Dagur - 24.11.1994, Síða 4

Dagur - 24.11.1994, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 24. nóvember 1994 — LEIÐARI---------------------------- Barátta sem aldrei má linna ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Bindindisdagur fjölskyldunnar er í dag 24. nóvember. Með sérstökum degi helguðum þessu málefni er með ýmsu móti vakin at- hygli á vímuefnavandanum. Þörfin á því er ljós og brýn enda bendir því miður fátt til að leggja megi árar í bát í baráttunni gegn vímuefnanotkun hér á landi. Áfengisneysla, reykingar og notkun ann- arra vímuefna eru þættir sem snúa beint að heilbrigðiskerfinu, þess hluta samneyslunn- ar sem tekur til sín stærstan hluta fjármuna ríkissjóðs. Það er ekki að tilefnislausu að Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin lítur á áfengi sem einn skæðasta vágest heilsunnar og hvetur þjóðir heims til að spyrna við fótum. Afleið- ingar áfengisneyslu eru ekki aðeins heilsu- farslegs eðlis heldur eru fjöldamargir fylgi- kvillar, ekki síst andlegs eðlis fyrir fjöl- skyldu og aðstandendur áfengissjúkra. Allt er þetta þekkt hér á landi, ekkert síður en erlendis. Reykingar eru annar þáttur vímuefna- neyslunnar sem stöðugt þarf að 'berjast á móti. Nýlegar fregnir hér á landi af auknum reykingum unglinga eru mikið áhyggjuefni því allar fyrirliggjandi upplýsingar sýna fram á skaðsemi reykinga. Þessi þróun seg- ir skýrt og greinilega að áróðurinn þarf að vera stöðugur, öflugur og beittur þannig að unglingar taki eftir honum. Hann þarf að koma gegnum fjölmiðla, skóla og síðast en ekki síst í gegnum heimilin og foreldrana. Engu að síður hafa jákvæðir hlutir gerst í baráttunni gegn reykingum og nægir þar að nefna vaxandi fjölda reyklausra vinnustaða og bann við reykingum á mörgum opinber- um stöðum. Framundan er áframhaldandi barátta fyr- ir því að á bindindi sé litið sem jákvætt lífs- mynstur. Hver dagur sem þetta málefni fær kastljós umræðunnar er af hinu góða og minnir á að á öllum baráttukröftum er þörf. Árangur á þessu sviði kemur alls staðar fram. Af bæjarmálum í Ólafsfírði Á októbcrfundi bæjarstjórnar Ól- afsfjarðar var ákvcöió að Ólafs- fjaróarbær greiddi ekki húsaleigu- bætur á árinu 1995. Um þetta mál var samstaða í bæjarstjórn og bæj- arfulltrúar almennt þeirrar skoðunar að bætur af þessu tagi skyldu greiddar af sameiginlegum tekjum landsmanna í gegnum skattakerfiö. Það kom mér því spánskt fyrir sjónir aó sjá þaó nú að bæjarstjórn skuli þrátt fyrir fyrri samþykkt ákveða á nóvem- berfundi sínum aó greiða húsa- leigubætur. Reyndar ekki til al- mennra leigjenda í bænum heldur eingöngu til bæjarstjóra líkt og áó- ur. Á þeim fundi var samþykktur starfssamningur vió bæjarstjóra þar sem m.a. er kveóið á um það að bæjarsjóður greiði nióur húsa- leigu til bæjarstjóra þannig að hún nemi aldrei hærri upphæð en 2,7% af fastcignamati hússins sem hon- um er séó fyrir. Samkvæmt þessu greiðir bæjarstjóri u.þ.b. kr. 18.000 á mánuði í leigu sem þykir ekki mikið á leigumarkaðnum í Ólafsfirði. Til samanburðar má geta þess að bærinn leigir einbýl- ishús við Hlíðarveg á kr. 45.000 og mánaóarleiga á minni íbúðum í félagslega leigukerfinu mun vera hærri en bæjarstjóri þarf að borga. Aö fenginni fyrri rcynslu minni af skrifum um þetta mál skal það tekið fram að þau beinast ekki að þeim sem leigir húsið þ.e.a.s. bæj- arstjóra, heldur er það skoðun mín að jafnt skuli yfir alla ganga sem leigja hjá bænum. Til eru skýrar reglur um leigu á húsnæði bæjar- ins og ég sé enga ástæöu til þess að undanþiggja bæjarstjóra, frckar en aðra, því að greiða leigu sam- kvæmt þeim reglum. Séu ein- hverjar slíkar ástæður hins vegar fyrir hendi ber auðvitað aö vísa þeim rétta boðleið í bæjarkerfinu líkt og með önnur slík mál. Stjórnarkjör í Sparisjóði Á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjar- stjórnar Ólafsfjarðar í sumar var að venju skipað í stjórnir, nefndir og ráð á vegum bæjarstjórnar. Meirihlutinn gerði þá alvarlegar athugasemdir við skipan Vinstri- manna og óháðra á Sigurbjörgu Ingvadóttur í stjórn Sparisjóósins og fóru þcir mikinn í gagnrýni sinni. Sögðu þeir skipan Sigur- bjargar í stjórnina vera „pólitíska misnotkun“ sem væri „til þess fallin að skaða ímynd Sparisjóös- ins um sjálfstæði“ og að sjálf- sögðu áskildi mcirihlutinn „sér allan rétt til að brcgóast alvarlega við þessari misbeitingu'* cins og segir í bókun þeirra um málið. Björn Valur Gíslason. Margir hafa spurt mig um hvernig þetta mál hafi að lokum farið og er rétt að greina frá því. Vinstrimenn og óháðir mót- mæltu auðvitað harðlega þessum fáránlegu afskiptum meirilhutans á skipan fólks í trúnaðarstörf hjá bænum sem á sér ekki hliðstæðu í sögu bæjarins. En meirihlutinn hefur áður brotið blað á þessu sviði eins og þeir vita sem fylgst hafa meö bæjarmálum í Ólafsfirði og jafnan komist sneypulega frá þeim afrekum og svo fór einnig nú. „Samkvæmt þcssu grciðir bæjarstjóri u.þ.b. kr. 18.000 á mánuði í leigu scm þykir ckki mikið á leigumarkaðnum í Olafsfirði,11 scgir Björn Valur Gíslason m.a. í grein sinni. Að fenginni fyrri reynslu minni af skrifum um þetta mál skal það tekið fram að þau beinast ekki að þeim sem leigir húsið, þ.e.a.s. bæjarstjóra, heldur er það skoðun mín að jafnt skuli yfir alla ganga sem leigja hjá bænum. Eftir aó meirihlutanum var boðið aó draga bókun sína til baka, sem þeir töldu af og frá, var málinu vísað til félagsmálaráóu- neytisins og bankaeftirlitsins og beðið um álit á því hvort skipan Sigurbjargar í stjórn Sparisjóðsins bryti á einhvern hátt sveitarstjórn- arlög eða venjur og hefðir um slík mál. Skemmst er frá því aö segja að svo rcyndist ekki vera. I svari frá bankaeftirlitinu segir m.a.: „Það er mat bankaeftirlitsins aó seta viðkomandi í bæjarstjórn leiöi ekki ein og sér til vanhæfnis til sctu í stjórn Sparisjóðs Ólafs- fjaröar." I svari félagsmálaráðu- neytisins segir m.a.; „...er það álit félagsmálaráöuneytisins að skipan Sigurbjargar Ingvadóttur bæjar- fulltrúa í stjórn Sparisjóðs Ólafs- íjarðar brjóti ekki í bága við ákvæói sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986, varðandi kjör bæjarstjórn- ar á fulltrúum í nefndir, ráð og stjórnir, eða ákvæói samþykktar um stjórn Ólafsfjarðarbæjar og fundarsköp nr. 277/1988. Enn- fremur tclur ráóuneytió að hugs- anleg venja þess efnis að bæjar- fulltrúar sitji ekki í stjórn spari- sjóðsins, geti ekki ein og sér leitt til þcss að telja skipan bæjarfull- trúa ólögmæta, enda er það komið undir ákvörðunarvaldi bæjar- stjórnar hverju sinni hverja hún kýs í stjórn sparisjóðsins.“ Svo mörg voru þau orð. Margt fleira væri hægt að segja um þetta mál meirihlutanum til háóungar en ástæðulaust að halda því áfram. Hótun þcirra um að bregðast al- varlega við skipan Sigurbjargar í stjórn Sparisjóðsins hlýtur þó enn að teljast í fullu gildi þó sé vand- séó hvernig þau viðbrögð eigi að vera. Á meðan situr Sigurbjörg í stjórn Sparisjóðs Ólafsfjaróar, fyrst kvenna, skipuð af Vinstri- mönnum og óháðum mcð stuön- ingsáliti bankaeftirlits og félags- málaráðuneytisins sem ætti að vcra nokkuó traust þrátt fyrir gusugang meirihluta bæjarstjórnar Ólafsfjarðar. Björn Valur Gíslason. Vörður, félag ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri: Ráðsteína um samspil háskóla, rannsókna og atvinnulífs Vörður, félag ungra Sjálfstæðis- manna á Akureyri, gengst næst- komandi laugardag fyrir ráð- stefnu undir yfirskriftinni „Há- skóli, rannsóknir, atvinnulíf“. Þar munu m.a. áhrifamenn frá þessum sviðum þjóðlífsins ræða málin, liver frá sínu sjónar- horni. Á meðal ræðumanna eru Þor- stcinn Gunnarsson, rektor Háskól- ans á Akureyri, Vilhjálmur Lúð- víksson, framkvæmdastjóri Rann- sóknaráðs Islands, Þorkell Sigur- laugsson, framkvæmdastjóri Þró- unarsviós Eimskips, Halldór Blöndal, samgöngu- og landbún- aðarráðherra, Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstof- unnar Ratvís á Akureyri og Svan- hildur Hólm Valsdóttir, formaður Varðar. Marmið nicð ráðstefnunni er að ræða sampil háskóla, rannsókna og atvinnulífs í ljósi slæmrar stöðu atvinnulífsins og mikils at- vinnuleysis. Fundarmenn munu velta upp þcim spurningum hvort aukin mcnntun og rannsóknir geti komið í veg fyrir atvinnuleysi, hvort það sé meginhlutverk mennta- og rannsóknarstofnana að vinna aó uppbyggingu atvinnu- veganna og hvort Háskólinn á Ak- ureyri geti orðið lyltistöng fyrir atvinnulíf við Eyjafjörð. Ráðstefnan veróur haldin í Verkmcnntaskólanum á Akureyri og hefst kl. 13.15 og stendur til 16.50. Ráðstcfnan er öllum opin og er ráöstelnugjald 600 kr. að inniföldum kaffiveitingum. Ráð- stefnustjóri verður Tómas Ingi Ol- rich, alþingismaður.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.