Dagur - 04.08.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR
Föstudagur 4. ágúst 1995 - DAGUR - 3
Kanadískir háskólanemar til íslands
- dvelja m.a. á Hólum í Hjaltadal og við Mývatn
Síðastliðið vor var gengið frá
samningi um nemendaskipti
milli Guelphháskóla í Ontario-
fylki, Kanada og fjögurra ís-
lenskra skóla sem eru Bænda-
skólinn á Hólum, Bændaskólinn
á Hvanneyri, Háskóli Akureyrar
og Háskóli Islands. Um helgina
koma hingað til lands 11 nem-
endur frá Guelph ásamt um-
sjónarmanni til að taka þátt í
tveggja vikna þverfaglegu nám-
skeiði þar sem aðaláherslan
verður á umhverfis- og náttúru-
fræði. Stefnt er á að íslenskir
nemendur endurgjaldi heim-
sóknina að ári og fari til Kanada
Akureyringar hafa vafalaust
margir rekið augun í hin ýmsu
myndverk sem sett hafa verið
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Meirihluti bæjarráðs sam-
þykkti í gær tillögu meirihluta
framkvæmdanefndar fyrir
reynslusveitarfélagið Akureyri,
um að ráða Þórgný Dýrfjörö
starfsmann nefndarinnar. Stað-
an er veitt til eins árs og mióað
við að starfsmaður geti hafið
störf 15. ágúst nk. Sigríður
Stefánsdóttir bæjarráðsmaður,
sat hjá við afgreiðslu málsins
og óskaði bókað: „Samkvæmt
þeim umsóknum sem liggja
fyrir tel ég að báóir þeir um-
sækjendur sem fá atkvæði í
nefndinni séu mjög vel hæfir
til starfsins. Ég tel að erfitt sé
að gera upp á milli umsækj-
enda cn leggst ekki gegn niður-
stöðu meirihluta ffamkvæmda-
nefndar fyrir reynslusveitarfé-
lagió Akureyri."
■ Bæjarráði hefur borist erindi
frá menntamálaráðuneytinu,
þar sem óskað er eftir tilncfn-
ingu tveggja fulltrúa í stjórn
Vetraríþróttamiðstöðvar ís-
lands auk varamanna til næstu
fjögurra ára. Bæjarráð vísaði
tilefningunni til bæjarstjórnar.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá sveitarstjóra Raufarhafnar-
hrepps, þar sem hann þakkar
fyrir hönd íbúa hreppsins „að-
stoð í tilefni 50 ára afmæli
sveitarfélagsins sem gerði sitt
til að gcra hátíðina svo glæsi-
lega og eftirminnilega og raun
bar vitni.“
■ Borist hefur bréf frá bæjar-
stjóranum í Narsaq, vinabæ
Akureyrar á Grænlandi, þar
scm óskað er eftir stuðningi
við athugun á að koma á fót
ullariönaði í Narsaq, til vinnslu
á grænlenskri ull. Bæjarstjóra
var falið að svara erindinu.
■ Bæjarráði hefur borist erindi
frá sýslumanninum á Akureyri,
þar sem hann óskar eftir um-
sögn bæjarstjómar um umsókn
um leyfi handa Marinó Sveins-
syni, til að bera fram veitingar
utanhúss á afgirtum palii viö
veitingahúsið Pizza 67, Geisla-
götu 7. Bæjarráð gerir fyrir sitt
leyti ekki athugasemd við að
leyfið verði veitt enda sé
ákvæðum laga og reglugerða
fullnægt.
á sambærilegt námskeið.
Kanadísku nemamir byrja á að
sækja nokkra almenna fyrirlestra í
Reykjavík um náttúm og sögu Is-
lands. Þaðan liggur leiöin til Hóla
í Hjaltadal þar sem þeir dvelja í
þrjá daga. Fyrsti dagurinn á Hól-
um verður helgaður umhverfis-
heimspeki og siðfræði, sá næsti
sjávarlíffræði og nýtingu á auð-
lindum sjávar og á þriðja degi
verður fjallað um umhverfismál í
tengslum við landgræðslu og nýt-
ingu ferskvatns. Næsta föstudag
verður farið til Akureyrar og síðan
verður hópurinn við Mývatn í þrjá
upp víðsvegar um bæinn undan-
farið. Verkin eru hluti af sýn-
ingu sem er samvinnuverkefni
Listasumars og Myndhöggvara-
félagsins og mun sýningin
standa yfir 5.-29. ágúst.
Nokkur verkanna voru unnin í
Ketilhúsinu í Grófargili, einhver
voru send hingað og önnur em
unnin sem hluti af því umhverfi
sem þau standa í. Verkunum hefur
aðallega verið komið fyrir í Inn-
bænum og umhverfis Giliö og eitt
mun fljóta á Pollinum. Hluti sýn-
Um eittleytið aðfararnótt
fimmtudagsins varð umferðar-
slys við Messuholt á Skagfirð-
ingabraut í Skagafirði. Tveimur
mótorhjólum var ekið í norður-
átt og lentu á eftir Ijóslausri
dráttarvél sem dró tóman hey-
vagn.
Fremra hjólið hægði á sér til aö
taka fram úr dráttarvélinni en þá
daga. Þar verða fyrirlestrar um líf-
fræði Mývatns og vistfræði svæð-
isins í heild. Einnig verður fjallað
um svæðið út frá fagurfræðilegum
forsendum og sérstök umfjöllun
verður um ferðamenn og virkjana-
framkvæmdir. Nemendumir munu
allir vinna að ákveðnum þema-
verkefnum sem verða metin til
eininga í námi þeirra við Guelph-
háskóla.
Langur aödragandi
Óformlegt samstarf milli Guelph-
háskóla og skólanna á íslandi hef-
ur verið í gangi í ein tíu ár og því
ingarinnar verður inni í Ketilshús-
inu og verður opið þar alla sýn-
ingardagakl. 14:00-18:00.
Fimmtán listamenn eiga verk á
sýningunni og þcir eru: Anna Eyj-
ólfsdóttir, Brynhildur Þorgeirs-
dóttir, Finnur Amar Arnarsson,
Hallsteinn Sigurðsson, Hclgi
Gíslason, Hlynur Hallsson, Hlyn-
ur Helgason, Hrefna Harðardóttir,
Inga Jónsdóttir, Kristinn Hrafns-
son, Ragnhildur Stefánsdóttir,
Sólrún Guðbjömsdóttir, Sólveig
Baldursdóttir, Sólveig Eggerts-
dóttir og Þór Vigfússon. AI
tókst ekki betur til en svo að aftara
mótorhjólið ók aftan á það fremra
með þeim afleiðingum að bæði
skullu í götuna. Ökumaður fremra
hjólsins hlaut opið beinbrot á
vinstra fæti og var fluttur til að-
gerðar á Fjóróungssjúkrahúsið á
Akureyri. Ökumaður dráttarvélar-
innar hlýtur væntanlega sekt fyrir
að aka um á þjóðvegi á ökutæki
án Ijóstýru. GG
á samningurinn, sem var endalega
gengið frá í vor, sér nokkuð lang-
an aðdraganda. Skúli Skúlason,
sem nú kennir við Hólaskóla, var í
framhaldsnámi við Guelphháskóla
á ámnum 1984-90. Lokaverkefni
Skúla var um vistfræði bleikju í
Þingvallavatni og var verkefnið
unnið í náinni samvinnu við Há-
skóla Islands. Sigurður Snorrason,
prófessor við HI, fór m.a. út til
Kanada og vann meó Snorra og
leiðbeinanda hans, Dr. David No-
akes, í eitt ár. Skúli segir að þegar
hann fór að vinna á Hólum hélt
hann áfram að vinna að bleikju-
rannsóknum í samvinnu við pró-
fessora í Gealphháskóla og í fyrra
kom upp sú hugmynd að koma á
fót formlegri samvinnu þar sem
óformleg samskipti höfðu verið í
gangi í mörg ár og gengið vel.
Málin þróuðust síðan þannig að
samningurinn varð mun víðtækari
en stóð til í upphafi því hann nær
til nemenda á öllum sviðum en er
ekki bara í tengslum við ræktun á
fiski eða sjávarútvegsmál.
Ráðherra frá
Nýfundnalandi til Hóla
Skúli vill einnig geta þess að í
tengslum við umræðu um sjávar-
útvcgsmál, sem er hluti áf dag-
skránni á Hólum, kemur í heim-
sókn Dr. Hulan sem er sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra Ný-
fundnalands en íbúar Nýfundna-
lands hafa þurft að glíma við al-
varleg umhverfisvandamál í sjáv-
arútveginum undanfarin ár.
„Hann var að þvælast í háskól-
anum í Guelph þegar við vorum
að kynna námskeiðið og hann
bara tók einn bækling og sagðist
ætla mæta, þannig að það var svo-
lítið fyndið hvemig þetta bar að,“
segir Skúli en auk Dr. Hulan kem-
ur aðstoðarmaður umhverfisráð-
herra einnig til Hóla sem heiðurs-
gestur. AI
Veðrið í júlí:
Meðalhiti
tæplega í
meðallagi
Meðalhiti í júlímánuði var 0,4
undir meðallagi á Akureyri.
Fyrri hluti mánaðarins var ís-
kaldur, en þann síðari var af-
bragðs veður, enda var munur-
inn á lægsta og hæsta hita í
mánuðinum um 20 °C.
Meðalhiti á Akureyri var 10,1
stig, 0,4 stigum undir meðallagi,
sólarstundir voru 167, níu færri en
í meðalári og úrkoma 17 mm sem
er einungis rúmur helmingur með-
alúrkomu.
I Reykjavík var hitinn í júlí að
meðaltali 10,5 gráður, 0,1 gráðu
undir meóallagi, sólarstundir 217,
heldur fleiri en venjulega og úr-
koman 50 mm, sem er nákvæm-
lega meðalúrkoma. shv
Hr
VERSLUNARMANNAH ELGIN
Allir
í banastuÖi
Föstudags- og laugardags-
kvöldið 4. og 5. ágúst:
ásamt Helgu Möller
bæði kvöldin.
Það gerist ekki betra!
Súlnaberg opið til kl. 22.
sími 462 2200
Listasumar á Akureyri:
Sýning á myndverkum að hefjast
Hlynur Hallsson fylgist með starfsmanni Pósts og síma saga útilistavcrkið
hans í Kaupvangsstræti. Verkið er 10 metra löng rifa eftir götunni endi-
langri. Rifan er 4 sm djúp og 3 sm breið. „Oftast þcgar útilistaverk cru búin
til er vcrið að bæta einhverju við en í þcssu tilfelli er citthvað tekið í burtu,“
scgir Hlynur. Mynd: BG
Mótorhjólaslys
í Skagafirði