Dagur - 24.11.1994, Qupperneq 3
FRETTIR
Fimmtudagur 24. nóvember 1994 - DAGUR - 3
Flutningur grunnskolans til sveitarfélaga:
Mikilvægur þáttur í stefnumótun
- sagði menntamálaráðherra á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga í gær.
„Grundvöllur þess að flutning-
urinn geti átt sér stað er að lög-
um um grunnskóla verði breytt.
Samkvæmt núgildandi fyrir-
komulagi er ábyrgð á skólahaldi
skipt milli ríkis og sveitarfélaga
en flutningurinn mun fela í sér
að sveitarfélög yfirtaka ekki ein-
ungis rekstrarlega, heldur einnig
faglega, ábyrgð á skólahaldi,“
sagði Olafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, í ræðu um
flutning grunnskólans til sveit-
arfélaga á ráðstefnu um fjármál
sveitarfélaga í gær.
Ráðherra fjallaói vítt og breitt
um málefniö og sagði flutninginn
vera ntikilvægan þátt í stefnumót-
un í skólamálum í ráðherratíð
sinni. Hann sagði skólastefnuna
endurspeglast í tilteknum grund-
vallaratriðum sent gilda eiga fyrir
skólastarfið í heild. Þau segir hann
vera eftirfarandi 7 atriði:
Aukin valddreifing í skólakerf-
inu; fræðsluyfirvöld skilgreini
skýr markmið um nám og
kennslu; lög kveöi á um starfs-
hætti sent stuðli að sem mestri
fagmennsku í skólastarfi; skólarn-
ir verði opnari gagnvart samlélag-
inu; mat á skólastarfinu og ein-
stökum þáttum þess verði eflt á
næstu árum, s.s. til að afla upplýs-
inga um stjórnunarhætti í skólum,
námsárangur og námsferil nem-
enda, kennsluhætti og áhrif þeirra
á námsárangur, samskipti skóla og
tengsl heimila og skóla; starfstími
grunn- og franthaldsskóla verði
betur nýttur og kennsludögum
fjölgað; að lokunt aó kjarasamn-
ingar viö kennara verði endur-
skoðaðir frá grunni.
Ráðherra lét í lok ræðu sinnar í
ljós þá von aö sem best samstaða
tækist á milli ríkis, sveitarfélaga
og samtaka kennara um það ntikil-
væga mál að flytja grunnskólann
að fullu til sveitarfélaga. Hann
sagði sér vera ljóst að á þessu stigi
væru enn nokkrir óvissuþættir eft-
ir og að eðli málsins samkvæmt
yrði ekki úr þeim greitt fyrir en
nær drægi lokaafgreiðslu Alþing-
is. SV
Leikfélag Dalvíkur
sýnir söngleikinn
Land míns
föður
eftir Kjortan Ragnarsson
Tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson
Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir
Tónlistarstjóri: Gerrit Schuil
9. sýning
föstudag 25. nóvember kl. 21
10. sýning
laugardag 26. nóvember kl. 21
11. sýning
sunnudag 27. nóvember kl. 15
Sýningar eru í Ungó og
hefjast kl. 21
Hljóðtæknilegar mælingar á íþróttasal KA-heimilisins:
Ekki góður til tónlistarflutn-
ings án gagngerra breytinga
- skásti kosturinn fyrir tónleika Diddú og Kristjáns?
Akureyrarbær lét nýlega fram-
kvæma hljóðtæknilegar mæling-
ar og útreikninga á íþróttasal
KA-heimilisins með það fyrir
augum að rneta hljómburð salar-
ins með tilliti til tónlistarflutn-
ings í húsinu. Mælingarnar voru
framkvæmdar af tæknifræðing-
unum Stefáni Guðjónssyni og
Hannesi Sigurðssyni hjá Hljóði
hf., hljóðtækniráðgjöf í Reykja-
vík.
I skýrslu sem gefin var út um
mælingarnar kemur fram að
íþróttasalurinn, eins og hann er í
dag, cr ekki góður til tónlistaflutn-
ings og þarf gagngerar breytingar
á honurn svo hann verði vel ásætt-
anlegur til tónleikahalds. Það sem
stendur salnum aðallega fyrir þrif-
um er vöntun á öllum frumendur-
köstum, sem eru nauðsynleg til að
styrkja hljómsveit og einstök
hljóðfæri. Frumendurköst fást
með endurkastflötum, lóðréttum
sem láréttum, sem eru í nálægð
hljómsveitarinnar og kasta hljóð-
inu út í salinn til áheyrenda. Þetta
er hægt aó bæta með góðri sviós-
umgjörð. Bæta þarf hliðar salarins
þannig að hljóðendurköst frá þcim
berist betur inn á áheyrendasvæð-
in sjálf í staó þess að stór hluti
þeirra berst frá hliðunum og aftur
í salinn þar sent enginn situr.
Sviðinu þarfa að breyta veru-
Iþróttasalur KA-hcimiIisins gæti orðið skásti kosturinn til að hýsa stærstu
tónlistarviðburðina.
lega frá því sem var á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Islands 30.
september sl. svo beina hljóðió frá
öllum hljóðfærum berist áheyr-
endum. Laga þarf bakvegginn svo
ekki myndist högghljóð eða flökt í
salnunt. Högghljóð myndast þegar
hljóöið kastast milli gaflanna í
salnum.
A áðurnefnum tónleikum var
lagt mat á hljóðtæknilega upplif-
un. Þeim er það gerði fannst
hljóðið frá hljómsveitinni sem
mjög fjarrænt og dreift og taldi
ástæðuna þá að hljómsveitin var
0,5 til 1,00 metri yftr eyrurn
áheyrenda og heyrðu áheyrendur
því aðcins beina hljóóiö frá
ircmstu hljóöfæraleikurunum og
óminn frá hinum hljóðfærununt.
Það er vegna þess að fremstu
hljóófæralcikararnir skyggja á þá
scm fyrir aftan eru. Einleikari á
fiðlu var staósettur framanlega á
sviði og því alllangt frá flötum,
sem styrkt gætu fiðluleikinn og
endurkastað hljóðinu út í salinn.
Þessu var m.a. lýst meö eftirfar-
andi orðum: „Eins og einleikarinn
væri staddur úti í miðri eyðimörk
eóa úti á mióju engi."
Ljóst er að Akurcyrarbær er
ekki tilbúinn aó ráðast í mjög fjár-
frekar framkvæmdir í Iþróttahöll-
inni til aó uppfylla þær óskir sem
tónlistarmenn vilja að séu geróar
þar til að uppfylla óskir um sem
bestan hljómburð. Iþróttaskemm-
an á Glerárcyrum er varla nægjan-
legú stórt hús til að hýsa stærstu
tónlistarviðburði hér svo hæglega
gæti íþróttasalur KA- heimilisins
orðið skásti kosturinn að uppfyllt-
um einhverjum breytingum. M.a.
gæti tónlcikum Diddú og Krist-
jáns Jóhannssonar, miðvikudag
fyrir páska á komandi vori, verið
valinn þar staður. GG
Miímsala kl. 17-19
sýningardaga í Lambhaga,
sími 61900, og í Ungó eftir
kl. 19 fram ab sýningu
Tekid við pöntunum í
símsvara í sama númeri
allan sólarhringinn
Fiskmarkaður Vopnafjarðar hefur starfað í fimm mánuði:
Tæp 400 tonn verið seld
Fiskmarkaður Vopnafjarðar
hefur starfað á fimmta mánuð í
húsnæði sem áður hýsti tré-
smíðaverkstæði en á efri hæð-
inni er Slysavarnadeildin Sjöfn
til húsa. Þrátt fyrir að Vopna-
fjörður geti varla talist í þjóð-
braut á Islandi fer sá fiskur sem
kemur inn á ntarkaðinn í allar
áttir, t.d. til Reykjavíkur og Dal-
víkur og er fiskurinn fluttur út
og suður til kaupcnda.
Einar Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Vopnafjarðar, segir aö á markað-
inn komi fiskur af togurunum Ey-
vindi Vopna NS-70 og Brettingi
NS-50 auk ýmissa báta sem landa
á Vopnafirði. Það er fyrst og
fremst aukfiski sem selt er af tog-
urunum sem frystihús Tanga hf.
tekur ekki til vinnslu. M.a. hefur
Noróurströnd hf. á Dalvík keypt
mikið af steinbít á Vopnafirði.
Salan á markaðnum er mjög
misjöfn, hefur farið upp í 27 tonn
á cinum degi en frá því að starf-
semin hófst hafa verið seld þar tæp
400 tonn. Fiskmarkaður Vopna-
fjarðar er tengdur Fiskmarkaöi
Suðumesja og Reiknistofu fisk-
markaða þannig að fiskkaupendur
á Suðumesjum og víöar geta tekið
þátt í að bjóóa í fisk á Vopnafirói
án þess að vera þar eða að fulltrúi
þeirra sé á staðnunr. GG
HEIÐURSLAUN
BRUNABÓTAFÉLAGS
ÍSLANDS ehf
1995
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags
íslands veitir einstaklingum heiðurslaun
samkvæmt reglum, sem settar voru árið
1982, í því skyni að gefa þeim kost á að sinna
sérstökum verkefnum til hags og heilla fyrir
íslenskt samfélag, hvort sem er á sviði lista,
vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs.
Reglurnar, sem gilda um heiðurslaunin
og veitingu þeirra fást á skrifstofu
BÍ að Ármúla 3 í Reykjavík.
Þeir, sem óska að koma til greina við
veitingu heiðurslaunanna árið 1995
þurfa að skila umsóknum til
stjórnar félagsins fyrir 10. desember 1994.
Eignarhaldsfélagið
BRUNABÓTAFÉLAG
ÍSLANDS