Dagur - 08.04.1995, Blaðsíða 16
16- DAGUR - Laugardagur 8. apríl 1995
POPP
Rokkhljómsveitin Mötley Crue,
sem seldi plötur á boró vió Girls
girls girls og Dr. Feelgood í millj-
ónum eintaka, hefur ekki sem
fram hefur komiö átt sjö dagana
sæla upp á síðkastið og jafnvel
talió aó dagar hennar væru senn
taldir. Seldist síóasta platan, sem
bar nafn sveitarinnar og kom út á
síóasta ári, illa og í kjölfarið fóru
tónleikaáform útum þúfur vegna
dræmrar mióasölu. En svo undar-
lega sem þaó nú hljómar virðist
óvænt og margumtalaó hjónaband
trommuleikarans Tommy Lee
með leikkonunni limafögru úr
Strandvörðum, Pamelu Anderson,
ætla aö veróa til þess aó hleypa
nýju lífi og vekja athygli á sveit-
inni. Hefur þaó sem kunnugt er
vakió mikla athygli og fengið
drjúga umfjöllun í slúóurdálkun-
um. Lá þeim skötuhjúunum
Tommy og Pamelu reyndar svo
mikið á aö komast í hnappheld-
una, aö þeim láóist aö bjóða hin-
um Cruestrákunum í brúðkaupið,
sem fram fór í Mexikó. Það mun
hins vegar hafa verið í góóu lagi
og eru félagar Tommys bara að
sögn hinir ánægóustu fyrir hans
hönd. Ætla þeir nú í sumar í kjöl-
far þessarar betri tíðar og m.a. nýs
samnings og umboðsaöila, að taka
upp nýja plötu og halda svo í tón-
leikaferðalag. Segir bassaleikarinn
Nikki Sixx aö platan veröi þaó
besta og ferskasta sem þeir hafi
sent frá sér lengi. I anda þess sem
þeir voru að gera í upphafi þegar
þeir voru ungir og frískir. Þaö lifi
því ennþá glóð í þeim og þeir ætl-
uðu ekki aó gefast upp fyrr cn í
fulla hnefana.
MAGNÚS ÚEIR CUÐMUNPSSON
Tommy Lee ásamt sinni heittelskuðu, Pamciu Anderson. Gifting þeirra hef-
ur meðal annars vakið athygii á Mötley Crue að nýju.
Látinn
í framhaldi af grein um rapp-
ara í Poppi fyrir viku, er nú frá
því að segja að Eazy E, sem
sagt var frá að hyggðist endur-
reisa sveitina frægu NWA
ásamt fyrrum félögum sínum,
fce Cube og Dr. Dre, en væri
nú alvarlcga veikur sökum
HIV smits, lést nokkrum dög-
um fyrr. Hafði prentsvertan
vart þomað á síöasta Helgar-
blaði þegar dánarfrcgnin barst
til eyrna umsjónarmanns. Rík-
ir aó vonum sorg hjá rappað-
dáendum og hefur fxáfall Eazy
E aftur vakið bandarískan al-
menning til vitundar um hví-
líkur vágestur eyðniveiran er.
Def Leppard vinnur nú að sinni nýjustu piötu á Spáni.
Leppard Iwlur
í sér heyra
Joe Eliott og félagar í stórrokk-
sveitinni Def Leppard frá Sheffi-
eld á Englandi, hafa ekki sent frá
sér nýja hljóðversplötu síðan Adr-
enalize kom út fyrir rúmum
tveimur árum. A því veröur hins
vegar gerð bragarbót í sumar eða
haust þegar ráðgert er að ný plata
komi út. Gengur hún undir nafn-
inu Slang og hefur hljómsveitin
verið að vinna hana í sérstöku
hljóðveri, sem sett hefur verið upp
á Spáni. Eru nú þegar komin heil
16 lög sem til greina koma á
plötuna og eiga einhver fleiri eftir
að bætast í hópinn. Hljómsveitar-
meðlimirnir sjá sjálfir um upptök-
urnar í samvinnu við Peter Wood-
roffe.
Tupac Shakur hefur ásamt
Snoop Doggy Dogg m.a. verið
í framvarðarsveit yngri
„Gangsterrappara“ og staðið
svo sannarlega undir nafni.
Síóan 1993 hefur hann einum
sex sinnum verið handtekinn
fyrir ýmis afbrot, en það var
ckki fyrr en í fcbrúar síðast-
liðnum að hann hlaut refsingu.
Var Tupac þá dæmdur í allt aó
fjögurra og hálfs árs fangelsi
fyrir kynferðisafbrot, sem
hann framdi undir lok síðasta
árs. En rétt eins og með Snoop
Doggy þá fellur Tupac ekki I
áliti hjá bandarískum plötu-
kaupendum vegna þessa, held-
ur þveröfugt, því í síðustu viku
fór nýja platan hans, Me aga-
inst the world, sem cr hans
önnur nefnilega beinustu leió á
toppinn. Láta öfgamar í Amer-
íku þama ekki að sér hæða
frekar en fyrri daginn.
Vaf'asaimir en vel liöinn rappar
inn Tupac.
„Obbolítið“ aprílgabb
Siðurinn glettni að reyna aó láta
menn hlaupa 1. apríl var óspart
stundaður fyrir réttri viku eins og
venjulega og féllu víst einhverjir í
þá gryfju að láta blekkjast. Popp-
síðan gat ekki látið sitt eftir liggja
og birtist hér „stórfregn“ um að
rokkrisamir í Rolling Stones væru
á leið til landsins fyrir tilstilli
góðra manna. Auðvitað létu menn
ekki plata sig svo glatt með svona
nokkru, en samt hefur umsjónar-
maóur fengið þessa skemmtilegu
spumingu frá fleiri en einum.
„Var þetta ekki ömgglega apríl-
gabb hjá þér!!?“ Vonin um að svo
væri ekki var sem sagt fyrir hendi
innst inni. EN, eins og í góðu
aprílgabbi leynist sannleikskorn
innan um. Þaó er nefnilega engin
lygi að leikstjórinn baldni, Hrafn
Gunnlaugsson, hefur stuðlað aö
komu nefndra tónlistarmanna
hingað til lands og það sem meira
er. Hann hefur látið það í ljósi á
opinberum vettvangi, að hann vilji
gera sitt til að koma Rolling
Stones hingað til lands. Sagði
Hrafn reyndar frá því að hann
hefði nefnt það við Donovan þeg-
ar hann var staddur hér í fyrra, aó
þegar hann hitti vini sína í Stones
næst mætti hann alveg færa það í
tal vió þá að koma til íslands. Þaó
er því aldrei að vita nema að þetta
lilla aprílgabb verði að veruleika
fyrr eða síðar og þó ekki yrði það
nema í smækkuðu formi, t.d.
„ótengt“, þá yrði það samt sem
áður sannkallaður stórviðburöur.
Svo er bara að bíða, sjá og vona.
Dave Pirner og féiagar í Soul Asylum freista þess að fylgja eftir vinsæidum
plötunnar Great Dancer union með nýrri plötu.
Pkta námer áttu
í hartnær tíu ár barðist rokksveitin
bandaríska Soul Asylum harðri
baráttu við að koma sér á fram-
færi, en gekk ekki alltof vel. Árið
1993 urðu hins vegar þáttaskil
þegar lagið Runaway Train sló
rækilega í gegn um allan heim og
seldist platan Grave dancers Uni-
on í kjölfarið í milljónum eintaka.
Nú í næsta mánuði er svo von á
nýrri plötu frá Soul Asylum, sem
verður sú áttunda í röðinni. Hefur
platan ekki enn hlotið nafn eftir
því sem komist verður næst, en
það er haft eftir gítarleikaranum
og söngvaranum Dave Piner, að
um heldur rokkaðari plötu verði
aó ræða en Grave dancers Union.
Það er hinn þekkti Butch Vig sem
sér um upptökustjómina á
plötunni, en hann hefur sem kunn-
ugt er unnið með helstu rokkjöfr-
unum frá Seattle. Þekktasta platan
sem hann hefur komið nálægt er
ugglaust sjálf Nevermind með
Nirvana.
mhorf
A rás Ríkisútvarpsins númer tvö
eru eins og menn vita ágætis tón-
listarþættir auk annars góðs efnis.
Einn þeirra er blúsþátturinn hans
Péturs Tyrfingssonar, sem nú er
sendur út á mánudagskvöldum
milli hálf níu og tíu, en var áður á
miðvikudagskvöldum á sama
tíma. Var þátturinn fluttur m.a.
vegna þess aó hann féll oftar en
ekki niður vegna íþróttalýsinga,
sem oft voru og eru á þessum
tíma. I vetur hefur því sjaldnar
þurft að fresta þættinum vegna
íþróttaefnis eða annars, en samt
það oft að mörgum blúsáhuga-
manninum þykir nóg um. Það var
kannski skiljanlegt og sanngjarnt
að fella þáttinn nióur þegar hand-
boltinn var á dagskrá (og e.t.v.
vegna ræðukeppna framhaldsskól-
anna líka, sem einhvern tímann
geróist) en þegar körfubolti er líka
kominn á dagskrá hjá Rás tvö í
beinni útsendingu, sem í allan vet-
ur hefur verið á könnu Bylgjunnar
og Stöðvar tvö samkvæmt sér-
stökum samningi við körfuknatt-
leikssambandið, er nú helst til of
langt gengið. Er þarna illa farið
með góðan þátt og veit ég að
margt tónlistarfólk er miður glatt
með þessa meðferð. Þá er það líka
alveg á hreinu að stjómandinn er
lítt hrifmn af þessu hringli með
þáttinn og hugsar áreiðanlega sitt.