Dagur - 08.04.1995, Blaðsíða 10

Dagur - 08.04.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 8. apríl 1995 JOHANNES GEIR ER í BARÁTTUSÆTI FRAMSÓKNARFLOKKSINS KOSNINGAKAFFI: Á kiördag verður kaffiterían í Glerhúsinu á Akureyri opin fyrir alla baráttuglaða kjósendur frá kl. 14.00-18.00. AKSTUR Á KJÖRSTAÐ: Þeir sem óska eftir akstri til og frá kjörstað á Akureyri þurfa ekki annað en að hringja i síma 23150. KOSNINGAVAKA: Á laugardagskvöldið kl. 22.00 hefst kosninga vakan í Glerhúsinu áAkureyri. Þar fylgjumst við sameiginlega með talningunni og gerum okkur glaða nótt. Framsóknarflokkurinn í Norðurlandskjördæmi eystra Jóhannes Geir Sigurgeirsson hefur setið á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn síðastliðið kjörtímabil. Jóhannes býr yfir fjölþættri reynslu á sviði þjóðmálanna. Hann hefur tekið virkan þátt í starfi ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar, setið í sveitarstjórn og tekið þátt í félagsmálum bænda. Þá hefur hann öðlast víðtæka reynslu hvað varðar íslenskt atvinnulíf og sýnt aö hann hefur kjark og frumkvæði til þess að takast á við nýjungar og breytta tíma. Samkvæmt skoðanakönnun Gallups í gær, föstudaginn 7. apríl, vantar aðeins herslumuninn til að tryggja Jóhannesi Geir áframhaldandi þingsæti. Hvert atkvæði skiptir máli. v I dag nýtur hann þess traust sem stjórnarandstæðingur að gegna formennsku í efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis sem er ein mikilvægasta nefnd þingsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.