Dagur - 15.03.1995, Blaðsíða 16
Liðlega 52% af heildarþorskkvótanum
veiddur fyrstu sex mánuði fiskveiðiársins:
Fýrstu tvo mánuði
ársins var 6% afl-
ans seldur erlendis
Þorskaflinn er að liðnu hálfu
fiskveiðiárinu orðinn 81,2
þúsund tonn og hafa því verið
veidd 52% af heildarkvótanum,
sem er 155 þúsund tonn. Á sama
tíma árið 1994 var þorskaflinn
Siglufjörður:
Skíðasvæðið
lokað vegna
fannfergis
Iþessum leik er staðan einfald-
lega 1:0 fyrir náttúruna," segir
Sverrir Júlíusson, umsjónarmað-
ur skfðasvæðis Siglfirðinga.
Vegna snjóþyngsla á skíðasvæð-
inu eru innan við tveir metrar í
háspennulínu sem liggur í gegn-
um skíðasvæðið og meðan svo er
verður svæðið lokað.
Skíðasvæóinu var lokað upp úr
miðjum febrúar af þessum ástæð-
um og hefur ástandió ekki batnað
síðan þó fönnin hafi sigið nokkuð.
Snjótroðari Siglfíröinga hefur ver-
iö notaður síðustu vikur til að
jafna út ruðningum í bænum og
troða skíðabrekku á túni í bænum
fyrir yngstu kynslóðina. Ovíst er
hvenær skíðasvæðió veróur opn-
að, þó svo snjókomunni linni.
JÓH
orðinn 107,2 þúsund tonn eða
32% meiri.
Ysuaflinn er 22,6 þúsund tonn,
22,4 þúsund tonn hafa veiðst af
ufsa, 47,5 þúsund tonn af karfa
sem er 59% heildarkarfakvótans,
2.498 tonn af steinbít, 6.855 tonn
af grálúðu, 3.376 tonn af skarkola
og 788 tonn af úthafskarfa. Afli
annarra físktegunda en þorsks
fyrstu sex mánuði fiskveiðiársins
1994/1995 er mjög svipaóur sam-
anborið vió fyrstu sex mánuði
fiskveiðiársins 1993/1994 að und-
anskilinni ýsunni, en af henni hef-
ur veiðst 3 þúsund tonnum meira,
en heildarkvóti ýsu er 65 þúsund
tonn og því eru enn óveidd 42
þúsund tonn, eóa 65% ýsukvót-
ans.
Af 30 þúsund tonna þorskafla
fyrstu tvo mánuói þessa árs hefur
24 þúsund tonnum verió landað
heima til vinnslu, 6.454 tonn hafa
verið unnin um borð í frystiskip-
um, 127 tonn farið í gáma til út-
flutnings og siglt hefur verið með
137 tonn af þorski, alls hefur því
verið siglt með 1.745 tonn. Af 66
þúsund tonna botnfiskafla fyrstu
tvo mánuði ársins 1995 hefur 72%
heildaraflans verið landað hér til
vinnslu í fiskverkunarhúsum,
vinnsluskipin (frystiskipin) hafa
unnið 23%, 3% farið í gáma og
siglt hefur verið með 3% heildar-
aflans í ianúar og febrúarmánuði
1995. GG
Frá opnun tilboða í orlofshúsin við Kjarnaskóg.
Mynd: Robyn
Nítján tilboð í byggingu orlofshúsanna við Kjarnaskóg:
Sauðkrækingar lægstir
Igær voru opnuð tilboð í bygg-
ingu fyrstu orlofshúsanna við
Kjarnaskóg, sem Úrbótamenn hf.
á Akureyri beita sér fyrir. Boðin
var út smíði 10-12 húsa sem
hvert um sig eru 55 fermetrar
auk sólpalls. Alls bárust nítján
tilboð frá átján aðilum og þar er
lægst sameiginlegt tilboð frá
þremur aðilum á Sauðárkróki,
Trésmiðjunni Borg/Friðriki Jóns-
syni/Trésmiðjunni Eik sf., í alls
10 hús. Tilboðið er 83.83% af
kostnaðaráætlun ráðgjafa, sem
var 5,2 milljónir kr. á hús.
Misjafnt er hversu mörg hús
hver aðili er tilbúinn að byggja en
tilboðin sem bárust voru eftirfar-
andi:
1. Trésmiðjan Borg/Friðrik Jóns-
son/Trésmiðjan Eik sf.,
4.359.230 kr., lOhús, 83.83%
2. Stefán Jónsson, 4.397.852 kr., 3
hús, 84,57%
3. SG Einingahús, 4.476.351 kr„
6-12 hús 86,08%
4. Trésm. Hilmars, 4.848.586 kr.,
3 hús, 93,24%
5. Katla hf., 4.964.015 kr., 2 hús,
95,46%
6. Tréverk hf„ 5.032. 441 kr„ 2
hús, 96,78%
7. Trénaust, 5.060.417 kr„ 3 hús,
97,32%
8. Hyma hf„ 5.100.976 kr„ 5 hús,
98,10%
9. Ossi hf. (fráv.tilb.), 5.115.847
kr„ 2 hús, 98,38%
Breytingar á rekstri Flugleiða hf. á Húsavík 1. apríl nk.:
Segja upp verktaka og taka af-
greiðsluna í eigin hendur
a 1. aprfl nk. á er svo lítill að mikið af virðis- muni þjónusta við farþega Flug- leiða á Sauðárl
iiBleiða hf. á aukaskattinum fer ..forgörðum“. leiða ankast talsvert irhnoaOar fle
Breytingar verða 1. aprfl nk. á
afgreiðslu Flugleiða hf. á
Húsavíkurflugvelli en þar hefur
annast afgreiðsluna umboðs-
maður Flugleiða hf. og hefur
hann einnig selt farseðla og ann-
ast afgreiðslu flugvéla Flugleiða
hf. sem verktaki.
í staó umboðsmanns hafa Flug-
leiðir hf. ráðið starfsmenn á Húsa-
vík og er aðalástæða þess sú aó
ódýrara er fyrir félagið að vera
með starfsmenn heldur en gera
samning við verktaka og borga af
því virðisaukaskatt. Innskatturinn
VEÐRIÐ
I dag ætti að bæta í snjóinn
á Norðurlandi, ef marka má
spá Veðurstofu íslands. Þó
er ekki spáð verulegri úr-
komu en veðurfræóingar
reikna með að á öllu Norö-
urlandi verði norðaustanátt í
dag og él mestan hluta
dagsins. Miðað við þetta
gæti veður orðið heldur í
mildara lagi miðað við und-
anfarnar vikur.
er svo lítill að mikið af virðis-
aukaskattinum fer „forgörðum“.
Með þessu næst fram verulegur
spamaður í rekstri. Ráðnir hafa
verið tveir fastir starfsmenn á
Húsavík með aðsetur á flugvellin-
um, annars vegar maður sem var
áður starfsmaður verktakans og
hins vegar nýr aðili, Hrafnhildur
Sigurðardóttir, sem áður hefur
starfað hjá Flugleiðum og verður
hún afgreióslustjóri Fluglciða á
Húsavík. Hins vegar standa nú yf-
ir viðræður við aóila um frakt-
þjónustu, þ.e. afgreiðslu á frakt,
en viðkomandi mundi jafnframt
starfa við lestun og losun flugvéla
í samstarfi við starfsmenn Flug-
leiða á Húsavíkurflugvelli en
fraktin yrði afgreidd á Húsavík.
Umboðsmaður Flugleiða, Björn
Hólmgeirsson, hefur jafnframt
rekið feróaskrifstofu á Húsavík,
Ferðaskrifstofu Húsavíkur, og
hefur hann annast alla fraktþjón-
ustuna, en því lýkur um næstu
mánaðamót. Eftir sem áður mun
Ferðaskrifstofa Húsavíkur annast
bókanir í flug og sjá um útgáfu
farmiða verói eftir því leitaó.
Bergþór Erlingsson, umdæmis-
stjóri Flugleiða á Norðurlandi,
segir að með þessari breytingu
muni þjónusta við farþega Flug-
leiða aukast talsvert.
Sams konar breytingar áttu sér
staö 1. mars sl. á Sauðárkróksflug-
velli (Alexandersflugvelli), en þar
tóku við afgreiðslu Flugleiða
hjónin Kristján Blöndal og Hafdís
Sveinsdóttir en þau voru áður
starfsmenn umboðsmanns Flug-
leiða á Sauðárkróki. Ekki eru fyr-
irhugaðar fleiri breytingar á
rekstri Flugleiða á Norðurlandi að
sinni, en Bergþór Erlingsson, um-
dæmisstjóri, segir umboðsmanna-
kerfi Flugleiða vera í sífelldri at-
hugun, til hagsbóta og þjónustu-
auka fyrir viðskiptavini félagsins.
GG
IS byggir í Reykjavík
- sambærilegt hús hefði þurft á Akureyri
Engin ákvörðun liggur fyrir af
hálfu stjórnar íslenskra sjáv-
arafurða hf. hvort starfsemi fyr-
irtækisins verður efld úti á
landi. Ákveðið hefur verið að
byggja hús undir höfuðstöðvar
fyrirtækisins í Reykjavík, en
eins og flestum er eflaust í
fersku minni kom til greina að
höfuðstöðvarnar yrðu á Akur-
eyri.
Hermann Hansson, stjómarfor-
maður IS, segir að vinnuhópur
hafi verió settur í að skoða með
frekari starfsemi út á landi. Sá
vinnuhópur hefur þegar tekið til
starfa og hafa engin tímamörk
verió sett varðandi það hvenær
hann skilar áliti.
Húsið sem höfuðstöðvar ÍS
verða í er 1950 fermetrar að gólf-
fleti á tveimur hæðum. Þar af nýtir
IS um 1450 fermetra en afgangn-
um verður ráðstafað til annarra.
Til viðmiðunar má geta þess að
Iþrótaskemman á Oddeyri á Akur-
eyri er um 1000 fermetrar. Her-
mann segir ljóst að sambærilegt
hús hefði þurft undir höfuðstöðvar
IS á Akureyri. „Því miður varð
ekki af því en vissulega hefði ver-
ið gaman að vera núna að búa sig
undir að koma í snjóinn til ykkar,“
sagói Hermann. HA
10. Trésm. Ösp, 5.228.083 kr„ 4
hús, 100.54%
11. Trésm. Akur hf„ 5.261.383
kr„ 3 hús, 101,18%
12. SS Byggir hf„ 5.269.931, kr.
6-12 hús, 101,34%
13. Fjölnir, 5.277.295 kr„ 4 hús,
101,49%
14. SJS verktakar, 5.445.504 kr.
lOhús, 104.72%
15. Trésm. Rein, 5.459.116 kr„ 5
hús, 104.98%
16. Trésm. Sigurðar/Fagverk,
5.491.482 kr„ 4 hús, 105,61%
17. Trésm. Fljótsdalshéraðs,
5.555.727 kr„ 6 hús, 106.84%
18. Ossi hf„ 6.149.425 kr„ 1 hús,
118,26%
19. Timburtak, 7.207.935 kr„ 5
hús, 138,58%
Sveinn Heiðar Jónsson, einn
Úrbótamanna, sagðist afar ánægó-
ur með hversu margir hefðu boðið
í verkið. Nú liggur næst fyrir að
fara yfir tilboðin og síðan tala við
þá aðila sem til greina koma. Má
búast vió að strax í næstu viku
liggi sú ákvöröun fyrir. Að sögn
Sveins liggur þegar fyrir staðfest-
ing frá félagasamtökum sem
kaupa vilja hús í Kjamaskógi og
viðbrögð væru afar góð um allt
land. Þá sagði hann marga bæjar-
búa hafa haft samband við þá fé-
laga til að lýsa yfir ánægju með
framtakió. Um næstu mánaóamót
má búast við að gatnagerð, lagnir
og smíði grunna undir húsin verði
boðin út.
f Innaníiúss-1
málning i
“ i
i
i
i
i
i
i
i
10 lítrar
kr. 4.640.-
KAUPLAND I
Kaupangi • Sími23565 !