Dagur - 10.06.1995, Qupperneq 11
Laugardagur 10. júní 1995- DAGUR -11
Hluti danskennaranna bregður á leik.
Fjörleg listahátíð á Akur-
eyri um hvítasunnuhelgina
Um hvítasunnuhelgina var efnt til
mikillar listahátíðar í íþróttahöll-
inni á Akureyri þar sem annars
vegar myndlistin og hins vegar
danslistin voru í öndvegi. Om Ingi
Gíslason á Akureyri var driffjöð-
urin í skipulagningu hátíðarinnar.
A listahátíðinni voru sýndar yf-
ir hundrað myndir áhugamyndlist-
armanna víðsvegar að af Norður-
Það er lykílatriði að teygja vel.
landi, en allir eiga þeir það sam-
eiginlegt að hafa sótt myndlistar-
námskeið hjá Emi Inga. Afrakstur
þeirrar vinnu mátti sjá í Iþrótta-
höllinni. Viðtökur voru góðar og
trúlega hafa um 1500 manns séð
sýninguna.
Hinn angi listahátíðarinnar var
Danslist ’95, sem er danslands-
mót, en þetta er í annað skipti sem
slíkt mót er haldið. Til mótsins
komu um 160 manns af öllu land-
inu, bróðurparturinn, eóa 145
manns, af suðvesturhominu.
Dansmótið tókst vel, nema að að-
standendur þess voru afar von-
sviknir með slælega aðsókn Akur-
eyringa og nærsveitarmanna á
glæsilegar sýningar sem efnt var
til í tvígang. Engu aó síður voru
aðstandendur mótsins, kennarar
og þátttakendur sammála um að
mótið hafi heppnast mjög vel og
slíkt danslandsmót sé komið til að
vera. Reyndar er búið aö fastsetja
dansmót næstu fjögur árin. A
næsta ári verður það haldið á Sel-
fossi, árið 1997 á Akureyri, árið
1998 á Höfn í Homafirði og árið
1999 á Akureyri. óþh
SAMSUNG myndbands-
• tðkuvél VP-U 10
SAMSUNG örbylgjuofn
M-6234 17 lítra 750 WÖtt
SAMSUNG ryksuga
VC-8015 meö 5 loftfilterum
1500 wött
SAMSUNG
feröageislaspilari
PANASONIC bíltæki meö
geislaspilara DP-200L
4X22 WÖtt
SAMSUNG ryksuga
VC-5013. Lítil og kraftmikil
1300 Wött
HEILDSALA
SMÁSALA
Álcsunds Mandssangforening á 100 ára afmæli kórsins 1983. Mynd: EJ
Syngjandi heimsókn frá Noregi
Þann 24. júní nk., á Jónsmessu-
dagv er væntanlegur í heimsókn
frá Álasundi í Noregi, vinabæ Ak-
ureyrar í Noregi, karlakórinn Ale-
sund Mandssangforening en í
honum eru um 40 söngmenn.
Gestimir frá Noregi eru þó miklu
fleiri sem koma áðumefndan dag,
því hann telur um 100 manns.
Kórinn kom til Akureyrar fyrir
tæplega fjörtíu árum, árið 1958,
skemmti hér með söng og hafði
meó sér 3.000 skógarplöntur sem
gróðarsettar voru í Kjamaskógi og
eru það orðin vöxtuleg tré í dag.
Fermingarafmæli
og fögur gjöf
Helgma 27. og 28. maí kom sam-
an á Akureyri hópur fólks víðs-
Athugasemd
Dagur fékk á dögunum upphring-
ingu úr Vatnsdal með ósk um að
fram kæmi í blaðinu aó Hermann
Pálsson sé ekki frá Hofi í Vatns-
dal, eins og ranglega hafi verió
sagt í Edinborgarbréfi Tryggva
Gíslasonar í Degi fyrir skömmu,
hann væri frá Sauðanesi í Torfa-
lækjarhreppi.
vegar að af landinu til að minnast
fermingar sinnar fyrir 50 ámm.
Meðal annars tóku þau þátt í
guðsþjónustu í Akureyrarkirkju
og heimsóttu Bamaskóla Akur-
eyrar.
Fulltrúar hópsins hafa fært Ak-
ureyrarkirkju aó gjöf kr. 60 þús-
und til kaupa á sálmabókum. Fyr-
ir hönd Ákureyrarkirkju þakka
sóknarprestar kirkjunnar hópnum
tryggð, vinarhug og ánægjulegar
samvemstundir. (Fréttatilkynning)
Kórinn var gestgjafi Karlakórs
Akureyrar er hann hélt til Noregs
til þátttöku í „Sang í Vest-Sanger-
fest“ vorið 1983 í Álasundi. Þátt-
takendur vom um 1.000 söng-
menn af vesturströnd Noregs, 90
manna karlakór frá Wales og
A’Capella kvennakór frá Osló.
Margir af gestgjöfum Karlakórs
Akureyrar em enn starfandi og
gefst þannig gott tækifæri til að
endumýja kunningsskapinn sem
stofnað var til í Noregi fyrir hart-
nær fjörtíu árum en Karlakór Ak-
ureyrar - Geysir sér um mótttöku
hans hér.
o
Alesunds Mandssangforening
heldur tónleika í íþróttaskemm-
unni á Akureyri sunnudaginn 25.
júní nk. klukkan 20.30. GG
LETTIR
AKUREYBI
Firmakeppni
Léttis verður á Hlíðarholtsvelli laugar*
daginn 10. júní og hefst kl. 13.30.
Keppt verður í þremur flokkum:
Barna- og unglingaflokki, kvennaflokki
og karlaflokki.
Á keppnisstað verða seldar veitingar:
Pylsur, gosdrykkir og sælgæti.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Óvæntar verðlaunaveitingar.
Hver fær óvænta-bikarinn?
Gimilegt kaffihlaðborð
í Skeifunni, félagsheimili Léttis, í Breiðholti,
að keppni lokinni.
Firmakeppnisnefnd Léttis.
ORÐ DAGSINS
462 1840