Dagur - 22.11.1994, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 22. nóvember 1994 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
íslandsmótið í vaxtarrækt 1994:
Magnús, Margrét og
Jón Þór meistarar
Það var mikið um að vera í
Sjallanum á laugardaginn þar
sem fram fór Islandsmótið í
vaxtarrækt 1994 að viðstöddu
miklu Qölmenni. Forkeppni fór
fram um daginn en úrslitakvöld-
ið var þó aðalhluti keppninnar.
Magnús Bess sigraði í heildar-
keppninni hjá körlunum en
Margrét Sigurðardóttir var ör-
uggur sigurvegari í kvenna-
flokki. Islandsmeistari unglinga
varð Jón Þór Þorvaldsson frá
Vaxtarræktinni á Akureyri.
Mesta spennan var í kringum
keppni Guðmundar Bragasonar og
Magnúsar Bess í heildarkeppninni
ásamt keppni í -70 kg flokki karla
sem var hnítjöfn. Bæði Magnús
og Guðmundur cru með óaófinn-
anleg hlutföll en Magnús er stærri
og meira massaður og nánast með
fullkominn líkama.
I -70 kg llokki karla voru sex
kcppcndur og erlitt að gera upp á
milli þriggja bestu. Þar var Krist-
jáni Arsælssyni dæmdur sigur en
hann er með góð hlutföll en ekkert
sérstaklega góðan skurð. Stcin-
grírnur Sigurðsson er stór og mik-
ill á efri hluta líkamans og varð í
öðru sæti en Rúnar Ingi Kristjáns-
son þurfti að sætta sig við þriðja
sætió og stæltir og miklir fætur
dugðu ekki til.
I kvennaflokki var einungis
keppt í tveimur flokkum og aóeins
þrír kcppcndur. I -52 kg llokki
kepptu Magnea Guðbjörnsdóttir
og Guðrún H. Kristjánsdóttir frá
Akureyri og það var Guðrún scm
hafði betur enda með mjög góð
hlutföll og góðan skuró. I +57 kg
flokki var Margrét Sigurðardóttir
cini keppandinn og sigraði hún
einnig í hcildarkeppni kvenna en
Guörún á ekki langt í land.
I unglingaflokki var Jón Þór
Þorvaldsson öruggur sigurvegari
cn Alexander Aron Guóbjartsson í
öðru sæti.
í -80 kg flokki karla var Axel
Guómundsson öruggur sigurveg-
ari en Haraldur Hoe Haraldsson
var í öóru sæti. Haraldur setti upp
Guðrún H. Krist jánsdóltir og Magnca Guðbjörnsdóttir börðust um sigur í
-52 kg flokki kvcnna og Guðrún hafði bctur.
Þrír efstu menn í heildarkcppni karla sýna hér vöðvana. Frá vinstri: Guðmundur Bragason, Magnús Bess og Elmar
Diego. Myndir: Robyn.
skemmtilega sýningu enda rneð
frábærar stöður. I -90 kg flokki
karla hafði Guðmundur Bragason
yfirburói og í +90 kg sigraði
Magnús Bess eftir keppni við
Hermann Haraldsson.
Kynnir mótsins var Magnús
Már Þorvaldsson og þótti hann
einkar skemmtilegur. Sjallinn var
troðfullur meðan keppninn fór
fram og voru áhorfendur vel með
á nótunum.
Jón Þór Þorvaidsson varð ísiandsmcistari í ungl- Gauti Már Rúnarsson varð í fjórða sæti í -70 kg flokki
ingaflokki og grcinilegt að þarna cr mikið efni á fcrð. cnda mcð góðan skurð.
Haraldur Iloe Haraldsson sýndi aliar sínar bestu hliðar.
Rúnar Ingi Kristjánsson varð að sætta sig við þriðja sætið í -70
kg flokki.
Auðunn Eiríksson er hcr vígalegur að sjá.