Dagur - 19.07.1995, Blaðsíða 5

Dagur - 19.07.1995, Blaðsíða 5
Jazz á fímmtudegí Miðvikudagur 19. júlí 1995 - DAGUR - 5 , RÚLLUR - ARKIR - HÖNNUN - MYNDAMÓTAGERÐ - FÓLÍU - Fimmudaginn 13. júlí efndi Klúbbur Kaffihússins Karólínu og Listasumars 95 til jazztónleika í Deiglunni í Grófargili á Akureyri. Fram kom Tríóið Skipaó þeim, en í því eru Gunnar Gunnarsson, píanóleikari, Jón Rafnsson, kontrabassaleikari, og Ami Ketill Friöriksson, trommuleikari. Til liðs við sig fengu þremenningamir Gunnar Ringsted, gítarleikara, og söngkonuna Ragnheiói Ólafsdótt- ur. Gunnar Gunnarsson er vaxandi á sviði jazzpíanóleiks og hefur tekiö miklum breytingum frá því að til hans heyrðist fyrst í samleik tríósins. Sóló hans hafa orðið til muna líflegri, en mega enn batna nokkuð. Flest þeirra eru allstöðluð og byggja mikið á allhröðum leik, sem er í formi til dæmis skala og brotinna hljóma. Melódísk yfir- vegun laglínu og hljómagangs mætti vera meiri á stundum. Hraða leiknum á þó ekki að sleppa að fullu. Hann hefur líka sitt sæti. Gunnari tókst víða vel í leik sínum. Svo var til dæmis í lögun- um Blue Monk, þar sem Gunnar tók Iangt og fjölbreytt sóló, Sop- histicated Lady og Ain’t Misbeha- ving, þar sem Gunnar sýndi, að hann hefur tök á því að yfirvega laglínu og hljómagang á gefandi máta og Autumn Leaves, þar sem góð sveifla ríkti í leik Gunnars - og reyndar hjá allri hljómsveitinni. Jón Rafnsson er einnig vaxandi á sínu sviði og byggir gjaman upp skemmtilegar bassalínur. Hann má þó gæta sín á því að staðna ekki. I sólóleik hans gættir nokkuð staól- aðrar uppbyggingar, sem ekki er þekkileg til lengdar. Einnig var bassaleikurinn nokkuó harður og ósveiganlegur fram að hléi. Meiri mýkt var í leiknum í síðari hluta tónleikanna. Jón Rafnsson átti nokkra veru- lega góða sprctti á tónleikunum í Deiglunni. Nefna má góð sóló hans í lögunum Nótt í Moskvu, Route Sixty-Six og laginu Dagur eftir Tómas R. Einarsson. Ami Ketill Friðriksson var tals- verðu virkari á þessum tónleikum en hann hefur iðulega verió í slag- TÓNLIST HAUKUR ACUSTSSON SKRIFAR verksleik sínum. Hann tók reyndar engin „breik“ eða sóló, en litaði hins vegar trommuleik sinn hóf- lega og af smekkvísi. Takturinn sjálfur brást aldrei hjá honum og hann kann vel þá eðlu list, að veita stuðning án þess að yfirgnæfa nokkum tímann. Gunnar Ringsted er lipur gítar- leikari. Hann spinnur gjaman fal- lega yfir hljómagang og laglíhu og átti nokkra skemmtilega spretti á tónleikunum í Deiglunni. Svo var til dæmis í lögunum Blue Monk og Dct var et lordag aften, en í hinu síðara komast Gunnar veru- lega á flug. í lögunum How High the Moon, Stella by Starlight og Autumn Leaves gerði Gunnar einnig vel, einkum í hinum tveim síðari, þar sem hann náði góðri sveiflu og lagrænum spuna. Ragnheiöur Ólafsdóttir er í framför sem jazzsöngkona. Enn skortir þó nokkuð á mýkt raddar- innar og einnig fulla tilfinningu fyrir því að sveigja og sveifla lag- línu, einkum á texta. Skattsöngur Ragnheiðar, en honum beitti hún í Sumarhátíð SÁA í Galtalækjarskógi Sumarhátíöin „Úlfaldinn 95“ vcrður haldin í Galtalækjarskógi helgina 21.-23. júlí nk. á vegum SÁÁ. Þetta er í annað skipti sem SÁÁ stendur að þessari útihátíð. „Úlfaldinn 95“ er opin öllum scm vilja njóta útiveru og félags- skapar án vímuefna. Sumarhátíðin Stjórnin spilar fyrir dansi á föstudagskvöldiö. nokkrum lögum, en verulegu jazz- ískari en textasöngur hennar. Ragnheiður náði umtalsverðum tökum í nokkrum lögum. Nefna má Dag eftir Tómas R. Einarsson og Route Sixty-Six. í laginu Ain’t Misbehaving tókst Ragnheiði einnig vel upp, ekki síst í skatti. Á tónleikunum var frumflutt lag eftir Hróðmar Inga við Ijóð eft- ir Jónas Hallgrímsson og einnig leikið lag eftir Gunnar Ringsted, sem hann kallar Borgarfjarðar- bossa. Bæði lögin eru áheyrileg, en leikur - og einkurn spuni - var nokkuð stirðlegur og mátti greina, að hljómsveitin var ekki að fullu handgengin þessum verkum. Tónleikamir voru mjög vel sóttir og virtust gestir hafa skemmtan af því, sem fram var borið. Jazztónleikastarfsemi Klúbbs Kaffihússins Karólínu og Listasumars 95 á sér greinilega fylgjendur marga. Væri ekki ráð að halda starfseminni uppi aðra tíma ársins en sumur ein? 3 H o o 3 o t- Vörumiðar hf * ÞAR SEM LlMMIÐARNIR FÁST * REYNSLA • GÆÐI • ÞJÓNUSTA Sími 461 2909 - Fax 461 2908 Hamarsstígur 25, 600 Akureyri LAGERMIÐAR (TILBOÐ.ÓDÝRT O.S.FR) - VIGTARMIÐAR 'diiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiig' Jörð til sölu! í haust er til sölu góö sauófjórjöró í S.-Þingeyjarsýslu. Jörðin er vel upp byggð, bústofn og vélar fylgja. GóSir útivistarmöguleikar. Uppl. hjó BúnaSarsambandi S.-Þing., sími 464 3563. ■niiininiiiiimiMiiininiiimiiiniiiiniiiiiiiiiiimininiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiinniiiinir HRISALUNDUR f er haldin á svæði templara í Galta- lækjarskógi, en þar er mjög góð aðstaða. Dagskrá hátíðarinnar er miðuð við alla fjölskylduna og er sérstak- lega mikið lagt upp úr afþreyingu fyrir bömin. Þar á meöal má nefna útileiki, íþróttir bama, hesta fyrir bömin, hæfileikakeppni og fleira. Hljómsveitin Stjómin spilar á dansleik „Úlfaldans" á föstudags- kvöld. Á laugardagskvöld verður kvöldvaka þar sem Spaugstofan og gleðitríóió Kózý skemmta. Á dansleik á laugardagskvöld spilar hljómsveitin Álfamir, en hana skipa m.a. söngvaramir Pálmi Gunnarsson og Ruth Reginalds. Aðgangseyrir er kr. 2500 en ókeypis fyrir 15 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Svæöið veröur opnað kl. 17 á föstudag, 21. júlí. - fyrir þig! Súpukjöt - 5 kg á 1995 pk. Bógsneiðar á grillið kr. 399 kg Bláber 129 kr. boxið 25% afsláttur af öllum fatnaði aagar miðvikud.-laugard. AFGREIÐSLUTIMI: Mánud.-föstud. kl. 10.00-19.30 Laugard. kl. 10.00-18.00 fimmtudaginn 20. iúli

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.