Dagur - 04.08.1995, Side 9
Föstudagur 4. ágúst 1995 - DAGUR - 9
Systurnar Sigríður og Þuríður Kristjánsdætur, frá Hellum á Ársskógsströnd.
Ættarmót
Veðrið var Ijómandi gott og sumum þótti ákjósanlegt að slaka á í sólinni.
Katrín Sigurjónsdóttir er efri á myndinni og Sigurbjörg Snorradóttir neðri.
Fjölmenni var á ættarmóti Kussungsstaðaættarinnar um síð-
ustu helgi, 700-800 manns. Þar komu saman afkomendur
Jóhannesar Jónssonar Reykjalín og Guðrúnar Hallgríms-
dóttur, en þau bjuggu mestan hluta sinnar búskapartíðar á
Kussungsstöðum í Hvalvatnsfirði.
Ýmislegt var gert fólki til skemmtunar, en þó mest fyrir
ungviðið. Hestaleiga var á staðnum, boðið var upp á stang-
veiði í tjöm, kaffihús var opið og Valgarður Egilsson, lækn-
ir, sýndi litskyggnur frá Fjörðum og af skaganum milli
Eyjafjarðar og Skjálfanda; heimaslóðum ættarinnar, svo
eitthvað sé nefnt.
Á laugardagskvöldið var haldin mikil gleði í nýja
íþróttahúsinu og það þætti saga til næsta bæjar í flestum
ættum að fimmhundruð manna hús rúmaði ekki alla þátttak-
endurna á ættarmótinu. Sú var þó raunin og varð nokkur
hluti gestanna að sitja í eldri salnum en það kom ekki að
sök og skemmtu aliir sér konunglega.
shv
Valgarður Egilsson, læknir, Ijóða- og leikritaskáld, ásamt frænku sinni;
Guðnýju Sverrisdóttur, frá Lómatjörn, sveitarstjóra Grýtubakkahrepps.
Valgarður og Guðný eru systkinabörn.
Sigurður G. Tómasson, dagsskrárstjóri Rásar 2, er kvæntur inn í ættina, en
kona hans er Steinunn Bergsteinsdóttir.
Guðný Sverrisdóttir setti ættarmót-
ið á íþróttavellinum á Grenivík. Sig-
ríður Schiöth situr í makindum í
sólstól til vinstri. Valgerður, dóttir
Jóhannesar á Kussungsstöðum var
◄ föðuramma Guðnýjar og móðir
Sigríðar.
Það var þétt setinn bekkurinn í veislunni á laugardagskvöldinu.
Farið var í gönguferð upp á K
Þcngilhöfða og tóku margir þátt r
í henni, þó leiðin væri aðallega á
fótinn.