Dagur - 15.03.1995, Blaðsíða 5

Dagur - 15.03.1995, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 15. mars 1995 - DAGUR - 5 Ráðning Þórhildar Líndal í embætti umboðsmanns barna: Benedikt og Páll leita til umboðsmanns Alþingis Þeir Benedikt Sigurðarson, skóla- stjóri á Akureyri, og Páll Tryggvason, læknir á Akureyri, hafa lagt fram kvörtun til umboðs- manns Alþingis vegna ráðningar Þórhildar Líndal í embætti um- boðsmanns bama, en þeir voru báðir meðal umsækjenda um stöð- una. I ítarlegri greinargerð til um- boösmanns Alþingis segja þeir Benedikt og Páll að þeir óttist að forsætisráðherra, meðal annarra, hafi viö undirbúning, úrvinnslu og veitingu embættis umboðsmanns barna „brotió ýmis ákvæði stjóm- sýslulaga auk þess sem hann hafi ekki haft í heiðri viðurkennda góða og gilda stjórnsýsluhætti, - þó svo þeir séu ekki bundnir í lög- um.“ Þá telja þeir einnig að Þór- hildur Líndal hafi gerst brotleg við stjórnsýslulög. Benedikt og Páll telja að Davíð Oddsson hafi verió vanhæfur aó ganga frá ráðningu Þórhildar. Þessu til staðfestingar er eftirfar- andi nefnt í greinargerðinni: 1. „Almannarómur“ segir að forsætisráðherra eigi vinskap við Eirík Tómasson eiginmann Þór- hildar og nær þessi vinskapur og tengsl a.m.k. til baka til þess tíma er þeir voru virkir í hagsmunabar- áttu fyrir menntaskólanema fyrir meir en 25 árum síðan. Miðstöð fólks í atvinnuleit: Fulltrúar Kvenna- listans og Þjóð- vakaí dag Miðstöð fólks í atvinnuleit veróur meö „opið hús“ í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í dag kl. 15 til 18. Frambjóðendur stjórnmála- flokkanna eru nú að kynna stefnu- mál flokka sinna vegna væntan- legra þingkosninga. Að þessu sinni mæta í miðstöóina þau Elín Antonsdóttir frá Kvennalista og Vilhjálmur Ingi Árnason frá Þjóð- vaka. Munu þau ræða við þátttak- cndur, m.a. um atvinnumálin og svara fyrirspurnum þeirrra. Ollum er opió að koma í miðstöðina á fyrrgreindum tíma. Ekkert Siglu- fjarðarframboð Ekkert verður úr því að sérstakt Siglufjarðarframboð komi fram fyrir næstu Alþingiskosningar. Nokkrir aðilar í bænum höfðu unnið aó undi/búningi þess í nokkurn tíma. Ástæðan er sú að Siglfirðingum finnst þingmenn kjördæmisins ekki beita sér nóg í bæjarins þágu og eingöngu hugsa umþá sern vestar eru. Urslitatilraun var gerð um helgina til að koma saman lista sem vera átti þverpólitískur. í efstu sætunum var ætlunin að hafa þungarvigtarmenn í bæjarmálun- um og höfðu nöfn Bjöms Valdimarssonar bæjarstjóra og Kristjáns Möller m.a. verið nefnd í þessu sambandi. Haft er eftir Frey Siguróssyni, einum af þeim sem unnið hefur að undirbúningi listans, að ekki hafi verið grund- völlur fyrir honum þegar til átti að taka þar sem menn sem hugsaðir voru sem lykilmenn vildu ekki taka þátt í framboðinu. HA Bcnedikt Sigurðarson. 2. Þórhildur, Davíð og Eiríkur voru öll samtímis nemendur í Lagadeild Háskóla Islands og þó svo að það eitt í sjálfu sér skapi ekki vanhæfnisástæóur þá hafa þau ár sennilega verið sá frjói jarðvegur sem nánari kynni síðari ára byggja á - þ. á m. vinátta. 3. Fjölmargir viðmælendur okkar fullyrða, aö það sé náin vin- átta á milli Þórhildar og Eiríks annars vegar og Davíðs og eigin- konu hans hins vegar. Þetta mun eiga við þau sem einstaklinga og fjölskyldur. 4. Margir viðmælenda okkar halda fram að Davíð Oddsson og Eiríkur Tómasson hafi veriö og séu e.t.v. enn meðlimir í einka- spilaklúbbi sem hittist meira og minna reglulega á heimilum þeirra er klúbbinn fylla. Þar eru einnig tilnefndir aðrir málsmetandi menn í þjóófélaginu og innan stjómsýsl- unnar. 5. Náió samstarf hefur verið með þeim Davíð og Eiríki vegna þeirra verkefna sem Eiríkur hefur Páll Tryggvason. unnió fyrir forsætisráðuneytið í opinberri þágu og ber þar hátt starf hans við samningu stjóm- sýslulaga fyrir ráðuneyti Davíðs Oddssonar. 6. Það mun vera staðreynd að Þórhildur Líndal var ráðin til for- sætisráðuneytisins án auglýsingar í október 1993. Slíkt telst ekki til vandaðrar stjómsýslu þó svo aó það hafi viðgengist í okkar litla þjóófélagi og þá sennilega oftar en ekki vegna einhverskonar tengsla. Þeir Benedikt og Páll telja að tengsl Þórhildar við starfsmenn forsætisráðuneytisins og nærvera hennar við undirbúning málsins og aðild að umsóknarferlinu hafi gefið „henni forskot sem aðrir umsækjendur áttu ekki kost á að jafna. Forsætisráðuneytið hefur ekki getað, eða viljað, sýna fram á að óvilhallir fagmenn utan ráðu- neytisins - með sérþekkingu á málefnum barna - hafi átt aðild að neinskonar hæfnismati á umsækj- endum.“ Farið er fram á í greinargeró Benedikts og Páls að málið verði tekið upp á nýjan leik. Um þetta segir orörétt: „I fyrsta lagi þá fá- um við ekki betur séð en að for- sætisráðherra túlki lögin um um- boðsmann barna beinlínis á rang- an hátt og nánast eins og honum sýnist og þá í miklu þrengri merk- ingu en kemur frarn í vilja Alþing- is (sbr. og umfjöllun Alþingis) og með því hefur hann vilja Alþingis að engu. I öðru lagi þá teljum við að allt of mikið hafi verið gert úr starfsreynslu Þórhildar Líndal. Fullyrðingar um reynslu hennar af málefnum bama og ungmenna vega svo þungt í svokölluðum rökum ráðuneytisins fyrir veitingu embættisins að það jaðrar við ósannindi.“ Þetta síðastnefnda at- riói er rökstutt í löngu máli í greinargerðinni. Kallað er eftir rökstuóningi fyr- ir embættisveitingunni sern þeir Benedikt og Páll telja að aldrei hafi fengist af hendi forsætisráðu- neytisins. „Við fullyrðum að það hefur ekki verið geró minnsta til- raun til að meta hæfni annarra umsækjenda. Allur rökstuðningur ber það með sér. Því getur ráðu- neytið ekki fullyrt að Þórhildur Líndal sé hæfust og það mun ekki duga í þessu máli að segja að hér sé um niðurstöður úr samanburði á umsóknum því að í fyrsta lagi þá haföi Þórhildur aðgang að öllum umsóknum annarra auk þess að hún var innanbúðar. Jafnræði var því ekki til. Viö teljum augljóst að þaö sé ráðuneytisins að færa rök fyrir að það hafi valið hæfasta umsækjandann í stað þess að snúa röksemdinni á hvolf ðg fullyrða að „ekkert bendi til að aðrir um- sækjendur hafi verið hæfari en Þórhildur. Rökstuðningur þeirra er ófullnægjandi og um sumt rang- ur,“ scgja þeir Benedikt Sigurðar- son og Páll Tryggvason í kvörtun sinni til umboðsmanns Alþingis. óþh FERÐAÞJÓNUSTAN! FIMMTUDAGUR 16. MARS MORGUNFUNDUR A morgunfundi í Glerhúsinu 16. mars kl. 10.00 ræða Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður og Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingismaður um ferðaþjónustu, framtíð hennar og möguleika. SIÐDEGISFUNDUR Kl. 17.30 verður opinn fundur þar sem fjallað verður um hagsmuni ferðaþjónustunnar og möguleika hennar til eflingar atvinnulífs í landinu. Á fundinn mæta frambjóðendur Framsóknarflokksins, Hallgrímur Guðmundsson, forstöðumaður atvinnuskrifstofu Akureyrar, Katrín Björg Ríkarðsdóttir, sagnfræðingur og starfsmaður Minjasafns Akureyrar, og Páll Arason brautryðjandi í ferðamálum. Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingismaður Framsóknarflokkurinn í Noröurlandskjördæmi eystra. Kosningaskrifstofan, Glerhúsinu Akureyri. Símar: 21180,23150. Fax: 23617 441KAUPÞING NORÐURLANDS HF FÉSÝSLA Vikuna 5.-11. mars voru viðskipti með hluta- bréf 54,3 milljónir króna. Mest voru vióskipti með hlutabréf í eftirtöldum félögum: Vinnslu- stöðinni hf. fyrir 20,0 milljónir króna á genginu 1,0, Haraldi Böðvarssyni hf. fyrir 5,4 milljónir króna á genginu 1,75-1,80, Flugleiðum hf. fyrir 4,1 milljón króna á genginu 1,70-1,77 og íslandsbanka hf. fyrir 3,8 milljónir króna á genginu 1,26-1,30. Viðskipti með Húsbréf voru 2,8 milljónir króna, Spariskírteini ríkissjóðs 19,4 milljónir, Ríkis- víxla 592 milljónir og Ríkisbréf 142 milljónir. Ávöxtunarkrafa Húsbréfa var í vikunni 5,82- 5,85%. SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS Tegund K gengi K áv.kr. 92/1D5 1,3055 4,89% 93/1D5 1,2129 5,01% 93/2D5 1,1443 5,04% 94/1D5 1,0375 5,30% 95/1D5 0,9690 5,30% HÚSBRÉF Flokkur K gengi Káv.kr. 94/2 0,9517 5,85% 94/3 0,9319 5,85% 94/4 0,9266 5,85% 95/1 0,9077 5,85% VERÐBRÉFASJÓÐIR Ávírtun 1. mars umfr. verðóólgu siðustu: (%) Kaupg. Sðlug. 6mán. 12mán. Fjárfestingarfélagið Skandia hf. Kjarabréf 5,552 5,608 6,8 72 Tekjubrél 1,577 1,593 6,6 7,5 Markbréf 3,009 3,039 52 7,8 Skyndibréf 2,189 2,189 3,9 42 Fjölþjóðasjóður Kaupþing hf. 1,162 1,198 -30,1 -21,5 Einingabréf 1 7,379 7,514 3,1 2,9 Einingabréf 2 4,195 4,216 -0,7 12 Einingabréf 3 4,723 4,810 •1,3 0,3 Skammtímabréf 2,604 2,604 1,9 2,5 Einingabréf 6 1,074 1,107 -13,1 •10,6 Verðbréfam. islandsbanka hf. Sj. 1 Vaxtarsj. 3,675 3,693 3,4 4,6 Sj. 2 Tekjusj. 2,030 2,050 5,9 6,1 Sj. 3 Skammt. 2,532 3,4 4,6 Sj. 4 Langt.sj. 1,741 3,4 4,6 Sj. 5 Eignask.frj. 1,654 1,662 0,1 2,7 S|. 6 island Sj. 7 Þýsk hbr. 1,066 1,098 12,5 28,6 Sj. 10 Evr.htor. Vaxtarbr. 2,5898 3,4 4,6 Vabr. Landsbréf hf. 2,4275 3,4 4,6 islandsbréf 1,637 1,667 3,3 52 Fjórðungsbréf 1,198 1215 4,7 8,0 Þingbrél 1,905 1,929 3,9 3,8 Öndvegisbréf 1,724 1,746 0,6 3,5 Sýslubrél 1,655 1,677 12,1 22,9 Reiðubréf 1,568 1,568 2,6 3,4 Launabréf 1,064 1,080 2,1 3,6 Heimsbréf 1,363 0,0 0,0 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi á Veröbréfaþingi íslands: Hagst. tilbod lokaverð Kaup Saia Auðlindarbréf 1,22 1,21 1,26 Eimskip 5,16 4,25 4,40 Flugleiðir 1,77 1,72 1.77 Grandi hl. 2,05 2,10 222 Hampiðjan 2,20 2,15 2,30 Haraldur Bððv. 1,80 1,73 1,79 Hlutabréfasjóðurmn 1,49 1,51 1,65 Hlutabréfasj. Norðurl. 1,26 1,24 128 Hlutabréfasj. VÍB 1,17 1,19 125 jslandsbanki hf. 1,26 1,26 1,31 l'sl. hlutabréfasj. 1,30 1,25 1,30 Jarðboranir hi. 1,78 1,70 1,78 Kaupfélag Eyf. 2,20 2,20 2,40 Lyfjaverslun Islands 1,42 1,55 Marel hl. 2,90 2,86 3,50 Olís 2,55 2,42 2,54 Olíufélagið hf. 5,89 5,58 6,89 Sildarvinnslan hf. 2,90 2,82 2,95 Skagstrendingur hl. 2,53 2,54 3,00 Skeljungur hf. 4,13 3,00 4,34 Seeplast 3,25 2,63 3,50 Útgerðarfélag Ak. 2,95 2,91 320 Vinnslustöðin 1,00 1,00 1,05 Þoraióðurrammi hl. 2,40 2,37 2,40 Sölu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkadinum: Alm. hlutabr.sj. hf. 1,00 Ármannslell hf. 0,97 0,70 1,10 Ámes hl. 1,85 0,90 Bifreiðaskoðun isl. 2,15 1,05 Eignfél. Alþýðub. 1.10 1,10 Hraðfrystihús Eskifjarðar 1,70 1,80 225 jsl. sjávarafurðir 1,15 1,08 1,50 isl. útvarpsfél. 3,00 3,05 Pharmaco 8,20 6,20 8,90 Samem. verktakar hl. 7,30 6,20 7,30 Samskip hf. 0,60 Sjóvá-Almennar hf. 6,50 6,50 825 Softis hl. 6,00 Sölusamb. Isl. fiskframl. 1,25 1,21 1,40 Tollvörug. hf. 1,15 1,07 125 Tryggingarmiðst. hl. 4,80 Tæknivalhf. 1,30 1,20 1,50 Tölvusamskipti h(. 4,00 4,05 4,40 Þróunarfélag íslands hl. 1,10 0,50 1,00 DRÁTTARVEXTIR Febrúar 14,00% Mars 14,00% MEÐALVEXTIR Alm. skuldabr. lán lebrúar 10,90% Alm. skuldabr. lán mars 10,90% Verðtryggð lán febrúar 8,30% Verðtryggð lán mars 8,30% ssssjMsmm Febrúar 3396 Mars 3402

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.