Dagur - 22.11.1994, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 22. nóvember 1994
KVIKMYNPIR
VINNIN LAUG/ (j) (a GSTÖLUR RDAGINN 19.11.1994
2)@ (23)
VINNiNGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 a( 5 0 4.445.453
2.piú,5C 89.819
3. 4af 5 105 7.378
4. 3af 5 3.851 469
Heildarvinningsupphæö: 7.475.357
m i BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
The Specialist hin ágætasta afþreying:
Býóur upp á hefhd, svik, morð, ofurhetju og ástir
Tvær af stærstu kvikmyndastjörn-
um nútímans, Sharon Stone og
Sylvester Stallone, leika saman í
magnaóri spennumynd, Sérfrœð-
ingnum cóa The Specialist sem
býóur upp á allt sem nútíma
spennumynd getur prýtt, þ.e.
hefnd, ntorð, svik, ástaratriði og
ekki síst hraóa atburðarás. Stall-
one bregst ekki stórum aðdáenda-
hópi sínurn í þessari rnynd sem
holdgervingur hasarhetjunnar og
sérfræðingsins í manndrápum, en
er um leið ljúfmennió sem tekur
TOKUM AFENGIÐ
ERÐ
ílJStf***
MFERÐAR
RAÐ
að sér flækingskött og jafnar um
hóp rustilmenna í strætó „cm ekki
standa upp fyrir ófrískri konu.
Alla myndina í gegn undirstrik-
ar klæðnaður (eða klæðaleysi)
Stone það að hún er hasarkroppur
og bregst því ekki ímyndinni og
væntingum kvikmyndahúsgesta.
Myndin fjallar um það að May
Munroe (Stone) ræóur Ray Quick
(Stallone) til aö hefna morðs for-
eldra sinna sem undirhcimaforingi
í Miami lét myrða fyrir framan
augun á hcnni er hún var barn að
aldri. Undir lokin liggja leiðir
þeirra sarnan og auövitað fclla þau
NÝJAR PLÖTUR
hugi saman í umtöluðu ástaratriöi
í sturtuklefa.
Myndin er afbragós afþreying
en þaó er hins vegar ekki leikur
þeirra Stone og Stallone sem vek-
ur athygli, heldur leikur James
Woods sem Ieikur Ned Trent sem
er á launaskrá mafíósanna og höf-
uðandstæðingur Rays og Rod
Steiger sem leikur kúbverska
mafíósann Don Carleone.
Þýóandi ntyndarinnar fær hins
vegar engin vcrðlaun og má m.a.
benda honum á aó enska orðið
bank þýðir ekki alltaf banki held-
ur einnig árbakki cða svæði. GG
- diskurinn er helgáður minningu Björns Einarssonar,
fvrrum bónda á Bessastöðum
Ferðamálafulltrúi
fyrir Þingeyjarsýslu
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf. með aðsetur á
Húsavík óskar eftir að ráða ferðamálafulltrúa til
starfa í 2ja ára verkefni er hefur að markmiði að
vinna að framgangi ferðaþjónustunnar sem starfs-
greinar í Þingeyjarsýslu.
Hlutverk ferðamálafulltrúa verður að skilgreina þá
möguleika sem bjóóast í ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu
og stuóla að uppbyggingu og framgangi feróaþjónustu
með sérstakri áherslu á markaðs- og gæðamál.
Leitað er eftir einstaklingi er hefur góða innsýn í ferða-
þjónustu, á auðvelt með samskipti við fólk og getur sýnt
frumkvæði.
Æskilegur ráóningartími er frá 1. janúar 1995.
Umsóknarfrestur er til 3. desember og skal senda um-
sóknir til:
Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf.,
Garðarsbraut 5, 640 Húsavík.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarfélagsins í síma 96-42070.
Þann 14. nóvember sl. kom út
geisladiskurinn „Gömul spor“ með
söng Karlakórsins Lóuþrælar í
Vestur-Húnavatnssýslu, en sá dag-
ur er fæðingardagur Björns Einars-
sonar fyrrum bónda á Bessastöð-
unt, en diskurinn er helgaður
minningu hans. Bjöm, sent lést
fyrir tveimur árum, var einn af 15
stofnfélögum kórsins sem stofnað-
ur var í febrúar 1985 og verður því
10 ára á næsta ári. Stjómandi kórs-
ins hefur frá upphafi verið Olöf
Pálsdóttir á Bessastöðum.
A diskinunt syngur Ingveldur
Hjaltested einsöng í þremur lög-
unt, en þau eru: Ökuljóð, rúss-
neskt þjóðlag, Ijóð þýtt af Frey-
steini Gunnarssyni, Borgin helga,
lag Stephen Adams, Ijóðaþýðing
Pétur Sigurðsson og Ave Maria,
lag Sigvaldi Kaldalóns við ljóð
Indriða Einarssonar.
Einsöngvari úr hópi kórfélaga
er Guðmundur Þorbergsson á
Neðra Núpi, en hann syngur rúss-
neskt þjóðlag, „Göntul klausturs-
saga“ (Ræningjarnir, texti þýddur
af Þorsteini Gíslasyni).
Alls eru á diskinunt 20 lög og
er lagavalið mjög fjölbreytt. Und-
irleikarar meó kórnunt eru Elin-
borg Sigurgeirsdóttir á píanó, Páll
Sigurður Björnsson á bassa, Þor-
valdur Pálsson á harmoniku og
Einar F. Björnsson á harmoniku.
Upptaka, sem var í höndunt Sig-
urðar Rúnars Jónssonar, fór fram í
Félagshcintilinu á Hvammstanga.
Héraðsnefnd Vestur-Húnvetninga
styrkti kórinn til þessa verks.
Dreifingu annast kórfélagar
sjálfir og er pöntunarsími 95-
12912. Á höfuðborgarsvæðinu
fæst diskurinn í verslununt Japis.
Bókmenntakvöld í
Deiglunni annað kvöld
Bókaforlögin Mál og menning og
Forlagió efna til bókmenntakvölds
í samvinnu við Bókval og Café
Karólínu annað kvöld, miðviku-
daginn 23. nóvember, í Deiglunni
á Akureyri og hefst það kl. 20.30.
Fimm höfundar lesa úr verkunt
sínum:
Guðbergur Bergsson les úr
bókinni Ævinlega, Gerður Kristný
les úr Isfrétt, Pétur Gunnarsson úr
Efstu dagar, Helgi Ingólfsson úr
Letrað í vindinn og Páll Pálsson
les úr bók sinni Vesturfarinn.
Einnig verður lesið úr síðustu bók
Jakobínu Siguróardóttur, „I barn-
dómi“.
Aðgangur er ókeypis.
Ákveðniþjálfun fyrir foreldra:
Fyrirlestrar í Gagnfræðaskóla
Akureyrar og á Hótel KEA
Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræó-
ingur sækir Akureyringa heint nú í
vikunni til að flytja fyrirlestra sem
Við leggjum nú aukna áherslu á ferskt
kjöt og nýja ferska rétti í
neytendaumbúðum undir merkinu
í matvöruverslunum KEA
Af þessu tilefni gefum við út afsláttarmiðann
hér til hliðar
Nýtið ykkur afsláttinn gegn framvísun miðans
í einhverri af matvöruverslunum KEA
/S01
kjötiðnaðarstöð
Afsláttarmiði
Sælkerapanna
afsláttur kr. 45,-
Gegn framvísun þessa miða
Gildir einungis í Matvöruverslunum KEA
Afsláttarmiðinn gildir til 27. nóvember
nefnast, ákveöniþjálfun fyrir for-
eldra. Jóhann Ingi hefur haldið
helgarnámskeið í ákveðniþjálfun
fyrir foreldra á vegum Vímulausr-
ar æsku og hafa þau vakið athygli.
Annað kvöld, mióvikudags-
kvöld, mun Jóhann Ingi flytja fyr-
irlestur um þctta efni á sal Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og eru for-
eldrar hvattir til að fjölntenna.
Fyrirlesturinn hefst klukkan
20.30.
Á fimmtudagskvöldió klukkan
níu flytur Jóhann Ingi þennan
sama fyrirlestur á aðalfundi
Barnaheilla á Hótel KEA og er
fyrirlesturinn öllum opinn. KLJ
Atskákmót Akureyrar 1994
l
5 690600 999689
Atskákmót Akureyrar 1994 fór
frant dagana 17. og 20. nóvember.
Tefldar voru 30 mínútna skákir.
Þetta er í þriðja sinn sent mótið cr
haldið en atskákir verða sífellt
vinsælli. Sextán skákmenn mættu
til leiks og tclldar voru 7 umferðir
eftir monradkerfi.
Þcgar sex umfcrðum var lokið
höfðu 4 keppcndur möguleika á
sigri, Rúnar Sigurpálsson og Þór
Valtýsson voru nteð 5 vinninga og
Gylll Þórhallsson og Þórleifur
Karlsson voru með 4,5 vinn. Rún-
ar og Þór tefldu saman í síðustu
uml’erö og lauk skákinni með sigri
Rúnars. Hann er því Atskákmeist-
ari Akureyrar 1994.
Röö efstu manna:
1. Rúnar Sigurpálsson, 6 vinningar.
2. Þórleifur K. Karlsson, 5,5 vinningar
(23 stig)
3. Gylfi Þórhallsson, 5,5 vinningar
(22,5 stig)
4. Þór Valtýsson, 5 vinningar.
5. Guómundur Daðason, 4 vinningar.
Albert Sigurðsson var skák-
stjóri.
Næsta mót verður næstkom-
andi fimmtudagskvöld þegar efnt
veróur til 10 mínútna móts fyrir
45 ára og eldri. Mótiö hefst kl. 21.
Þá hcldur Skákfélagið 15 mín-
útnamót á sunnudag og hel'st það
kl. 14.