Dagur - 14.07.1995, Page 7

Dagur - 14.07.1995, Page 7
HVAÐ ER Af> CERA5T? Föstudagur 14. júlí 1995 - DAGUR - 7 Dagsmótið á Hlíðarholtsvelli Dagsmótið - árlegt deildarmót íþróttadeildar Léttis á Akureyri, verður haldið á Hlíðarholtsvelli ofan Akureyrar á morgun, laugar- dag, og hefst það kl. 10. Aðgangur er ókeypis. í frétt í Degi í gær var sagt að mótið yrði bæði á morgun og sunnudag, en nú er ljóst að mótið verður aðeins á morgun, laugardag. Flóamarkaður í Kjarnalundi Flóamarkaður Náttúrulækningafé- lags Akureyrar verður í Kjarna- lundi nk. mánudagskvöld kl. 20- 22. Á boðstólum verður mikið úr- val af fatnaði á börn og fullorðna ásamt ýmsum öðrum varningi. Minjasafnið á Akureyri opið um helgina Minjasafnið á Akureyri er opið daglega kl. 11-17 og eru Akureyr- ingar, Eyfírðingar og ferðafólk boðið velkomið. Sýningar safns- ins hafa verið endurbættar á und- anförnum árum og því er eflaust eitthvað nýtt fyrir flesta að sjá. Aðgangseyrir er kr. 250 en frítt fyrir börn á grunnskólaaldri og eldri borgara. Laxdalshús er opið um helgina á sunnudögum kl. 13-17. Þar hangir uppi Ijósmyndasýningin „Akureyri - svipmyndir úr sögu bæjar“ og boðið er upp á sýningu á myndbandinu „Gamla Akur- eyri“. Laxdalshús er því tilvalinn staður fyrir þá sem vilja kynna sér sögu gömlu byggðarinnar í Fjör- unni. Enginn aðgangseyrir er tek- inn að Laxdalshúsi. Á sunnudaginn kl. 13 verður farið í gönguferð um Oddeyri. Gengið verður frá Gránufélags- húsunum við Strandgötu um elsta hluta eyrarinnar. Þátttaka í göngu- ferðum Minjasafnsins er fólki að kostnaðarlausu. Föstudagsdjass á Hótel KEA í kvöld, föstudagskvöld, verður spilaður djass á Hótel KEA frá kl. 10 til 01. Að þessu sinni sér Tríó Gunnars Ringsted um sveifluna. Saga-KIass á KEA Annað kvöld, laugardagskvöld, sér hljómsveitin Saga-Klass ásamt Berglindi Björk og Reyni Guð- mundssyni um fjörið á Hótel KEA. Sálin í Freyvangi Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns leikur fyrir dansi í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit annað kvöld, laugardagskvöld. SSSóI í Sjallanum og Miðgarði Hljómsveitin SSSóI leikur fyrir dansi í Sjallanum á Akureyri í kvöld og annað kvöld, laugardags- kvöld, í Miðgarði í Skagafirði. Annað kvöld leikur fyrir dansi í Sjallanum á Akureyri hljómsveitin Austurland að Glettingi. Dröfa sýnir á Hótel Hjalteyri Á morgun, laugardag, kl. 13 verð- ur opnuð sýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur á Hótel Hjalteyri. Dröfn stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskólann árið 1963 og Myndlistaskólann á Akureyri 1982-1986. Þá stundaði hún nám við Lahti Art Institut í Finnlandi á árunum 1987 og 1988. Fjórar einkasýningar hefur Dröfn haldið á Akureyri, en einnig hefur hún í tvígang haldið einkasýningu í Reykjavík og einu sinni í Finnlandi. Þá hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Á sýningunni á Hótel Hjalteyri sýnir Dröfn grafíkdúkristur sem hafa verið unnar á þessu ári. Dagný Sif sýnir áCafé Karólínu Dagný Sif Einarsdóttir opnar myndlistarsýningu á Café Kar- ólínu í Listagilinu á Akureyri á morgun, laugardag. Sýningin stendur til 4. ágúst. Dagný Sif Einarsdóttir nam myndlist við Myndlistaskólann á Akureyri og útskrifaðist það- an vorið 1993, úr málaradeild. Hún hefur síðan haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Sýninguna á Café Karólínu kallar hún ,T;jölskyldumyndir“ og eru verkin unnin með blandaðri tækni á pappír. Sýningin stendur til 4. ágúst. Verkið sem Sigurdís Harpa sýnir í Glugganum er svokölluö „innsetn- ing“, unnin úr 600 eintökum af lit- aöri Ijösmynd. Sigurdís Harpa sýnir í Glugganum Sigurdís Harpa Arnarsdóttir, myndlistannaður, sýnir verk sín í Glugganum í Hafnarstræti, Vöru- húsi KEA, frá og með deginum í dag til næsta föstudags. Þessar vikulegu sýningar í Glugganum eru hluti af Listasumri 95. Sigurdís Harpa Arnarsdóttir stundaði myndlistarnám við Myndlistaskólann á Akureyri og lauk þaðan námi vorið 1994. Sig- urdís er starfandi myndlistarmaður á Akureyri og hefur haldið tvær einkasýningar, á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Verk hennar í Glugganum er „innsetning“ unnin úr 600 eintökum af litaðri Ijós- mynd. Ferðafélag Akureyrar með ferð í Þingey Á morgun, laugardaginn 14. júlí, er á áætlun félagsins ferð í Þingey í Skjálfandafljóti. Eyjan er þing- staður frá fyrstu öldum íslands- byggðar og draga Þingeyjarsýslur báðar nöfn sín af því þinghaldi. Minjar um það eru búðartóftir og garðhleðslur auk örnefna eins og Þinghóll, Þinglág og Gálgaklettur. Ekið verður austur yfir Skjálf- andafljótsbrú hjá Ófeigsstöðum, framhjá bænum Vaði og þaðan ferjað yfir fljótið á Skipapolli, síð- an gengið um eyjuna. Aðstæður við eyjuna og lega henna sést á meðfylgjandi korti. Brottför er frá skrifstofu Ferðafélagsins að Strandgötu 23 kl. 9 í fyrramálið. Þar er opið í dag kl. 16-19 og hægt að skrá sig í ferðina, sími 4622720. Á sunnudagskvöldið, 16. júlí, er fyrirhuguð plöntuskoðunarferð í Ólafsfjarðarmúla undir leiðsögn Harðar Kristinssonar, grasafræð- ings. Slíkar ferðir hafa verið nokkur undanfarin sumur og notið vinsælda. Skráning í ferðina verð- ur á áðurnefndum tíma á skrif- stofu félagsins auk þess sem fólk getur mætt fyrir brottför sem verð- urfrá skrifstofunni kl. 19. KórAh :ur< eyrarl kirkji láSi ímar- tói ílei J ikum umh elginj Fyrsta tónleikaröð Sumartón- leika á Norðurlandi verður um helgina. Flytjendur á þessum fyrstu tónleikum er Kór Akur- eyrarkirkju undir stjórn Björns Steinars Sólbergssonar. Ein- söngvarar úr röðum kórfélaga eru: Dagný Pétursdóttir, sópran, Elma Atladóttir, sópran, Kolbrún Jónsdóttir, sópran, Björg Þór- hallsdóttir, alt, Sigrún A. Arn- grímsdóttir, alt, og Bryngeir Kristinsson, tenór. Jón Hlöðver Áskelsson, tón- skáld á Akureyri, sem er heið- urstónskáld Kórs Akureyrar- kirkju, varð fimmtugur í júní- byrjun sl. og er fyrsta tónleika- röð sumarsins tileinkuð þeim Björn Stcinar Jón Hlööver Sólbergsson. Áskelsson. tímamótum með flutningi á verkum sem hann hefur sérstak- lega samið fyrir kórinn og kirkjustarfið, auk annarra verka. Með þessu vilja aðstandendur Sumartónleika á Norðurlandi, Listvinafélags Akureyrarkirkju og Kórs Akureyrarkirkju hylla Jón Hlöðver á viðeigandi hátt. Auk tónlistar eftir Jón Hlöð- ver verða á efnisskránni verk eft- ir Alessandro Scarlatti, Hans Leo Hassler, Felix Mendelsson- Bartholdy, Anton Bruckner og útsetningar á íslenskum þjóðlög- um eftir Hafliða Hallgrímsson og Jón Hlöðver Áskelsson. Tónleikar Kórs Akureyrar- kirkju verða í Dalvíkurkirkju í kvöld kl. 21, annað kvöld, laug- ardagskvöld, á sama tíma í Reykjahlíðarkirkju í Mývatns- sveit og á sunnudaginn kl. 17 í Akureyrarkirkju. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Sumar ’95 í Mynd- listaskólanum Sýningin „Sumar ’95“ í Mynd- listaskólanum á Akureyri var opn- uð um síðustu helgi og stendur til 7. ágúst. Mikið fjölmenni var við opnun sýningarinnar og ágæt að- sókn hefur verið síðan. Listamennirnir sem verk eiga á „Sumar ’95“ eru, talið frá vinstri á meðfylgjandi mynd: Kristinn G. Jóhannsson, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Helgi Vilberg, Rósa Kristín Júlíusdóttir, Anna G. Torfadóttir, Guðmundur Ármann, og Samúel Jóhannsson. Sýningin er opin daglega kl. 14-19 og er aðgangur ókeypis. Borgarbíó sýnir Star Trek kynslóðir Borgarbíó frumsýnir í kvöld æv- intýramyndina Star Trek kyn- slóðir, en hún er vinsælasta geimævintýri síðari ára. Með að- alhlutverk fara Patrick Stewart, William Shatner, Malcom McDowell og Whoopi Goldberg. Stórsnjall en siðspilltur vís- indamaður, Dr. Soran (McDo- well), hyggst ná yfirráðum yfir sérstæðu geimfyrirbrigði, hliði sem kallað er Nexus, til að brúa fjölmörg tímaskeið og hagnýta sér það til að lifa sjálfur í sælu- reit. Þessi áætlun hans hefur hins vegar þær skelfilegu aukaverkan- ir að fleiri hundruð milljónir manna munu láta lífið þegar mis- munandi tfma- og orkusvið rek- ast saman. Hinir tveir frægu skip- stjórar geimskipsins Enterprise, James T. Kirk (Shatner) og Jean- Luc Picard (Stewart) reyna í sameiningu að koma f veg fyrir þessa áætlun á 24. öldinni og njóta þeir hjálpar tímaflutninga við það þar sem heil öld er á milli þeirra í aldri. Af samvinnu þessara tveggja kynslóða skip- stjóra dregur myndin nafn sitt. Kvikmyndin er á engan hátt tengd Star Trek sjónvarpsmynd- unum né fyrri kvikmyndum nema að persónur úr þeim koma fyrir í myndinni. Star Trek kynslóðir verður sýnd kl. 21 í Borgarbíói. Á sama tíma og einnig kl. 23 í hinum sal Borgarbíós verður sýnd „While you were Sleeping”. Skemmti- myndin Snillingurinn verður síð- an sýnd kl. 23. Á bamasýningum á sunnudag kl. 15 verða sýndar myndirnar Týndur í óbyggðum og Tommi og Jenni. Ókeypis verður á þessar sýningar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.