Dagur - 14.07.1995, Page 11
Verslun í eitt hundrað ár
Laugardaginn 8. júlí héldu
Hvammstangabúar upp á það
með miklum hátíðarbrag, aö eitt
hundrað ár eru liðin frá því að
staðurinn varð löggildur verslun-
arstaður. Dagskráin hófst klukkan
11:00 og lauk með dansleik um
kvöldið. Dagskrá var við Félags-
heimilið kl. 13:00 til 14:00 og
kaffiveitingar í Félagsheimilinu á
milli klukkan 14:00 og 16:00, en
að þeim loknum var dagskrá á
sama stað, þar sem rakin var í
máli, söng og leik saga verslunar-
innar á Hvammstanga í stórum
dráttum. Dagskráin var í umsjá
Leikflokksins á Hvammstanga og
var því miður það eina, sem und-
irritaður hafðu tök á að fylgjast
með af þeim fjölda atriða, sem
fram voru færð á þessum mikla
fagnaðardegi.
Talsverður hópur leikara tók
þátt í flutningi dagskrárinnar. Hún
byggðist annars vegar á lestri
sögulegra þátta um verslun á
Hvammstanga, en hins vegar á
leiknum og sungnum atriðum,
sem komu á milli lesinna þátta.
Lesturinn var í höndum ýmissa
úr leikarahópnum og höfðu nokkr-
ir þar stærra hlutverk en aðrir.
Hann fórst flytjendum vel úr
hendi. Fram voru tíndir fróðleiks-
molar um upphafsár ýmissa þátta
verslunarsögunnar og þá menn,
sem sem við sögu komu. Þeir eru
MINNINÚ
fjölda margir á þeim hundrað ár-
um, sem liðin eru, og starfsemi
hefur ljóslega verið með margs
konar hætti, svo sem vænta má.
Þessir þættir voru mjög upplýs-
LEIKLIST
HAUKUR ÁGÚSTSSON
SKRIFAR
andi bæði fyrir gesti og heima-
menn. Inn í fróóleikinn var fléttað
gamanmálum, sem voru hnittin og
vöktu verulega kátínu gesta.
Leikin atriði voru mörg og
runnu lipurlega inn í lesna þætti.
Notast var viö afar lítinn sviðbún-
að og nánast ekki annað en þaö;
sem flytjendur báru með sér. I
þessum stuttu leikþáttum var sýnt
ýmislegt af atburðum, sem orðið
höfðu á ýmsum stigum verslunar-
sögunnar jafnt þau, sem skráð
hafa verið, sem þau, sem geymst
hafa í minni manna. Flest það,
sem fram var sett með þessum
hætti var prýðisvel flutt. Fram-
sögn almennt góð og fas í góðu
lagi. Víða var um skopleg atriði
að ræða, sem kitluðu hláturtaugar
áhorfenda.
Inn í þau atriói, sem þegar hef-
ur verió á minnst, var fléttað létt-
um söngvum í gamanvísnastíl.
Söngurinn var vel af hendi leyst-
ur. Hann var fjörlegur og texta-
flutningur allur greinilegur, sem
skipti miklu máli, því að sögð var
saga hverju sinni. Yfir söngnum
var allt að því yfirvegaður „ad
hoc“ bragur, sem gerði hann að-
laðandi og ekta. Margir stóðu sig
með prýói í þessum tónlistaratrið-
um og er Ijóst, að góðar raddir til
söngs er að finna á meðal þeirra,
sem eru félagar í Leikflokknum á
Hvammstanga. Undir sönginn var
leikið á harmóníku og fór það vel.
Það færist mjög í vöxt, að
byggðir haldi upp á merkisdaga í
sögu sinni. Það er vel. Bæði vekja
þeir athygli á hlutaðeigandi
byggöum og ekki síður efla minn-
isdagar tilfinningu íbúanna fyrir
sögu þeirra staða, sem þeir
byggja. Slíkt er hverri byggð
nauðsyn. Samfellan á milli nútíðar
og þess, sem að baki er, er nauð-
syn. Sé hún vakandi og lifandi
gefur hún mönnum grunn að
standa á og ekki síður vitund um
stöðu í sögu þjóðarinnar, en hún
er ofin úr fjölda þráóa, þar sem
hver byggð hefur sitt hlutverk og
sinn stað og er ómissandi.
Edda Pétursdóttir
Fædd 23. október 1931 - Dáin 28. maí 1995
Mig langar til þess að minnast
móður minnar með nokkrum orð-
um.
Ekki óraði mig fyrir því að ég
væri að tala við mömmu í síðasta
sinn þegar ég talaði við hana á
laugardag, þá var hún eins og hún
átti aó sér að vera og við kvödd-
umst eins og vant var. En á sunnu-
dagsmorgun fengum við þau
hörmulegu tíðindi að móðir mín
hefði látist þá um nóttina.
Það var eins og heimurinn
hryndi, ég trúði þessu ekki, ég
elskaði móður mína meira en oró
fá lýst, vió vorum mjög samrýmd-
ar, enda hafði hún svo mikið að
gefa af sér, bæði handa mér og
öllum sem þekktu hana.
Til margra ára var hún ráðs-
kona í Skjaldarvík þar sem ég
vann með henni í nokkur ár og
aldrei hlífði hún sér nokkum tím-
ann og fékk þó svo lítið hrós fyrir
svo vel unnin störf. Hún var alltaf
mjög glæsileg svo að eftir var tek-
ið. Hún var skapgóð og sagði
stundum við mig að maður þyrfti
ekki að vera eins, þó einhver gerði
eitthvað á manns hlut. Maður gat
leitað til hennar ef eitthvað bjátaði
á en hún sjálf kvartaði aldrei þó
henni liði eitthvað illa, enda var líf
hennar ekki alltaf dans á rósum.
Hún hélt alltaf reisn sinni, alveg
sama á hverju gekk. Hún var mjög
bamgóð, hvort sem það voru
hennar eigin eða annarra böm.
Það er sagt að tíminn lækni öll
sár, en mitt grær aldrei.
Hún móðir mín bjó ásamt for-
eldrum sínum og bróður og ól-
umst við systkinin þrjú upp hjá
þeim. Hún var okkur svo góð
móðir og bömunum okkar líka og
hún vildi allt fyrir okkur gera. All-
ir sem þekktu hana misstu mikið.
Mamma, ég þakka þér fyrir
þessi góðu ár sem ég fékk að eiga
með þér.
Bið ég góðan guð að varðveita
þig, elsku mamma.
Sigurlaug.
Suzuki Baleno
BALLNOj
Fjölskyldubíll
Laufsásgötu 9, Akureyri, sími 462 6300
Föstudagur 14. júlí 1995 - DAGUR - 11
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
Innlausnardagur 15. júlí 1995.
1. flokkur 1991:
Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1.489.363 kr.
148.936 kr.
14.894 kr.
3. flokkur 1991:
Nafnverð:
1.000.000 kr.
500.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1.325.246 kr.
662.623 kr.
132.525 kr.
13.252 kr.
1. flokkur 1992:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
6.526.316 kr.
1.305.263 kr.
130.526 kr.
13.053 kr.
2. flokkur 1992:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
6.423.894 kr.
1.284.779 kr.
128.478 kr.
12.848 kr.
1. flokkur 1993:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
5.916.074 kr.
1.183.215 kr.
118.321 kr.
11.832 kr.
3. flokkur 1993:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
5.548.418 kr.
1.109.684 kr.
110.968 kr.
11.097 kr.
1. flokkur 1994:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
5.455.053 kr.
1.091.011 kr.
109.101 kr.
10.910 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka Islands
Suðurlandsbraut 24.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900