Dagur - 04.08.1995, Side 1
Verslunarmannahelgin:
Besta veðrið á Norð-
austur- og Austurlandi
Að sögn Haraldar Eiríksson-
ar, veðurfræðings á Veður-
stofu Islands, verður besta veðr-
ið um helgina á Norðaustur- og
Austurlandi, og fer hitinn upp
Siglufjöröur:
Gestir farnir að
streyma í bæinn
Fyrsti gesturinn á Sfldarævin-
týri á Siglufirði tjaldaði á
túni Þormóðs ramma í miðbæn-
um um fimmleytið á miðviku-
daginn og var fólk farið að
streyma í bæinn í gær.
Fyrsti gesturinn var bókaður
klukkan 17.10 inn á svæðið og í
gær var túnið orðið nær fullsetið.
Að sögn lögreglumanns á staðn-
um er greinilegt að fólk ætlar að
tryggja sér góðan stað með því að
mæta snemma, en síðasta ár tjald-
aði sá fyrsti sólarhring síðar, eða á
fimmtudegi.
Búist er við miklum fjölda á
Síldarævintýrið og samkvæmt
upplýsingum Veðurstofunnar á
veðrið að leika við gesti og inn-
fædda á staðnum, sem og á Norð-
urlandi öllu. shv
undir 20°C í dag og á sunnudag-
inn. Þeir sem ætla að eyða helg-
inni í þessum landshlutum geta
því unað glaðir við sitt, og vel
viðrar til að fara í útilegu.
í dag er útlit fyrir gott veður á
Norðaustur- og Norðvesturlandi,
skýjað með morgninum en léttir
til þegar líður á daginn, í það
minnsta norðaustan til, en verður
heldur skýjaðra á Norðvestur-
landi. Hiti fer upp undir 20° á Ak-
ureyri og í innsveitum á Norðaust-
urlandi, en á Norðurlandi vestra er
búist við 10-16 stiga hita.
A morgun verður heldur sval-
ara, smá skúrir við ströndina norð-
austan til, en þurrt og skýjað á
Norðvesturlandi. Hiti á bilinu 9-
15 stig.
Á sunnudaginn og mánudaginn
verður hæg vestlæg átt, bjart veð-
ur, og hlýjast á Norðaustur- og
Austurlandi, en gert er ráð fyrir að
hitinn á Austurlandi fari ekki nið-
ur fyrir 15° um helgina.
Ágætis veður verður á Suðaust-
urlandi, en síðra í öðrum lands-
hlutum og að sögn veðurfræðings
Veðurstofunnar er ekki gert ráð
fyrir að hitinn fari upp fyrir 14°C
á Suðvestur- og Vesturlandi. shv
/ eigin heimi. Mynd: bg
Rækjuvinnslan Pólar hf. á Siglufirði:
Stöðug vinna og nægjanlegt hráefni
- hráefnisskerðingu kann að verða mætt með kaupum á rækjuskipi
Rekstur rækjuvinnslunnar
Pólar hf. á Siglufirði hefur
gengið ágætlega sfðan rekstur-
inn hófst 1. aprfl sl. en þá
keyptu núverandi eigendur
verksmiðjuna af Ingimundi hf. í
Reykjavík m.a. vegna þess að
fyrirtækið var að ráðast í smíði
nýs togara í Noregi.
Hráefnisöflunin hefur gengið
nokkuð eftir þeim áætlunun sem
gerðar voru í upphafi, en Pólar hf.
tóku annað skip Ingimundar hf.,
Helgu RE-49 á leigu og fá af
henni allan afla. Einnig leggur
Þinganes SF frá Homafirði upp
afla til vinnslu hjá verksmiðjunni
og verður þar am.k. eitthvað fram
eftir hausti.
Ómar Hauksson, framkvæmda-
Leikskólinn í Glerárkirkju:
Unnið að endurbyggingu
Eins og flestum er sjálfsagt
kunnugt varð milljónatjón í
brunanum í Glerárkirkju þann
28. maí sl. Mestar skemmdir
urðu í þeim hluta kirkjunnar
sem leikskólinn Krógaból er til
húsa, en upptök eldsins urðu
þar. Vegna skemmdanna reynd-
ist nauðsynlegt að færa starfsemi
skólans í húsnæði Glerárskóla.
Um 84 börn eru í vistun á
Krógabóli og hefur bruninn haft
töluverða röskun í för með sér en
að sögn Ingibjargar Eyfells, deild-
arstjóra dagvistardeildar Akureyr-
arbæjar, hefur verið reynt að vinna
sem best úr þeirri aðstöðu sem í
boði er og starfsemin í sumar
gengið vel miðað við aðstæður.
Endurbyggingu leikskólans á sam-
kvæmt útboði að vera lokið eigi
síðar en 20. ágúst og nauðsynlegt
er að unnt verði að flytja rekstur-
inn aftur í Glerárkirkju fyrir næstu
mánaðarmót þar sem kennsla hefst
við Glerárskóla um það leyti. GH
Framkvæmdum á Krógabóli skal lokið eigi síöar en 20. ágúst. Mynd: BG
stjóri, segir að verksmiðjan hafi
einnig frosna rækju sem grípa
megi til, en hún er bæði veidd hér
á heimaslóð og eins á Flæmingja-
grunni við Nýfundnaland og kem-
ur öll af íslenskum skipum. Rækj-
an kemur m.a. af Helgu II RE,
Sigurfara ÓF og Andvara VE og
segir Ómar að í raun hafi verk-
smiðjan verið að kaupa hráefni af
heimsmarkaðnum.
Stöðug vinna hefur verið í
verksmiðjunni að undanförnu og
unnið 10 tíma á dag en starfs-
mannafjöldi er um 20 manns.
Helga II RE fer væntanlega úr
viðskiptum þegar hún verður af-
hent nýjum eigendum, Samherja
hf. á Akureyri, og segir Ómar að
verið sé að kanna hvernig þeirri
hráefnisskerðingu verði mætt.
Einn af möguleikunum í því
sambandi sé að festa kaup á
rækjuskipi en útlitið varðandi hrá-
efnisöflun sé gott fram til næstu
áramóta og eins hefur verksmiðj-
an aðgang að kvóta þangað til
nýja Helgan, þ.e. togarinn sem er í
smíðum í Noregi, kemur til lands-
ins og vonandi fáist einhver til að
veiða hann en auðvitað gæti það
reynst torsótt því verksmiðjan á
engan kvóta sjálf. Ómar segir
mjög nauðsynlegt að lögum um
fiskveiðar verði breytt á þann hátt
að verksmiðjan geti átt kvóta en
því miður séu engar líkur á því að
þeim þætti fiskveiðistjórnunarinn-
ar verði breytt í bili. GG
Kartöfluuppskera:
Kartöflur
seinna á
markað en
vanalega
Uppskera á kartöflum virðist
ætla að vera með seinna
fallinu í ár og eru kartöflubænd-
ur sammála um að helst sé um
að kenna þeim miklu snjó-
þyngslum sem í vetur voru.
Hjá Öngli hf. fengust þær upp-
lýsingar að enn væru kartöflurnar
mjög smáar og of snemmt að
segja til um hvenær búast mætti
við fyrstu uppskerunni, það færi
alfarið eftir því hvernig ágúst og
september kæmu út.
Á Lómatjörn varð fyrir svörum
Sigríður Sveinsdóttir og sagði hún
að þar á bæ væri fólk aðeins farið
að skoða uppskeruna en eitthvað
væri í að hægt yrði að fara að
selja. „Það er aðeins komið undir,
við erum rétt að byrja að smakka
sjálf en ef vei viðrar styttist
kannski í að við getum farið að
taka eitthvað upp á sumarmark-
að.“
Aðspurð um hvernig búast
mætti við að uppskeran í ár yrði
sagði Sigríður „Eg hef trú á því að
hún verði þónokkuð mikið Iakara í
ár en oft áður. Við settum mun
seinna niður en vanalega og svo
hefur ekki viðrað vel fyrr en núna
síðustu daga. Eg gæti alveg trúað
að uppskeran yrði svona allt að
hálfum mánuði seinna á ferðinni
en vanalega. Hins vegar veltur
þetta allt á haustinu, ef haustið
verður gott og grasið fær að
standa þá getur allt gerst.“
Sömu sögu var að segja á Ás-
hóli en þar eru kartöflur enn mjög
smáar og allt útlit fyrir að ekki ná-
ist að setja neitt á sumarmarkað,
en vanalega hefur fyrsta uppsker-
an á Áshóli komið á sumarmarkað
í kringum verslunarmannahelgi.
GH
Deiliskipulag vöruhafnar:
Bæjarráð
samþykkti að
rifta samningum
við Form hf.
Eins og skýrt var frá í Degi á
miðvikudaginn samþykkti
hafnarstjórn Akureyrar einróma
á fundi sl. mánudag, að segja
Teiknistofunni Formi hf. upp
samningum um hönnun á deili-
skipulagi vöruhafnar á Oddeyr-
artanga. Bæjarráð fundaði um
málið í gær og staðfesti af-
greiðslu hafnarstjórnar.
Bæjarráð hefur falið hafnar-
stjóra og skipulagsstjóra að ganga
frá verklokum við teiknistofuna,
en verkinu er því sem næst lokið,
einungis er eftir að skipta svæðinu
upp í lóðir. Eimskipafélagið og
FMN hafa sótt um lóðir á svæðinu
og ljóst er að svæðið uppfyllir
ekki óskir beggja, en eins og fram
kom í fréttinni á miðvikudaginn,
telur hafnarstjórn að hönnuðurinn,
Bjarni Reykjalín geti ekki talist
hlutlaus ráðgjafi þar sem hann
hafi tekið að sér verkefni fyrir
annan lóðarumsækjandann. shv