Dagur - 14.07.1995, Side 1
Sigurhæöir, hús séra Matthíasar Jochumssonar, skálds, verður opnaöaö í dag. Mynd: BG
Sigurhæðir opnaðar á ný
Laxeldsistöð Nordic Seafarm hf:
„Ætlum að halda
rekstrinum áfram“
- segir Jim Roger Nordby,
einn eigenda NFO Gruppen
Hús Matthíasar Jochumsson-
ar, Sigurhæðir, verður opn-
að í dag, föstudag, eftir að hafa
verið lokað undanfarin ár vegna
viðgerða.
í Sigurhæðum er minningar-
safn um séra Matthías, en hann lét
reisa húsið árið 1903 og bjó þar til
dauðadags árið 1920. Fjölskylda
hans bjó þar nokkuð lengur en
síðan var húsið selt og gekk það
kaupum og sölum um skeið.
Nokkrar breytingar voru gerðar á
Adögunum kom Reykjafoss,
skip Eimskipafélags íslands,
til Siglufjarðar með sjötta bátinn
sem Síldarminjasafnið á Siglu-
firði eignast. Að sögn Sveins
Björnssonar á Siglufirði bíður
manna talsvert mikið verk við að
koma bátnum í stand, en um er
að ræða 12 tonna eikarbát, sem
smíðaður var á Hauganesi árið
1954. Var báturinn lengst af
gerður út frá Eyjafirði undir
nafninu Draupnir og það nafn
mun hann nú fá að nýju.
„Við hjá Síldarminjasafninu
höfum verið að svipast um eftir
bátum sem líkst gætu þessum
gömlu síldarbátum og við gætum
haft hér við bryggju. Eftir að hafa
skoðað úreldingarlista hringdi ég í
menn víða um land og allir voru
dauðfegnir ef einhver vildi taka af
þeim ómakið að eyðileggja bátinn.
Hins vegar voru flestir þessir bátar
orðnir það breyttir að það hefði
kostað mikla fjármuni að gera þá
gamla aftur, þangað til ég rakst á
þennan,“ sagði Sveinn um tildrög
þess að Síldarminjasafnið eignað-
ist bátinn.
Báturinn sem um ræðir var síð-
ast gerður út frá Vestamnnaeyjum
undir nafninu Kristín VE-40 og
því á þessum tíma, aðallega á efri
hæðinni, en neðri hæðin er svo til
óbreytt.
Árið 1958 var Matthíasarfélag-
ið stofnað í þeim tilgangi að eign-
ast Sigurhæðir og koma þar upp
minjasafni um skáldið. Safnið var
opnað árið 1962 og rekið af félag-
inu til ársins 1981 er það var af-
hent Akureyrarbæ. Nú er safnið í
umsjá Minjasafnsins á Akureyri.
Viðgerðum á húsinu var hagað
þannig að hægt væri að varðveita
var í eigu Eiðs Marinóssonar. Bát-
urinn var lengi gerður út frá Eyja-
firði, síðan seldur til Þórshafnar og
þaðan til Vestmannaeyja. Að sögn
Sveins hefur mjög verið vandað til
allrar smíði bátsins á sínum tíma
og hafa tiltölulega litlar breytingar
verið gerðar á honum.
Síldarminjasfninu var gefinn
báturinn og síðan tók sinn tíma að
afla tilskilinna leyfa, t.d. hjá Sjáv-
arútvegsráðuneyti, Þjóðminjasafn-
inu, Þróunarsjóði sjávarútvegsins
og fleiri aðilum. Það hafðist þó allt
á endanum. „Fyrst ætluðum við að
sigla bátnum norður en hann var
ekki í það góðu ásigkomulagi að
við þyrðum að sigla honum alla
leið. Við leituðum því ásjár Eim-
skips og þeir fluttu hann ókeypis
fyrir okkur með Reykjafossi."
Nú stendur fyrir dyrum mikil
vinna við að koma bátnum í sem
upprunalegast horf og að því
loknu verður hann hafður við
bryggju fólki til sýnis. Jafnvel er
hugmyndinn að útbúa hann sem
reknetabát, en sá veiðiskapur var
að sögn Sveins mikið stundaður
seinni part sumars úti fyrir Norð-
urlandi þegar síldin fór að verða
erfiðari að ná henni. Þá björguðu
litlu reknetabátamir oft söltuninni.
Draupnir er sjötti báturinn sem
gerð hússins, en það ber einkenni
þess byggingastíls sem nefndur
hefur verið „sveitser“, sökum þess
að það ber keim af svissneskum
húsum. Leitast hefur verið við að
búa stofur hússins sem líkast því
sem var á tímum séra Matthíasar
og er skrifstofa skáldsins að kalla
óbreytt frá því sem var.
Sigurhæðir verða opnar dag-
lega í sumar frá klukkan 14 til 16.
Aðgangseyrir er kr. 100, en
ókeypis fyrir 15 ára og yngri. shv
Síldarminjasafnið eignast.
„Draumurinn er að eignast einn
stóran, 50-60 tonna bát, eins og
aðal síldarbátarnir voru héma í
gamla daga. Við vitum af einum
vestur á ísafirði sem heitir Grunn-
víkingur, en við eigum bara enga
peninga til að gera þetta. Hann
verður því að bíða, ef það verður
þá ekki búið að eyðileggja hann.
Eins og greint var frá á for-
síðu blaðsins á miðvikudag
auglýsti norska fyrirtækið NFO-
Gruppen í Lofoten í Noregi
laxeldisstöðina Nordic Seafarm
hf. við Miklavatn til sölu.
Jim Roger Nordby, einn af eig-
endum fyrirtækisins, er staddur
hérlendis um þessar mundir og er
blaðamaður Dags innti hann svara
á því hvers vegna stæði til að selja
fyrirtækið sagði Jim að þetta væri
á misskilningi byggt, ekki stæði til
að selja fyrirtækið.
„Ég er ekki að selja, mér þykir
leitt að hafa ekki getað hjálpað
ykkur með fréttina áður en hún
var birt, við erum ekki að selja við
erum að reyna að meta fyrirtækið
vegna tjóns sem við höfum orðið
fyrir í stöðinni og nú er því iokið
og við ætlum að reka það áfram
og enginn kemur til með að kaupa
það. Svo það er ekkert að gerast."
Eins og kom fram í fréttinni á
miðvikudag var kaupverð stöðvar-
innar 25 milljónir og samkvæmt
samkomulagi áttu 20 miljónir að
greiðast með skuldabréfi en 5
milljónir innan ákveðins tíma.
Tvær milljónir af þeirri upphæð
hafa verið greiddar en ávísun upp
Þeir eru auðvitað stórmerkilegir
þessi gömlu trébátar. Norðlenskir
bátasmiðir voru alveg sérstakir,
þeir smíðuðu svo fallega báta.
Handbragðið og smíðin er einstök
í sinni röð og þessir hlutir mega
ekki tínast. Það væri alveg synd ef
allir þessir gömlu bátar enda á
haugunum og eru eyðilagðir,"
sagði Sveinn. HA
á 3 milljónir hefur ekki fengist
innleyst.
Aðspurður um þessa hlið máls-
ins svaraði Jim: „Það er rétt að við
höfum aðeins greitt hluta upphæð-
arinnar en þetta er sá hluti fréttar-
innar sem ég er ekki tilbúinn að
ræða við þig um en ég get hins-
vegar sagt að það er allt undir
„kontról" og við ætlum einfald-
lega að halda rekstrinum áfram.“
Reynir Pálsson, framkvæmda-
stjóri stöðvarinnar, sagði þetta um
málið þegar blaðamaður hafði
samband við hann: „Þessi auglýs-
ing var birt áður en þetta vanda-
mál með vatnið kom upp en það
stendur ekki til að selja þetta í
dag.“ Aðspurður um afborganir af
stöðinni svaraði Reynir: „Eg svara
því ekki, ég hef ekkert með það að
gera „no comment“.“
Þess má svo geta að það vanda-
mál sem hlutaðeigandi tala um er
atvik sem átti sér stað fyrr í vor
þegar botnlokur Skeiðsfossvirkj-
unarinnar voru opnaðar og stíflu-
vatnið tæmt. Gömul setlög og
grugg bárust niður í gegnum
Fljótaána og niður í Miklavatn.
Úr Miklavatni er það vatn sem
notað er til eldisins tekið. Langur
tími leið áður en yfirborð vatnsins
hreinsaðist. Afleiðingar þessarar
mengunar, fyrir stöðina, eru taldar
vera þær að nýrnaveiki blossaði
upp og nauðsynlegt reyndist að
drepa mikinn hluta þeirra seiða
sem sett voru í eldi í fyrravetur,
um 60-70.000 seiði. GH
Rjótin:
Sláttur enn
ekki hafinn
Ekki er útlit fyrir að slátt-
ur í Fljótum hefjist fyrr
en í fyrsta lagi eftir 2 vikur
vegna slæmrar tíðar fyrri
hluta ársins.
Bjarni Traustason, Bjarnar-
gili, segir menn þó ekki hafa
miklar áhyggjur af að ekki ná-
ist nóg hey þar sem landbún-
aður hafi dregist mikið saman í
Fljótum síðustu ár, menn hafa
næg tún til að slá.
„Þetta er svona um það bil
3 vikum til mánuði seinna en
vanalega. Það lentu margir í
vandræðum í vor, voru heylitl-
ir en ég held að menn nái nú
alveg inn öllu því heyi sem
þeir þurfa.“
Aðspurður um hvort hann
teldi að menn næðu fleiri en
einum slætti sagðist Bjarni
ekki reikna með því en ef
menn sæju fram á skort á heyi
myndu þeir bara slá fleiri tún
en vanalega. GH
Reykjafoss slakar hér Kristínu VE, sem nú fær nafnið Draupnir, í sjóinn og
síðan var bátnum siglt að bryggju. Mynd: Ragnar.
Síldarminjasafnið á Siglufirði eignast sinn sjötta bát:
Draumurinn að eignast einn stóran
- segir Sveinn Björnsson