Dagur - 10.02.1995, Blaðsíða 1
Loðnan komin af stað suður með landinu:
Skipstjórar mjög
ánægðir með þá þróun
Loðna fannst í fyrrinótt suður
af Hvalbak en hún stóð
djúpt og það kom greinilega
fram í aflabrögðum skipanna.
Allir bátar á svæðinu köstuðu,
Skinnauppboö í
Kaupmannahöfn:
Heldur
betra verð
- innflutningur stendur tii
á ref og mink til kynbóta
I* dag lýkur í Kaupmannahöfn
öðru uppboði yfirstandandi
sölutímabils á loðdýraskinnum.
íslendingar áttu raunar ekki
mikið á þessu uppboði en bróð-
urparturinn af íslensku skinnun-
um verður boðinn upp í byijun
aprfl og byijun júní.
Fyrsta uppboð tímabilsins, sem
var í desember sl., olli mönnum
miklum vonbrigðum en þá
lækkaði verð mikið bæði á minka-
og refaskinnum, um 29% á mink
og 27% á ref. Var jafnvel búist
við enn frekari lækkun nú og því
var það mönnum nokkur léttir, að
sögn Arvid Kro, loðdýraræktar-
ráðunauts og starfsmanns SIL, að
verð á refaskinnum stóð í stað en
minkaskinn hækkuðu um 5%. Öll
refaskinn voru uppseld í gær og
einnig var útlit fyrir 100% sölu á
mink. „En þetta er bara ekki nógu
hátt verð,“ sagði Arvid.
Nú stendur fyrir dyrum inn-
flutningur á lifandi mink og ref.
Gert er ráð fyrir að refímir komi í
lok næstu viku og verða þeir flutt-
ir beint í sóttkví á Hvanneyri. Ref-
urinn kemur frá Noregi, blárefur
og hvítrefur og er þessum dýrum
ætlað að kynbæta íslenska stofn-
inn. Minkurinn kemur hins vegar
til landsins um 20 apríl. HA
en með mjög misjöfnum árangri.
Loðnan er greinilega komin af
stað suður með Iandinu, sem
loðnuskipstjórar telja góðs vita,
því þá gengur hún væntanlega
upp á grunnið.
Júpiter ÞH-61 frá Þórshöfn var
í gær búinn að fá 1.000 tonn en
ætlaði að freista þess að fylla sig,
en hann ber um 1.300 tonn, og
halda síðan til Þórshafnar. Lárus
Grímsson, skipstjóri, segir að sú
loðna sé sú fyrsta sem sést hafi að
einhverju marki á þessu ári. Það
verði ekki fyrr en loðnan sé geng-
in suður fyrir Reykjanes og upp í
fjörumar að hægt verði að átta sig
á því um hversu stóra göngu sé að
ræða.
Flestir bátamir sem fengu afla
aðfaranótt fimmtudagsins ætluðu
að freista þess að fylla sig í nótt
sem leið, en aflinn í fyrrinótt er
talinn vera á fimmta þúsund tonn.
Enn hefur aðeins verið landað á
Seyðisfirði, Eskifirði og Reyðar-
firói. Loðnukvótinn er 636.500
tonn og er búið að veiða 214 þús-
und tonn af íslenskum skipum og
33 þúsund tonn af erlendum skip-
um sem landað hafa hérlendis.
Það magn er aðeins þriðjungur
heildarloðnukvótans. GG
Keppa um titilinn Fegurðar-
drottning Norðurlands
Atta stúlkur frá Akureyri eru
nú byrjaðar í stífum undir-
búningi vegna þátttöku í keppn-
inni um titilinn „Fegurðardrottn-
ing Norðurlands“. Keppnin verð-
ur haldin í Sjallanum á Akureyri
fóstudagskvöldið 3. mars næst-
komandi en auk Sjallans stendur
Vaxtarræktin á Akureyri fyrir
keppninni. Næstu vikurnar þurfa
stúlkurnar að huga að mörgum
atriðum, bæði hvað varðar lík-
amsrækt og mataræði og auðvitað
verður svo líka að æfa framkomu
og annað sem tengist úrslita-
kvöldinu sjálfu. Þær koma fram í
fyrsta skipti opinberlega fram í
tískusýningu í Sjallanum á laug-
ardagskvöld.
Robyn Redman leit inn í Sjall-
ann í gærkvöld og smellti mynd af
stúlkunum átta. Þær eru: (efri röð
frá vinstri) Laufey Björg Sigurðar-
dóttir, Guðný Sif Jakobsdóttir,
Antonía María Gestsdóttir, Jóhanna
Erla Jóhannesdóttir, (neðri röð frá
vinstri) Ingibjörg Dagný Jóhanns-
dóttir, Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir, Sigríður Ósk Kristinsdóttir og
Unnur Valgeirsdóttir. JÓH
Hrossabændur í Húnaþingi funda:
Dauft yfir markaði á lífhrossum
- erfitt að halda hrossum frá vegum vegna mikilla snjóalaga
Amiðvikudagskvöldið fund-
uðu hrossabændur í Aust-
ur- og Vestur-Húnavatnssýslu á
Hótel Blönduósi. Að sögn Hreins
Magnússonar á Leysingjastöð-
um var fundurinn afar gagnleg-
ur og málin rædd af hreinskilni.
Kjaramál kennara:
Hugmyndum samninga-
nefndar ríkisins hafnað
Hið íslenska kennarafélag og
Kennarasamband íslands
sendu út yfirlýsingu í gær þar
sem hafnað er þeim hugmynd-
um sem samninganefnd ríkisins
lagði fram á samningafundi að-
ila í fyrradag. Kennarar vilja
skilyrðislaust ræða um breyting-
ar á grunnlaunum og fá skýrari
afmörkun hugmynda SNR um
fjölgun kennsludaga á grunn- og
framhaldsskólastigi.
Kennarar hafna þeirri hugmynd
samninganefndar ríkisins að vísa
samningum um grunnlaunahækk-
anir til félagsmanna kennarafélag-
anna í hugsanlegar niðurstöður af
samningum annarra. Abyrgð sé
lýst á hendur ráðherrum í ríkis-
stjóminni sem þráfaldlega hafi
lýst yfir að launakjör kennara séu
of lág og standi umbótastarfi í
skólum fyrir þrifum. Gengið sé til
viðræðna með það að markmiði
að grundvallarbreyting verði á af-
stöðu ríkisvaldsins um þessi mál.
Um hugmyndir um breytingu á
vinnutíma kennara segja félögin
tvö að í þeim felist enginn hvati til
samninga og ýmislegt í þeim geti
hæglega leitt til þess að félags-
menn kennarafélaganna sætu uppi
með verulega kjaraskerðingu eftir
breytingamar. Astæðan sé sú að
tillögur samninganefndar ríkisins
gangi allar út á fjölgun kennslu-
daga án þess að nokkrar skuld-
bindingar liggi fyrir frá hendi rík-
isvaldsins um kjarabreytingar.
JÓH
„Það var farið ofan í félagsmál-
in holt og bolt, eins og þau eru.
Eins var mikið rætt um sölu á
hrossum, bæði lifandi og á hrossa-
kjöti. Menn eru svolítið svartsýnir
út af kjötmálunum. Folaldakjöt er
í lágu verði en það lítur betur út
með kjöt af fullorðnu, t.d. það sem
selt er til Japans.
Eins verður það aó segjast eins
og er að lífhrossamarkaðurinn er
ekki nógu glaðlegur og veróið allt
of lágt. Þetta er allt of lítið sem
kemur í vasa bóndans og það er
hreint vandræðamál. Það er svo
dýrt að ala þetta upp og temja eða
láta temja. En maður reynir bara
að horfa fram á veginn og vona að
ástandið lagist," sagði Hreinn.
Aó hans sögn er óvenju mikill
snjór í Húnavatnssýslum um þess-
ar mundir og algerlega haglaust.
Eins eru allar girðingar á kafi og
því ekki um þaó að ræða að hægt
sé að halda hrossum innan þeirra.
„Það er helst að reyna að gefa
þeim sem mest, en sérstaklega er
þetta vandamál hjá þeim sem búa
við þjóðvegi og missa þau út á
vegina. Þar eru bændur orðnir al-
veg réttlausir og því líkast sem
þessar skepnur séu réttdræpar. Það
var afleitt að lögin um þetta efni
skyldu fara í gegn eins og varð.
Auðvitað eru allir sammála um
það að halda fénaði frá vegum en
það gengur misjafnlega í þessu ár-
ferói og ég held aó þessir blessað-
ir menn sem setja lögin ættu að-
eins aó kynna sér málin áður en
þeir setja nöfnin sín vió þau,“
sagði Hreinn. HA
Sigurbjorg 0F með 80
tonn af heilfrystum
karfa eftir 13 daga
Frystitogarinn Sigurbjörg ÓF-
1 er á karfaveiðum djúpt út í
Skerjadýpi, suð-suðvestur af
Reykjanesi og hefur fiskast
þoitkalega, um 80 tonn af heil-
frystum, hausskornum karfa eft-
ir 13 daga en veðrið hefur verið
fremur risjótt þar til síðustu þrjá
sólarhringa. Um 25 togarar eru
á þessu svæði eða á Reykjanes-
hrygg-
Þrír norólenskir togarar eru á
Reykjaneshrygg; Harðbakur EA,
Sólberg ÓF og Siglfirðingur SI;
Hegranes SK var vestur af Garð-
skaga og Súlnafell EA norðvestur
af Garðskaga; Rauðinúpur ÞH í
Grindavíkurdýpi og Frosti ÞH í
Skerjadýpi.
Sigurgeir Svavarsson hjá
Magnúsi Gamalíelssyni hf., útgerð
Sigurbjargar ÓF, segir verð á
karfa á Japansmarkaði hafa verið
gott að undanfömu en fréttir hafi
borist af því að markaðurinn væri
að þyngjast og verð eitthvað farið
lækkandi.
Aóalmarkaðstíminn er haustið
og vorið, sérstaklega apríl og maí-
mánuður, en þessi árstími er yfir-
leitt lélegasti tíminn til karfasölu á
Japansmarkað. Sigurgeir segir
enga ákvömn hafa verið tekna um
það hvort Sigurbjörg ÓF heldur
áfram á karfaveiðum eftir að þess-
um túr lýkur, því ráði markaður-
inn og hvar helst sé veióivon á
öðrum fisktegundum en þorski
sem flestir reyna að forðast að
veiða á jjessum árstíma til að
spara þorskkvótann. GG