Dagur - 09.03.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 09.03.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 9. mars 1995 FRÉTTIR t_____________________ Frá fundi lionsmanna á Hótel KEA um helgina, með gigtarlæknunum Ingvari Teitssyni og Jóni Þorsteinssyni. Mynd: KK Lionshreyfingin selur rauða fjöður: Agóðanum varið til gigtarrannsókna - einn af hverjum fimm íslendingum er með gigt Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá kennurum Bama- og Gagn- fræðaskóla, þar sem óskað er eftir styrk vcgna fyrirhugaðrar kynnisferðar kennara til Köge. Reiknað er með að 23 kennarar fari í kynnisferó og samþykkti bæjarráó aó veita styrk vegna ferðarinnar, sem nemur sem svarar SDR 154 til hvers kcnn- ara. ■ Að fenginni reynslu hefur félagsmálaráó samþykkt að leggja niður tvær undimefndir, sem starfandi hafa verið, leik- skólanefnd og jafnréttisncfnd. Valgerður H. Bjamadóttir, jafnréttisfulltrúi á Akureyri, kom á fund félagsmálaráðs ný- lega og kynnti starf jafnréttis- fulltrúa og kom einnig með inikið af góðum hugmyndum um störf og verkefni fyrir jafn- réttisnefndir. ■ Á fundi atvinnumálanefndar nýlega var samþykkt tillaga, þar sem lagt er til við bæjar- stjóm Sauðárkróks aó bæjar- sjóður ábyrgist sölu á hlutafé í Máka hf. að upphæö 5 milljón- ir, að því tilskyldu að 15 millj- ónir fáist frá öðmm aðilum. ■ Atvinnumálanefnd hefur lagt til við bæjarstjórn aó veittur verði styrkur til Haraldar S. Haraldssonar, til stofnunar fyr- irtækis er framleiði spæni úr úrgangspappa og timbri. Jafn- framt leggur nefndin til vió bæjarstjóm að bæjarstjóra verði falió að ganga til samninga við Harald um ílutning og söfnun á úrgangstimbri og pappa. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að styrkja Súðavíkurhrepp með kr. 170.000,- í samræmi við til- mæli stjómar Samband ís- lenskra sveitarfélaga. ■ Bæjarráó hefur samþykkt aó taka upp afgreiðslugjald fyrir afgreiðslu mála í bygginga- nefnd. ■ Bæjarráð hcfur samþykkt aó leggja til við bæjarstjóm að Rafveita Sauðárkróks greiði ár- legt afgjald í bæjarsjóð, sem sé 3,5% af eigin fé 31. descmber undanfarið ár. ■ Umferðamefnd bcinir því til bæjarstjómar, að gefnu tilefni, að bönnuó verði umferð vél- sleða og fjórhjóla í bæjarland- inu. ■ Félagsmálaráð hefúr lagt til aó gengið vcrði til samninga við starfsmenn Vinnumiðlunar um áframhaldandi umsjón með atvinnuleysisskráningu. ■ íþrótta- og æskulýósráó hef- ur samþykkt að fresta bygg- ingu „suðursalar'* í þeim bygg- ingaráfanga íþróttahússins sem byrjað verður á árið 1995. ■ Bæjarráó hefur samþykkt verksamning við Óniar Kjart- ansson um uinsjón með sorp- haugasvæði Sauðárkróksbæjar og einnig verksanuiing viö Omar um sorphreinsun á Sauð- árkróki. ■ Fulltrúar feróamálanefndar Sauóárkróks komu á fund bæj- arráðs fyrir skömmu. Þar voru kynnt drög að kostnaðaráætlun vegna kynningarátaks í ferða- málum í samvinnu Sauðár- króks, Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjaróar og hugsanlcga tleiri aðila. Lionshreyfingin á íslandi stend- ur fyrir söluátaki á rauðum Qöðrum dagana 31. mars til 2. aprfl nk. Tilgangurinn er að safna fé til að gera að veruleika Rannsóknarstofnun íslands í gigtarsjúkdómum og til reksturs stofnunarinnar í 3 ár. Einn af hverjum fímm Islend- ingum er með gigt og er áætlað að gigtin kosti þjóðfélagið um 10 Eins og Dagur greindi frá sl. haust þá er gamla kartöflu- geymslan í Gilinu á Akureyri mjög illa farin og mun kosta milljónir að gera við hana. Hún er að sögn Árna Steinars Jó- hannssonar umhverfisstjóra, gersamlega óforsvaranleg til síns brúks, enda hafa körtöflur þar átt það til að skemmast sem rekja má beint til bágborins ástands geymslunnar. Þar sem menn töldu ekki for- svaranlegt að ráðast í þann kostn- Mikil fjöldi fólks hefur notfært sér þá ókeypis þjónustu sem er að fá hjá Húsnæðisstofnun, bönkum, sparisjóðum og Neyt- endasamtökunum þessa viku vegna kynningar- og fræðslu- átaksins „Gerum hreint í fjár- málum fjölskyldunnar". Boðið er upp á ráðgjöf og leiðbeiningar um fyrirhyggju og ráðdeild í fjármálum. Símalínur þjónustufulltrúa áð- umefndra stofnana em glóandi milljaröa króna á ári. Vemdari söfnunarinnar er forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Sjúkdómurinn er ekki banvænn og þess vegna er hann ekki betur þekktur meðal landsmanna en hann veldur gigtarsjúklingum ómældum þjáningum. Gigt er þjóðfélagslegt vandamál og snertir þúsundir fjölskyldna. Með aukn- um rannsóknum verður hægt að að sem endurbætur hafa í för með sér var farió að kanna með aðra möguleika og áhuga annarra aðila að veita þessa þjónustu, þ.e. að geyma kartöflur fyrir bæjarbúa. Varð að ráói að kartöflugeymsl- umar munu færast að Brúarlandi í Eyjafjarðarsveit. Einnig munu garðlönd Akureyringa færast frá Blómsturvöllum og þangað. Ámi Steinar sagði vissulega hafa verió mögulegt að hafa garð- löndin áfram að Blómsturvöllum þessa dagana og greinilegt að mjög margir hyggjast nota þetta tækifæri til að koma lagi á sín fjármál, segir í fréttatilkynningu frá Samráðsnefnd um greiðslu- vanda heimilanna. Tugir manna sinna þessari starfsemi nú eingöngu og í sumum bönkum, t.d. Landsbankanum, er opið lengur fram eftir á kvöldin til að anna eftirspuminni og hjá Bún- aðarbankanum hafa hátt í 400 manns látið skrá sig á námskeió koma í veg fyrir gigt og þær eru forsenda fyrir árangri. Lionsmenn og konur í Eyja- flrði, fjölumdæmisstjóri og fleiri, komu saman á fund um helgina, þar sem tveir gigtarlæknar, þeir Ingvar Teitsson og Jón Þorsteins- son, gerðu grein fyrir gigtarsjúk- dómnum. Einnig var rætt um fyr- irhugaó söluátak hreyfíngarinnar o.fl. KK en sá aðili sem ætlar að taka að sér þjónustuna varðandi geymslu á kartöflum taldi það ekki fýsileg- an kost nema garðlöndin kæmu líka. Vegalengdin sem aka þarf að garðlöndunum lengist ekki við þetta svo neinu nemur og þá er þetta óviðkomadi skólagörðunum sem áfram verða vió Eikarlund og Vestursíðu. Örlög kartöflugeymslunnar í Gilinu verða væntanlega þau að grafið verður frá henni og hún rif- in. HA sem haldin eru víðs vegar um landið alla þessa viku. Markmið átaksins er að hvetja fólk til umhugsunar um fjármál sín, stuðla að ráðdeild og fyrir- hyggju í fjármálum heimilanna og efla þá ráógjafar- og leiðbeining- arþjónustu sem fyrir er hjá ýmsum aðilum í landinu. Þessi átaksvika er fyrsta skrefið til að efla ráðgjöf og stuðla að fyrirbyggjandi að- geröum í fjármálum heimilanna. KK Akureyri: Garðlönd og kartöflugeymslur færast aö Brúarlandi „Gerum hreint í fjármálum fjölskyldunnar“: Mikil ásókn í ráðgjöf og leiðbeiningar Akureyrarbær: Fjórtán karlar vilja á sjálfs- styrkingar- námskeið - ánægjulegar undirtektir að mati jafnréttisfulltrúa bæjarins Akureyrarbær stendur um aðra helgi fyrir sjálfsstyrkingarnám- skeiði fyrir karla og hafa íjórtán karlmenn nú þegar skráð sig á námskeiðið. Valgerður Bjarna- dóttir, jafnréttisfulltrúi Akureyr- arbæjar, segir ánægjulegt hversu góðar undirtektir námskeiðið hljóti því í raun megi segja að karlar þurfi töluverðan sjálfs- styrk til að fara á námskeið af þessu tagi. Sjálfsstyrkingamámskeiö hefur ekki fyrr verið haldið af opinber- um aðila hér á landi þannig að hér er um brautryðjendastarf að ræða. Valgerður sagði í samtali við blaðið í gær að námskeiðið beri yfirskriftina „Skynjaðu styrk þinn“ og þar verði fjallað um karl- mannsímyndina, hlutverk og fyrir- mynd, kröfur umhverfisins til karla og hvemig karlar vilji skil- greina sitt hlutverk og ímynd. Þarna verður líka fjallað um sam- skipti kynjanna og hvemig karl- menn takast á við tilfmningar. „Eins og ég segi þá held ég að karlar þurfi töluverðan kjark til að fara á svona námskeið og þannig verður það alltaf þegar um er að ræða námskeið þar sem einstakl- ingar vinna með sjálfa sig. Ég held þó að múrinn sem karlar þurfi að fara í gegnum sé þykkri en hjá konum. Mér finnst þessar undirtektir því mjög ánægjuleg- ar,“ sagði Valgerður. Eins og áður segir verður nám- skeiðið haldið um aðra helgi og sagði Valgerður enn mögulegt að skrá sig á það. Hún sagði breidd- ina mikla í hópnum sem hefur skráð sig. Um er að ræöa karla á öllum aldri, úr öllum áttum. JÓH „Óskað tilboðs í flug fyrir 7 menn til Færeyja en ekki 29“ - segir Bergþór Erlingsson, umdæmis- stjóri Flugleiða í frétt í gær um komu togarans Akrabergs til Akureyrar var sagt að færeyska áhöfnin hefði flogið heim með Flugfélagi Norður- lands vegna þess að það hefði reynst ódýrari kostur en að taka Flugleiðavél, sem stödd var á Akureyrarflugvelli, á leigu. Bergþór Erlingsson, umdæmis- stjóri Flugleiða á Akureyri, segir að upphaflega hafi verió leitað eft- ir tilboði um flug fyrir 7 menn, en síðan hafi verið flogió með 29 menn til Færeyja í tveimur ferðum á 19 sæta flugvélum og aldrei hafi verið leitað tilboóa hjá Flugleið- um í flug meö svo marga farþega. Bergþór segir að með Flugleióa- vélinni sem hafi verið á Akureyri hafi farið 31 farþegi til Reykjavík- ur og því rangt að hún hafi verió nánast tóm. Hefói tilboða verið leitaó hefði verið hægt aö senda vél frá Reykjavík til Akureyrar sem síðan hefði farið til Færeyja og þaðan til Reykjavíkur. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.