Dagur - 19.07.1995, Qupperneq 12
50 ára afmæli
Raufarhafnar:
Hólmvíking-
ar ætla að
fjölmenna
Drjúgur hópur fólks frá
Hólmavík ætlar að bregða
sér austur á Raufarhöfn um
næstu helgi til þess að samfagna
Raufarhafnarbúum á 50 ára af-
mæli sveitarfélagsins, sem hald-
ið verður upp á með miklum
glæsibrag um helgina.
Þær upplýsingar fengust á
skrifstofu Hólmavíkurhrepps í gær
að 105 Hólmvíkingar hafi ákveðið
að fara austur á Raufarhöfn, en
fyrir fimm árum fjölmenntu íbúar
Raufarhafnar vestur á Hólmavík
til þess að taka þátt í 100 ára af-
mæli Hólmavíkur og þá var komið
á formlegu vinabæjarsambandi
þessara tveggja þéttbýlisstaða.
Örn Ingi Gíslason var þá fram-
kvæmdastjóri Hólmavíkurhátíðar-
innar og hann er einnig heilinn á
bak við hátíðarhöldin á Raufar-
höfn um næstu helgi.
Hómvíkingar hyggjast koma
saman á Kópaskeri nk. föstudag,
21. júlí kl. 15.30 og þaðan ætla
þeir að aka í fylkingu síðasta spöl-
inn. Kl. 18 taka Raufarhafnarbúar
síðan á móti Hólmvíkingum með
kvöldverði.
Hólmvíkingar ætla sér að
mynda sérstaka tjaldborg á Rauf-
arhöfn og er ætlun þeirra að setja
upp stórt samkomutjald. Þá gista
þeir á Hótel Norðurljósi og vafa-
laust víðar. óþh
Kappklædd sláttukona
Þegar norðanáttin er við völd er eins gott að vera þokkalega klædd-
ur í vinnunni. Þessi sláttukona var að slá niður grasið við Andapoll-
inn á Akureyri í gær og af vetrarklæðnaðinum að dæma var lofthit-
inn ekki ýkja mikill á Akureyri. óþh/Mynd: bg
Aðalfundur Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf.:
Örlítill hagnaður
Aðalfundur Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar hf. fyrir árið
1994 var haldinn á dögunum.
Þar kom fram að afkoman var
heldur lakari en árið á undan.
Reksturinn var þó réttu megin
við strikið og skilaði 1.270 þús.
kr. hagnaði að teknu tilliti til af-
skrifta og annars.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar rek-
ur annars vegar frystingu og hins
vegar beinamjölsverksmiðju og
Ioðnubræðslu. Heildarvelta ársins
var 428 milljónir króna, þar af
velti frystingin 361 milljón og
bræðslan 67 milljónum.
Að sögn Jóns Þorvaldssonar,
stjórnarformanns, rekja menn
versnandi afkomu til minnkandi
afla, hærra hráefnisverðs, gengis-
breytinga og fleiri hluta. Talsvert
tap varð á beinamjölsverksmiðj-
unni og loðnubræðslunni. Undan-
farið hefur verið mikið rætt um
versnandi afkomu landvinnslunn-
ar með lækkandi gengi dollars og
punds. Það sagði Jón vera mjög
alvarlegan hlut og mál sem þyrfti
að ganga í að leysa. Fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ól-
afsfjarðar er Karl Guðmundsson.
HA
Olafsfjörður:
Skilorðsbundinn
fangelsisdómur
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur dæmt 19 ára
gamlan Ólafsfirðing í tveggja
mánaða fangelsi skilorðsbundið
í tvö ár vegna þjófnaða í mars sl.
Um var að ræða innbrot í
Radíóvinnustofuna við Strandgötu
þar maðurinn stal meðal annars út-
varpstækjum, segulbandstækjum,
myndavél og reiknivél. Þá braust
hann inn í Grill-Barinn við Ægis-
götu og stal þar áfengi, vindling-
um og sælgæti. Sömuleiðis braust
maðurinn inn í skíðaskálann í Ól-
afsfjarðarfjalli og stal þar sælgæti,
myndavél og sólgleraugum.
Fram kemur í dómi Héraðs-
dóms að maðurinn hafi játað
þjófnaðarbrot sín og greitt fram-
lagðar skaðabótakröfur. „Að
þessu athuguðu," eins og segir í
dómi Héraðsdóms Norðurlands
eystra, „og þegar litið er til ungs
aldurs ákærða þykir refsing hans
hæfilega ákveðin 2ja mánaða
fangelsi." Eins og áður segir er
dómurinn skilorðsbundinn, þ.e.
refsingin fellur niður að tveim ár-
um liðum haldi maðurinn almennt
skilorð. óþh
Rannsóknum á Hofsstöðum í Mývatnssveit verður fram haldið í sumar:
Afar áhugaverður staður
Adolf Friðriksson, fornleifa-
fræðingur, og Orri Vésteins-
son, fornleifa- og sagnfræðingur,
hafa fengið 385 þúsund króna
styrk úr Vísindasjóði til þess að
halda áfram rannsóknum sínum
við fornbýli á Hofsstöðum í Mý-
vatnssveit.
„Þarna er afskaplega stór tóft,
um 45 metra löng, sem er ein sú
stærsta á landinu. Þessi tóft hefur
verið kölluð „hoftóft". Menn hafa
haldið þetta vera hof, en það álit
byggist á munnmælum, ekkert er
til um það skráð. Á síðari árum
hafa menn bent á að þetta geti ver-
ið fornbær og einnig hefur þeirri
tilgátu verið slegið fram að þetta
sé fornbær sem einnig hafi verið
notaður fyrir fornar helgiathafnir,"
sagði Adolf Friðriksson í samtali
við Dag. „Við erum að skoða
- segir Adolf Friöriksson, fornleifafræðingur
þessa tóft í áföngum. 1 sumar
munum við grafa í stóra holu við
tóftina. I holuna hefur tvisvar áður
verið grafið og þar hafa menn
fundið mikið af ösku, brenndum
beinum og eldsprungnum stein-
um. Sumir hafa talið þetta holu
fulla af rusli, aðrir hafa viljað
halda því fram að hún hafi verið
einskonar fórnarhola, þ.e.a.s. hol-
an hafi verið notuð við matseld
við fórnarathafnir. Sú tilgáta
byggist á því að holan er svo stór,
hún er um 6 metrar í þvermál.
Slíkar holur eru víða til hér á landi
en þær eru yfirleitt ekki nema 1
metri eða svo í þvermál. Ein hug-
myndin er sú að þetta geti hugsan-
lega hafa verið jarðhús. Rannsókn
okkar í sumar mun því ganga út á
að komast að því hvaða hlutverki
þejsí hola hafði að gegna hér áður
fyrr.“
- Teljið þið ykkur geta komist
til botns í því máli í sumar?
„Við teljum okkur í það
minnsta geta komist að því frá
hvaða tíma hún er. Fræðimenn
hafa talið að holan sé frá sama
tíma og þessi stóra tóft, en það
hefur enginn getað sýnt fram á
það.“
Þeir Adolf og Orri voru síðast
við rannsóknar á Hofsstöðum árið
1992 og 1991. Þar áður var þar
við rannsóknir Daninn Olav 01-
sen, árið 1965, en fyrstir munu
þeir Finnur Jónsson og Daníel
Bruun hafa skoðað þessar merku
minjarárið 1908.
„Þetta er afar áhugaverður
staður. Þarna eru mjög skýr og
falleg gjóskulög í jarðveginum,
meðal annars úr Heklugosum, og
þau notum við, með aðstoð jarð-
fræðings til þe:,s að aldursgreina
holuna," sagði Adolf Friðriksson.
óþh
Staða sveitar-
stjóra Hofs-
hrepps auglýst
Staða sveitarstóra Hofs-
hrepps í Skagafirði hefur
verið auglýst laus til um-
sóknar og rennur umsóknar-
frestur út þann 28. þessa
mánaðar.
Núverandi Hofshreppur
varð til fyrir fimm árum með
sameiningu Hofshrepps og
Fellshrepps. íbúar hreppsins
eru um 400 talsins og býr góð-
ur hluti þeirra á Hofsósi. Jón
Guðmundsson hefur verið
sveitarstjóri í Hofshreppi und-
anfarin ár en lætur nú af störf-
um af heilsufarsástæðum. HA
VEÐRIÐ
I dag verður áfram norð-
austan stinningskaldi. Á
Norðurlandi verður skýjað
og hitinn á bilinu 3-9 stig en
hjá íbúum norðan heiða ætti
þó að verða þurrt. Framtíð-
arspáin er ekkert til að
hrópa húrra fyrir, áfram
norðlægar áttir og kalt. Á
sunnudag er þó spáð sunn-
an- og suðaustanátt en aft-
ur norðanátt á mánudaginn.
Oljós framtíð Hvamms-
hlíðarskóla á Akureyri
Ekki hefúr verið tekin
ákvörðun um framtíð
Hvammshlíðarskóla þegar
grunnskólar flytjast frá ríki til
sveitarfélaga haustið 1996. Skól-
inn, sem í eru mikið fatlaðir
nemendur, er sérskóli ríkisins og
tilheyrir því ekki grunnskólun-
um á Akureyri. Nemendur
koma frá mörgum sveitarfélög-
um bæði á Norðurlandi og ein-
hverjir eru einnig frá Austur-
landi.
Halldóra Haraldsdóttir, skóla-
stjóri Hvammshlíðarskóla, hefur
sagt starfi sínu lausu og mun hún
taka við skólastjórastöðu við
Giljaskóla í haust. Ekki þótti
æskilegt að ráða nýjan skólastjóra
fyrir einungis eitt skólaár sökum
fárra nemenda og því hefur verið
ákveðið að á næsta ári yrði skól-
inn rekinn sem sérdeild ríkis og að
skólastjóra Giljaskóla verði falin
stjórnun hans þann tíma.
Ásta Sigurðardóttir, formaður
skólanefndar Akureyrar, segir að
skólanefnd hafi ekki gert athuga-
semdir við þær áætlanir að skólinn
verði rekinn sem sérdeild ríkis
næsta skólaár. Hinsvegar sé
nefndin ekki tilbúin að taka efnis-
lega afstöðu til framtíðarlausna
vegna skólans á þessu stigi.
„Sveitarfélögin, sem koma til með
að taka við Hvammshlíðarskóla,
þurfa að ákveða hvort þau samein-
ist um þennan skóla eða hvort
hvert og eitt sveitarfélag taki
þessa nemendur inn á sig en þau
hafa ekki tekið afstöðu ennþá.“
segir Ásta. AI
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
□
KAUPLAND
Kaupangi y/Mýrarveg, simi 23565