Dagur - 10.06.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 10. júní 1995 - DAGUR -13
POPP MAÚNÚS ÚEIR ÚUÐMUNDSSON
Núna eru loksins allar staðreyndir
komnar á hreint varóandi þá plötu
sem einna mest er beóið eftir
þessa dagana, nýju plötuna með
Neil Young og Pearl Jam. Hefur
mörgu verið spáð um hana og
spekúlerað, en nú er þaó sem sagt
komið á hreint að nafn hennar
verður Mirror Ball og að útgáfu-
dagur verður hinn 27. þessa mán-
lund að Pearl Jam verður í því
hlutverki sem Crazy Horse gegndi
áður, sem bakhjarl kanadíska
meistarans. Mun platan því
væntanlega á samsvarandi hátt
birtast undir nafninu Neil Young
& Pearl Jam. Nánar tiltekið spila
gítarleikarinn Mike McCready,
bassaleikarinn Jeff Ament og
trommuleikarinn Jack Irons í öll-
Neil Young...
... og Pearl Jam. Saman á sögulegri plötu og að öllum líkindum saman á
Readinghátíðinni í sumar.
arleikari Pearl Jam, Stone Goss-
ard, og söngvarinn, Eddie Vedder,
láta sér nægja að koma fram í
nokkrum völdum lögum.
011 lögin á Mirror Ball eru eftir
Young einan, að undanskildum
tveimur, sem hann samdi í félagi
við Eddie Vedder. Eru margir
famir aó spá því nú fyrirfram að
hér sé að koma „plata ársins“, svo
spenntir eru menn fyrir gripnum.
Skildi engan heldur undra þar sem
það er ekki á hverjum degi sem
slíkt „stjamasamkruir á sér stað.
En allur er varinn góður og betra
að heyra útkomuna áður en stóru
orðin eru látin falla.
Leióindar
Iregrii
Það eru alltaf leiðinlegar fregnir
þegar góðar hljómsveitir hætta og
því mióur er ein slík fregn nú á
dagskrá. Til að bæta svo gráu ofan
á svart er hér um að ræða hljóm-
sveit, sem vart hefur hafið feril-
inn, nema hvað að lofa mjög góðu
með fyrstu plötunni sinni. Spoon
sem var á síðasta ári valin sú efni-
legasta í íslensku poppi er sem
sagt að hætta og meðlimimir að
fara hver í sína áttina. Er það sem
á ensku kallast „Musical diffrenc-
es“, eða ágreiningur um stefnu
sveitarinnar, sem á víst að vera
valdurinn af þessu ótímabæra
brotthvaríi og hafa einstakir með-
limir, sumir a.m.k., nú þegar ráðið
sig annað. Endirinn mun þó
reyndar ekki alveg vera runnin
upp ennþá, nokkrir tónleikar/böll
eftir, aftur verður víst ekki snúið
úr þessu. Hljómsveitin kveður svo
með einum tveimur lögum, sem
verða á væntanlegri safnplötu.
Sem fyrr sagði lætur Spoon eftir
sig eins og kunnugt er eina sam-
nefnda plötu frá síóasta ári. Seld-
ist hún ágætlega, eða í um 3000-
4000 eintökum. Þeir eru því marg-
ir sem áreiðanlega sjá eftir sveit-
inni og syrgja brotthvarf hennar.
Spoon því miður að hætta.
iöngYari í
yonduin málum
Enn og aftur mega rokkunnendur
nú horfa upp á hetjur sínar verða
uppvísar að miður góðu athæfi og
virðist það hreinlega vera óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur frægðar-
innar að slíkt gerist meó vissu
millibili. Allir muna raunasögu
Kurts Cobain og nú er annar
söngvari, sem náö hefur miklum
frama með sinni hljómsveit, sem
er í sviðsljósinu. Þar er um að
ræða Scott Weiland, söngvara
Stone Temple Pilots, en honum og
félögum hans hefur tekist að koma
báðum plötum sínum, Core og
Purple, í efstu sætin í Bandaríkj-
unum og víðar. Var Weiland í síð-
asta mánuði handtekinn í Pasa-
denaborg og á nú yfir höfði sér
ákæru í kjölfarið, þar sem í fórum
hans fundust bæði heróín og kóka-
ín. Gangi dómur síðan í málinu,
eins og telja verður líklegt, blasir
við Weiland allt að fjögurra ára
Scott Weiland í viðjum eiturlyfjavanda.
fangelsi. Þaó sem hins vegar er
nokkuð kaldhæðnislegt við málió
er aó handtaka hans var ekki að
yfirlögðu ráði hjá lögreglunni,
heldur af minna tilefni.
Atburðarásin var í stuttu máli
sú að Weiland var að aka í bíl sín-
um að kvöldlagi í Pasadena og
hafói þá eftir því sem seinna kom
í ljós, nýlega keypt nefnd eiturlyf.
Stöðvaði lögreglan hann vegna
þess að hann hafði gleymt að
kveikja á háu ljósunum á bílnum,
en það varðar við lög ef menn
nota þau ekki í myrkri. Hefði
Weiland líklega sloppið með sekt,
ef lögreglumennimir hefðu ekki
komið auga á glerpípu meó kóka-
íninu í. Fundu þeir síðan heróínið
í seðlaveski söngvarans. Fékk
hann svo aó dúsa í heilan sólar-
hring í steininum, en var síðan
leystur út gegn tryggingu.
um mánuöi, voru dagsetningar
á reiki varðandi útgáfuna á
nýju plðtunni hennar Bjarkar,
Post. Þaó var víst vegna ein-
hverra smávandræða með um-
slagið sem útgáfan var ekki al-
veg á hreinu, en eins og líklega
flestir vita nú er platan að
koma í verslanir eftir helgina.
Gildir það væntanlega jafnt
um erlendar sem innlendar
verslanir.
að er gaman að segja
frá því að vart hafði
umfjöllun um Hootie aand the
Blowfist birst hér á síðunni
fyrir hálfurn mánuði þcgar
plata sveitarinnar tók nýjan
kipp í sölu í Bandaríkjunum.
Skal umsjónarmaður ekki full-
yrða hvort það er í samhengi
við grein hans að svo varð, en
hitt veit hann að Crackcd Rc-
arview er nú þessa vikuna
söluhæsta platan þar vestra. Á
hún þetta vel skilið og er bara
vonandi að íslenskir plötu-
kaupendur kunni líka svo gott
að meta.
yrst minnst cr á sölu-
lista, þá má segja frá
þeirri reynslu sem bresku of-
látungamir vinsælu í Oasis
lentu í gagnvart breska smá-
skifulistanum fyrir um hálfum
rnánuði eða svo. Eftir að hafa
fagnað þeim merka áfanga að
komast á toppinn með nýjasta
lagió, Some might say, horfðu
þcir upp á þann furðulega
sannleik vikuna á eftir að lagið
féll niður í fjórða sætið, þrátt
fyrir að það væri áfram það
eftirsóttasta samkvæmt sölu-
tölum. Skýringin á þessu er
hins vegar sú að til aó lög fáist
viðurkcnnd inn á listann mega
þau ckki koma út í flciri en
þremur mismunandi myndum.
Some niight say kom því mið-
ur út í fjórum, þannig að þó
lagið hafi selst meira en önnur,
S sínum fjórum útgáfum, þá
telst það samt ekki hafa verið
það vinsælasta. Margt er
greinilega skrýtið í „breskum
kýrhaus“.
nBriHf" annars staöar á
JHLjHL síðunni er sagt l'rá
nýju plötunni sem nú er að
koma út með Neil Young og
Pearl Jam, en það er ffekar af
Pearl Jam aó scgja, aó hún ger-
ir þaó ekki endasleppt í vin-
sældum, þó hún reyni allt til aó
halda þeim í skefjum, allavega
í orði kveðnu. ÞvS er nefhilega
haldiö fram nú að þessi maka-
lausa hljóinsveit frá Seattle
hafi sett heimsmet á dögunum
hvað varðar söluhraóa á mið-
um. Fyrir tónleika sem haldnir
eru nú S júní í Salt Lake City
og Denver, seldust miðamir
víst upp á aðcins sjö mínútum,
sem menn kannast vart við að
hafi gcrst áður. Ekki fylgir
hins vegar sögunni hve margir
miðar voru S boði, en þeir hafa
þó áreiðanlega skipt einhverj-
um þúsundum.