Dagur - 10.06.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 10. júní 1995 - DAGUR - 7
Húsin á Hofsósi fá nýtt hlutverk
f gömlu húsunum sem standa „á plássinu“, í Qöruborðinu og brekkunni of-
an bryggjunnar á Hofsósi, ríkir ekki lengur stöðnun og niðurníðsla. Eitt af
öðru öðlast þessi gömlu hús fyrri reisn og um leið nýtt hlutverk. Á Hofsósi
búa um 240 manns en að öðrum ólöstuðum er það ferðaþjónustubóndinn
og smiðurinn á Vatni, sem hefur „þrykkt þessu þorpi aftur á landakortið“,
svo notuð séu orð hans sjálfs, hans Valgeirs Þorvaldssonar á Vatni. Margir
hafa lagt hönd á plóginn og sveitarfélagið og Þjóðminjasafnið staðið við
bakið á framkvæmdaaðilum.
í dag setur gamla Pakkhúsið og
veitingahúsið Sólvík mestan svip á
þorpskjamann en auk þeirra eru
þama íbúðarhúsin Brimnes, Bratta-
hlíð, Sæberg, Braut, Síða og fleiri
hús. Nú er ýmist verið að gera
þessi hús upp, þau nýtt sem sumar-
hús, leigð út eða búið í þeim allt
árið um kring.
Auk þess er „í plássinu" Gamla
kaupfélagshúsið, sem senn mun
hýsa safn um Vesturfarana. Það er
sérstök tilfinning að ganga um
gamla hverfið, skoóa safnið í
Pakkhúsinu, horfa yfir hafið og
tylla sér niður yfir heitum súkku-
laðibolla í gamla hótelinu, sem nú
er veitingastofan Sólvík.
Um Jónsmessuna verður, ööm
sinni, haldin menningarvaka á
Hofsósi og hefst hún með kvöld-
vöku í Pakkhúsinu föstudagskvöld-
ið 23. júní. A laugardaginn verður
fjölbreytt dagskrá, sem hefst með
söng Karlakórsins Heimis við
stuðlabergið í Staðarbjargavík, en
síðan munu karlakórsmenn ríða að
Pakkhúsinu og þar heldur
skemmtidagskráin áfram. Fjöldi
skemmtikrafta mun koma fram á
Jónsmessuhátíóinni og einn þeirra
verður einmitt Kristján Stefánsson
sem einnig er fjallað um í Degi í
dag. Hann mun leika á harmoniku
og stjóma fjöldasöng eins og hon-
um einum er lagiö.
Pakkhúsið á Hofsósi
Þetta svarta hús, sem nú hefur ver-
ið endurbyggt svo glæsilega, er
eitt elsta hús sinnar tcgundar á Is-
landi. Það er stokkbyggt bjálkahús
með háu skarsúðarþaki. Húsið
kom til landsins árið 1777 á veg-
um konungsverslunarinnar, sem
hafði síöust leyfi til einokunar á
Islandi. Tíu árum síðar var einok-
un aflétt og fríhöndlun tók við.
Arið 1991 var gert við Pakk-
húsið og viðir þess endumýjaðir
að nokkur leyti.
I dag er sýning á neðri hæó
hússins, þar eru sýndar myndir og
munir sem tengjast Drangeyjarút-
vegi en Drangey tilheyrir Hofs-
hreppi og var nýtt á marga vegu,
til eggjatöku, fuglaveiða og beitar
og þaðan var stundað útræöi.
I Pakkhúsinu má meðal annars
sjá uppstoppaða fugla í bjargi,
sýnishom af fuglalífi Drangeyjar,
unna af Kristjáni Stefánssyni frá
Gilhaga. A Pakkhúsloftinu eru
haldnar kvöldvökur og framreidd-
ar veitingar sem hæfa anda húss-
ins, til dæmis kæstur hákarl, en
mikil hákarlaútgerð var áður fyrr
frá austanveróum Skagafirði.
Þetta nýja hlutverk Pakkhúsins
er sannarlega annað en áður var
því húsið var alla tíð notað sem
vörugeymsla, fyrst fyrir verslanir
danskra kaupamanna og svo Is-
lendinga. Allt fram á þess öld
hýsti þaö ull, hey, veiðarfæri og
kjöt.
.
Gamli íbúðahúsakjarninn á Hofsósi.
Myndir: KU
Veitingastofan Sólvík
Skammt frá Pakkhúsinu er glæsi-
legt gamalt hús, fallega blátt,
skreytt hvítum gluggakörmum,
palli og svölum. Þetta er veitinga-
stofan Sólvík, sem nýlega var gerð
upp og hefur verið rekin í nokkur
sumur af Dagmar Þorvaldsdóttur,
systur Valgeirs á Vatni.
Þegar ráðist var í framkvæmd-
imar hafði gömlu skreið dagað
uppi í húsinu og var þar heldur
óhrjálegt um að litast. Af mikilli
bjartsýni var ráðist í að endur-
byggja húsið en eigandi þess er
Sigmundur Kristjánsson. Sólvík er
fyrrverandi hótel staðarins og hefur
því sannarlega fengið uppreisn
æru.
I veitingastofunni er boðið upp
á heimabakað brauð að gömlum ís-
lenskum sveitasið, pönnukökur og
kleinur, kaffi og súkkulaði. Mynd-
in til hægri er tekin í veitingasal
Sólvíkur.
Brimnes
Þetta gamla hús sem stendur á
sjávarbakkanum heitir Brimnes.
Það hefur nú verið gert upp og er
leigt út til lengri eða skemmri
tíma.
Það er Valgeir á Vatni sem hef-
ur gert húsið upp og leigir það út
og hann hefur kappkostað að láta
húsið halda sinni upprunalegu
mynd, gömlu eldhúsinnrétting-
unni, ísskápnum og eldavélinni.
Húsið hefur fengið það hlutverk
að hýsa heiðursgest á Jónsmessu-
hátíó á Hofsósi í ár, Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra.
Innfellda myndin er tekin innan
dyra í Brimnesi.
Gamla kaupfélagíð
- Vesturfarasafnið
Þetta gamla, reisulega hús gengur
undir nafninu „Gamla kaupfélag-
ið“. Það hefur fengið það framtíð-
ar hlutverk að hýsa einstætt safn
um íslensku Vesturfarana. Áform-
að er aó opna safnið vorið 1996
og er endurbygging hússins hafin.
Stofnað hefur verið hlutafélag um
endurbygginguna, félagið ber nafn
Snorra Þorfinnssonar, sem bjó í
Glaumbæ á 11. öld og er talinn
fyrsti Evrópumaðurinn, sem fædd-
ur er á meginlandi Ameríku.
Safniö verður einn hlekkur í
samstarfsverkefni 11 Evrópu-
þjóða, sem ber heitið „Routes to
Roots“, og þýða mætti „Leiðir til
upprunans, eða Rætumar raktar“.
Markmið verkefnisins er að
koma á tengslum við Norður-Am-
eríkumenn, sem eiga rætur sínar
að rekja til Evrópu. í flestum
löndum Evrópu eru til söfn og
fræðisetur sem sérhæfa sig í sögu
Vesturfaranna. A Islandi hefur
ekkert slíkt safn eða stofnun verið
að finna hingað til en nú mun sem
sagt verða ráðin bót á því.
Hofsós þótti ákjósanlegur stað-
ur fyrir safnið en Ferðaþjónusta
bænda er íslenski þátttakandinn í
þessari alþjóðasamvinnu. Af
Norðurlandi fluttust margir til
Norður-Ameríku og við höfnina á
Hofsósi er kjörið að rifja upp
væntingar þeirra sem eitt sinn
biðu skips sem flytja mundi þá í
ný heimkynni.
Byggðasafn Skagfirðinga mun
sjá um uppsetningu safnsins undir
handleiðslu Sigríðar Sigurðardótt-
ur safnstjóra. KLJ