Dagur - 04.08.1995, Blaðsíða 16
Halló Akureyri!
Tökum vel á móti öllum
alla verslunarmannahelgina
Hafnarframkvæmdir í Hrísey:
Heimamenn með
lægra tilboðið
Fyrirtækið Björk hf. í Hrísey,
átti lægra tilboöið í vinnu
við þekju og lagnir við stálþil á
Suðurgarði í Hrísey en tilboðin
voru opnuð í gær. Aðeins tvö til-
boð bárust í verkið.
Heimamenn hjá Björk eru til-
búnir að vinna verkið fyrir kr.
10.994.670.-, sem er tæplega 94%
af kostnaðaráætlun en hún hljóð-
Húsavík:
Kolbeinsey á
leið í Smuguna
- grænlenski togarinn
kemur í desember
aði upp á kr. 11.741.657.-. Hitt til-
boðið kom frá Sigbirni H. Páls-
syni í Reykjavík og var hann til-
búinn að vinna verkið fyrir kr.
15.936.000.-, sem er tæplega 36%
yfir kostnaðaráætlun.
Jónas Vigfússon, sveitarstjóri
Hríseyjarhrepps, sagðist í samtali
við Dag, reikna með að fljótlega
yrði farið í samningaviðræður við
lægstbjóðanda. Hann vönast til að
framkvæmdir geti hafist sem fyrst
en verkinu á að vera lokið 1. nóv-
ember nk. Þetta er jafnframt
stærsta verkefnið á vegum sveitar-
félagsins í ár. KK
Vinna viö nýja stjórnunarálmu Glerárskóla hófst í gær. Mynd: BG
Vinna hafin viö stjórnunarálmu Glerárskóla:
Kolbeinsey ÞH-10 er á leið í
Smuguna. Þetta er fyrsta
veiðiferð skipsins þangað á
þessu ári en það fór eina veiði-
ferð í Smuguna í fyrra.
Helgi Kristjánsson hjá íshafi
hf. sagði að ekki væri vitað hvað
skipið yrði lengi að veiðum ef olía
yrði fáanleg á miðunum, en ef svo
yrði ekki kæmi skipið heim eftir
19 daga. Aflinn verður frystur um
borð og sfðan endurunninn hjá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.
Skipstjóri á Kolbeinsey er
Benjamín Antonsson.
Grænlenski togarinn sem Höfði
hf. hefur fest kaup á kemur til
Húsavíkur í desember. Skipið er
um 430 tonn, 42 m langt og 1720
rúmmetrar. Örlög togarans Júlíus-
ar Havsteen hafa ekki verið ráðin
enn, að sögn Helga. IM
Verklok í júnímánuði 1996
- um 440 nemendur í Glerárskóla á komandi vetri
Framkvæmdir hófust í gær
við stjórnunarálmu Glerár-
skóla á Akureyri og er búið að
girða byggingarsvæðið af. Það er
Hyrna hf. á Akureyri sem er
verktaki en fyrirtækið var með
lægsta tilboðið í verkið, tæpar 50
milljónir króna.
Uppgröftur hófst í gær og á
honum að ljúka um helgina og
vinna hefst við uppslátt strax eftir
verslunarmannahelgina.
Stjórnunarálmunni á verktaki
að skila fullbúinni í júnímánuði
1996 en segja má að stjórnunar-
álman hafi í mörg herrans ár verið
á óskalista stjómenda og kennara
Glerárskóla. Nú hillir undir það að
sú ósk fáist uppfyllt. í vetur
stunda um 440 nemendur nám við
Glerárskóla sem er nær 40 nem-
enda fækkun frá síðasta skólaári
og má að hluta til rekja þá fækkun
til þess að nýr Giljaskóli tekur til
starfa á þessu hausti með nemend-
ur í 1. og 2. bekk. Flestir voru
nemendur Glerárskóla í byrjun ní-
Stálþilsbakki í Krossanesi:
Valfell hf. átti lægsta tilboðið
Þrjú tilboð bárust í gerð stál-
þilsbakka í Krossanesi en til-
boðin voru opnuð samtímis hjá
Akureyrarhöfn og Hafnamála-
stofnun í gær. Lægsta tilboðið
átti Valfell hf., sem er tilbúið að
vinna verkið fyrir kr.
24.368.395.- eða tæplega 77% af
kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun Hafnamála-
stofnunar hljóðaði upp á kr.
31.716.002.- og voru hin tilboðin
fyrir ofan þá upphæð. Hagtak hf.
bauð kr. 34.535.533.-, sem er tæp-
iega 9% yfir kostnaðaráætlun og
Völur hf. og Byggingarfélagið
Stapar hf. buðust sameiginlega til
að vinna verkið fyrir kr.
54.103.965.-, sem er um 70% yfir
kostnaðaráætlun.
Verkefnið er fólgið í því að
reka niður 106 m langt stálþil,
fylla um 8.000 m3 af fyllingarefni
og ganga frá þybbum á þili.
Guðmundur Sigurbjörnsson,
hafnarstjóri á Akureyri, sagði í
samtali við Dag, að næsta verk
væri að yfirfara tilboðin og síðan
að ganga til samninga við lægst-
bjóðanda.
Einhver töf verður á því að
stálþilið komi til landsins, þar sem
skipið sem er að flytja það frá
Hull, tók niðri við austurströnd
Englands. Skipið þarf í slipp og
því þarf að færa farminn yfir í
annað skip. Guðmundur átti ekki
von á því að þetta óhapp tefði
verkið, sem skal vera iokið þann
15. desember nk. KK
VEÐRIÐ
I dag er útlit fyrir gott veður
á Norðaustur- og Norðvest-
urlandi, skýjað með morgn-
inum en léttir til á Norðaust-
urlandi þegar líður á daginn.
Á Norðvesturlandi verður
heldur skýjaðra. Hiti upp
undir 20 á Ákureyri og í inn-
sveitum á Norðausturlandi,
en 10-16 stig norðvestan-
lands.
unda áratugarins, alls 697. Skóla-
nefnd Akureyrar hefur samþykkt
að mæla með því við menntamála-
ráðherra að Halldór Gunnarsson
verði ráðinn aðstoðarskólastjóri í
stað Úlfars Björnssonar sem tók
við starfi skólastjóra Oddeyrar-
skóla 1. ágúst sl. Halldór var áður
skólastjóri Lundarskóla í Öxar-
firði. GG
Umsókn suðursveitunga um einkaskóla:
Málið í athugun
- segir Hrólfur Kjartansson,
hjá menntamálaráöuneytinu
Þrjú tilboð bárust í gerð stálþilsbakka í Krossanesi og var aðeins eitt þeirra
undir kostnaðaráætlun. Verkinu skal lokiö 15. desember nk. Mynd: BG
Dagur greindi frá því í fyrra-
dag að suðursveitungar í
Mývatnssveit hefðu sótt um leyfi
til að reka einkaskóla að Skútu-
stöðum, en þeir vonast til að
geta opnað skólann í haust. Að
sögn Hrólfs Kjartanssonar hjá
menntamálaráðuneytinu er allur
gangur á því hversu langan tíma
ferlið hefur tekið frá því að sótt
var um leyfi fyrir þá einkaskóla
sem reknir eru á landinu, þang-
að til þeir hófu starfsemi.
Hrólfur segir að meðal annars
hafi það tekið Miðskólann í
Reykjavík nokkur ár að fá leyfið,
en þá hafi reyndar staðið styr um
rekstur einkaskóla almennt.
í blaðinu í vikunni sagði Krist-
ján Yngvason á Skútustöðum að
nýju grunnskólalögin geri ráð fyr-
ir að farið verði í auknum mæli út
í rekstur einkaskóla en Hrólfur vill
ekki kannast við það, og segir
hann að 56. grein grunnskólalag-
anna sem fjallar um einkaskóla sé
lítið breytt frá fyrri lögum.
„Þetta mál er nýkomið inn í
ráðuneytið, það er í athugun og
engin niðurstaða komin,“ sagði
Hrólfur. Aðspurður um hvenær
líklegt væri að niðurstaða fengist í
málinu sagði hann að það væri
ekki dagsett. „Ég býst við að
næsta skref verði að afla nánari
upplýsinga um ýmsar forsendur.
Við förum hér eftir grunnskóla-
lögum, en þar er gert ráð fyrir að
ráðherra sé heimilt að löggilda
grunnskóla, en til þess þurfa um-
sækjendur að leggja fram skipu-
lagsskrá og það er sú skipulags-
skrá sem ráðuneytið staðfestir og
þar með er komin heimild til að
starfrækja grunnskóla."
Nokkrir einkareknir grunnskól-
ar eru reknir á landinu; Tjarnar-
skóli, Miðskólinn, Sjöunda dags
aðventistar reka tvo skóla, og
Kaþólska kirkjan rekur skóla í
Reykjavík svo dæmi séu tekin.
Hrólfur sagðist ekki geta sagt
til um líkur fyrir leyfinu eða
hversu langan tíma þetta tæki í
vinnslu, en málið er fyrst og síðast
í höndum Björns Bjarnasonar,
menntamálaráðherra, en hann er
sem stendur erlendis. shv
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
0KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565