Dagur - 29.06.1995, Blaðsíða 1
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
KEA að kaupa meirihluta í útgerð í Snæfelisbæ?
„Ekkert fast í hendi
í þessu máli"
- segir framkvæmdastjóri Snæfellings hf.
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
Sjávarútvegsdeild KEA á Ak-
ureyri hefur undanfarin
misseri kannað möguleika á
kaupum á togara til Hríseyjar í
stað Súlnafells EA, sem selt var
útgerðaraðila í Hrísey fyrr á ár-
inu og heitir nú Svanur EA.
Meðal þeirra möguleika sem
ræddir hafa verið er samstarf við
útgerð togarans Más SH-127 í
Snjóþyngslin á Siglufirði sl. vetur:
Áskorun til Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga
Bæjarráð Sigluíjarðar hefur
sent Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga bréf þar sem það fer fram á
að sjóðurinn styrki sveitarfélög
þar sem skemmdir hafa orðið
vegna snjóþyngsla í vetur.
Óhemju mikill snjór var á
Siglufirði í vetur og gerir bæjar-
stjórinn, Björn Valdimarsson, ráð
fyrir að kostnaður við sr.jóruðning
í vetur og viðgerðir vegna snjó-
þunga verði um 15-16 milljónir,
sem er um tíu milljónum hærri
upphæð en í meðalári. í bréfinu
segir orðrétt: „Bæjarráð Siglu-
fjarðar vill með bréfí þessu fara
fram á það að Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga úthluti sérstöku
þjónustuframlagi til þeirra sveitar-
félag sem hafa orðið fyrir veruleg-
um fjárhagslegum skakkafölium
vegna snjóþunga á liðnum vetri.“
Að sögn Björns eru skemmdir
á götum, kantsteinum, gangstétt-
um, girðingum, leiktækjum og
opnum svæðum áberandi og bær-
inn illfær um að standa straum af
kostnaði við viðgerðina. „Áætiað
framkvæmdafé er um fjörutíu
milljónir og ljóst er að heildar-
kostnaður bæjarins umfram það
sem gerist í meðalári vegna snjó-
moksturs og viðgerða er ekki und-
ir tíu milljónum, eða hátt í 1/4 af
áætluninni í ár og það er full stór
biti að kyngja.“ shv
Þessa dagana er unnið hörð-
um höndum að því að full-
gera, Kiðagil, nýjan leikskóla í
Giljahverfí á Akureyri. Að sögn
Ingibjargar Eyfells, leikskóla-
fulltrúa, er stefnt á að taka skól-
ann í notkun 1. september nk.
Fyrst um sinn verður leikskólinn
í helmingi hússins en í hinum
helmningum mun nýr grunn-
skóli, Giljaskóli, hefja starfsemi
í haust.
„Fyrstu tvö árin er gert ráð fyr-
ir að þarna verði bæði leikskóli og
fyrstu 2-3 bekkir grunnskóla, auk
skólavistunar fyrir eldri börnin.
Þetta verður því dálítið sérstök og
skemmtileg stofnun og mjög
áhugavert verkefni," sagði Ingi-
björg. Skólastjóri Gilljaskóla
verður Halldóra Haraldsdóttir en
leikskólstjóri Kiðagils verður
Hugrún Sigmundsdóttir.
I leikskólanum verða um 40
rými og því ætti að vera pláss fyrir
um 60 börn ýmist hálfan eða heil-
an dag. Að sögn Ingibjargar var
fyrir löngu síðan orðin þörf á
þessu aukna leikskólarými og án
efa margir sem verða fegnir að fá
þar pláss fyrir börn sín. HA
Ráöning jafnréttis- og fræöslufulltrúa:
Kona líklegri kostur
- þrjár konur og tveir karlar sóttu um
Umsóknarfrestur um stöðu
jafnréttis- og fræðslufull-
trúa rann út síðastliðinn föstu-
dag og bárust fímm umsóknir.
Um stöðuna sóttu: Halldór Ar-
inbjarnarson, blaðamaður og fé-
lagsfræðingur, fæddur 1965, Ingi-
björg Ingadóttir, ferðamálafulltrúi
á Austurlandi, fædd 1957, Jón
Sigtryggson, viðskiptafræðingur
og verslunarstjóri Bílaþjónustunn-
ar á Akureyri, fæddur 1966,
Ragnhildur Vigfúsdóttir, ritstjóri
Veru, tímarits um konur og kven-
frelsi, fædd 1959 og Þórey Ey-
þórsdóttir, cand. ped. spes, eig-
andi Gallerís Allra handa, en hún
rekur einnig talmeinastofu, fædd
1943.
Fjallað var um umsóknirnar á
mánudag í fræðslunefnd, í jafn-
réttisnefnd á þriðjudag og vísuðu
nefndirnar málinu áfram til sam-
starfshóps sem í sitja fulltrúar frá
hverri nefnd ásamt starfsmanna-
stjóra. Sá hópur fundaði í gær og
fjallaði um málið. Niðurstöðu er
líklega að vænta fyrir helgi.
Bæjarráð tekur endanlega
ákvörðun um málið, að fenginni
tillögu frá jafnréttis- og fræðslu-
nefnd, þar sem bæjarstjórn fundar
Þjóðvaki á ferð
Þessa dagana eru þingmenn
Þjóðvaka á ferð um landið
og í gær voru þeir á Eyjafíarðar-
svæðinu, þar sem þeir heimsóttu
fyrirtæki og ræddu við fólk. f
gærkvöld voru Þjóðvakaþing-
menn með opinn þingflokksfund
að Laugum í Reykjadal.
Meðfylgjandi mynd var tekin í
gær af Þjóðvakafólki fyrir utan
tómstundamiðstöðina Punktinn á
Akureyri. Á myndinni eru þing-
mennirnir fjórir; Svanfríður Jónas-
dóttir, Ágúst Einarsson, Jóhanna
Sigurðardóttir og Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir. Með þeim er Vil-
hjálmur Ingi Árnason, fyrsti vara-
þingmaður Þjóðvaka á Norður-
landi eystra. óþh/Mynd: óþh
stopult yfír sumartímann. Staðan
er á deildarstjóraplani og um þær
stöður hafa nefndir ekki vald til að
skipa í.
Aðspurð sagði núverandi jafn-
réttis- og fræðslufulltrúi, Valgerð-
ur Bjarnadóttir að miklar líkur
væru á að kona yrði ráðin. „Það
sem gerir það að verkum að yfir-
völd hérna hjá bænum óska frekar
eftir konu í starfið, þó karlmenn
séu þar engan veginn útilokaðir,
er annars vegar að konur í deildar-
stjórastöðum hjá bænum eru mjög
fáar. Þeim myndi fækka úr þremur
í tvær ef karlmaður kæmi í þessa
stöðu núna. Það breytir þó ekki
því að ef karlmaður er hæfasti
umsækjandi þá yrði hann valinn.
Samkvæmt jafnréttislögum og
jafnréttisáætlun bæjarins gildir að
ef karl og kona eru jafnhæf er
konan tekin framyfír. Þessi lög
munu gilda þar til jafnvægi næst
og miðað við það að í 23-4 deild-
arstjórastöðum hjá bænum eru
einungis þrjár konur má búast við
að það verði eitthvað áfram. Hitt
sem gerir það að verkum að það
eru meiri líkur á að kona fái starf-
ið, þó það sé ekki skilyrði, er að
miklu fleiri konur en karlar hafa
menntun á sviði jafnréttis. Sem
betur fer er einn og einn karl far-
inn að afla sér hennar, en enn sem
komið er hafa fáir karlar menntun
og reynslu af störfum sem lúta að
jafnrétti." shv
Snæfellsbæ, en þorksígildiskvóti
togarans er 1.250 tonn. Ef af yrði
kæmi til stofnunar nýs fyrirtækis
sem staðsett yrði í Snæfellsbæ,
sem jafnframt útgerðinni sæi um
rækjuvinnslu.
Svavar Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Snæfellings hf.,
segir það verulega orðum aukið að
miklir rekstrarerfiðleikar stafi að
útgerðinni.
„Það hefur margt verið skoðað
á síðustu mánuðum og þetta er
einn af þeim mörgu möguleikum
sem velt hefur verið upp, en það
er ekkert fast í hendi í því sam-
bandi. Það er hins vegar verið að
skoða ýmsa möguleika til að
styrkja fiskvinnslu í Snæfellsbæ.
Fréttir af þessu máli í öðrum fjöl-
miðlum eru verulega orðum aukn-
ar og raunar dæmi um lélega
blaðamennsku því fjölmiðlar hafa
ekkert haft samband við mig út af
þessu heldur byggt fréttir á Gróu-
sögum,“ sagði Svavar Þorsteins-
son. GG
Hið nýja hús leikskólans Kiðagils er afar skemmtilegt í útliti. Mynd: BG
Kiðagil á Akureyri
í notkun í haust
Frystihús KEA í Hrísey:
Erfið
hráefnisöflun
Framleiðsla frystihúss
KEA í Hrísey er komin í
fullan gang aftur eftir hálfs
mánaðar stöðvun sem rekja
má til sjómannaverkfalls.
Hráefnisöfíun hefúr gengið
skrykkjótt að undanfömu, en
þó hefur tekist að halda uppi
8 stunda vinnudegi í frysti-
húsinu.
Vinnu var haldið uppi í
frystihúsi KEA á Dalvík með-
an á sjómannaverkfallinu stóð,
en þar var framleitt úr „Rússa-
fiski", þ.e. fiski sem keyptur er
af rússneskum togurum í Bar-
entshafi.
Megnið af þeim fiski sem
kemur til vinnslu í frystihúsinu
í Hrísey er unninn í neytenda-
pakkningar á Bretlandsmarkað
og er nægjanlegur markaður
fyrir framleiðsluna þar þrátt
fyrir að Norðmenn hafi í aukn-
um mæli verið að sækja inn á
þennan markað. Breski mark-
aðurinn er ekki eins stór yfir
sumartímann og á veturna en
sú sveifla veldur hins vegar
ekki umtalsverðri birgðasöfn-
un. Gengi breska pundsins hef-
ur lækkað um nær 6% frá sl.
áramótum, sem veldur á móti
rýrari tekjum af framleiðslu
neytendapakkninganna á Bret-
landsmarkað. GG
Skólastjórastaða við
Oddeyrarskóla:
Átta umsóknir
Atta umsóknir bárust um
stöðu skólastjóra við
Oddeyrarskóla á Akureyri.
Umsóknirnar voru kynntar
skólanefnd á fundi í gær-
morgun og er reiknað með að
nefndin afgrciði málið eftir
helgi.
Þeir sem sóttu um voru
Dagný Annasdóttir, Gréta ÓI-
afsdóttir, Gunnar Jónsson og
Úlfar Björnsson, öll frá Akur-
eyri; Helena Pálsdóttir og
Sverrir Þórisson frá Þelamörk;
Halldór Gunnarsson, Lundi í
Öxarfírði og einn umsækjandi
sem óskaði nafnleyndar. AI
78. árg. Akureyri, fímmtudagur 29. júní 1995 122. tölublaö