Dagur - 04.08.1995, Side 6

Dagur - 04.08.1995, Side 6
6 - DAGUR - Föstudagur 4. ágúst 1995 HVAÐ ER AÐ GERAST? Kaffísala í Tunguseli Konur í Kvenfélaginu Tilraun í Svarfaðardal verða með kaffisölu í Tunguseli, húsi því sem staðsett er við Tungurétt í Svarfaðardal, nk. sunnudag, 6. ágúst, kl. 14-17. Kvenfélagskonur hafa á undan- förnum árum selt kaffi íTunguseli á sunnudeginum um verslunar- mannahelgina og svo verður einnig nú. Greta Berg sýnir á Hótel Hjalteyri Greta Berg opnar sýningu á verk- um sínum á Hótel Hjalteyri kl. 13 á morgun, laugardag. Sýningin stendur til 18. ágúst nk. Sýninguna kallar Greta „Hin draumbláa júlí- nótt“ og á henni eru myndir sem Greta kallar fléttu úr ljóðum Dav- íðs Stefánssonar. Myndirnar eru unnar í akrýl, málverk og pastel. Eftirfarandi Ijóðlínur úr ljóði Davíðs, „Nú sefur jörðin“, eiga vel við þessa sýningu Gretu Berg: Nú sefurjörðin sumargrœn. Nú sér hún rœtast hverja hœn og dregur andann djúpt og rótt um draumhláa júlínótt. Gönguferð um Innbæinn Minjasafnið á Akureyri verður op- ið alla verslunarmannahelgina, milli kl. 11 og 17. Þá verður opið í Sigurhæðum, minningarsafni um Matthías Jochumsson, skáld og prest, milli kl. 14 og 16 alla dag- ana. Laxdalshús verður hins vegar opið á sunnudag frá kl. 13 til 17 og þar verður sýning á gömlum Ijósmyndum frá Akureyri og sýnt myndbandið „Gamla Akureyri". Á sunnudaginn verður farið í göngu- ferð um Innbæinn og sagt frá byggðinni í fjörunni. Lagt verður af stað frá Laxdalshúsi kl. 13. Hlaðin veisluborð hjá Hótel Vin Mikið verður við haft f veitingum hjá Hótel Vin í Eyjatjarðarsveit í tilefni Ættarmóts Helga magra um verslunarmannahelgina. í kvöld verða „Vegleg veisluborð", þar sem boðnir verða hinir fjölbreytt- ustu réttir á hlaðborðum milli kl. 19 og 22. Þar verða í boði bæði heitir og kaldir réttir, desert og kaffi og verð 1890 kr. Alla þrjá dagana verður svo léttur réttur með súpu og salatbar í hádeginu og verður hann boðinn frá 11.30 til 13.30. Verð er kr. 750 og sama verð er á hinu vinsæla Sautján sorta sveitahlaðborði sem boðið verður upp á á sunnudag og mánu- dag milii kl. 15 og 18. Hlaðborð hjá Hótel Eddu á Þelamörk Að vanda verður hlaðborð á sunnudag hjá Hótel Eddu á Þela- mörk og hefst það kl. 14.30. Vegna verslunarmannahelgarinnar verður einnig boðið til hlaðborðs á mánudag á sama tíma. Hótel KEA Sveiflan tekur völdin á Hótel KEA um helgina þegar Skagfirðingur- inn hressi, Geirmundur Valtýsson treður upp á tveimur dansleiicjum. Hinn fyrri verður í kvöld og sá síðari annað kvöld. Að þessu sinni syngur Helga Möller með hljóm- sveit Geirmundar og tekur öll bestu lög kappans. Töffarar og flottir bílar í Borgarbíói Bad Boys er aðalmynd Borgarbíós á Akureyri um verslunarmanna- helgina. Þar er á ferðinni spennu- mynd með tveimur töffurum, flottum bílum og svölum pfum. Myndin hefur verið sumarsmellur í kvikmyndaheiminum í Banda- ríkjunum og Evrópu enda hefur hún upp á að bjóða góða tónlist og eftirminnilegan hasar. Borgarbíó hefur áfram til sýninga myndirnar Batman forever og First Knight. Listasumar: Síðustu sumartón- leikar Más Síðustu sumartónleikar Más Magnússonar í tónleikaröðinni „Kvöld lokka“ verða í Listasafn- inu á Akureyri næstkomandi mánudagskvöld. Már Magnússon, söngvari, starfar við Tónlistarskólann á Ak- ureyri og hefui í sumar haldið tón- leika á mánudögum í Deiglunni á vegum Listasumars. Tónleikarnir á mánudagskvöld heQast kl. 21. Már lagði stund á söng í Vínar- ámánudag borg þar sem hann dvaldi árum saman. Hann söng við^ Wiener Kammeroper en hefur miícið feng- ist við söngkennslu eftir að heim kom. Við hljóðfærið situr Gerrit Schuil, píanóleikari og hljóm- sveitarstjóri. Gerrit hefur unnið með og stjómað mörgum af helstu söngvurum þessarar aldar. Einn af kennurum hans var hinn óviðjafn- anlegi Cyril Kondrashin. f i \ Vegleg veisluborð Borðin svigna undan krásum og góðgœti hvert föstudagskvöld frá kl. 19.00-22.00. Borðapantanir í síma 463 1400. Vegleg veisluborð - Verið velkomin INNBÆRINN BRYNHILDUR ÞORGEIRSDÓTTIR HELGI GÍSLASON HREFNA HARÐARDÓTTIR ANNA EYJÓLF5DÓTT1R 5.-29. AGUST MIÐBÆRINN KETILHUSIÐ HALLSTEINN SIGURÐSSON HREFNA HARÐARDÓTTIR ■ INGA JÓNSDÓTTIR • RAGNHILDUR STEFÁNSDÓTTIR SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR • ÞÓR VIGFÚSSON KETILHÚSIÐ OPIÐ DAGLEGA FRÁ KL. 16.00 TIL 18.00 Akureyri: Skúlptúrasýning á Listasumri A morgun verður formlega opnuð Skúlptúr-sýning á Listasumri ’95 á Akureyri. Sýningunni er aðal- lega komið fyrir á tveimur svæð- um í bænum, í Innbænum og í ná- grenni Grófargils. Einnig eru verk í Ketilhúsinu í Grófargili en þar var vinnuaðstaða fyrir lista- mennina á meðan á uppsetningu sýningarinnar stóð. Sýningin er samvinnuverkefni Listasumars og Myndhöggvara- félagsins. Hluti verkanna var unn- inn í Ketilhúsinu og hluti þeirra er unninn út frá því umhverfi sem þau standa í og eiga trúlega eftir að koma mörgum á óvart. Fimmtán listamenn eiga verk á sýningunni. Þeir eru: Anna Eyj- ólfsdóttir, Brynhildur Þorgeirs- dóttir, Finnur Arnar Arnarson, Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason, Hlynur Hallsson, Hrefna Harðardóttir, Inga Jóns- dóttir, Kristinn Hrafnsson, Ragn- hildur Stefánsdóttir, Sólrún Guð- björnsdóttir, Sólveig Baldursdótt- ir, Sólveig Eggertsdóttir og Þór Vigfússon Sýningin mun standa fram yfir afmæli Akureyrarbæjar þann 29. ágúst og í Ketilhúsinu alla daga frákl. 14 til 18. Franska lúörasveitin sem heimsækir Akureyri í dag Akureyri: Lúðraþytur í Göngu- götunni í dag kl. 16 leikur franska Lúðra- sveitin L’Harmonie des Enfants de bayard í Göngugötunni á Akur- eyri. Lúðrasveitin var stofnuð árið 1880 og er því 115 ára gömul. Hún kemur frá bænum Pntcarra í frönsku Ölpunum og er efnisskrá- in mjög fjölbreytt og skemmtileg. Hljómsveitin ferðast nú um ísland og eru tónleikarnir á Akureyri í röð fernra tónleika. Verslunarmannahelgin: Fjölbreytt dagskrá í þjóð- garðinum í Jökulsárgljúfrum gönguferðir um Vesturdal og Ásbyrgi Þeir sem hugsa sér að dvelja í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum um verslunarmannahelgina geta vænst fjölbreyttrar dagskrár. Um miðjan dag í dag verður farið í fyrstu gönguferðina frá tjaldstæð- inu f Vesturdal og í kvöld kl. 20 verður rölt um botn Ásbyrgis þar sem hugað verður að Iífríkinu. Kl. 21 verður svo farið í stutta gönguferð frá tjaldstæðinu í Vesturdal. Á morgun kl. 11 verður barna- stund á tjaldstæðinu í Ásbyrgi þar sem sagðar verða sögur og farið t leiki. Á sama tíma verður bamastund á tjaldstæðinu í Vest- urdal. Klukkan 14 verður farið í göngu frá tjaldsvæðinu í Ásbyrgi og gengið á Áshöfða. Á leiðinni verður farið framhjá Ástjörn og hinu foma höfuðbóli Ási. Sagt verður frá sögu jarðarinnar og landkostum. Einnig verður hugað að gróðurfari og tekur ferðin um 3 klst. Á sama tíma verður farið í göngu frá tjaldsvæðinu í Vestur- dal. Þar verður gengið framhjá Kastalanum og Kastalatjömum og norður á Rauðhóla. Á leiðinni til baka verður gengið um Hljóðakletta, rætt verður um jarðsögu svæðisins, eldvirkni og hamfarahlaup en það eru þau nátttröll sem hafa átt stærstan þátt í mótun svæðisins. Kl. 20 verður svo farið f stutt rölt um Ásbyrgi. Á sunnudag hefst dagurinn með barnastundum á tjaldsvæð- unum kl. 11. Kl. 14 verður farið f gönguferð frá tjaldsvæðunum f Ásbyrgi og gengið með brúnum byrgisins að austan. Á leiðinni er gott útsýni yfír byrgið. Sagt verð- ur frá kenningum um myndun Ásbyrgis, skoðaðar einstakar menjar um hamfarahlaup, skessukatlar skoðaðir sem og vatnssorfnar klappir. Kl. 17 verður farið í stutta ferð frá tjaldsvæðunum í Vesturdal, gengið á Eyjuna í Vesturdal og á leiðinni hugað að plöntum og líf- ríkinu. Um kvöldið er svo stutt röltferð um Ásbyrgi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.