Dagur - 10.06.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 10.06.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 10. júní 1995 FRÉTTIR Skýrsla um sorphirðumál á Norðurlandi eystra: Hagkvæmasti kosturinn að urða sorp á fjórum stöðum - reiknað með að kostnaður við meðferð úrgangs hækki verulega í skýrslu um sorphreinsun og Sorpeyðingu á Norðurlandi eystra sem Verkfræðistofa Sig- urðar Thoroddsen hf. vann, kemur fram að Eyjafjarðarsvæð- ið er að sumu leyti í fararbroddi hér á landi hvað ýmsa þætti sorphirðumála varðar, svo sem á sviði endurnýtingar ýmissa efna. Þar og annarsstaðar á Norður- landi má þó gera enn betur á ýmsum sviðum, svo sem hvað flokkun málma varðar, meðferð spilliefna og jarðgerð úr garðaúr- gangi. Skýrslan var unnin fyrir Eyþing - Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, Samband ísl. sveitarfélaga og Umhverflsráðuneytið. Verður skýrslan kynnt á fundum nk. mánudag 12. júm', kl. 10.00 á Hótel Húsavík og kl. 16.30 á Hótel KEA. Gerð er úttekt í skýrslunni á stöðu sorphiðumála og bent á þá valkosti sem sveitarfélög eiga í sambandi við úrbætur á næstu ár- um. Arlegur kostnaður við með- ferð úrgangs reyndist vera að með- altali 2.900 kr. á íbúa en í áætlun- um sem settar eru fram í skýrsl- unni er gert ráð fyrir að hann hækki verulega og veröi frá 4.000 Garðmarkaður í Perlunni við Kaupland Sumarblóm • Garðáhöld • Sláttuvélar Þú færð vélina saman setta og með olíu hjá okkur. Tilboð á garðslöngum 25 m 999,- kr. Garðúðarar frá 350,- kr. Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.00-16.00. KAUPLAND Kaupangi • Sími 462 3565 Utboð Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri Útibú Siglufirði Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri óskar eftir tilboðum í viðbyggingu við matvöruverslun sína að Suður- götu 4 á Siglufirði. Viðbyggingin er ein hæð 10,5x13,6 eða um 143 fm. Veggir eru steyptir og úr timbri, þak er bárujárnsklætt og borið uppi af límtrésbitum og límtréskraftsperrum. Timburveggir eru einangraðir með steinull, klæddir með Steniplötum að utan en fibergrifsplötum að innan. Loft er klætt með hljóðeinangrandi plötum. Tilboðið nær til uppsteypu og frágangs aö utan og inn- an. Verkáfangar eru tveir. Frágangi utanhúss skal lokið eigi síöar en 15. september 1995 og verkinu skal að fullu og öllu lokið eigi síðar en 15. október 1995. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf., Glerárgötu 30, Akureyri, og hjá útibús- stjóra matvöruverslunar KEA Suðurgötu 4, Siglufirði gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð skulu hafa borist útibússtjóra KEA Suðurgötu 4, Siglufirði, eigi síðar en þriðjudaginn 20. júní 1995 kl. 14.00 og veróa þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóð- enda sem þess óska. til 8.000 kr. á íbúa eftir því hvaða leið er valin. Kostnaðurinn hækkar vegna þess að kröfur um mengun- arvamir eru uppfylltar. Meóal tillagna um nýskipan sorphiróu sem finna má í skýrsl- unni eru að starfræktir verði gáma- staðir í einhverri mynd í öllu þétt- býli á svæóinu, að dreifbýlisstaðir gámavæðist og að hætt verði að urða úrgang á fjölda smárra ösku- hauga og opinna brennslustaða, en úrgangur fluttur á færri og betur hannaða urðunarstaði. I niðurstöðum skýrslunar kem- ur fram að mikið hefur verið gert í sorphirðumálum á undanfömum árum í landshlutanum, sérstaklega á það við um Eyjafjarðarsvæðið. Við mat á kostnaði við lausnir á sorphirðumálum kemur í ljós að ódýrara er að urða úrgang en brenna. Einnig er hagnkvæmara að hafa urðunarstaðina fáa og stóra ef flutningsleiðir verða ekki mjög langar. í skýrslunni kemur fram að hagkvæmast er aö hafa fjóra urð- unarstaði, þ.e. í nágrenni við Akur- eyri, Húsavík, Kópasker og Þórs- höfn. Þetta er þó háð því að heppi- legir uróunarstaðir finnist. HA Vegurinn við Leifsstaði er sundurgrafinn vegna leysinga myndinni. Víðar á Norðausturlandi hafa orðið skemmdir á eins og sjá má á vegum. Mynd: Robyn Flæðir yfir vegi: Getur gerst hvar sem er Það er annað hvort of eða van; fyrir nokkrum dögum var kuld- inn til ama á Norðurlandi, en nú horfir til vandræða vegna hlý- inda. Leysingar hafa aukist gríð- arlega undanfarna þrjá daga með þeim afleiðingum að flætt hefur yfir vegi. A fimmtudag flæddi yfir vegi við Sökku í Svarfaðardal, við Leifsstaði í Eyjafjarðarsveit, naumlega tókst að koma í veg fyr- ir flóó rétt norðan við Svalbarðs- eyri og í gær flæddi yfir hjá Brúnagerði í Fnjóskadal. Skemmdir urðu við Sökku og Leifsstaði en ekki höfðu borist fregnir af skemmdum í Fnjóskadal þegar Dagur fór í prentun. „Oþægindin af flóðinu eru mest hjá þeim sem búa innan við okkur, þeir þurfa að leggja töluverðan krók á leið sína til að komast á að- alveg,“ sagði Dagbjört Jónsdóttir, húsfreyja á Sökku, en vegurinn þar er lokaður vegna flóðsins. Þær upplýsingar fengust hjá Vegageróinni að flóð væru mögu- leg nánast hvar sem væri, þar sem víða væri mikill snjór í hlíðum og fjöllum. Að sögn starfsmanns Vegagerðarinnar er mjög erfitt að spá fyrir um flóð, en líkumar á þeim aukast í réttu hlutfalli við snjómagn í hlíðum ofan vega. shv Skagafjörður: Vegirnir enn á sínum stað Gísli Gunnarsson hjá Vegagerð- inni á Sauðárkróki segir að vegagerðarmenn á þessu svæði fylgist vel með ástandi vega ef hlýindin haldi áfram, búast megi við miklum leysingum, en eins og er séu engir vegir í hættu. Gísli segir að á svæði Vega- gerðarinnar á Sauðárkróki beinist augu manna frekast að vegum í austanverðum Skagafirói, kannski fyrst og fremst í Blönduhlíðinni, en til þessa hafi þar allt verið með kyrrum kjörum. Gísli sagði að snjór til fjalla í Skagafírði væri ekki neitt í líkingu við það sem hann væri austan Öxnadalsheiöar, nema þegar kom- ið væri norður í Fljót, en þar væri svo mikill snjór að ekki þyrfti að óttast strax flóð. Gísli sagðist ekki búast við því að farið yrði að huga að mokstri Lágheiðar í bráð, þar væri enn allt á kafi. Hann sagði að þumalputtareglan væri sú að eftir að Lágheiðarvegurinn væri rudd- ur, þyrfti í það minnsta viku til þess að vegurinn yrði þurr og öku- fær. Því væri ljóst að umferð yrði ekki hleypt á þennan snjóþunga kafla fyrr en í fyrsta lagi síðari hluta þessa mánaóar. óþh Sjómannaverkfall hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar á markaöi fyrir íslenskan fisk: Tekjutap ÚA 71 milljón á viku Yfírstandandi sjómannaverkfall hefur í för með sér mikið tekjutap fyrir útgerðarfyrirtæki í landinu. Að sögn Gunnars Ragnars, fram- kvæmdastjóra Útgerðafélags Ak- ureyringa hf., var framleiðslu- verðmætið í fyrra 3,7 milljarðar. Af því má sjá að gróflega reiknað er tekjutap ÚA á viku um 71 milljón. Nánast engin starfsemi er hjá fyrirtækinu og flestir starfsmenn heima. Gunnar er einnig vel kunnugur markaðsmálum erlendis og hann segir þetta verkfall hafa afar slæm- ar og ófyrirsjánlegar afleiðingar á markaói fyrir íslenskan fisk. „Vió erum með mikið af sérsamningum sem erfitt getur verið að uppfylla. Fólk út í heimi tekur það ekki gilt þó sagt sé að hér sé verkfall. Þau íögmál sem þar gilda taka ekki við svoleiðis. Þetta fer því ekki vel með okkar samkeppnisstöðu,“ sagði Gunnar. Hann segist allt frá upphafi verkfalls hafa gert sér vonir um að lausn sé á næsta leiti. „Ég hef sjálf- ur verið í talsverðu návígi við þess- ar viðræður og mér finnst með ólík- indum hvemig þetta hefur gengió fyrir sig. Það er hart að sitja undir því að þetta sé allt útgerðarmönn- um og kannski einum títtnefndum manni að kenna. Málið er ekki svo einfalt," sagði Gunnar. HA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.