Dagur - 14.07.1995, Blaðsíða 4

Dagur - 14.07.1995, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 14. júlí 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÓLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÓRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285) SÆVAR HREIÐARSSON (íþrðttir). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÓRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 LE5ENDAHORNIÐ LEIPARI----------------------- Homreka fræðigrein Það hefur ítrekað komið fram í könnunum á landafræðikunnáttu íslenskra ungmenna að hún er engan veginn nógu góö, nokkuö sem hlýtur að vera áhyggjuefni. Niðurstöður samanburðarrann- sóknar, svokallaðrar Inter Geo H, á þekkingu ís- lendinga og annarra þjóða á landafræði, leiddu í ljós að þekking íslendinga var langt undir meðal- tali. íslendingar lentu í 17. sæti af 25 þjóðum. Sumum kann að finnast að heimurinn hrynji ekki þótt íslendingar séu ekki betur aö sér um landafræði. Þeir sem þetta telja eru á villigötum. Það skiptir vitaskuld miklu máli að íslendingar séu vel upplýstir um hagi og hætti annarra þjóða, ekki síst í því umróti sem nú á sér stað á sviöí fjarskipta og viðskipta. Landfræðilega erum við eyland í Atlantshafinu, en að öðru leyti erum við ekki ein á báti. Okkur er nauðsyn á því að vita miklu meira um umheiminn en við gerum. En þá er eðilegt að spurt sé; hvað er að, af hverju er þekking okkar í þessum efnum eins slæleg og áðurnefnd könnun gefur til kynna? Þessu er erfitt að svara, en þó má ljóst vera að skólakerfið hefur brugðist að verulegu leyti. Yfir- völd skólaraála í landinu hafa ekki hafið landa- fræði til þeirrar virðingar sem greininni ber, hún hefur verið hornreka í skólakerfinu. Landafræði er ekki staðreyndaupptalning, eins og gömlu landafræðikennslúbækurnar lögðu mest upp úr, hún er fræðigrein sem ekki síst fjallar um tengsl manns og náttúru, Hún tekur til stjórnmála, um- hverfismála og i raun allra þátta mannlífsins. Það er einmitt brýn nauðsyn á því að auka þekkingu íslenskrar alþýðu, ekki síst ungu kyn- slóðarinnar, á flóknu samspili athafna mannsins og náttúrunnnar. Þetta er nauðsynlegur grunnur til þess að byggja á. Því miður hefur þennan grunn skort að verulegu leyti vegna þess að landafræðinni hefur verið ýtt að verulegu leytí til hliðar í íslenska skólakerfinu. Margar þjóðir hafa á sama tíma skynjað mikilvægi þess að efla landafræðikennslu. Um þetta mál verður að tala tæpitungulaust. Við sitjum eftir vegna þess að kennslubækur í landafræði og framsetning námsefnis er fyrir löngu orðin úrelt og fyrir vikið hafa margir nem- endur andúð á þessari fræðigrein. Þar við bætist að það er mikíll skortur á kennurum sem eru fær- ir um að kenna þessa fræðigrein. Norðmenn - hingað og ekki lengra! Sjómaður hringdi og sagði að nú væri hann búinn að fá yfir sig nóg af yfirgangi Norðmanna. Málið með togarann Má frá Ólafsvík fyllti mælinn gjörsamlega. „Ég vil segja við frændur okkar Norð- menn; hingað og ekki lengra! Þeir hafa sýnt okkur sjómönnunum yfirgang norður í Smugu, þeir tuðuðu yfir síldveiðunum í Síldar- smugunni og nú sýna þeir ótrúleg- an ruddaskap með því að vísa Má út úr landhelgi Noregs, skipi sem varð að fá viðgerð í Noregi. Þetta er f raun ótrúleg framkoma og ekki Norðmönnum til sóma. Ég legg til að íslensk stjórnvöld svari fullum hálsi og fari að gera eitt- hvað verulega róttækt varðandi gegndarlausar veiðar Norðmanna á úthafskarfanum á Reykjanes- hrygg. Norðmenn verða að fara skilja að þeir eru ekki alheims- löggur á úthafinu!“ Hefur Jóhannes ekki efni á að auglýsa? Björn hringdi. „Það er orðið árvisst að Jó- hannes kaupmaður í Bónus verður vitlaus út af kalkúnalöppum. Hann hringir í fjölmiðlana, gjarnan þeg- ar gúrkutíðin er sem mest, og seg- ir þeim að hann sé nú að fá fulla gáma af eðalvarningi frá útlönd- um. Fjölmiðlarnir mæta á staðinn og gefa Bónus-kaupmanninum ókeypis auglýsingu, sem hægt er að meta á fleiri hundruð þúsund ef ekki milljónir. Og alltaf skal Bónus-kaupmanninum takast, með dyggri aðstoð fjölmiðlanna, að koma því inn í hausinn á al- menningi að hann sé Hrói höttur litla mannsins. Það er kominn tími til að fjöl- miðlar þessa lands sjái í gegnum þennan árvissa leik Jóhannesar kaupmanns í Bónus og hætti að auglýsa hann ókeypis dag eftir dag. Hann getur keypt sínar aug- lýsingar í fjölmiðlum eins og aðrir í viðskiptalífinu.“ Orðsóðarnír sitji heima Vallargestur hringdi. „Ég sá í lesendadálki Dags sl. miðvikudag að íþróttaáhugamaður hafði kvartað yfir orðbragði vall- argesta á Akureyrarvelli. Þessu er ég hjartanlega sammála. Ég var að vísu ekki vitni af þessum nefnda leik Þórs og Stjörnunnar en ég hef margoft áður heyrt þvílíkar sví- virðingar um dómara og leikmenn að ekki tekur tali. Ég hélt að fólk færi á völlinn til þess að hvetja sitt lið, en ekki til þess að ausa úr skálum reiði sinn- ar yfir leikmenn og dómara. Þeir sem geta ekki hagað sér eins og menn á knattspyrnuleikjum ættu að sjá sóma sinn í því að sitja heima og leyfa okkur hinum sem förum á völlinn til þess að horfa á knattspyrnu, að njóta leiksins.“ Góð tónlist hjá Gesti Einarí Útvarpshlustandi á Eyrinni hringdi. „Eg ætlaði nú bara að koma því á framfæri að hann Gestur Einar væri alveg skfnandi útvarpsmaður. Ég er nú komin af léttasta skeiði og hef því ekki mjög gaman af þessu poppgargi sem ætlar mann lifandi að drepa daginn út og inn. En tónlistin sem hann Gestur Ein- ar spilar í þættinum sínum eftir hádegið er alveg ljómandi og manni getur ekki annað en liðið vel eftir hádegismatinn. Ég ætla bara að vona að þeir þarna á rás 2 leyfi okkur að njóta tónlistarinnar hans Gests áfram á þessum tíma. Þetta er gott mótvægi við allt poppgargið." Gúrkubragur á sjónvarps- stöðvunum Sigurður hringdi. „Það er ekki hægt að segja ann- að en að fréttatímar sjónvarps- stöðvanna séu gúrkukenndir þessa dagana. Dag eftir dag eru langar fréttir af því sem venjulega myndi vart fá inni í fréttatímum sjón- varpsstöðvanna. Hins vegar verð ég að segja alveg eins og er að þessar svokölluðu gúrkufréttir eru miklu skemmtilegri heldur en þessar venjulegu leiðinlegu stofn- anafréttir úr stjórnsýslunni og af Alþingi. Mín vegna mætti því þingið fá lengra sumarfrí. Það er svo annað mál hvort fréttamenn- irnir á ljósvakamiðlunum myndu Iifa það af. En fyrst ég er farinn að tala um sjónvarpsstöðvarnar, þá vil ég taka fram að í sumar finnst mér ýmsir þættir sem þær bjóða upp á vera að mörgu leyti bitastæðari en ég hef séð undanfarin sumur.“ Mynd: BG. Tímabær framkvæmd Listunnandi hringdi. „Oftast er það nú svo að kvart- að er yfir því sem miður fer en sjaldnar er þakkað fyrir það sem vel er gert. Ég vil leyfa mér að þakka hér fyrir það sem vel er gert á Akureyri. Að undanförnu hefur verið unnið að því að gera nýjar gang- stéttir í Listagilinu og var það sannarlega tímabært verk. Nýju stéttarnar gefa Gilinu nýjan og skemmtilegan blæ og fyrir það ber að þakka. Fyrst ég er á annað borð farinn að tala um umhverfismál á Akur- eyri er vert að geta um að fyrir sunnan Blómahúsið sáluga er gjarnan „parkerað" hinum ýmsu vélum og oft er þarna ýmiskonar drasl. Þetta er óþrifalegt og mætti kippa í liðinn, enda hér um að ræða svæði sem blasir við öllum sem til Akureyrar koma.“ Einstök þjónusta í Akureyrar apóteki Rósa hringdi. „Ég vil endilega vekja athygli á einstakri þjónustu sem ég fékk í Akureyrar apóteki. Þannig var að ég þurfti að fá lyf í Akureyrar apóteki í gær (mið vikudaginn 12. júlí). Þetta var box með 56 töflum. Þegar ég síðan kom heim kom í ljós að töflurnar voru ekki nema 42. Ég hringdi í morgun (fímmtudag) og spurði um ástæður fyrir þessu. Lyfsalinn bað mig margfaldlega afsökunar á þessum mistökum og sagði að þessu yrði kippt í liðinn eins og skot. Það Iiðu ekki nema tíu mínútur, þá var lyf- salinn sjálfur kominn hingað heim til mín með nýtt lyfjabox. Þetta finnst mér alveg einstök þjónusta og full ástæða til að vekja athygli á henni.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.