Dagur - 24.11.1994, Blaðsíða 2

Dagur - 24.11.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 24. nóvember 1994 FRÉTTIR Aðalfundur Norðurlandsdeildar Barnaheilla: Ákveðni þjálfu n fyrir foreldra - nefnist áhugaverður fyrirlestur Jóhanns Inga Gunnarssonar Aðalfundur Barnahcilla á Akureyri í kvöld er öllum opinn. í kvöld verður aðalfundur Norð- urlandsdeildar Barnaheilla haldinn á Hótel KEA. Aðalfund- urinn hefst kl. 20.00 og er öllum opinn. Þeir sem ekki vilja sitja aðalfundinn geta komið kl. 21.00 því þá hefst fyrirlestur Jó- hanns Inga Gunnarssonar, sál- fræðings, sem hann kallar, Ákveðniþjálfun fyrir foreldra. Ókeypis er á báða þessa við- burði. Vert er að vekja athygli á fyrirlestri Jóhanns Inga, ekki síst í tengslum við þær umræður sem átt hafa sér stað að undan- fórnu um ástandið í miðbæ Ak- ureyrar um helgar og hvernig foreldrar geta brugðist við því. Kristín Aðalsteinsdóttir er for- maður Norðurlandsdeildar Barna- heilla og hún sagði að samtökin litu svo á að starf þcirra væri fyrst og fremst að vekja athygli á mál- efnum barna. Norðurlandsdeildin hefur bcitt sér fyrir ýmsu í því skyni. „Þannig er, að sl. vor hélt Barnaheill ráðstefnu um líðan barna. Ráðstefnuna héldum við vegna þess að við höfðum komist aö því, í gegnum könnun sem við gerðum, að mörgum börnum á Akureyri leið ekkert óskaplega vel. Það var eitt og annað sem var að, m.a. leió þeim ekki vel í skól- anum, voru öryggislaus í félags- skap annarra barna og þeim leið ekkcrt endilega vel heima hjá sér. Þetta á auðvitað ekki við öll börn. Við áttum von á svona 80 manns en það komu 160, sem sýnir aó l'oreldrar á Akureyri hafa áhuga á aó gera eitthvað fyrir börn. Vió vildum síðan mæta þessu duglega fólki sem mætti á ráð- stefnuna okkar með því aó gera eitthvað sem hentaói því. Viö finn- um mikið fyrir því að fólk þorir ekki og veit ekki hvemig það á að taka á vanda barna sinna, cr óör- uggt. Við fréttum af því að Jóhann Ingi hefói verói með prýðilcg námskeið um það hvernig foreldr- ar geti tekið á agamálum, sett regl- ur og fylgt þeim eftir. Þess vegna báðum við hann aö koma,“ sagöi Kristín. Þess má geta aó Jóhann Ingi er einnig þekktur sem hand- knattleiksþjálfari. Verra en í verstu hverfum stórborga Að sögn Kristínar sjá menn þetta líka í samhengi við ástandið í mið- bænum á Akureyri. „Menn segja aó þaó sé alltaf eitthvað opinbcr- um aðilum aó kenna, en auóvitað eiga foreldrar að stjórna börnunum sínum og eiga aó koma í veg fyrir að þau séu úti drukkin um miójar nætur. Foreldrar vilja gjarnan gera eitthvað, en vita kannski ekki al- veg hvernig. Ég vil hvetja foreldra sem eru tvístígandi og vita ekki al- veg hvemig þau ciga að taka á málum barna sinna, aó mæta og heyra hvað Jóhann hefur að segja, því eftir áramót verður hann með námskeið á Akureyri. Fólk getur því mætt á fyrirlcsturinn og séð hvort því líkar þessar hugsanir hans og komið á námskeió eftir áramót ef því sýnist svo.“ Kristín sagðist hafa búið í stór- borgum út í löndum, þar sem fólk var varað við að l'ara í ákveðin hverfi því það væri svo hættulegt. Hún hafi engu að síður farió og séð ástandið. „Svo hef ég farið niður í miðbæ Akureyrar nokkrar nætur í haust og mér finnst ástandið þar verra en í þessum hættulegu hverfum erlendis. Mér fmnst ástandið hérna mjög alvar- Iegt og ég hvet foreldra til að mæta niður í mióbæ og sjá ástand- ið með eigin augum. Og ég endur- tek það sem ég sagði áóan, að ég hvet foreldra, ckki síst cf þeir cru óöruggir, til að mæta á fyrirlestur- inn,“ sagði Kristín að lokum. HA Aðalfundur Landssamtaka heilsugæslustöðva: KJALLARINN I HrísaIuncIí FatnaÖur Mikilvægt að tryggja fjár- magn sem dugar til að heilbrigðisástand batni - Guðmundur Sigvaldason kjörinn formaður samtakanna SNyRTÍVARA BúsÁhöld ❖ Metravara CERÍð qóð ItAup 15% FÉlAqSMANNAAfslÁTTUR HrísaLun<Ji Þar sem qÆði oq LAqT verö Iara saman Á aðalfundi Landssamtaka heilsugæslustöðva nýlega, var Guðmundur Sigvaldason, fram- kvæmdastjóri Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri, kjörinn for- maður samtakanna. Á fundin- um komu fram miklar áhyggjur starfsmanna og stjórnenda heilsugæslustöðva með áframhaldandi lækkun á fjár- lögum ársins 1995 til reksturs heilsugæslustöðvanna í Iandinu. Heilsugæslan er undirstaða heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Undanfarin 20 ár hafa margar Purity Herbs: Nýjar snyrti- vörur kynntar á Akureyri Nú í haust hófst framleiðsla á náttúrulegum íslenskum snyrti- vörum á Akureyri. Snyrtivörun- ar nefnast Purity Herbs eða P.H. snyrtivörur og eru framleiddar af hjónunum André Raes og Ástu Sýrusdóttur. Um 26 tegundir af snyrtivörum cr að ræða og næstkomandi i'östu- dag klukkan 14-18 ætla Andrc og Ásta að bjóða Akurcyringum og nærsvcitamönnum að koma í Ak- ureyrarapótek og kynna sér snyrti- vörurnar en þau sjá sjálf um kynn- inguna og veita fólki ráðleggingar. Veittur veróur kynningarafsláttur. KLJ byggingar risið til aó hýsa þessa þjónustu en betur má ef duga skal. Mikilvægt er að skilgreina verk- efni hennar bctur en áður og tryggja um leið það fjármagn sem dugar til að almcnnt heilbrigðis- ástand þjóðarinnar batni, cins og segir í fréttatilkynningu Lands- samtakanna. Ofiugt fyrirbyggjandi starf í heilsugæslunni er lykillinn að meiri hagkvæmni í heilbrigðis- þjónustunni. Með ráðgjöf og leið- beinandi meðferð um heilbrigða lífshætti, ásamt virkum sjúkdóma- vörnum og góðri heimahjúkrun, má stórlega minnka sjúkrahúsleg- ur og aðra stofnanaþjónustu. Á aðalfundinum var rætt um drög að nýrri reglugeró um starl'- semi heilusgæslustöðva, þar sem leitast er við aó skilgreina enn bet- ur en áður þessa mikilvægu þjón- ustu. Einnig var kynnt átak heil- brigðisráðuneytis og landlæknis um heilsueflingu almennings og farið yfir hlutverk sjúkraþjálfara í forvarnarstarfi heilsugæslustöðva. Þá voru kynnt drög aó samræmdri gjaldskrá heilsugæslustöðva vcgna bólusetninga, bæklinga, námskeiða o.fi. Aðrir í stjórn Landssamtaka heilsugæslustöðva voru kjörnir; Guðmundur Einarsson, Rcykja- vík, varaformaður, Birna Bjarna- dóttir, Kópavogi, Katrín Pálsdótt- ir, Seltjarnarnesi, Pétur Heimis- son, Egilsstöóum, Sigríður Pálma- dóttir, Sauðárkróki og Sigurður Baldursson, Ólafsvik. KK ttti Ólafsfjörður: Bæjarmála- punktar ■ Á fundi bæjarráðs nýlega var lögð fram útskrift á stööu dagvistunar á Hombrekku fyrir fyrstu fimm mánuói ársins. Hallarekstur á þessu tímabili ncmurkr. 266.351.-. ■ Bæjarráð tclur aó betri ár- angri megi ná í rekstri dagvist- unarinnar og gerir þá kröfu aó áöur cn leitaó sé til bæjarfc- lagsins til aó brúa hallann verði sýnt fram á það mcð óyggjandi hætti aó stofnunin nái ekki að reka dagvistunina innan þess ramma sem þó sé almennt tal- inn fullnægjandi. ■ Bæjarráó samþykkti nýlega að bjóða ábúcndum á Bakka kr. 350.000 l'yrir skólaakstur og tryggóur verði snjðmokstur allt að einu sinni í viku. ■ Húsnæðisnefnd samþykkti á fundi sínum fyrir skömmu, aó kalla cftir svari Húsnæðisstofn- unar ríkisins við áðursendri beiðni um breytingu á almenn- um kaupleiguíbúöum í félags- legar lciguíbúðir. Einnig að leita eftir samþykkt Húsnæðis- stofnunar vió því að brcyta fleiri almennum kauplcigu- íbúðum í félagslegar leigu- eóa eignaríbúðir. ■ Á fundi félagsmálaráðs ný- lega var lögð fram áfanga- skýrsia starfshóps um barna- vcrnd og fclagsþjónustu í Eyja- firði. Skýrslan var rædd á fundinum en starfshópurinn sem hana vann, var skipaður af Héraðsnefnd Eyjafjarðar og átti aó koma mcó tillögur um skipan barnavcrndar og félags- málanefnda í Eyjafirði. ■ Félagssmálaráö ræddi einnig um breytingar á útivistartíma barna og ungmenna. Samþykkt var aó halda þcirri umræðu ál'ram og að félagsmálastjóri vinni í málinu. ■ Félagsmálaráð hefur aö gefnu tilcfni, falið félagsmála- stjóra aó ntinna forsvarsmenn vínveitingastaóa í Ólafsfirói á gildandi rcglur um sölu ál'engra drykkja og þá sér í lagi hvaða aldurstakmörk gilda. ■ Leikskólanefnd hefur mælt með því aó vcittur verði 25% afsláttur vcgna annars barns, 50% vegna þriðja barns og frítt fyrir fjórða barn. Einnig mælir nefndin með því aö afslætti í'yrir einstæða foreldra og námsmenn verði breytt úr 15% í 25%. ■ Leikskólanefnd hefur sam- þykkt að gerö verði könnun á því hvort áhugi er fyrir sveigj- anlegum vistunartíma á lcik- skólanum. Leikskólastjóra og félagsmálastjóra var falið aó framkvæma könnunina. ■ Leikskólanefnd mælir með því að leikskólinn veröi lokaó- ur rnilli jóla og nýárs eins og undanfarin ár, enda verði fram- kvæmdin með sama hætti og áóur. Gerð hefur vcrið könnun vegna þessa í mörg ár og hcfur niöurstaðan í mörg undanfarin ár verió á þá leið að lokað hef- ur vcriö.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.