Dagur - 05.07.1995, Side 3

Dagur - 05.07.1995, Side 3
Miðvikudagur 5. júlí 1995 - DAGUR - 3 FRETTIR Aðalfundur Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf.: Ahersla logð a þrounar- og markaðsstarf Aðalfundur Iðnþróunarfélags EyjaQarðar hf. fyrir árið 1994 var haldinn 26. júní sl. Tap varð af rekstri félagsins árið 1994 að upphæð 8,1 milljón króna á móti 2,1 milljón króna hagnaði 1993. Þrír starfsmenn störfuðu hjá félaginu á árinu; Elín Antonsdóttir ráðgjafi, Bjarni Kristinsson ráðgjafl og nú ný- ráðinn framkvæmdastjóri og Ás- geir Magnússon, sem lét af starfi framkvæmdastjóra um sl. ára- mót er hann tók við starfi fram- kvæmdastjóra Foldu hf. Launa- greiðslur námu 9,1 milljón króna. Helstu ástæður rekstrartaps nú er hlutafjárniðurskrift sem telja verður eðli slíkra félaga, enda um áhættufjármagn að ræða. Rekstrar- tekjur ársins 1994 námu 17,9 milljónum króna á móti 21,3 millj- ónum árið 1993 en engar tekjur voru vegna seldrar þjónustu á móti 803 þúsundum króna árið 1993. Afskrifuð hlutabréf námu 9,2 milljónum króna, og ber þar hæst 8,7 milljónir króna í Foldu hf. og 500 þúsund í Úrvinnslunni hf. Hlutafé félagsins nam í árslok 35,5 milljónum króna og skiptist það milli 28 hluthafa. í árslok 1994 áttu 3 hluthafar yfir 10% eignarhluta í félaginu; Byggða- stofnun með 20,0%, Fram- kvæmdasjóður Akureyrarbæjar með 44,1% og Kaupfélag Eyfirð- inga með 10,9%. í stjórn Iðnþróunarfélagsins sitja af hálfu Akureyrarbæjar Daníel Árnason, sem er stjórnar- formaður, Sigurður J. Sigurðsson og Hákon Hákonarson, Sigurður Jóhannesson frá KEA, Árni Kr. Bjarnason sveitarstjóri Svalbarðs- strandarhrepps, Guðmundur Þór Guðjónsson frá Ólafsfirði og Val- týr Sigurbjarnarson, framkvæmda- stjóri Byggðastofnunar. Starfsemi Iðnþróunarfélagsins undaiifarin ár hefur að miklu leyti farið í aðstoð við félög sem eru fjárhagslega illa stödd og hafa jafnvel endað í gjaldþroti en einnig hefur verið veitt umtalsverð aðstoð við ein- Hilmar aðstoðar Halldór Hilmar Þór Hilmarsson, hagfræð- ingur, hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra. Hilmar hefur síðan í júní 1990 starfað í höfuð- stöðvum Alþjóðabankans í Wash- ington, fyrst við rannsóknir, en síðastliðin tvö ár sem hagfræðing- ur og verkefnisstjóri. oþh Nauðasamningur Sædísar staðfestur Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur staðfest nauðasamning Sæ- dísar hf. í Ólafsfirði, en fyrirtæk- inu var veitt heimild til nauða- samningsumleitana í febrúar sl. oþh Listasumar 95 Danskur stúlkna- kór í Listasafninu í kvöld syngur danskur stúlknakór frá Hjörring í Danmörku á tónleikum í Listasafninu á Akureyri. Kórinn á sér nokkuð langa sögu en hann var stofnaður árið 1964 og hefur því verið starfandi í rúm 30 ár. Á tónleikunum koma fram um 30 stúlkur undir stjóm kórstjórnandands, Gunnars Petersen, sem auk þess að þjálfa og stjórna kórnum, er kennari í tveim tónlistarskólum í Danmörku og er tónlistarstjóri danska ríkisútvarpsins. Danski stúlknakórinn hefur öðlast ýmsar viðurkenningar í gegn- um tíðina og unnið til margra verðlauna á alþjóðlegum kóramótum. Síðast sigraði kórinn á 129 kóra móti í Neepelt í Belgíu árið 1992. Kórinn hefur gefið út efni á geisladiskum, plötum og kasettum, auk þess sem hann hefur margsinnis komið fram í dönsku útvarpi og sjónvarpi. Tónleikar Nordjysk Pigekor verða í Listasafninu á Akureyri f kvöld og hefjast kl. 20.30. staklinga við nýsköpunarhug- myndir og átaksverkefni. I aukn- um mæli hefur starfsemin verið að færast yfir í þróunarstarf af ýmsu tagi og nýsköpun eða til aðstoðar markaðssetningar fyrirtækja. í skýrslu formanns, Daníels Árnasonar, segir að á síðasta ári hafi starfsemin að einhverju leyti borið einkenni þeirrar lægðar sem íslenskt atvinnulíf hefur átt í að undanförnu. Efnahagur fyrirtækja fer þó batnandi og að sama skapi eykst svigrúm þeirra til nýsköpun- ar. Stjórnin telur að leggja eigi áherslu á að félagið leiti áfram hagkvæmra og atvinnuskapandi fjárfestingatækifæra. Það verði gert með auknu samstarfi við starfandi fyrirtæki í landinu. Stjórn IFE lýsir ánægju með hvernig til tókst með endurreisn fyrirtækja eins og t.d. Skinnaiðnaðar hf., Foldu hf. og fiskverkunar á Greni- vík. Stjórn IFE telur hins vegar að vamarbarátta sem þessi sé ill nauðsyn sem falli ekki að stefnu félagsins. Samvinna félagsins við Háskólann á Akureyri hefur verið góð og fer vaxandi. Þekking og yfirfærsla þekkingar er lykilatriði í öllu nýsköpunarstarfi og því veru- legur þáttur í atvinnuþróun. Meðal verkefna sem unnið hefur verið að í samstarfi við Háskólann á Akur- eyri og fleiri aðila er að koma á fót matvælastofnun í tengslum við Háskólann, stofnanir og fyrirtæki. Senn hyllir undir að matvælastofn- unin verði sett á laggirnar. GG Faxtæki Fyrir venjulegan pappír Tilboðsverð frá kr. 79.900 Minni faxtæki frá kr. 32.900 T#LVUTÆKI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100 Vegaframkvæmdir í Keiduhverfi: Vegurinn hækk- aður og bundinn Nýr vegur sem lagður var í Kelduhverfl í fyrra reyndist vera mjög snjóþungur og er unnið að því þessa dagana að hækka hann upp. Að sögn Sigurðar Oddsson- ar hjá Vegagerð ríkisins á Ak- ureyri var vegargerðinni ekki fulllokið síðastliðið ár og er nú verið að leggja síðustu hönd á veginn, auk þess sem verið er að hækka hann upp, þar sem í ljós kom að töluverð snjósöfn- un varð á tveimur stöðum á veginum. Sigurður er ekki í vafa um að nýja vegarstæðið sé betra en hið gamla. Segir hann að eftir helgina verði lagt bundið slitlag á veginn og þá verði ekki undan neinu að kvarta, vegurinn verði eins og best verður á kosið. shv AKUREYRARBÆR STARFSMANNADE1LD Skóladagheimilið Hamarkot Laus er til umsóknar staða forstöðu- manns við skóladagheimilið Hamarkot frá 1. ágúst nk. Uppeldisfræðimenntun er áskilin. Nánari upplýsingar um starfið gefur umsjónarmaður skólavistunar í síma 462 7245. Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur- eyrarbæjar eða Launanefndar sveitarfélaga og Fé- lags íslenskra leikskólakennara. Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur starfs- mannastjóri Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyr- arbæjar að Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 14.júlí 1995. Skólaskrifstofa Akureyrarbæjar. Stórkostleg tækninýjung! Stórkostlegur vinningur dreginn út á gamlársdag! PLU8-VINNINGURINN I HHI95 ÁLBIFREIÐIN

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.