Dagur


Dagur - 26.08.1995, Qupperneq 4

Dagur - 26.08.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 26. ágúst 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 • SÍMFAX: 462 7639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285), FROSTI EIÐSSON,(íþróttir), LJÓSMYNDARI: BJÖRN GISLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Astæða tíl að fagna í Öxarfirði Það er kátt yfir fólki á Kópaskeri þessa dagana, enda sann- arlega ástæða til. í síðustu viku var hleypt heitu vatni á fyrstu húsin þar eystra frá Hitaveitu Öxarfjarðar. Þar með hefur gamall draumur orðið að veruleika, langþráðu marki er náð. Hitaveita Öxarfjarðar var stofnuð í október á sl. ári og framkvæmdir við hitaveituna hafa gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er sannkölluð himnasending fyrir íbúa Öxarfjarðar- hrepps að geta nú loks notið jarðvarmans og sannarlega rík ástæða til að samfagna þeim. Það á auðvitað eftir að koma í ljós til hvers þessi hitaveita leiðir, en eins og annars staðar mun hún til lengri tíma litið spara umtalsverðar upphæðir, fyrir svo utan öll þægindin sem henni eru sam- fara. Og hver veit nema hún gefi fólki við Öxarfjörð ný sóknarfæri í atvinnumálum? 100 ára afinæli Kvenfélags Sauðárkróks Kvenfélagskonur á Sauðárkróki fagna því um helgina að hundrað ár eru liðin frá stofnun Kvenfélags Sauðárkróks. Þessara tímamóta verður minnst með sýningu á hug- og handverki félagskvenna og einnig bjóða kvenfélagskonur Sauðkrækingum til kaffisamsætis í íþróttahúsinu á Sauðár- króki kl. 14 á morgun, sunnudag. Fram kom í Degi sl. fimmtudag að nú eru skráðar um 70 konur í Kvenfélag Sauðárkróks. Líklega hafa félagskonur verið fleiri hér á árum áður, þegar slík félagastarfsemi var í blóma, en engu að síður er þetta athyglisverður fjöldi fé- lagskvenna. Það er kraftur í kvenfélagskonum á Króknum. Þær hafa staðið fyrir danslagakeppni, sem hefur sannarlega slegið í gegn, sömuleiðis þorrablóti og nýársfagnaði. Þá eru líknar- störf félagskvenna kapítuli út af fyrir sig sem seint verða fullþökkuð. Margir vilja halda því fram að félagasamtök eins og kvenfélög heyri sögunni til, en það er misskilningur. Þau hafa sem fyrr skyldum að gegna, ekkert síður en Lions- klúbbar, Kiwanisklúbbar, Rotaryklúbbar eða önnur sam- bærileg félagasamtök. Dagur óskar kvenfélagskonum á Sauðárkróki til ham- ingju með hundrað árin. I UPPAHALPI Finnst Hallormsstaður vera Mekka Islands SauBkrœkingurinn Helga Sigur- björnsdóttir er uppáliald dags- ins. Helga erformaBitr Kvenfé- lagsins á SauBárkróki en félag- iS heldur upp á aldarafmœliB um helgina. Helga er einnig leikskóla- stjóri vi'5 leikskólann GlaBheima en leik- skólinn er einmitt nýfluttur í nýlt og betra húsnœBi. En þaB er afmœli kvenfélagsins sem er Helgu efst í huga um helgina. „ ViB er- um meB sýningu í Safnahúsinu á hug- og hándverkum félagskvenna í 100 ár sem ég held uB sé mjög skemmtilegt aB skoBa. A sunnudaginn œtlum við síöan að fá bœjarbúa til að skemmta sér með okkur og drekka saman hátíBarkaffi. Við verð- um með þjóðdansasýningu þar sem við skörtum þjóðbúningum og einnig œtla Alftagerðisbrœður að syngja fyrir okk- ur," segir Helga og lofar góðri skemmt- un. Helga hefur búið á Sauðárkróki í 29 ár. Hún á þrjá uppkomna syni og á Itver um sig eitt barn svo barnabörnin eru orð- in þrjú. Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjáþér? Ég borða allt, eins og köttur Bakka- bræðra. Uppáhaldsdrykkur? Mysa. Hvaða heimilisstörffinnst þér skemmtilegustlleiðinlegust? Mér fmnst skenmitilegast að sauma en uppvaskið tvímælalaust leiðinlegast, sér- staklega ef ég þarf að gera það ein. Stundar þú einhverja markvissa hreyfingu eða líkamsrœkt? Ég reyni að ganga svolítið. Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé- lagasamtökum? Ég er búin að vera í Soroptimistaklúbbi Helga Sigurbjörnsdóttir. Skagafjarðar frá stofnun en það er klúbb- ur sem byggir upp á starfsgreinum Iíkt og t.d. Rotary klúbburinn. Síðan er ég í Kvenfélaginu og Félagi íslenskra leik- skólakennara. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Ég kaupi Morgunblaðið. Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? Annarsvegar er ég með fagrit og hinsveg- ar tímarótara eins og ég kalla það en það er svona léttmeti á dönsku og norsku sem ég les til að halda þeim tungumálum við. íhvaða stjörnumerki ert þú? Ég er ljón og á reyndar afmæli í dag (23. ágúst) Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? Ég er ekkert voðalega mikill tónlistarunn- andi en mér finnst gaman að hlusta á kóra. Núna finnst mér mest gaman að hlusta á spóluna frá dægurlagakcppninni sem Kvenfélagið hélt í vor. Uppáhaldsíþróttamaður? Enginn sérstakur framar öðrum. Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi? Ég horfi mjög lítið á sjónvarp. Mér finnst ágætt að fylgjast með veðrinu því veðrið kemur svolítið inn á vinnuna mína í leik- skólanum. Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Það er eins með þá eins og íþróttamenn- ina að það fer mikið eftir efnum og að- stæðum hvemig þeir haga sér. Hver er að þínu mati fegursti staður á íslandi? Fljótsdalshérað og Hallormsstaður er fal- legastur, ég kalla þann stað Mekka ís- lands. Ég var þar í tíu daga í sumar og var eins og svertingi þegar ég kom til baka. Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir að fiytja búferlum nú? Ég er nú þeim ósköpum gædd að mér hefur verið hjartanlega sama hvar ég hef verið því ég á létt með aðlögun. Ég myndi því frekar skoða atvinnumögu- leika og þannig þætti heldur en staðinn sjálfan. Hvaða hlut eðafasteign langar þig mest til að eignast um þessar mund- ir? Ég hef átt mér þann draum í nokkur ár að fá mér tölvustýrða saumavél. Hvernig vilt þú helst verjafrístund- um þínum? Mér finnst gott að slappa af heima með sjálfri mér en mér finnst líka rosalega gaman að vera í félagsstörfum og í fé- lagsskap því ég er ákaflega mikil félags- vera. Hvað œtlarðu að gera um helgina? Ég ætla að halda upp á afmæli Kvenfé- lagsins. LITAST UM AF HJALLHOL INOÓLFUR ÁSCEIR JÓHANNESSON Einkennislitir íslenskrar náttúru og ímynd Islands íslenski fáninn er blár, hvítur og rauður. Blái liturinn er talinn tákna vatn, sá hvíti táknar jökla og snjó og sá rauði eldinn í iðrum jarðar. En það eru fleiri litir í íslenskri náttúru en fánalitirnir. Fyrir framan mig liggur bókin Island - myndir eftir Eliot Porter. í henni eru 56 ljósmyndir, flestar úr íslenskri nátt- úru, en á örfáum þeirra sjást einnig mannvirki fagurfræðilega samofm íslenskum náttúruveruleika. Litadýrð náttúrunnar nýtur sín í bók Porters, ekki síst í myndum af hrauni, mosa, söndum og litlum tjömum og pollum. Á svörtu hrauni má sjá gular og gráar skófir og mosa. Á söndum og melum má sjá bleikt lambagras, hvít og blá smá- blóm og grænar jurtir. I mýrlendi má sjá smátjamir með sefi og brúna botna tjama sem þoma á sumrin. í myndum Porters njóta sín líka fjölbreytileg form og mynstur nátt- úmnnar. 1 annarri myndabók sem hann hefur gefið út í samvinnu við James Gleick og nefnist Óreglan í náttúmnni eru einnig margar ís- lenskar myndir í bland við myndir frá öðmm löndjjpi. Á íslensku myndunum er svarti liturinn áber- andi ásamt hinum fjölbreytilegum gulu litum gróðurins í hrauninu. Gulur og grár, svartur og brúnn, grænn og bleikur skapa andstæður við vötnin, jöklana og logandi hraunið í fánanum. Slíkar andstæð- ur skapa okkur andlega auðlegð með fegurð sinni. Og hin óreglu- legu form hrauna og sanda eru ekki síður andstæður við rétthymdan fánann. Ræktun er fyrirferðarmikil í stefnumótun og aðgerðum íslend- inga. Mýrar hafa verið þurrkaðar til grasræktar. Þótt gras sé nú í aukn- um mæli ræktað á auðum svæðum í þéttbýli, þá er þó mest af því ræktað til að geta búið til hey handa búfén- aði og þegar ég var unglingur í sveit mældi ég oft með augunum holt og móa út frá því hvort þar væri hægt að rækta tún. Skógrækt er stunduð hér og þar og fólk lítur upp úr amstri dagsins með því að búa til garða með fallegum trjám og plönt- um. Fegurðarskyn okkar íslendinga er mjög mótað af þessum markmið- um. Flestum finnast græn tré falleg og bændum finnst þykkir töðu- flekkir fallegir. Og lúpína, jurtin sem talin er geta breytt ófrjósömum jarðvegi í frjósaman jarðveg til gras- eða trjáræktar, er orðin svo vinsæl og áhrifamikil að mörgum finnst lúpínublái liturinn fallegur í náttúrunni. Smágróður, hraun, sandar og melar: allt á þetta undir högg að sækja vegna ræktunaráráttu okkar. Ég tel hins vegar að þessi árátta okkar sé misskilningur, ekki síst þegar ekki þarf að framleiða jafn- mikið hey og áður þurfti til að fóðra búpening. Náttúran er vel fær um það sjálf að búa til eitthvað fallegt ef hún fær að ráða, t.d. þar sem landið hefur verið friðað fyrir ágangi búfjár. Ný- lega kom ég í Héðinsfjörð og sá hvemig náttúran hefur fengið frið til að blómstra og gróðurinn að dafna. Dúnmjúkar blómabreiður eru þar sem nóg er af raka og sólskini og hrjóstmgur og viðkvæmur mela- gróður er ofar í brekkunni þar sem gróðurtíminn er styttri og jarðveg- urinn öðmvísi. Náttúran í Héðins- firði þarf ekki aðstoð, heldur frið og aðdáun. Þótt grænt, ókalið tún sé fallegt er ekki síður mikilvægt að við þró- um með okkur smekk fyrir fegurð okkar svörtu sanda, sem eru ein- stakir í sinni röð í heiminum, og líf- ríki þeirra, fyrir hraunum og mos- um þeirra með allri sinni litadýrð, fyrir þeirri náttúm sem er einstök á íslandi. Ferðafólk kemur til íslands til þess að sjá þvíumlík undur og til þess að sjá stærsta óbyggða svæði Evrópu og „auðnir" þess en hvorki fáeina reiti af jólatrjám né sjálfan Hallormsstaðaskóg. ímynd íslands út á við ætti ekki að vera grænt ísland í sólskini, heldur ekki síður það ísland sem Neil Armstrong var sýnt áður en þótti óhætt að senda hann til tungls- ins. Skrítlan sem útlendingum er oft sögð í formi spumingarinnar: Hvað á maður að gera ef maður villist í íslenskum skógi? lýsir íslandi í rauninni afar vel. (Svarið er að þá skuli standa upp og ef það dugi ekki þá skuli ganga þrjú skref og svo má bæta við að ef það virkar ekki þá sé maður ekki á íslandi). Sú mynd sem blasir við flestum ferðamönnum, erlendum og ís- lenskum, við komu til íslands er Reykjanesskaginn. Er hægt að hugsa sér öllu sérstæðari ímynd með öllum þeim fjölbreytileika, litadýrð og víðáttu sem þar er? Friðum holt og móa, sanda og auðnir, mýrlendi og vötn, jökla og ár. Tökum frá holt og mýrar áður en það verður um seinan. Mýramar em lungu landsins og hrauni og sönd- um má líkja við veðurbarin andlit. Hrjóstrin eru sérkennileg, hraunin eru viðkvæm og útlend tré skyggja á uppmnalega fegurð staða eins og Höfða í Mývatnssveit. Friðum óendanlega litadýrð íslenskra hrauna, tökum frá sanda og sökkv- um ekki hálendinu undir lón eða línur. Virðum hina íslensku ímynd af landinu, fagra en sérstæða þar sem jöklar og sandar, hraun og kjarr, holt og mýrar skipa öndvegi. Viður- kennum fegurðina og ræktum smekk fyrir óspilltri íslenskri nátt- úru án „hjálpartækja" á borð við lú- pínu og sígræn jólatré en með mosa og birki, jöklum og söndum. Rækt- um smekk, ekki gras.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.