Dagur - 29.06.1995, Side 5
Fimmtudagur 29. júní 1995 - DAGUR - 5
Lofthræddi ömínn
Stundum er um það rætt, að of lft-
ið framboð sé á efni fyrir börn í
leikhúsum landsins, og rétt er það,
að á stundum virðist alllangt á
milli uppsetninga, sem ætlaðar eru
yngstu kynslóðinni sérstaklega.
Leikfélag Akureyrar hefur sinnt
þessum þætti í verkefnavali sínu
og ýmsar sýningar eru settar upp í
skólum sem á annarra vegum. Ef
til vill mætti betur gera. Börn
samtíma okkar eru hinir fullorðnu
framtíðarinnar. Þau þurfa að
kynnast leikhúsinu og galdri þess
og getu. Þeim er því nauðsynlegt
að sinna.
Börn hafa jafnan meiri getu til
þess að lifa sig inn í það, sem
fram fer í leikverki, heldur en við,
sem fullorðnari erum. Okkur hætt-
ir til þess að sporna á móti, þegar
nærri okkur er gengið í túlkun eða
tjáningu. Börn, aftur á móti, hríf-
ast og taka þátt í því, sem gerist á
sviði, og deila með persónunum
sorg og gleði, sigrum og ósigrum.
Því er án efa skemmtilegt að leika
fyrir börn; ná til þeirra og fá þau
til þess að vera með í ferli verks-
ins, sem flutt er.
Á vegum Listasumars 95 var
sunnudaginn 25. júní frumsýndur
leikþátturinn Lofthræddi örninn
hann Örvar, sem er gestaleikur frá
Þjóðleikhúsinu. Verkið er einþátt-
ungur, saminn af Peter Engkvist
og Stalle Ahrreman upp úr sögu
eftir Lars Klinting. Þýðing er eftir
Anton Helga Jónsson, en tónlist
eftir Ulf Erikson. Leikstjóri er
Peter Engkvist.
Verkið fjallar um örninn Örvar,
sem er haldinn þvílíkri loft-
hræðslu, að hann þorir ekki að
fljúga. Músarindillinn, einn hinn
LEIKLI5T
HAUKUR
ÁdÚSTSSON
SKRIFAR
smæsti á meðal fugla, kemur hon-
um til bjargar og hjálpar honum
að komast yfir vanmetakennd
sína. Með lagni laðar hinn smái
fram ónýtta getu hins stóra og
hann nýtur hennar.
Sagan er dæmisaga. Hún sver
sig í ætt þeirra dýrasagna, sem alla
tíð hafa verið sagðar til þess að
benda á einhver sannindi, sem líf
okkar byggist á, til dæmis þau, að
máttur er ekki nóg til afreka, hug
þarf einnig til; eða, að ef vilji er
fyrir hendi, má sigrast á erfiðleik-
um og hömlum; eða, að ekki skuli
vanmeta það, sem boðið er þó
smátt sé; eða, að smæðin gerir
engan fánýtan, því að satt er, að
„margur er knár, þó hann sé
smár.“
Björn Ingi Hilmarsson fer með
öll hlutverk í leikritinu, en þau eru
sögumaðurinn, örninn og mús-
arindillinn. Björn Ingi kemst vel
og lipurlega frá þessum hlutverk-
um öllum og tekst í heild tekið vel
að skapa hverja persónu fyrir sig,
svo að greinilega kemur fram,
hverja hann túlkar hverju sinni.
Leikur hans felur í sér mikið lát-
bragð og ferst honum það mjög
svo bærilega úr hendi. Hann sér
einnig fyrir leikhljóðum, svo sem
marri í hurð og fleiru. Björn Ingi
breytir rödd sinni í samræmi við
persónurnar og tekst það vel,
einkum framan af verkinu, en
förlast heldur er á líður. Fas gefur
hann einnig hverri persónu og
heldur það einnig allvel til enda,
en það mætti þó á stundum vera
heldur samfelidara. Víða tekst
Birni Inga mjög vel að vekja kát-
ínu með skoplegu fasi, svo sem í
tengslum við trjástubbinn.
Hvað sem líður ýmsu smálegu,
sem ef til vill hefði mátt betur
fara, náði sýningin vel til þeirra,
sem hún er ætluð. Börnin virtust
njóta hennar og það er höfuð-
markmiðið. Þau voru mörg í
Deiglunni og gjarnan í fylgd með
einhverjum aðstandendum sínum.
Það var ánægjulegt að sjá hina
fullorðnu taka þátt í innlifun barna
sinna og virtust þeir einnig hafa
gaman af verkinu.
Lofthræddi örninn hann Örvar
verður sýndur aftur í Deiglunni
laugardaginn 1. júlí kl. 11:00 og
kl. 17:00. Þeir, sem ekki gátu nýtt
sér sýninguna 25. júní, eiga þess
því enn kost að gleðjast við ljúfa
sögu.
Blindrafélagið
samtök blindra og sjónskcrtra á Islandi
Happdrætti blindrafélagsins
Dregið 22. júní.
Vinningsnúmer eru:
5636 24550
3753 7621 9489 15293
5266 8442 11549 24572
4955 20881 22078 20733
21478
Þökkum landsmönnum veittan stuðning.
BLINDRAFÉLAGIÐ HAMRAHLÍÐ 17.
^JIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIItllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllh'
Gróðar- [
stödin
í ICJarna ]
sími 462 4047
fax 461 1247
♦ Trjáplöntur ♦ Skrautrunnar
♦ Skógarplöntur ♦ Rósir
♦ Áburður ♦ Fræ
♦ Plöntulyf ♦ Áhöld
Ótrúlega fjölbreytt úrval!
| Opið frá kl. 8-20 virka daga
| og 10-1 7 um helgar
amiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiMiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiii?
Tímarit Máls
og menningar
komið út
Tímarit Máls og menningar, 2.
hefti 1995 er komið út. Heftið er
að stórum hluta helgað skáldskap
Einars Más Guðmundssonar, en
hann hlaut eins og kunnugt er
Bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs fyrr á þessu ári. Birt er þakk-
arræða Einars Más við afhendingu
verðlaunanna, viðtal Silju Aðal-
steinsdóttur við Einar Má, sem er
ítarlegasta viðtal sem tekið hefur
verið við hann, og loks er vandað-
ur ritdómur Páls Valssonar um
verðlaunabókina, Englar alheinis-
ins.
Að vanda frumbirtir TMM
skáldskap eftir þekkt og óþekkt
skáld á ýmsum aldri: Ljóð eftir
Vilborgu Dagbjartsdóttur, Gerði
Kristnýju, Þórodd Bjarnason,
Kristján Þórð Hrafnsson, Guðjón
Sveinsson og Andra Snæ Magna-
son og sögur eftir Thor Vilhjálms-
son, Stefaníu Þorgrímsdóttur og
þýska Islandsvininn Wolfgang
Schiffer. Auk þess stutt útvarps-
leikrit eftir austurríska rithöfund-
inn Peter Handke.
Meðal greina í nýjasta TMM
má nefna „Söngvara lífsfögnuðar-
ins, hugleiðingu um skáldskap
Davíðs Stefánssonar á aldaraf-
mæli hans“, eftir Svein Skorra
Höskuldsson prófessor, og tvær
greinar um myndlist: Ólafur
Gíslason listfræðingur ritar grein
um verk Errós og Haraldur Jóns-
son myndlistarmaður veltir fyrir
sér spurningunni um það hvernig
myndlistarmenn hafa reynt að
fanga mannssálina í verkum sín-
um í aldanna rás.
Tímarit Máls og menningar,
2. hefti 1995, er 120 bls.
TMM kemur út fjórum sinnum
á ári og kostar ársáskrift 3.300 kr.
Ritstjóri er Friðrik Rafnsson.
SÁLIN áritar og spilar lög
af nýútkominni plötu og hitar upp
fyrir ballið í Sjallanum um kvöldið
Vörukynningar frá Víking Brugg.
Frissi Fríski mætir á svæðið.
Greifinn kynnir grillþjónustu sína og grillar kjöt
frá Kjötiðnaðarstöð KEA.
Kynningar og tilboð frá Vöruhúsi KEA. Æ
Fyrir bæði kynin!
Nýi ilmurinn CenderOne
- aðeins hjá okkur -