimamenn í við gestina cn þá
fór að ganga illa og gestirnir tóku
örugga forustu. A þremur slæm-
um mínútum breyttist staðan úr
14:17 í 14:26 og eftir það áttu
heimamenn aldrei mögulcika og
Grindvíkingar voru ávallt með
um 19 til 20 stiga forskot. Þegar
fimm mínútur voru til loka fyrri
hálfleiks fór Torrey John útaf
meiddur á baki en hann meiddist
í leiknum gegn Val sl. fimmtu-
dag. Hann hafði lítið getað beitt
sér og munaði urn minna fyrir
Stólana. Staðan í hállleik var
35:54.
Þegar tíu mínútur voru cftir af
leiknum var staöan 54:71 en
heimamönnum tókst að minnka
muninn í 63:76 og þá voru inná
yngstu strákarnir í liði Tindastóls
meö Pál Kolbeinsson, þjálfara,
sér við hlið. Stóðu þcir í Grind-
víkingum í smá tíma en sprungu
á limminu og hraöi gestanna varð
þcim um rnegn.
Hraði Grindvíkinga var geysi-
legur og Stólarnir réóu ekkert vió
hraóan sóknarleik þeirra. Stól-
arnir voru seinir í vörnina og
gestirnir mun sprækari á öllum
sviðum. Meiósli Torrcy John
höfðu mikið að segja hjá hcima-
mönnum og munar um þau 30
stig sem hann er vanur að sctja.
Ungu strákarnir komu sterkir inn
og Oli Barðdal og Atli Þor-
björnsson stóðu sig vel. Hinrik
Gunnarsson og Sigurvin Pálsson
voru þó bestu menn liðsins en
hjá Grindvíkingum bar Guð-
mundur Bragason höfuö og herð-
ar yfir aðra leikmenn.
Gangur leiksins: 0:2, 0:7, 8:13, 16:33,
29:49, 35:54 - 50:67, 59:76, 63:82,
66:88, 68:90, 70:94,70:100.
Stig Tindastóls: Hinrik Gunnarsson 15,
Sigurvin Pálsson 14, Omar Sigmarsson
12, Amar Kárason 7, Páll Kolbeinsson
7, Torrey John 5, Atli Þorbjömsson 5,
Halldór Halldórsson 3, Óli Baródal 2.
Stig Grindavíkur: Guómundur Braga-
son 25, Guójón Skúlason 18, Franck
Booker 15, Pétur Guómundsson 11,
Marel Guólaugsson 10, Unndór Sig-
urðsson 8, Bcrgur Hinriksson 7, Helgi
Guófinnsson 4, Nökkvi Már Jónsson 2.
Dómarar: Einar Skarphéðinsson og
Kristinn Óskarsson. Voru ágætir.
Ahorfendur: Um 300 og góö stentmn-
ing í húsinu.
Hinrik Gunnarsson.
Handknattleikur -1. deild karla:
Felldir á eigin bragði
- FH-ingar gengu af göflunum
„Það var frábær vörn hjá okkur í
fyrri hálfleik. Síðan tókum við þá
á hraðupphlaupunum sem þeir
hafa verið þekktir fyrir þannig að
dæmið snérist við,“ sagði Valur
Arnarson, hornamaðurinn knái í
KA, eftir að lið hans sigraði FH í
KA-heimilinu á föstudagskvöld.
KA-menn skemmtu áhorfendum
með léttum og skemmtilegum
handbolta og sigur liðsins, 27:24,
var sanngjarn. KA-menn leiddu
leikinn allan tímann en staðan í
hálfleik var 15:10.
Leikurinn byrjaði af miklum
krafti þar sem allar sóknir enduðu
með marki. Erlingur Kristjánsson
skoraði fyrsta mark sitt í heimaleik
Ekki gegn FH
Valur Arnarson átti stórleik
meö KA-mönnum gegn FH á
föstudagskvöld og var marka-
hæsti maður liðsins með sjö
mörk. Þetta var sennilega besti
leikur kappans í KA-búningi
en ekki er víst að allir hafi ver-
ið eins ánægóír með frammi-
stöðu hans í lciknum. Valur cr
af miklum íþróttaættum og
faðir hans er Örn Hallsteins-
son, fyrrum landsliðsmaður, og
föðurbróðir hans, Geir, var
einn besti handknattleiksmaður
scm ísland hefur alið af sér.
Þcir léku alla tíó mcð FH og
hefðu sennilega viljað aö strák-
urinn blómstraði gegn ein-
hverju öóni liði.
með KA í vetur og gaf sínurn
mönnum tóninn. Liðin skiptust á
að skora fyrstu mínútumar og
varnarleikurinn var ekki burðugur.
Þegar bæði lið höfóu skorað fjögur
mörk fór að skilja á milli liðanna
og tvö mörk frá Val Arnarsyni úr
hraðaupphlaupum kom KA-mönn-
um í 7:4. Eftir þetta fóru varnirnar
að þéttast og sóknir liðanna að
lengjast. KA hélt ávallt tveggja til
þriggja marka forustu eftir þetta og
á lokakafla fyrri hálfleiks náði lið-
ið nokkrum góðum sóknum og fór
með fimm marka forskot til bún-
ingsherbergja í leikhléi, 15:10.
Það fór um nrargan KA-mann-
inn í upphafi síðari hálfleiks þegar
að FH-ingar skoruðu þrjú fyrstu
mörkin og komu sér aftur inn í
leikinn. Alfreð Gíslason, þjálfari,
kom þá sjálfur inn í sóknarleikinn
og við það gerbreyttist leikur liðs-
ins. Fjögur KA-mörk í röó brcyttu
stöðinni í 19:13 og virtist þessi
kraftur KA-manna fara rnjög í
skapið á gestunum. Guðjón Arna-
son var vikið útaf í 2 mínútur fyrir
kjaftbrúk og stuttu síðar fékk Stef-
án Kristjánsson rautt spjald fyrir
aó brjóta á Jóhanni Jóhannssyni
sem sloppinn var í gegn í hraða-
upphlaupi. Var þetta mjög harður
dómur en virkaði vel á FH-inga
sem rönkuðu við sér og voru mun
ákveðnari eftir þetta. Sigurður
Sveinsson og Knútur Sigurðsson
skoruðu falleg ntörk og FH-ingar
náðu að minnka bilið niður í tvö
mörk, 24:22 en lengra komust þeir
ekki og í lokin var sigur KA ör-
uggur, 27:24.
Þeir tveir rnenn sem hafa verið
hvað minnst áberandi í KA-liðinu
til þessa í vctur, Valur Arnarson
og Leó Örn Þorleifsson, áttu mjög
góðan leik. Valur lokaði vel á Sig-
urð Sveinsson í horninu í varnar-
leiknum og nýtti færi sín vel í
sókninni. Erlingur Kristjánsson
virðist einnig vera búinn að fá
sjálfstraust á ný og skoraði fallcg
mörk á meðan Patrekur Jóhannes-
son var óvenju daufur og kraft-
laus. Alfreð kom inn með mikinn
kraft í sóknina þegar á þurfti að
halda og var firnastcrkur í vörn-
inni. Sama má segja um Jóhann
Jóhannsson í vörninni sem hélt
Gunnari Beinteinssyni alveg niðri.
Markverðirnir, Sigmar Þröstur
Óskarsson og Björn Björnsson,
vörðu ekki mörg skot en Sigmar
tók þó tvö víti á mikilvægum
augnablikum í leiknum auk þess
sem hann brá sér eitt sinn í sókn-
ina og átti þá glæsilega stoðscnd-
ingu á Val Arnarson.
Mörk KA: Valur Amarson 7, Palrekur
Jóhannesson 5/2, Alfreó Gíslason 4, Er-
lingur Kristjánsson 4, Leó Om Þorleifs-
son 3, Helgi Arason 3, Jóhann Jóhanns-
son 1. Varin skot: Signiar Þröstur Ósk-
arsson 5/2, Bjöm Bjömsson 1.
Mörk FH: Hans Guómundsson 7/1,
Knútur Sigurósson 4/2, Guðjón Amason
4, Sigurður Sveinsson 3, Gunnar Bein-
teinsson 2, Hálfdán Þóröarsson 2. Varin
skot: Magnús Amason 8/1. Rósmunur
Magnússon 5.
Dómarar: Láms Lámsson og Jóhannes
Frióriksson.
Áhorfendur: Aóeins 684 mættu á leik-
inn en þeir lélu vel í sér heyra og enda
lcikurinn ekki af lakari geróinni.